Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Qupperneq 25
LAUGARDAGL'R 27. JA.NÚ'AK 1990.
í hvaða sæti lendir
íslenska handboltalands-
liðið í HM í Tékkóslóvakíu
og hverjir verða
heimsmeistarar?
Sigurður örn Arnarson, Fram: ís-
land lendir í 3.-4. sæti en ætli Rúss-
arnir vinni ekki mótið og verði
heimsmeistarar.
Haukur Sigurðsson, Víkingur: Ég
spái því að við lendum aftur í 6. sæt-
inu en við eigum að stefna á verð-
launasæti. Ég held hins vegar að
Rússamir vinni, þeir eru sterkir.
Árni Þór Árnason, Víkingi: Ég spái
því að ísland nái að verða í 3. sæti
og þá vinna Sovétmenn örugglega en
þeir eru með mjög sterkt lið.
Árni Ingimundarson, Fram: Ætli
ísland lendi ekki í þriðja sæti. Sovét-
ríkin verða örugglega heimsmeistar-
ar.
Baldvin Einarsson, Ármanni: Ég
held að ísland verði 6. sæti en það
er hins vegar engin spurning um að
Rússamir vinna, þeir eru með lang-
sterkasta hðið.
Ragnar Ólafsson, ÍR: Ég spái ís-
lendingum 6. sætinu og Sovétríkjun-
um efsta sætinu en sennilega tapa
þeir ekki leik á mótinu.
37
Handknattleikur unglinga
Erfitt að velja liðið því
hópurinn er mjög jafn
- segir Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari 16 ára landsliðsins
Jóhann Ingi Gunnarsson, fyrrum
landsliðsþjálfari íslands, hefur verið
ráðinn þjálfari 16 ára landshðs phta.
Þar með hefur Jóhann Ingi þjálfað
öll karlalandsliðin
Að sögn Jóhanns Inga voru 38 pilt-
ar valdir th æfinga og er það ljóst að
breiddin er mjög mikil í þessum ald-
ursUokki og því verður mjög erfitt
að velja lið. Þessu var alveg öfugt
farið í fyrra en þá var meira um
„stjörnur" í liðunum. í næstu töm
mun verða fylgst með hvemig leik-
mennirmr standa sig með hðum sín-
um og eftir hana verða valdir 24 leik-
menn. Það verður farið með þann
hóp í æfingarbúðir aö Laugarvatni
og æft stíft. Síðan verður eitthvaö
æft fram á vorið en eftir úrslitin
verður æft stíft því að hðið mun
halda th Lúxemborgar og keppa þar
á Benelux mótinu. Einnig verður
reynt að keppa við V-Þjóðverja og
Dani til að sjá hvar við stöndum
gagnvart sterkari þjóðum. Það eiga
alhr möguleika á aö komast í hðið
þótt menn hafi ekki verið valdir í
upphafi því mikU svehla er á getu
leikmanna frá hausti fram á vor.
Núverandi fyrir-
komulag gott
Ég held að núverandi keppnisfyrir-
komulag sé gott en strákarnir hafa
gott af því að spila svo marga leiki á
skömmum' tíma en hins vegar er
spurning hvort ekki líður of langt á
milli tarna. Það á líka við um meist-
araflokk að liðin æfa of mikið og spila
of lítið.
Það er mjög misjafnt í hversu góðu
standi þjálfaramáhn eru hjá félögun-
um. Sum félög hafa mjög hæfa ungl-
ingaþjálfara en hjá öðrum eru ungir
strákar sem eru að hefla ferilinn að
þjálfa og kunna ekki nóg fyrir sér.
Þó finnst mér aö mikil brotlöm sé í
markmannaþjálfun hér á íslandi.
Ég vil engu spá um framhaldið með
þetta hð en hópurinn er mjög jafn
og því er mikil samkeppni á milli
einstakra leikmanna sem á vafalaust
eftir að gera þeim gott þannig aö Uð-
ið á alla möguleika á að ná langt í
framtíðinni.
• Jóhann Ingi Gunnarsson þjálfari,
Eftir langt hlé fer keppni aftur af stað um helgina og verður leikið víða um landið i 2. og 4. flokki karla og kvenna. Um næstu helgi fer síðan fram keppni í 3. og
5. flokki.
Leikir í íslandsmóti um helgina
- eftir langt hle
í gærkvöldi hófst keppni í íslands-
móti yngri flokka á ný eftir langt
hlé, en síðast var leikiö í íslandsmóti
yngri flokka í nóvember. Um helgina
fer því fram önnur umferð hjá 2. og
4. flokki karla og kvenna og um
næstu helgi verður leikið í 3. og 5.
flokki.
í Vestmannaeyjum hófst keppni í
1. deild 2. flokks karla en 2. deildin
er leikin í Digranesi.
1. deild 2. flokks kvenna fer fram á
Seltjarnarnesi og 2. deUd í Hafnar-
flrði.
í 4. flokki karla er 1. deUd leUcin í
Garðabæ og á Selfossi er leikið í 2.
deild. í Réttarholtsskóla fer fram
keppni í 3. deild en 4. deild verður
leikin í Hveragerði.
í Seljaskóla fer fram keppni í 1. og
2. deild 4. flokks kvenna en 3. deild
veröur leUdn í Grindavík.
Um næstu helgi verður síðan leikið
í 3. flokki karla og kvenna og 5. flokki
kvenna eins og áöur sagði. Leikir í
1. og 2. deUd 3. flokks karla fara fram
í Seljaskóla en 3. deUd að Varmá. í
Hveragerði fer síðan 4. deUdin fram
og í nágrannabænum, Selfossi, er
leikið í 1. deUd 3. flokks kvenna. í
Vestmannaeyjum fer fram keppni í
2. deUd og 3. deUd verður í Vogaskóla.
í nýja íþróttahúsinu í Garðabæ fer
fram keppni í 1. deUd 5. flokk karla,
2. deild verður í Sandgerði, 3. deUd á
Akranesi og 4. deUd í Keflavík.
Unghngasíðan vih síðan hvetja aUa
sem áhuga hafa að láta sjá sig á
keppnisstöðunu og fylgjast með
skemmtUegum leikjum í íslandsmóti
yngri flokka.