Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Qupperneq 27
LAUGAÍIPAGUÍU].-JANÚAR, 1990.
39
Bítlavinafélagið hættir á fjögurra ára afmælinu
Eldd bítlalög
eitt árið enn
Ný hljómsveit er þegar í burðarliðnum
Nýhljómsveit
Bítlavinafélagiö heyrir sögunni til.
Það var lagt niöur í byrjun ársins.
Þá voru einmitt um íjögur ár liðin
síðan hópnum var hóað saman.
„Við settumst einfaldlega niður og
spurðum sjálfa okkur hvað við vild-
um gera. Hvort við ætluðum að halda
áfram aö spila bítlatónlist eitt árið
enn,“ segir Jón Ólafsson, hljóm-
borðsleikari og stofnandi hljómsveit-
arinnar. „Niðurstaðan varð sú að við
ákváðum að hætta. Þetta gerðist allt
í mesta bróðerni og allir skildu sátt-
ir.“
Bítlavinafélagið sendi fyrir síðustu
jól frá sér plötuna Konan sem stelur
Mogganum. Salan varð dræm. Fyrir
jóhn á undan átti Bítlavinafélagið
hins vegar metsöluplötuna, Tólf ís-
lensk bítlalög.
„Fólk hefur talið að við höfum
ákveðið að hætta vegna þess að plat-
an seldist ekki,“ segir Jón. „Það er
hins vegar ekki rétt. Kannski flýtti
það fyrir því að við ákváðum að taka
á málinu. En við vissum að með plöt-
unni vorum við að taka vissa áhættu.
Staðreyndin er einungis sú að við
vorum búnir að ná öllum markmið-
um sem hægt er að ná hér á landi
og ekki hvarflaði að neinum okkar
að við færum að reyna fyrir okkur
erlendis," segir Jón. „Við vorum
búnir að eiga plötu ársins, lag sum-
arsins, troðfylla hvert félagsheimilið
af öðru, halda vel heppnaða hljóm-
leika. Hefðum við haldið áfram hefð-
um við bara verið byrjaðir að endur-
taka okkur.“
Þrír liösmenn Bítlavinafélagsins
hafa ákveöið að slá saman í hljóm-
sveit með þremur úr Stjórninni,
hljómsveit Grétars Örvarssonar. I
þeirri nýju verða Jón, Eyjólfur
Kristjánsson og Stefán Hjörleifsson
ásamt Sigríði Beinteinsdóttur, Eiði
Arnarssyni bassaleikara og Þorsteini
Jónssyni trommuleikara.
„Við reiknum með að taka til starfa
í maí,“ segir Jón Ólafsson. „Senni-
lega snörum við af einni plötu til að
byrja með og förum síðan af krafti í
dansleikjahaldið. Annars er svo
skammt um liðiö ennþá frá því að
þessi nýja hljómsveit kom til tals að
engar alvarlegar ákvarðanir hafa
veriðteknarenn." -ÁT-
Helgarpopp
Bítlavinafélagiö - búið að ná þeim markmiðum sem hægt er að ná.
DV-mynd.
Eiríkur, sálin
og Todmobile
kynnt í Cannes
Midem tónlistarráðstefnan eða
kannski öllu heldur -kaupstefnan í
Cannes hefur ekki alveg farið á
mis við íslenska tónlist þetta árið.
Eiríkur Hauksson. Góður rómur
Steinar hf. hafa kynnt þrjáaf samn-
ingsbundnum listamönnum sín-
um, Sálina hans Jóns míns,
Todmobile og Eirík Hauksson.
„Okkur hefur vel tekið,“ sagði
Steinar Berg er haft var samband
við hann í Cannes fyrr í vikunni.
„Það sem ég hef heyrt hér stað-
festir bara það sem ég vissi áður,
að við höfum upp á aö bjóða tónhst
sem stendur fyllilega jafnfætis
mörgu því besta sem kynnt er hér.
Það sem háir okkur er fyrst og
fremst hve langt við erum frá öllum
öðrum."
Steinar sagði að á Midem ægði
öllu saman. Skammt frá bás fyrir-
tækisins er spænskt fyrirtæki með
aöstöðu sína og er önnum kafið við
að selja hana og rétt hjá er fyrir-
tæki að selja tónhst frá New Órle-
ans og þannig mætti lengi telja.
„Það eru sjaldnast neinar
ákvarðanir teknar á Midem,“ sagði
Steinar Berg. „Hér hittast menn,
ræðast við og kanna hvað hinir
hafa upp á að bjóða. Svo þegar heim
er komið hefjast samningaumleit-
gerður að íslensku poppi á Midem. anir.“
Skiptinemi kom
Roxette á framfæri
Sænski dúettinn Roxette á banda-
rískum skiptinema í Svíþjóö alla
frægö sína og frama vestra að
þakka. Að sögn Rohing Stone tíma-
ritsins tók skiptineminn eintak af
Look Sharp! geisladiskinum með
sér heim að dvöhnni í Svíþjóð lok-
inni. Hann lánaði kunningja sínum
hjá útvarpsstöð í Minneapohs di-
skinn. Sá byrjaði þegar að spila
lagið The Look og sendi að auki
sínum kunningjum hjá öörum út-
varpsstöðvum afrit af laginu. Áður
en langt um leið hafði það slegið í
gegn.
Þegar þetta gerðist haföi Roxette
ekki einu sinni plötusamning í
Bandaríkjunum. EMI hafnaði dú-
ettinum reyndar. Forráðamenn
fyrirtækisins létu loks undan
þrýstingi og þurftu ekki að sjá eftir
því. Lagið fór á toppinn í Banda-
ríkjunum.
Þetta er ekki einsdæmi í poppsög-
unni. Bandarískur hermaður er
sagður hafa tekið lagið Volare með
sér heim frá ítahu. Það er nú klass-
ískt. Og svipað mun hafa gerst með
japanska lagið Sukyaki. Það sló í
gegn fyrir hreina slysni.
Mezzoforte á
Bandaríkjamarkað
Mezzoforte-platan Playing For
Time kemur út í Bandaríkjunum
áður en langt um hður. Hljómsveitin
hefur átt í samningaviðræðum við
BMG-útgáfuna um langt skeið. Á
mánudaginn var var loksins gengið
frá málunum.
BMG er stórfyrirtæki á heims-
mælikvarða. Það er þýskt en lætur
jafnt að sér kveða í Bandaríkjunum
sem annars staðar í heiminum. BMG
á th að mynda RCA-fyrirtækið
heimskunna. Mezzoforte gerði ein-
mitt plötusamning við BMG um út-
gáfu í Evrópu og víðar fyrir nokkru.
Fyrsta plata hljómsveitarinnar á
merki fyrirtækisins var einmitt
Playing For Time.
Umsjón
Ásgeir Tómasson
„Bandaríski markaðurinn er mjög
deildaskiptur. Poppið er út af fyrir
sig. Sömuleiöis djass, kántrí, svört
tónhst eða rhythm ’n’ blues og svo
framvegis,” sagði Steinar Berg
ísleifsson, útgefandi Mezzoforte á ís-
landi og framkvæmdastjóri hljóm-
sveitarinnar, er hann var inntur eftir
nýja samningnum. „Það sem meðal
annars hefur tafiö fyrir Mezzoforte í
Bandaríkjunum er að menn hafa
verið í vafa um í hvaða hópi hljóm-
sveitin ætti heima. í poppi, rokki,
djassi eða jafnvel svartri tónhst.
BMG-menn ætla að flokka hana til
djasshljómsveita og verður Playing
For Time geíin út á htlu undirmerki
BMG þar í landi sem nefnist Novus.“
Að sögn Steinars Berg hefur
Mezzoforte nokkrum sinnum boðist
th að gera samning við bandarísk
hljómplötufyrirtæki. Hingaö tíl hafa
thboðin ekki þótt nógu freistandi.
Steinar kvað framtíðina verða að
skera úr um hvort Mezzoforte ætti
eftir að vegna vel á stærsta plötu-
markaöi heims eður ei. Það ylti að
miklu leyti á því hversu mikið útgef-
andinn væri thbúinn að vinna að
markaðsmálum hljómsveitarinnar.
Allt frá því að Mezzoforte sló í gegn
úti í heimi fyrir um sjö árum hafa
plötur hljómsveitarinnar selst
þokkalega vel. Seld eintök af fimm
titlum hljómsveitarinnar eru nú
komin í á aðra mhljón.
-ÁT-
Mezzoforte-menn voru í vafa um til hvaða stefnu ætti að flokka tónlist hljóm-
sveitarinnar.