Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Page 28
40
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990.
Lífestm
Orlando-flugvöllur:
farangurinn
sinn tvisvar
„Ég var alveg undrandi er ég
haíði farið i gegnura tollskoðunina
að farþegunum var sagt að láta
töskumar aftur á beltið og svo
hurfu þær bara. Mér stóð hreint
ekki á saraa," sagði ferðamaður
sem við hittum á ílugvellinum í
Orlando á dögunum.
Og var það nokkur furða þótt
manninum brygði i brún að horfa
á eftir töskunum sínura út í óviss-
una. Hann sagöist aldrei hafa séð
svona fyrirkomulag og vissi ekki á
hverju hann átti von.
í Orlando er fyrirkomulag á af-
greiðslu farþega og farangri þeirra
nokkuö frábrugðiö því sem ferða-
menn eiga aimennt að venjast. Eft-
ir aö farþegamir hafa hitt útlend-
ingaeftirlitið að máli ná þeir í far-
angur sinn á farangursbandinu og
fara með hann í gegnum tollskoð-
unina. Að henni lokinni er far-
þegunum bent á að láta töskumar
sínar á annað farangursband og
horfa á eftir þeim eitthvað út í
óvissuna.
Farþegar halda siöan upp á loft
þar sem þeir koma, töskulausir, í
anddyri flugafgreiðslunnar. Þama
hitta staðarmenn farþega sem þeir
em að taka á móti. Úr þessari bygg-
ingu er haldið meö einteinungum
yflr í aöra flugstöðvarbyggingu þar
sem farangurinn kemur aftur í jjós
á ööru farangursbandi.
Þaðan fara ferðamennirnir svo til
ákvörðunarstaða sinna.
Veðrið í útlöndum
HITASTIG I GRÁÐUM
-10 »6« lagra Otll-5 1 tll 5 í II110 11 tll 15 16 tll 20 20 lll 25
lelsinki 0
ólmur 2'
lahöfn 5
imborg 6'
Berlin 7°
Mallorca 18
Winnipeg -1
Léttakýji
Chicagi
Aiskýja& Los Angeles 8°
Byggt á veðurlréttum Veðurstolu Islands kl. 12 á hádegl, jðstudag
Þrándheimur -2
Reykjavík 1° Bergen
€ á
Þórshöfn 5° o
? -j Osló í2° t
New York 7°
Orlando 11
DVJRJ
Rigning V Skúrir *,* Snjókoma Þrumuveöur = Þoka
Snjóaði í Frakklandi:
Enn vantar goðan
skíðasnjó í Evrópu
Skíðafærið í Austurríki hefur lítið
skánað frá liðinni viku og einungis
er þokkalegt skíðafæri á þeim skíða-
stöðum sem standa hvað hæst yfir
sjávarmáli.
Obertauern: Snjóþykkt í dal 30 cm, í
skíðabrekkum 70 cm. Skíðafæri í dal
þokkalegt en snjórinn í brekkunum
er harðm-. Opnar gönguskíðabrautir
13 kílómetrar.
Anton/Arlberg: Snjóþykkt í dal er 30
cm, í skíðabrekkunum 70 cm. Mögu-
legt er á stöku staö að renna sér ofan
úr efstu hlíðum og niður á jafnsléttu.
Skíðafæri í dalnum er fremur slæmt
en gott efst í brekkunum. Opnar
gönguskíðabrautir 22 kílómetrar.
ZúrsiSnjódýpt í dal 30 cm, í skíöa-
brekkunum 50 cm. Skíðafæri gott.
Opnar gönguskíðabrautir 4 km.
Sviss
Skíðafærið í Sviss hefur lítið skán-
aö frá síðustu viku og á nokkrum
skíðasvæðanna eru lyftur enn lokað-
ar vegna snjóleysis.
Bad Scuol: Snjóþykkt í skíðabrekk-
unum 50 cm, gott skíðafæri. Færar
göngubrautir 14 kílómetrar.
Pontresina:Snjóþykkt á jafnsléttu 15
cm og lélegt skíöafæri, snjóþykkt í
brekkunum 70 cm en snjórinn þéttur
í sér og harður. Opnar gönguskíða-
brautir 120 kílómetrar.
Anermatt:Snjóþykkt í dal 10 cm,
snjóþykkt í brekkum 50 cm. Ekki
hægt aö renna sér úr efstu hlíðum
og niður á jafnsléttu. Opnar göngu-
skíðabrautir 4 kílómetrar.
Frakkland
Það léttist brúnin á Frökkum í vik-
unni því að allt í einu fór aö sryóa.
Þvi hefur skíðafærið batnað nokkuð
þótt ekki sé það enn verulega gott.
Flaine: Snjóþykkt í dal 5 cm, í
skíðabrekkum 50 cm. Hvergi hægt
að renna sér ofan úr efstu brekkum
niður á jafnsléttu en skíðafæri gott
efst í brekkunum.
Les Deux Alpes: Snjóþykkt í dal 10
cm en 60 cm í skíðabrekkunum og
þar er færið þokkalegt. Ekki hægt
að renna sér úr efstu hlíðum niður
á jafnsléttu.
Ítalía
Það er búiö að opna skíðalyftur á
stöku stað á Ítalíu. Skíðafæriö er þó
víöa slæmt og einungis á fáum stöð-
um hægt að renna sér úr efstu hlíð-
um niður á jafnsléttu. Nær alls stað-
ar er slæmt gönguskíðafæri.
Brixen/Plose: Snjóþykkt 10 cm í dal
og sléttu, 40 cm í skíðabrekkunum,
skíðafæri sæmilegt.
Gröden: Snjóþykkt í dal 5 cm, í skíða-
brekkunum 40 cm. Skíðafæri þokka-
legt í brekkunum. Opnar göngu-
skíðabrautir 5 kílómetrar.
Bormio: Snjóþykkt frá 40 cm og upp
í 80 cm. Sums staðar þokkalegt skíða-
færi.
Þýskaland
Skíðafærið á skíðasvæðunum í
Þýskalandi hefur ekki batnaö frá lið-
inni viku, sums staðar hefur snjó
raunar tekiö upp. Einungis er þokka-
legt færi á þeim stöðum sem hæst
standa yfir sjávarmáli.
Zugspitze: Snjóþykkt 115 cm, skíða-
færi gott.
Reit im WinkkSnjóþykkt í dal og
skíöabrekkum 10 cm. Fremur lélegt
skíðafæri. Færar göngubrautir 30
km.
Bodenmais:Snjóþykkt í dal 5 cm, í
brekkum 25 cm. Skíöafæri þokka-
legt, færar gönguskíðabrautir 10 km.