Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Síða 29
1
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990.
41
LífsstOl
„Viö höfum nú rekið þessa gistíaö-
stöðu í rúmt ár og verður að segja
eins og er að aðsóknin er sífeUt vax-
andi, hefur verið mjög góð nú sl. tvo
mánuði," sagði Anna Bjamason, sem
rekur gistíaðstöðu og annast mót-
töku feröamanna í litlum bæ, St.
Cloud, skammt fyrir sunnan Or-
lando.
Anna, sem var blaðamaður á DV
um árabil og skrifar raunar enn
greinar í blaðið, hefur verið búsett í
Bandaríkjunum í tvö ár og býr nú í
Flórída með manni sínum, Atla
Steinarssyni blaðamanni.
Ferðalög
Dásamleg aðstaða
„Aðstaðan tíl að taka á mótí ferða-
mönnum í Flórída er svo dásamleg
að því verður varla lýst með orðum.
Veðrið er nánast alltaf eins gott og
hægt er að hugsa sér. Hægt er að
komast í aUar hugsanlegar lystí-
semdir sér tíl skemmtunar og dægra-
styttingar. Hægt er að baða sig í sjón-
um og láta sólina verma kroppinn á
baðströndinni og svo geta ferða-
mennirnir fengið sér góðan mat á
hæfilegu verði.
Við erum með sérstakt hús á lóö-
inni hjá okkur sem við höfum leigt
út tíl íslenskra ferðamanna. í húsinu
eru tvö svefnherbergi, rúmgóð stofa,
borðkrókur og eldhús með öllum
hugsanlegum þægindum, örbylgju-
ofni, uppþvottavél og öðru því sem
nauðsynlegt telst í nútímaeldhúsi.
Það má líka taka fram að í kæli-
skápnum er að finna allt sem fólk
þarf til þess að fá sér góðan morgun-
verð, auk þess kaífi og te og ýmislegt
annað sem er að finna í venjulegu
eldhúsi. Þannig þurfa gestir okkar
ekki að byrja á því að finna sér mat-
vöruverslun áður en þeir geta fengið
sér lífsnæringu.
Gestir sóttir
á flugvöllinn
Glæný sundlaug er hér í götunni
en við húsið hjá okkur er afgirt sól-
baðsaðstaða.
Verslanir eru hér alveg í grennd-
Anna Bjarnason leigir út húsnæði
fyrir ferðalanga i Orlando.
inni og nánast allt við höndina. Það
tekur um það bil 25 mínútur að aka
í Disney-garðana og Sea World og
einn klukkutíma að aka á ströndina
við Atlantshafið, hjá Melbourne. Um
Húsið er hið fallegasta og þar geta fjórir fullorðnir og eitthvað af börnum
dvalið i einu.
20 mínútur tekur að aka í Florida
Mall, sem er stórkostleg „kringla"
með mörgum tugum verslana.
Við höfum aðstoðað fólk, sem hér
hefur dvaliö, bæði við að ná í bíla-
leigubíl, versla og leiðbeint því með
hvað er sniðugt að gera svo að tíminn
nýtist sem best. Við sækjum auðvitað
gestí okkar á flugvöllinn og sjáum
um að koma þeim þangað aftur við
brottfor. Alhr eru þakklátir fyrir þá
aðstoö, jafnt þeir sem eru vanir
ferðamenn og tala máhð reiprenn-
andi eins og þeir sem eru kannski
ragir á erlendri grund og ekki ahtof
sleipir í enskunni.
Fólkveit lítið
um Orlando
Það hefur komið okkur hjónunum
á óvart hve ferðafólk, sem hér hefur
komið, veit Utið um Orlando-svæðiö,
jafnvel þótt það hafi komið hér við
ár eftir ár á leiö sinni til baðstrand-
anna við Mexíkóflóann, Sarasota,
Tampa og St. Petersburg.
Við höfum farið með fólk í smá-
skoðunarferðir og rétt tæpt á ein-
hverjum fróöleik um svæðið og fólk
er afar þakklátt og metur staðinn
betur en áður.
Á Orlando-svæðinu væri hægur
vandi að dvelja í þijár vikur og gera
alltaf eitthvað nýtt og skemmtílegt á
hveijum degi. En það myndi taka í
pyngjuna. Því held ég að góð lausn
sé að skipta dvölinni milU Orlando-
svæðisins og strandsvæðanna. Það
kostar drjúgt að fara með börn inn í
skemmtígarðana og í leiktækin en
það kostar ekkert að vera á strönd-
inni sem er ekki síður skemmtílegt,"
segir Anna.
Upplýsingar
um verð
Gjald fyrir allt húsið (geta verið
Qórir fullorðnir og eitthvað af börn-
um) er 70 dollarar eða 4270 krónur
fyrir nóttina. Tveir einstaklingar
borga 60 doUara eða 3660 krónur. Það
kostar 30 dollara eða 1830 krónur að
ná í fólk út á flugvöU og koma því
þangað aftur.
HeimiUsfangið er Anna Bjarnason,
> 1703 Drive, St. Cloud, Fl, 34769. Sím-
inn er: 407-957-3599 og faxnúmerið er
407-957-4068.
• •
Félag íslenskra bifreiöaeigenda
er nú orðið aðUi aö bandaríska bí-
leigendafélaginu, AAA, sem er eitt
öflugasta félag í Bandaríkjunum og
hefur meira en tíu miUjónir félags-
manna, Félagar í íslenska félaginu
eiga aö fá sömu þjónustu og banda-
rískir félagsmenn.
Rétt er að benda feröamönnum,
sem hyggja á Bandaríkjaferö, á aö
taka með sér félagsskírteini sín í
FÍB tíl þess aö geta notfært sér
þessa þjónustu. Skrifstofur AAA
eru í öllum borgum Bandarikj-
anna. Á skrifstofunum er hægt að
fá ýmsa fyrirgreiðslu svo sem eins
og öll kort sem þar eru á boðstól-
um, upplýsingahandbækur, auk
þess sem ýmis önnur þjónusta get-
ur einnig komiö sér vel. Má nefna
aðstoö við að opna bfl ef lykillinn
læsist óvart inni í bflnum auk
ýmissar annarrar aðstoðar. Þá má
nefna aö hægt er að fá nákvæmlega
kortlagða ferðaleiö sem ferðamað-
urinn hyggur á og leiðbeiningar
varðaftdi leiðaval.
Mörg hótel veita félagsmönnum
AAA umtalsverðan afslátt af gist-
ingu, AUar upplýshigar um það
má lesa í ferðahandbókunum sem
fást endurgjaldslaust hjá AAA.
Undirritaöur hefur oðiö var við
að íslenskir ferðamenn, sem haim
hefur hitt í Orlando, vita yftrleitt
ekki um þessa þjónustu sem þeim
Félag íslenskra bifreiðaeigenda er nú orðið aðlli að bandaríska biletg-
endafélaginu, AAA, sem er eltt öflugasta félag i Bandarikjunum og hef-
ur meira en tiu mllljðnir félagsmanna.
stendur til boða án endurgjalds.
Fjöldi þeirra íslendinga, sem aka
bflaleigubflum i Bandaríkjunum,
er gífúrlega mikfll. Það er ekkiUtið
öryggi fyrir þá að vita að meö því
aö vera í FÍB eru þeir orönir félags*
menn í AAA.