Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Page 38
50
LAtfGAfe'DÁÓÍfe 27.1
Andlát_____________________________
Þorsteinn Kristinn Halldórsson
Þorsteinn Kristinn Halldórsson,
Borg í Garði, lést þann 19. janúar
sl. Útfor hans fer fram frá Útskála-
kirkjuídagkl. 14.
Þorsteinn fæddist að Vörum í
Garði þann 22.2.1912 og ólst þar
upp. Hann ólst upp við fiskvinnslu
og búskap og hóf sjósókn sem ungl-
ingur. Hann tók flj ótlega að sér vél- -
stjórastörf og var landformaður á
m/b Gunnari Hámundarsyni í mörg
árog var gert út frá Sandgerði og
Keflavík. Á yngri árum var Þor-
steinn við síldveiðar frá Norður-
landi og var eitt ár á Siglunesi við
fiskverkun. Árið 1953 eignaöist
hann nýbyggt skip ásamt foður sín-
um og bróður. Hlaut það nafnið
Gunnar Hámundarson eins og fyrri
skip föður hans. Fiskurinn af því
hefur alla tíð verið verkaður í húsi
útgerðarinnar að Vörum í Garði.
Þorsteinn stjórnaði verkuninni allt
til dauðadags. Árið 1939 flutti hann
að Borg, sem hann byggði sjálfur,
ogbjóþarallatíð.
Þann 4.6.1938 gekk Þorsteinn að
eiga Önnu Margréti Sumarliðadótt-
ur, f. 25.8.1917 að Meiöastöðum í
Garði. Foreldrar hennar voru Sum-
arliði Eiríksson, fiskverkandi að
Meiðastöðum, ogTómasína Odds-
dóttir húsmóðir. Þau voru bæði ætt-
uð úr Vestur-Skaftafellssýslu.
Böm Þorsteins og Önnu Margrét-
areru:
Halldór Þorsteinn, f. 12.7.1938,
matvælatæknifræðingur, búsettur í
Hafnarfirði, og er maki hans Hulda
Axelsdóttir. Em börn þeirra: Tómas
Þorsteinn, f. 15.1.1973; Þorsteinn
Axel, f. 12.3.1974; og Helga Sigur-
lína,f. 22.1.1978.
Jón Steinar Guðbjörnsson, fóstur-
sonur, f. 26.1.1942, vélstjóri, búsett-
ur í Keflavík, og er dóttir hans
Anna.f. 11.1.1969.
Gylfi, f. 31.12.1944, framleiðslu-
stjóri, nú nemandi í Fiskvinnslu-
skóla í Hafnarfirði, búsettur í Garði.
Óskírð dóttir, f. 3.4.1954, d. sama
dag.
Tómas Sumarliði, f. 25.2.1956, viö-
skiptafræðingur, búsettur á Álfta-
nesi, og er maki hans Sólbjörg
Karlsdóttir. Er barn þeirra: Guðrún,
f.5.8.1986.
Kristjana Oddný, f. 1.11.1957,
hjúkrunarfræðingur, búsett á Álfta-
nesi, og er maki hennar Ingólfur
Björgvin Ingólfsson. Barn þeirra er:
AnnaMargrét, f. 12.5.1987.
Systkini Þorsteins: Vilhjálmur
Kristján, f. 5.7.1913, búsettur í
Brekku í Garði, kvæntur Steinunni
Sigurðardóttur; Gísli Jóhann, f. 10.7.
1914, búsettur í Hafnarfirði, ekkill
Lovísu Dagmarar Haraldsdóttur;
Halldóra, f. 27.9.1915, búsett í Kefla-
vík; Steinunn, f. 29.10.1916, búsett í
Keflavík, gift Benedikt Guðmunds-
syni; Guðrún, f. 23.3.1918, búsett í
Reykjavík, gift Sigurbimi Tómas-
syni; Elísabet Vilborg, f. 22.5.1919,
búsett í Keflavík, ekkja Jónatans
Agnarssonar; Þorvaldur, f. 17.8.
1920, búsettur í Garði, kvæntur Ingi-
björgu Jóhannsdóttur; Kristín, f.
22.11.1921, búsett í Reykjavík, gift
Friðriki Sigurði Guðjónssyni; Marta
Guðrún, f. 12.2.1923, búsett í Garði,
gift Kjartani Ásgeirssyni; Helga, f.
9.9.1924, dó í æsku; Þorsteinn, f.
10.1.1927, látinn; Karitas Hallbera,
f. 12.9.1928, búsett í Garði, var gift
Einari Daníelssyni.
ForeldarÞorsteinsvoruHalldór, .
f. 22.2.1887 í Melbæ í Leiru, látinn,
útvegsbóndi og skipstjóri, og Krist-
jana Pálína Kristjánsdóttir húsmóð-
ir, f. 2.11.1885, í Koti á Vatnsleysu-
strönd, látin.
Halldór var sonur Þorsteins, út-
vegsbónda á Meiðastöðum í Garði,
Gíslasonar, b. á Augastöðum í Borg-
arfirði, Jakobssonar, Snorrasonar,
prests á Húsafelli, Björnssonar.
Móðir Gísla var Kristín Guð-
mundsdóttir. Móðir Þorsteins var
Halldóra Hannesdóttir.
Móöir Halldórs var Kristín Þor-
láksdóttir. Móðir Kristínar var
Hólmfríður Jónsdóttir, b. í Eyvakoti
á Eyrarbakka, Einarssonar, og Ing-
veldar Jónsdóttur, b í Tungu, Ás-
björnssonar.
Kristjana, móðir Þorsteins, var
dóttir Kristjáns, b. í Hellukoti, Jóns-
Þorsteinn Kristinn Halldórsson.
sonar, b. í Breiðagerði, Pálssonar,
b. í Kálíhaga í Sandvíkurhrepppi,
Vigfússonar.
Móðir Páls var Guðrún Kjartans-
dóttir. Móðir Kristjáns var Margrét
Pálmadóttir, b. í Háakoti í Meðal-
landi, Jónssonar, og Kristínar Jóns-
dóttur, Gunnarssonar frá Borgar-
felh.
Móðir Kristjönu var Vilborg Hall-
dórsdóttir, b. á Hofi, Magnússonar.
Móðir Vilborgar var Elísabet Gísla-
dóttir, b. í Útverkum í Unnarholti,
Jónssonar og Vilborgar Jónsdóttur.
HEF OPNAÐ LÆKNINGASTOFU AÐ LÁGMÚLA 5
Tímapantanirfrá kl. 10-12 virka daga í síma 34354.
Vigfús Magnússon læknir.
Sérgrein: geðlækningar.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Auglýsing um starf
námstjóra tónlistarfræðslunnar
Samkvæmt ákvæðum 71. greinar laga um breytingu á
verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, nr. 87/1989, er
hér með auglýst til umsóknar starf námstjóra tónlistar-
fræðslunnar.
Samkvæmt áðurgreindum lögum er verksvið námstjóra
tónlistarfræðslunnar yfirstjórn námskrár- og námsefnis-
gerðar, samræming náms, prófa og réttinda er þau
veita, aðstoð varðandi ráðningar kennara, ráðgjöf varð-
andi starfs- og fjárhagsáætlanir skóla, upplýsingamiðl-
un og erlend samskipti. Jafnframt skal námstjóri tónlist-
arfræðslunnar sinna ráðgjafar- og leiðbeiningarstörfum
fyrir kennara og skólastjóra tónlistarskóla. Samkvæmt
áðurnefndum lögum er námstjóri tónlistarfræðslunnar
jafnframt formaður fimm manna samstarfsnefndar tón-
listarfræðslunnar, svo sem nánar er kveðið á um í lögun-
um.
Ráðið er í starf námstjóra tónlistarfræðslunnar til fjög-
urra ára í senn. Um er að ræða hálfa stöðu.
Umsækjendur skulu hafa lokapróf frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík eða sambærilega menntun. Áskilin er
menntun í uppeldis- og kennslufræðum og starfs-
reynsla við kennslustörf í tónlistarskóla.
Umsóknir, ásamt afritum af prófskírteinum og upplýs-
ingum um menntun og fyrri störf, skulu berast mennta-
málaráðuneytinu fyrir 20. febrúar 1990. Umsækjendur
þurfa að geta tekið við starfi sem fyrst.
Laus staða
Dósentsstaða (37%) í sýklafræði við læknadeild Há-
skóla íslands er laus til umsóknar.
Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1. júlí 1990.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf um-
sækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og
störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 23. febrúar nk.
Menntamálaráðuneytið,
25. janúar 1990
NESKAUPSTAÐUR
Blaöbera vantar strax í innbæinn.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 97-71723
Heilsugæslustöð
á Blönduósi
Tilboð óskast í að fullgera húsnæði á 1. hæð heilsugæslustöðvar
á Blönduósi sem nú er tilbúin undir tréverk.
Flatarmál hússins er um 700 m2. Verkið skal unnið af einum aðal-
verktaka.
Verktími er til 1. maí 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykja-
vík, til og með föstud. 15. febrúar 1990 gegn 10.000,- kr. skila-
tryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 20. febrúar 1990
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
Frá lögmönnum
Höfðabakka
Hreinn Loftsson héraðsdómslögmaður, sem rekið
hefur eigin lögmannsstofu að Suðurlandsbraut 22,
Reykjavík, hefur frá og með 15. janúar 1990 gerst
meðeigandi í Lögfræðistofunni Höfðabakka 9 sf.
Mun hann því héðan í frá reka lögfræðistofuna í
félagi við Vilhjálm Árnason hrl., Olaf Axelsson hrl.,
Eirík Tómasson hrl. og Árna Vilhjálmsson hdl.
Jafnframt hefur verið ákveðið frá og með sama degi
að breyta nafni félagsins í Lögmenn Höfðabakka sf.
Reykjavík, 26. janúar 1990
Lögmenn Höfðabakka
Vilhjálmur Árnason hrl.
Ólafur Axelsson hrl.
Eiríkur Tómasson hrl.
Árni Vilhjálmsson hdl.
Hreinn Loftsson hdl.
Afmæli dv
Gunnar
Óskarsson
Gunnar Óskarsson, löggiltur
rafverktaki, Hjallavegi21, Reykja-
vík, verður fimmtugur á morgun,
28.janúar.
Gunnar er fæddur í Reykjavík
og ólst upp á Hjallaveginum. Hann
hóf nám í rafvélavirkjun árið 1954
hjá norskum rafvélavirkja, Har-
aíd Hansen, sem rak verkstæði við
Hverfisgötu 64. Gunnar er nú eig-
andi verkstæðisins ásamt bróður
sínum og er verkstæðið rekið að
Súðarvogi 52.
Bróðir Gunnars er Eyjólfur
Reynir, f. 3.5.1951, rafeindavirkja-
meistari í Reykjavík.
Foreldrar Gunnars eru Óskar
.Sigurður Guðjónsson vélvirki, f.
10.9.1911, ogÞóra Sigurrós
Eyjólfsdóttir húsmóðir, f. 16.3.
1911.
Skaftason
Skafti G. Skaftason, Austur-
strönd 14, Seltjarnarnesi, verður
sextugur á morgun, 28. janúar.
Skafti er fæddur í Vestmanna-
eyjum en ólst upp í Reykjavík.
Hann hefur lengst af starfað við
tankahreinsun.
Eiginkona Skafta er Arndís
Björnsdóttir.
Einar
Guðbjöm
Helgason
Einar Guðbjöm Helgason bif-
reiðarstjóri, Vitastíg 8A, Reykja-
vík, er sjötíu og fimm ára í dag.
Einar er fæddur í Holti í Álfta-
veri í Vestur-Skaftafelissýslu og
ólst upp í Vík í Mýrdal.
Þönglabakka 6, Mjödd,
noröan við
Kaupstaó.
Sími 670760.
Blómaskreytingar
við öll tækifæri.
Sendingarþjónusta.