Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Page 39
LAyGARDAGUR 27. JANÚAR 1990.
51
Eggert B. Sigurmundsson
Eggert Benedikt Sigurmundsson
skipstjóri, Laufskógum 27, Hvera-
gerði, er sjötugur í dag.
Eggert fæddist á Breiðumýri í
Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu
og ólst þar upp til fimm ára aldurs
en faðir hans var þar héraöslæknir
frá 1908-1925. Þá flutti fjölskyldan
að Laugarási í Biskupstungum en
síðan til Reykjavíkur er Eggert var
tólf ára. Hann missti móður sína
sama ár, var eitt sumar norður á
Breiðumýri, í sveit að Brjánslæk á
Barðaströnd en síðan hjá foður sín-
um í Breiðafjarðareyjum og í Bol-
ungarvík.
Eggert hóf nám við Stýrimanna-
skólann 1941 og lauk fiskimanna-
prófi hinu meira 1943. Hann stund-
aði sjómennsku frá fjórtán ára aldri
og hafði því verið til sjós í hálfa öld
er hann kom í land í árslok 1984.
Eggert var sautján ára á línuveiðar-
anum Fróða, síðan á Vestra frá
ísafirði og loks á samvinnubátun-
um.
Eftir stýrimannapróf .var hann
stýrimaöur á togamum Skuth og á
Skaftfellingi en bæði þessi skip
sigldu með fisk til Englands á stríðs-
árunum, auk þess sem hann var
stýrimaður á Dóru frá Hafnarfirði
sem sigldi til Aberdeen í stríðslok.
Eftir stríð var Eggert skipstjóri á
fiskibátnum Hugrúnu frá Bolungar-
vík og síldarbátnum Dóru, Kútter
Eyfirðingi og togaranum Guðmundi
Pétri í eigu Einars Guðfinnssonar.
Þá var Eggert íþrjúog hálft ár skip-
stjóri á Særúnu sem Einar Guð-
finnsson hafði í vöruflutningum
milli Reykjavíkur og Vestfjarða.
Árið 1966 réð Eggert sig á sanddælu-
skipið Sandey hjá Björgun hf. en þar
var hann stýrimaöur og síðan skip-
stjóri til ársloka 1984 er hann kom
íland.
Eggert kvæntist 1944 Unni Bene-
diktsdóttur húsmóður, f. 24.11.1923,
döttur Benedikts Benediktssonar,
kaupmanns á Hellissandi, og konu
hans, GeirþrúðarKrisjánsdóttur.
Eggert og Unnur hófu sinn búskap
í Bolungarvík. Þau fluttu síðan til
Reykjavíkur og bjuggu þar í þrjú ár
en fluttu þá vestur á Hellissand. Þá
fluttu þau í Kópavoginn um 1960 en
keyptu Auðsholtshjáleigu í Ölfusi
1969 og höfðu þar búskap til 1980 er
þau fluttu til Hveragerðis þar sem
þauhafabúiðsíöan. '
Eggert og Unnur eignuðust sex
syni. Þeir eru: Benedikt Geir, f. 1945,
lést af slysfórum 1950; Sigurður
Kolbeinn, f. 1949, byggingameistari
á Seltjarnarnesi, kvæntur Unu Sig-
urðardóttur húsmóður og eiga þau
þrjú börn; Benedikt Geir, f. 1950,
framkvæmdastjóri íslax á Nauteyri
við ísafiarðardjúp, kvæntur Önnu
Maríu Jónsdóttur hjúkrunarfræð-
ingi og eiga þau tvo syni; Unnsteinn
Borgar, f. 1951, rafvirki á Skarðsá á
Skarðsströnd, kvæntur Dagnýju
Karlsdóttur húsmóður og á hann
fimm börn; Ásgeir, f. 1955, bygginga-
meistari á Selfossi, kvæntur Bryn-
hildi Valdórsdóttur húsmóður og
eiga þau einn son, og Ari, f. 1959,
nemi í iönrekstrarfræði við Tækni-
skóla íslands, kvæntur Jennýju
Sveinsdóttur og eiga þau tvær dæt-
ur.
Foreldrar Eggerts voru Sigur-
mundur Sigurðsson, f. 24.11.1877,
d. 14.11.1962, hérðaðslæknir, og
kona hans, Kristjana Anna Egg-
ertsdóttir, f. 24.11.1894, d. 20.8.1932,
húsmóðir.
Sigurmundur var sonur Sigurðar,
steinsmiðs í Bræðraborg í Reykja-
vík, bróður Bjarna, langafa Einars
Hauks hagfræðings, föður Sólveigar
leikkonu. Sigurður var einnig bróð-
ir Guðrúnar, langömmu Hilmars
Guðlaugssonar, borgarfulltrúa og
formanns byggingarnefndar, og
Gylfa Thorlacius hrl. Þá var Guðrún
langamma Eyrúnar, ömmu Magn-
úsar Kjartanssonar tónlistarmanns.
Sigurður var sonur Sigurðar, b. í
Gelti í Grímsnesi, ættföður Galtar-
ættarinnar, Einarssonar. Móðir Sig-
urðar í Gelti var Guðrún Kolbeins-
dóttir, prests og skálds í Miðdal,
Þorsteinssonar en meðal afkom-
enda hans má nefna Einar Jónsson
myndhöggvara, Alfreð Flóka mynd-
listamann, Mugg, Pétur Sigurgeirs-
son biskup og Tryggva Ófeigsson
útgerðarmann. Móðir Sigurðar var
Ingunn Bjarnadóttir.
Móðir Sigurmundar var Sigríður,
dóttir Ögmundar Jónssonar, b. á
Bíldsfelli í Grafningi, og Elínar Þor-
láksdóttur.
Kristjana Anna var dóttir Eggerts
Jochumsspnar, kennara og sýslu-
skrifara á ísafirði, bróður Matthías-
ar þjóðskálds. Eggert var sonur
Jochums, b. í Skógum í Þorskafirði,
Magnússonar. Móðir Jochums var
Sigríður, systir Guðrúnar,
langömmu Áslaugar, móöur Geirs
Hallgrímssonar. Sigríður var dóttir
Ara Jónssonar, b. á Reykhólum, og
konu hans, Helgu Árnadóttur,
prests í Gufudal, Ólafssonar, lög-
sagnara á Eyri, Jónssonar, langafa
Jóns forseta og Jens rektors, langafa
Jóhannesar Nordal.
Móðir Eggerts Jochumssonar var
Afmæli
Eggert Benedikt Sigurmundsson.
Þóra, systir Guðrúnar, ömmu skáld-
anna Herdísar og Ólínu Andrés-
dætra. Þóra var einnig systir Guö-
mundar, prests og alþingismanns á
Kvennabrekku, föður Theodóru
skáldkonu, móður Guðmundar
Thoroddsen, læknaprófessors og
yfirlæknis. Guðmundur var einnig
faðir Ásthildar, móður Muggs og
ömmu Péturs Thorsteinssonar
sendiherra.
Móðir Önnu Kristjönu var Guð-
rún, systir Kristínar, móður Sigurð-
ar, skólastjóra á Laugum, Gisla rit-
stjóra og Filippíu skáldkonu (Hug-
rúnar) Kristjánsbarna, en sonur
Hugrúnar er Helgi Valdimarsson
læknir. Guðrún var dóttir Kristjáns,
b. á Ytra-Garðshorni í Svarfaðardal,
Jónssonar, og Sólveigar Jónsdóttur,
b. á Syðra-Garðshorni, Jónssonar.
ára
Sigurður Guðmundsson,
Spítalastíg3, Hvammstanga.
SnorriR.Jónsson,
Marbakkabraut 3, Kópavogi.
70 ára
Karl Guðmundsson,
Þorgeirsstöðum, Bæjarhreppi.
Kristján Þorsteinsson,
Háteigi, Borgarfiaröarhreppi.
60 ára
Magnús Alcxandersson,
Hjaröarhaga 56, Reykjavik.
50ára
Friðbjörn B. Bjamason,
Skarðsbraut 2, Akranesi.
Albert Finnbogason,
Lágholti 10, Mosfellsbæ.
Þau hjónin taka á móti vinum og
vandamönnum að heimili sínu eftir
klukkan 15.00.
JónÓlafsson,
Hvassahrauni8, Grindavík.
Bergljót Gunnarsdóttir,
Njarðagötu9, Reykjavík.
Jóhannes Stefánsson,
Svarfaöarbraut 14, Dalvík.
Þorleifur Þórarinsson,
Hverfisgötu 32, Reykjavík.
Sturla Snorrason,
Álfhólsvegi 57, Kópavogi.
Hann tekur á móti gestum í Lions-
heimilinu, Sigtúni 9, mílli klukkan
17og20.
40 ára
Ásdís Sigurðardóttir,
BaugsvegiS, Seyöisfiröi.
Hilmar J. Hauksson,
Strandaseli 7, Reykjavík.
Simon Þorteinsson,
Bárugötu 22, Reykjavxk.
Helga Dýrleif Haraldsdóttir,
Ásvegi 3, Árskógshreppi.
Guðjón Kristinn Sveinsson,
Árskógum 11, Egilsstöðum.
Til hamingju með
afmaelið 28. janúar
75 ára
Sigríður Þórðardóttir,
Vogatungu 85A, Kópavogi.
Aðalheiður Kristjánsdóttir,
Heiðvangi 4, Hafnarfirði.
Unnur Ragnarsdóttir,
Heiðargerði 6, Vatnsleysustrand-
arhreppi.
Snæbj öro Benediktsson,
Fífuhvammi l.FelIahreppí.
Valdís Kristinsdóttir,
Engimýri 10, Garðabæ.
Ragnar Sigurður Ólafsson,
Ægisbyggð 12, Ólafsfirði.
60 ára
ÓskarJónsson,
Kolfreyju, Fáskrúðsfiarðarhreppi.
Hailiði Kristbjörnsson,
Birnustöðum, Skeiðahreppi.
50 ára
Ainalía Jónsdóttir,
40ára
Margraret Mary Dwyer,
Ránarslóö 17, Höfn i Hornafirði.
Karl S. Hannesson,
Grundarási 4, Reykjavík.
Stanislawa Janina Zawadzka,
Karmelitaklaustrinu, Hafnarfirði.
Þóroddur Friðrik Þóroddsson,
Engihjalla 23, Kópavogi.
Grétar B. Þorsteinsson,
Lyngbergi 13, Þorlákshöfn.
Sigríður J. Einarsdóttir,
Kársnesbraut 7, Kópavogi.
Svanberg Árnason,
Furulundi ÍE, Akureyri.
Magnús V. Jónsson,
Efstasundi 13, Reykjavík.
Magnús Friðbergsson,
Leifsgötu 30, Reykjavik.
Byggðavegi 101G, Akureyri.
t
Innilegt þakklæti sendum við öllum þeim ersýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns mins,
föðurokkar, sonar, bróður og tengdasonar,
Ólafs Inga Jónssonar,
Sefgöröum 22, Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 11E á
Landspítalanum.
Sigríður Sigurjónsdóttir
Anna Sigurborg Ólafsdóttir Helga Guöjónsdóttir
Ingi Rafn Ólafsson Málfriður Jónsdóttir
Sigurjón Ólafsson Anna Jónsdóttir
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
TÆKNIDEILD
Útboð
Hreppsnefnd Lýtingsstaðahrepps óskar hér með eftir til-
boðum í byggingu einnar hæðar einbýlishúss úr stein-
steypu, verk nr. 10703 úr teikningasafni tæknideildar Hús
næðisstofnunar ríkisins.
Brúttóflatarmál húss er 113 m2.
Brúttórúmmál húss er 400 m3.
Húsið verður byggt við götuna Lækjarbakka 3, Lýtings-
staðahreppi, og skal skila fullfrágengnu, sbr. útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna er á skrifstofu Lýtingsstaða-
hrepps, Laugarbóli, 560 Varmahlíð, og hjá tæknideild
Húsnæðisstofnunar ríkisins, Suðurlandsbraut 24, 108
Reykjavík, frá þriðjudeginum 30. janúar 1990 gegn
10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síðar en föstudag-
inn 9. febrúar 1990 kl. 11.00 og verða þau opnuð að við-
stöddum bjóðendum.
F.h. hreppsnefndar Lýtingsstaðahrepps,
Tæknideild HR.
HUSNÆÐISStOFNUN
D83 RlKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24-108 REYKJAVÍK - SÍMI - 696900