Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Page 44
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Ás >krift - Dreifing: Sími 27022
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990.
Landhelgisgæsluvélin fann tvo ólöglega laxveiðibáta fyrir austan land:
Annar laxveiðibáturinn er
í eigu pólska rikisins
Fokker flugvél Landhelgisgæsl-
unnar fann tvo báta á meintum
ólöglegum laxveiöum fyrir austan
land í eftirlitsflugi í gær. Eru bát-
arair á sama svæöi og áður sem
er fyrir utan lögsögu íslands.
Annar báturinn heítir Mínna og
er skráður í Póllandi. Skípstjóri
bátsins er danskur og heitir Hans
Nilson og svaraði hann kalli frá
áhöfn flugvélarinnar. Hann sagöist
vera á laxveiðum og með honum
um borð væru þrír Pólveijar. Þá
sagði hann að báturinn væri í eigu
pólska ríkisins.
Minna var að veiðum um 250
sjómílur austur af Langanesi en 255
sjómílur aust-norð-austur af
Langanesi var annar bátur á lax-
veiðum. Það var Seagull sem sést
hefur þar áður. Seagull siglir undir
fána frá Panama en skipstjóri báts-
ins svaraði engu þegar áhöf flug-
vélarinnar reyndi að hafa samband
við hann. Munu eigendur hans
vera skráðir í Borgundarhólmi 1
Danmörku. Inni í landhelgi Færey-
inga sást síðan færeyskur bátur að
laxveiðum en Færeyingar hafa
kvóta til umráða þannig að þar
mun vera um löglegar veiðar að
raíða.
Ekkert sást hins vegar til þriðja
bátsins, Brodals, en ekki hefur
fengist staðfest hvar hann er skráð-
ur.
Þar sem núhefur fengist staðfest
að bátamir eru á iaxveiðum er
búist við að reynt verði með dipló-
matískum aöferðum að stöðva þær.
Því hefur enn engin ákvörðun ver-
ið tekin um að senda varðskip á
veiðisvæðið. -SMJ
- sjá nánar á bls. 2
Lögreglan í Stykkishólmi:
1 bflniim, litlu
herbergi eða
á heimilum
„Við reynum að þjappa okkur sam-
^an á þeim fimm fermetrum sem við
höfum héma á sýsluskrifstofunni.
Reyndar erum við ýmsu vanir því
lögreglustöðin hér í Stykkishólmi,
sem nú er búið að loka, er ekki nema
um þijátíu fermetrar," sagði Eðvarð
Árnason yfirlögregluþjónn í samtali
viðDV.
Vinnueftirht ríkisins lokaði lög-
reglustöðinni í Stykkishólmi á
fimmtudag. Síðan hefur lögreglan
látið fyrirberast í bíl embættisins, í
litlu herbergi á sýsluskrifstofunni
eða jafnvel á heimilum lögreglu-
manna við skyldustörf sín.
„Það liggur í loftinu að nú eru
margar hendur á lofti til að leysa
málin. Ráðuneytið hefur unnið mikið
í málinu. Peningunum er stýrt í
Réykjavík og það er ljóst að þaöan
verður lausnin að koma,“ sagði Eð-
varð. Ekki tókst aö ná tali af fulltrú-
um ráðuneytisins sem hafa með mál-
iö að gera. -ÓTT
Bændur á hlaupum
í Svínahrauni
Bændur frá Selvogi og úr Mosfells-
sveit sáust á hlaupum í Svínahrauni
í slæmu veðri í gær. Voru þeir að
leita að kindum sem tilkynnt hafði
verið um. Vegfarandi sá fimm kindur
á móts viö Litiu kaffistofuna og þótti
honum það heldur óvanalegt á þess-
um árstíma. Þegar DV fór í prentun
^ var ekki vitað hvort bændurnir
Tíöfðu náð að koma fjórfættu stroku-
dýrunumísínavörslu. -ÓTT
Dýrasti tanngarður á íslandi? „Fólk tekur eftir þessu þegar maður brosir.
Ég kom með demantana frá Argentínu og spurningin var hvað ætti að
gera við þá. Þvi ákvað ég að láta Þórarin Sigþórsson tannlækni setja þá
í tennurnar fyrir aftan augntennurnar," sagði Ragnar Mikaelsson blóma-
kaupmaður við DV. „Mér datt þessi fiflagangur í hug því maður vill fá at-
hygli á tískusýningum. Þetta sést vel á sviði, þá glampar vel á steinana
þegar maður brosir breitt í sterkum Ijósum," sagði Ragnar.
-ÓTT/DV-mynd GVA
Sérstakar láglauna-
bætur inni í myndinni
- samkomulag um kauptryggingu í sjónmál
í gær miðaði vel í kjarasamninga-
viðræöunum. Var allt með rólegra
yfirbragði í gær en á fimmtudaginn
þegar litlu munaði aö upp úr syði.
Sú nýjung var rædd í gær að sérstak-
ar bætur kæmu á allra lægstu laun
í landinu. Það hefur ekki verið inni
í myndinni fram að þessu. Aðeins
hefur veriö talað um 3 prósent launa-
hækkun. Menn voru vongóðir um
að samkomulag næðist um þetta at-
riði. Talið er að þetta muni geta
breytt miklu um framgang samning-
anna í verkalýðsfélögunum.
Þegar DV fór í prentun var tahð
að samkomulag um kauptryggingu
væri í sjónmáh. Það hefur verið eitt
helsta deiluefnið í viðræðunum alla
vikuna. TaUð er víst að launanefnd
verði skipuð og kaupmáttur miðaður
við verðlagsþróun og þar farið eftir
úrskurði kauplagsnefndar.
Að vísu hafa samningamenn verið
vongóðir lengi um að samningar
væru að takast en það hefur dregist
á langinn.
„Ég held að þetta sé ekki lengur
„úlfur, úlfur“ heldur muni takast að
loka rammanum þótt hann verði að-
eins rýmri en gert var ráð fyrir í
upphafi," sagði einn samninga-
manna í samtali við DV í gær.
Gert var ráð fyrir að aðilar vinnu-
markaðarins hittu ráðherra um
helgina en menn voru á því í gær-
kvöldi að það yrði vart fyrr en á
mánudag.
-S.dór
Fiskmarkaöurinn í Bretlandi:
Otto Wathne setti sölumet
- meðalverðið 166,37 krónur fyrir kíló af þorski
Togarinn Otto Wathne NS fékk í
gær hæsta verð sem íslenskt skip
hefur nokkru sinni fengið fyrir fisk.
Hann seldi í Grimsby 100 lestir af
þorski og fékk 1,66 pund fyrir kílóið,
eða 166 krónur íslenskar.
Eldra metiö var 1,46 punda meðal-
verð fyrir kíló af þorski og áttu það
tvö skip, Hoffell, sem fékk það verð
fyrir tveimur árum, en síðan jafnaði
Haukur GK þetta met fyrr í þessari
viku.
Skipstjóri á Otto Wathne er Trausti
Magnússon, en það var umboðsfyrir-
tækið Fylkir í Grimsby sem annaðist
söluna fyrir togarann.
Þórarinn Guðbergsson hjá Fylki
sagði í samtali við DV að fiskskortur
væri á breska markaðnum. Auk þess
hefði afli Ottos hafi verið mjög falleg-
ur fiskur.
Þórarinn sagði að rúm sjö tonn af
grálúðu úr afla Otto Watírne hefðu
veriö seld til Frakklands og hefðu 147
krónur fengist fyrir kílóið sem er
afburðagottverð. -S.dór
LOKI
Þetta hlýtur aö vera
bjartasta bros
norðan Alpafjalla!
ÍS_______________________
Veðrið á sunnudag
og mánudag:
Hvasst
sunnanlands
og vestan
Hvöss austan- og norðaustanátt
verður við suðurströndina og lík-
lega einnig á Vestfjörðum. Þurrt
veröur vestanlands og í innsveit-
um á Norðurlandi en annars él.
Frostlaust verður allra syðst á
landinu en 2-7 stiga frost í öðrum
landshlutum.
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
GÓÐIR BÍLAR
ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR
h Þjóðar hmh
SALIN
býr í Rás 2.
Kl. 16: Dagskrá-dægurmálaútvarp
Kl. 18: Þjóðarsálin, simi 38500
FM 90,1 - útvarp með sál.