Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Síða 6
6
LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990.
Útlönd
Leiðtogafimdur risaveldanna:
Miðar í samkomulagsátt
Mikhail Gorbatsjov Sovétforseti
sagöi í gær að vel miöaöi í afvopnun-
arviöræðum risaveldanna og að
verulegur árangur heföi náðst í viö-
ræðum hans og George Bush Banda-
ríkjaforseta í gær í átt til samkomu-
lags um fækkun langdrægra kjarn-
orkuvopna þjóðanna. Þá náðist sam-
komulag milli landanna sem gæti
Itíitt til banns á framleiðslu efna-
vopna um allan heim.
Sovéski forsetinn kvaðst telja að
þessi fundur yrði mjög mikilvægur,
jafnvel mikilvægari en nokkur annar
fundur sem leiðtogar risaveldanna
hefðu haldið. Það kæmi í ljós á morg-
un þegar forsetamir halda viðræð-
um sínum áfram.
Eitt meginverkefna forsetanna á
þessum leiðtogafundi risaveldanna
er að leysa ágreiningsefni þjóðanna
varðandi svokallaðan Start-sáttmála
eða samning um viðamikla fækkun
langdrægra kjarnorkuvopna risa-
veldanna. Þegar DV fór í prentur í
gærkvöldi var ekki ljóst hvort forset-
arnir myndu undirrita drög að sam-
komulagi um slíka fækkun eins og
vonast hafði verið til.
Bandarískir embættismenn sögöu
í gærdag að ekki væri um alvarlegan
ágreining milli ríkjanna að ræða en
skömmu áður en DV fór í prentun
Gorbatsjov Sovétforseti og Bush Bandaríkjaforseti takast i hendur fyrir fund sinn i Hvita húsinu í Washington í gær.
Símamynd Reuter
Eiginkonur forseta risaveldanna, þær Raisa Gorbatsjova (til hægri) og Bar-
bara Bush, fluttu báðar ávörp við skólaslit hins virta Wellesley-skólans i gær.
Símamynd Reuter
settust utanríkisráðherrar þjóðanna
niður til óvænts fundar tO að reyna
að leysa þau deiluefni sem enn voru
til staðar. í gærkvöldi var ekki ljóst
hvort þeim hefði tekist ætlunarverk
sitt. Samningur um fækkun lang-
drægra kjarnorkuvopna myndi leiða
til þrjátíu prósenta fækkunar lang-
drægra vopna, að mati sérfræðinga.
Fastlega er talið að samkomulag
um fækkun efnavopna risaveldanna
sé nú í höfn. Bush kvaðst í gær telja
að þjóðirnar litu þessi mál sömu aug-
rnn og sagði það mikilvægan áfanga.
Fyrir fundinn sagði Gorbatsjov að
sovésk yfirvöld sæju ekkert því til
fyrirstöðu að bandarískir hermenn
væru í Evrópu. Sovéski forsetinn,
sem ræddi við leiðtoga bandaríska
löggjafarþingsins áður en hann og
Bandaríkjaforseti ræddust við í gær,
sagði aö á þessum tímum örra og
stórbrotinna breytinga í Evrópu
væri nauðsyn að viðhalda stöðug-
leika í álfunni. Því væri nauðsyn á
að Bandaríkin hefðu herlið á megin-
landinu.
Sovétforseti hafnaði gagnrýni
þingleiðtoga demókrata og repúblik-
ana á efnahagsþvinganir sovéskra
ráðamanna gegn Litháum og sagði
að hann vildi það eitt að Litháar
fylgdu ákvæðum sovésku stjórnar-
skrárinnar hvað varðar sambands-
sht við ríkjasamband Sovétríkjanna.
Þá gagnrýndi hann bandarísk stjóm-
völd fyrir að veita Kína bestu við-
skiptakjör þrátt fyrir blóðbaðið á
Torgi hins himneska friöar í Peking
í fyrra. Sovétmenn höfðu vonast til
að fá bestu viðskiptakjör við Banda-
ríkin en Bush hefur sagt að til slíks
komi ekki fyrr en Gorbatsjov sest að
samningaborðinu með Litháum.
Fyrir fund þeirra Bush og Gor-
batsjovs lá fyrir að alvarlegasta
ágreiningsefni þeirra yrði hernaöar-
leg staða sameinaös Þýskalands.
Bandaríkin og aðildarríki Nato, Atl-
antshafsbandalagsins, vilja að
Þýskaland eigi fulla aðild að Nato f
kjölfar sameiningar en Sovétmenn
hafa ítrekað lýst sig andvíga slíkum
hugmyndum. Sovétforseti hefur gef-
ið í skyn að dregið hafi í sundur með
risaveldunum í þessu máli og að
framfor hafi orðið í viðræðunum um
Þýskaland. í gærkvöldi var ekki ljóst
hvort viðræöur forsetanna um fram-
tíöarhorfur Þýskalands hefðu
minnkað gjána sem er milli risaveld-
anna til þessa máls.
Reuter
KVARTMÍLUKLÚBBURINN
sími 674530 ^
KVARTMILUKEPPNI
verður haldin í Kapelluhrauni
sunnudaginn 3. júní kl. 14.00.
Keppendur verða að mæta fyrir kl. 12.00.
Beriín
sameinuð
að nýju
Yfirvöld í Austur-Berlfn til-
kynntu í gær að þau myndu
leggja af alla landamæravörslu í
austurhluta Berlínar frá og með
1. júli næstkomandi. Þar með
verður BerMn í reynd sameinuð
háttí þremur áratugum eftir að
Berlínarmúrinn skipti borginni í
tvennt.
Síðastliðinn miðvikudag til-
kynntu austur-þýskir ráðamenn
að frá og með 2. júlí mundu allir
vegir, sem skomir voru í sundur
er koramúnistar reistu hinn ifl-
ræmda múr, opnaöir á nýjan leik.
Opnun veganna tekur gildi sama
dag og áætlaö er aö myntbanda-
lag þýsku ríkjanna taki gUdi.
Rcutcr
Banna breskt
nautakjöt
Yfirvöld í Vestur-Þýskalandi
bönnuðu í gær innflutning nauta-
kjöts frá Bretlandi og fetuðu þar
með í fótspor Frakka sem bönn-
uðu allan slíkan innflutning fyrr
í vikunni. Þá ráðlögöu belgísk
yfirvöld fólki í gær að neyta ekki
bresks nautakjöts þar til rann-
sókn á því hvort mönnum stafaði
hætta af neyslu þess hefði farið
fram.
Ástæða þessa er að veiki, sem
heijar á miðtaugakerfi og heila
nautgripa og svipar til riðuveiki
í sauðfc, hefur fundist í breskum
nautgrípum. Vegna þessa máls
hefúr Evrópubandalagið boðað
landbúnaðarráöherra aðildar-
ríkjanna á neyðarfund á mið-
vikudag. Bandalagið hefur hótað
að beita lagalegum aðgerðum
gegn þeim löndum sem banna
innflutning á bresku kjöti.
Bændasamtökin í Bretiandi,
sem og breska landbúnaðarráöu-
neytið, segja innflutningsbannið
ólöglegt og óþarft. Talsmaður
ráðuneytisins segir að mönnum
stafi ekki hætta af neyslu breska
nautakjötsins.
Reutci
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóósbækurób. 3,0 Ailir
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 3-4 Ib.Sb,- Sp
6 mán. uppsögn 4-5 ib.Sb
12mán.uppsögn 4-5,5 lb
18mán.uppsögn 11 Ib
Tékkareikningar.alm. 0,5-1 Allir nema ib
Sértékkareikningar 3,0 Allir
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6mán. uppsögn 2.5-3.0 Lb.Bb,- Sb
Innlán með sérkjörum 2,5-3,25 lb
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 7-7,25 Lb.Sb
Sterlingspund 13,6-14.25 Sb
Vestur-þýskmörk 6,75-7,5 Lb
Danskar krónur 9,25-10,75 Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 13,5-13,75 Bb.Sb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 14,0 Allir
Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17,5 Bb
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 7,5-8.25 Lb.Bb
Útlán tilframleiðslu
isl.krónur 13,75-14,25 Bb
SDR 10,75-11 Bb
Bandaríkjadalir 10,10-10,25 Bb
Sterlingspund 16,8-17 Sp
Vestur-þýsk mörk 9,9-10,5 Bb
Húsnæðislán 4,0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
Cverðtr. maí 90 14,0
Verðtr. maí 90 7.9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitalajúní 2887 stig
Lánskjaravisitala maí 2873 stig
Byggingavisitala maf 541 stig
Byggingavisitala mai 169,3 stig
Húsaleiguvísitala 1,8% hækkaði 1. apríl.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,896
Einingabréf 2 2,672
Einingabréf 3 3,224
Skammtímabréf 1,659
Lífeyrisbréf 2,461
Gengisbréf 2,133
Kjarabréf 4,853
Markbréf 2.579
Tekjubréf 1,983
Skyndibréf 1,452
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2.358
Sjóðsbréf 2 1.769
Sjóðsbréf 3 1,645 —
Sjóðsbréf 4 1,397
Vaxtasjóðsbréf 1,6635
Valsjóðsbréf 1,5635
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 420 kr.
Flugieiðir 168 kr.
Hampiðjan 159 kr.
Hlutabréfasjóður 180 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 159 kr
Skagstrendingur hf. 367 kr.
Islandsbanki hf. 155 kr.
Eignfél. Verslunarb. 126 kr.
Olíufélagið hf. 449 kr.
Grandi hf. 166 kr.
Tollvörugeymslan hf. 105 kr.
Skeljungur hf. 441 kr.
(1) Viö kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.