Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Síða 9
LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990. 9 Hvítasunnuhelgin: Fáir ætla sér út úr bænum Hvítasunnuhelgin, sem jafnan er talin fyrsta ferðahelgi ársins, virðist ætla að verða með rólegasta móti ef marka má ummæli þeirra sem DV leitaði til. Ekki er vitað um neinar útiskemmtanir og flestöll tjaldstæði eru enn lokuð. Einnig er hálendið víðast hvar lokað allri umferð. Ef veður helst gott er gert ráð fyrir að sumarhúsaeigendur fjölmenni úr bænum. Á Ferðaskrifstofu BSÍ fengust þær upplýsingar að ekki væri gert ráð fyrir mikilli aukningu farþega þessa helgi. Tjaldstæði væru enn lokuð og ekki ráðgert að opna þau fyrr en aðra helgina í júní. Innanlandsflug verður með hefð- bundnum hætti og samkvæmt upp- lýsingum Flugleiða er ekki gert ráð fyrir auknum farþegafjölda. Löggæsla í nágrenni Reykjavíkur verður töluverð. Þrír vegaeftirlits- bílar ásamt mótorhjólum, verða á ferðinni og þyrla Landhelgisgæsl- unnar verður á sveimi. Ætlarðu í útilegu um helgina? Helga Sigrún Gísladóttir, 13 ára: „Það er ekkert ákveðið. Æth ég verði ekki bara heima og hjálpi mömmu og pabba í nýju íbúðinni." Sjöfn Þór, 14 ára: „Ég ætla heim til Patreksfjarðar um helgina en ég er hér í vikufríi. Ég held að alhr séu að vinna fyrir vestan um helgina og fari því ekki neitt.“ Nathan Richardsson, 13 ára: „Ég veit það ekki. Það kemur bara í ljós. Ég er ekki mikið fyrir útilegur og var reyndar í Danmörku í fyrra og er á leið þangað aftur fljótlega.“ Heimir Sveinsson, 16 ára: „Jú, ég býst við að fara á Laugarvatn. Ég var í Hveragerði í fyrra en fer htið í úti- legur og hef ekki planað neina slíka í sumar.“ ( • • • nema bíllinn sem þú fœrð til umrdða þegar þúferð með Arnarflugi til Amsterdam) Þú segir að þetta geti ekki átt sér stað. En líttu á málið með okkur hjá Arnarflugi. 2 Þú greiðir 27.880 krónur fyrir farið með Arnarflugi til Amsterdam » fram og til baka. Ef þú ætlar að dvelja í viku í áfangastað, stendur þér jafnframt í til boða bílaleigubíll í flokki B (Ford Fiesta/Peugeot 205) o til umráða án nokkurs leigugjalds. Tilboðið stendur til 15. júní og miðast við i. að ekki séu færri en tveir um bíl. 1 Með Arnarflugi margborgar sig að vera úti að aka. ARNARFLUG -flug og bíll ogferðalög

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.