Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Qupperneq 11
 Ul „Ég var fimm ára þegar ég byrjaði að læra á flðlu og það var vegna áhrifa frá móður minni, Emu Más- dóttur fiðlukennara, og eldri systur minni, Sigurlaugu, sem var þá að læra á fiðlu,“ segir Sigrún Eðvalds- dóttir, 23ja ára fiðluleikari, sem mun leika við opnun Listahátíðar í dag og leika einleik á tónleikum Sinfón- íuhljómsveitar íslands 13. júní. Sig- rún þykir mjög efnileg og hafa marg- ir talað um hana sem undrabarnið. „Þegar ég var barn æfði móðir mín sig mikið á fiðlu. Ég haföi mjög gam- an af að hlusta á hana. Æth ég hafi ekki haft þetta mikinn tónlistará- huga,“ segir Sigrún ennfremur. Fað- ir hennar, sem er skipstjóri, leikur ekki á hljóðfæri en Sigrún segir hann afar góðan hlustanda. Sigrún telur það ekki hafa verið mikiö mál að hefja tónhstamám svo ung. „Áhuginn var sterkur,“ segir hún. „Þó kom upp smátímabil að mig langaði að hætta þar sem fiðlu- kennslan var á sama tíma og bama- tíminn í sjónvarpinu." Fyrsta árið kenndi móðir Sigrúnar henni en næsta ár á eftir fór hun í Bamamúsíkskólann hjá Gígju Jó- hannsdóttur. Sigrún viðurkennir að fiðluleikurinn hafi verið nokkuð erf- iður vegna þess hversu mikið mæðir á öxlunum. „Maður venst þó stöð- unni. Hreyfingamar em einhæfar og nauðsynlegt að stunda sund eða hlaup með.“ Sigrún er uppalin í Garðabæ og stundaði nám í Garðaskóla og síðan Fjölbrautaskólanum í Garðabæ með- fram tónhstarnáminu. Hún var að- eins sautján ára gömul, og yngst, er hún útskrifaðist úr Tónhstarskólan- um. „Það er ekki hægt að gera allt í einu og mig langaði mikið tíl að mennta mig meira í tónhst. Þess vegna tók ég þá ákvörðun að hætta í fjölbraut og fara til Bandaríkj- anna,“ segir Sigrún. Bjó hjá frægum fiðluleikurum „Ég hélt utan í janúar árið 1984 og fór þá tíl hjóna, fiðlukennara sem heita Roland og Almita Vamos, en Sigrún Eðvaldsdóttir fiöluleikari er aðeins 23ja ára en hefur samt náð mjög langt í fiðluleik. Hún er búsett í Banda- ríkjunum en kom hingað til lands til að leika á Listahátið. DV-mynd Brynjar Gauti hvoru. En þetta er auðvitað bara draumur," segir Sigrún og hlær. Kemst í stóra keppni Sigrún hefur tekið þátt í þremur keppnum á undanförnum árum en segist aðeins hafa verið tilbúin í eitt skiptið. Þrátt fyrir það hefur henni alltaf gengið vel. í september hefur Sigrún hug á að taka þátt í mikil- vægri keppni í Indianapohsh. „Þetta er mjög stór keppni í Ameríku og í þriðja skipti sem hún er haldin. Ég þurfti að skila kassettu með mér inn en aðeins 66 komust inn af 150 um- sækjendum. En þetta er erfið keppni og ég verð að æfa mig eins og brjál- æðingur i allt sumar. Önnur keppni sem ég hef áhuga á verður í Finn- landi í desember. Ef mín kassetta verður tekin inn þar fer ég í keppn- ina,“ segir Sigrún. „Verðlaunin í keppninni í Indianapohsh eru 20 þús. dollarar og einnig eru peningaverð- laun fyrir annað og þriðjá sætið.“ Systir Sigrúnar, Sigurlaug, lauk Bachelor gráðu í fiðluleik frá Tónlist- arháskóla Manhattan í New York og býr nú í Mexíkó þar sem hún spilar á fiðlu. Sigrún segir að mjög margir íslenskir nemendur séu nú í námi í Bandaríkjunum í fiðluleik. „Sumir koma heim aftur en aðrir setjast að í útlöndum. Ég hef tekið eftir að það er verulega mikill áhugi á tónlist á íslandi. Mælikvarðinn á tónhstar- kennslu og tónlistarmenn er mjög hár hér á landi miðað við hversu fámenn þjóðin er. Þetta er merkilegt. Einnig er svo skemmtilegt við íslend- inga að þeir hlusta vel á tónhst. Mað- ur finnur góðu straumana." Sigrún hefur leikið inn á þijár plöt- ur. Geisladisk með íslensku verki eftir Hafliða Hallgrímsson með Sin- fóníunni, þá lék hún á plötu fyrir Vímulausa æsku og einnig fór hljóð- ritun fram er hún lék í keppninni í Þýskalandi. Alltaf yngst í dag er stór stund fyrir Sigrúnu því hún á að spha viö opnun Listahá- tíðar. „Þetta er mjög spennandi því ég mun leika Carmen með Sinfóníu- Snjall fidluleikari: íslendingar kunna að hlusta - segir Sigrún Eðvaldsdóttir sem mun leika á Iistahátíð þau hafa komið hingað tíl lands og haldið tónleika. Þau eru yndislegt fólk. Ég bjó hjá þeim í fimm mánuði og þau undirbjuggu mig fyrir nám í Curtis tónhstarháskólanum í Phila- delphiu. Þessi hjón eru bestu kennar- ar sem ég hef nokkurn tíma haft Og hafa hjálpað mér mest. Þau búa núna í Minnesota og ég heimsæki þau oft,“ segir Sigrún. I fjögur ár stundaði hún fiðlunám í Curtis Institute of Music og lauk þaðan Bechelor of Music prófi árið 1988. „Ég get ekki neitað því að það var erfitt að fara að heiman svona ung og heimþráin plagaði mig alltaf og gerir oft enn.“ Curtis tónlistarskóhnn er mjög virtur skóh en htih. Það er mjög erf- itt að komast þar að en þeir sem eru svo heppnir þurfa ekki að greiða skólagjöld. Þegar Sigrún sótti um voru allmargir umsækjendur en hún var sú heppna því nemendum er aldrei fiölgað í skólanum. Einn kemst inn í stað eins sem útskrifast. Bauðst að spila í kvartett „Þegar ég útskrifaðist langaði mig ekki að halda áfram og taka masters- gráðu. í svona skólum er maður númer, ekki manneskja. Ég var orðin leið á að vera númer og langaði þess vegna að halda áfram í einkatímum. Það má bara því miður ekki í sam- bandi við lánasjóðinn né heldur sem útlendingur í Bandaríkjunum. Regl- ur þar segja manni að vera annað- hvort í vinnu eða skóla. Þegar ég var að velta hlutunum fyrir mér var hringt í mig og mér boðið að vera fyrsti fiöluleikari í Miami strengjakvartettinum. Ég fór að gamni mínu í prufu og leist mjög vel á og gat því ekki sagt nei. Það var ekki ætlun mín að verða kvartett- leikari. Nú hef ég verið í Miami strengjakvartettinum í tvö ár og það hefur verið mjög skemmtilegur tími. Við komum m.a. hingað til lands í fyrrasumar á hundadögum og lék- um. Þó þetta hafi verið góður tími er ég samt að hætta,“ segir Sigrún. „Það er ekki bæði hægt að vera í kvartett og komast áfram sem ein- leikari. Tími minn á Flórída var lær- dómsríkur. Ég kenndi um tíma í Tón- listarskólanum á Miami og hafði mjög gaman af því.“ Sigrún segir að þaö hafi verið mik- il viðbrigði að flytja frá Philadelphiu ttl Miami á Flórída. „Það er eins og allir séu í sumarfríi á þessum stað og því erfitt að einbeita sér. Auk þess hefur fólk þarna ekki mikið vit á menningu en Miamibúar eru að reyna að byggja listalífið upp. Nú er ég hætt og á næstunni ætla ég ekkert að gera nema æfa mig og fara í keppni. Einleikur er framtíðin Til að verða einleikari verð ég að sigra keppni og eiga umboðsmann. Á þeim tveimur árum sem ég hef leikið með kvartettinum hef ég gert upp hug minn um áframhaldið. Mig lang- ar að vera einleikari og veit núna að ég get það. Trúin á sjálfa mig hefur styrkst," segir Sigrún ennfremur. - Finnst þér þú hafa fullnumað þig í fiðluleiknum? „Nei, ekki beint. Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt. Hins vegar er ég orðin það sjálfstæð að einn fiðlutími í mánuði nægir mér. Auk þess er ég þrjósk og hef það sterkar skoðanir að það gæti jafnvel verið óþægilegt að fara í fleiri fiðlutíma." Óskastaða Sigrúnar um þessar mundir er einleikur og henni hefur hlotnast sá heiður að minnsta kosti einu sinni á ári að hreppa það hnoss á tónleikum. Hún tók þátt í keppni sem haldin var í Þýskalandi árið 1987 og lenti í öðru sæti. „Það var mjög gott því ég fékk tónleikaferð um Þýskalandi út frá þeirri keppni. Einnig fór ég á Bienalen, fyrir unga norræna sólóista, árið 1986 og það var einnig gott því þá heyrði fólk í mér og ég var beðin að spfia. Ég þarf að spila fyrir nógu mikið af fólki og vera dugleg í keppnum, því miður er það mjög mikilvægt. Allir um- boðsmenn flykkjast á keppnir og næla sér í einhvern sem þeir hafa trú á,“ segir Sigrún. „En þetta er gífurlega erfitt. Maður þarf sjálfur að halda og vita að mað- ur geti gert þetta. Kannski getur eitt- hvað óvenjulegt hjálpað eins og að ég sé frá íslandi. Annars er ég búin að sjá marga góða einleikara svo hverfa þeir allt í einu og aðrir koma í staðinn. Mig langar samt að reyna í nokkur ár. Ég þarf að athuga hvort svona þf eigi við mig - maður þarf bara að vera svo sterkur.“ Brúðkaup á næsta ári Sigrún segir 'að ísland sé of lítiö fyrir sig sem fiðluleikara, sérstak- lega einleikara, og þess vegna er hún ekki á heimleið. „Ég vil eiga heima miðsvæðis þar sem stutt er í allt. Kærasti minn, Leigh, býr í Indiana- polish og þangað er ég að flytja en við ætlum að gifta okkur á næsta ári. Sá staður er mjög góður fyrir mig. Ég á mér þó þann draum að þegar ég eldist komi ég heim, maðurinn minn fái starf í Sinfóníuhljómsveit- inni og ég spili á tónleikum öðru hljómsveit íslands en ég hef aldrei leikið það verk áður með hljómsveit en oft með píanóleikara. Einnig mun ég leika nútímafiðlukonsert 13. júní en ég hef aldrei áður spilað sem ein- leikari fyrir íslendinga. Ég er mjög spennt vegna þess.“ Á sínum tíma var Sigrún yngsti nemandinn sem útskrifaðist úr Tón- listarskólanum og hún á það met ennþá. Hún segist vera vön því að vera alltaf yngst og þó hún sé óvenju- ungur einleikari finnst henni ekki mikið til koma. „Mér finnst ég ekk- ert sérstaklega ung, 23ja ára,“ segir hún. Þegar hún er spurð um gpnur störf eða áhugamál í gegnum tíðina svarar hún því til að enginn tími hafi gefist fyrir annað en fiðluna. - Hefur þú þá ekki gert neitt annað í lífinu en spila á fiðlu? „Nei, eiginlega ekki. Það er heil- margt sem mig langar að gera en það verður bara aö bíða. En ég lifði eðli- legu lífi miðað við jafnaldra mína. í Bandaríkjunum eru krakkar hins vegar undir stöðugri pressu með æf- ingar og allir eiga að verða bestir. Ég fór þónokkuð á tónleika sem barn og það var gott. Það mætti leggja meiri áherslu á tónlistarkennslu í grunnskólanum. Ég er viss um að það myndi vekja upp áhuga hjá þeim börnum sem eru músíkölsk," segir Sigrún Eðvaldsdóttir." -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.