Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Qupperneq 48
Veðurhorfur á sunnudag og mánudag:
Þykknar upp er líður á helgina
Á hvítasunnudag er gert ráö fyrir fremur hægri sunnan- og suðvestanátt á landinu. Víöa verður léttskýjaö á Noröur- og Austurlandi,
en skýjaö aö mestu og sums staðar smáskúrir eöa súld með köflum á Suöur- og Vesturlandi. Hiti veröur 10-18 stig.
Horfur á annan í hvítasunnu: Austan- og suöaustanátt og skýjaö um mestallt land. Dálítil rigning á Suöur- og Suövesturlandi en yfirleitt
þurrt í öðrum landshlutum. Hiti verður á bilinu 8 til 16 stig.
LOKI
Má ekki gefa húsinu í
Tjörninni nafnið Ráðríki?
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreífing: Símí 27022
Frjalst, oháð dagblað
LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990.
Rífandi
ganguri
meirihluta-
myndunum
Samkomulag um meirihlutasam-
starf virðist hafa náöst á Akranesi
og á Húsavík. Á Akranesi er hlé í
viöræöum Framsóknar og krata um
helgina nema hvað gengið veröur frá
samkomulagsdrögum til birtingar
eftir helgi. A Húsavík var samkomu-
lag um málefnasamning milh Fram-
sóknar og Sjálfstæöisflokks tilbúið í
gær og átti þá eftir að leggja þaö fyr-
ir fundi í flokkunum. Samkvæmt
heimildum DV virtist meirihluta-
samstarf aöilanna vera í höfn.
Á Eskifirði funduöu fulltrúar
Framsóknar, Alþýðuflokks og Al-
• þýðubandalags í gærkvöldi og var
von á aö drög að samkomulagi um
meirihlutasamstarf flokkanna gætu
fæðst.
í Borgamesi veröur fundað um
helgina og útlit fyrir aö viöreisn
verði mynduö.
Á ísaflrði veröur rólegt í viðræðum
en þar mun samkomulag um sam-
starf krata og Sjálfstæðisflokks vel á
veg komiö. í Ólafsvík veröur ekkert
aö gerast í viöræöum Sjálfstæöis-
flokks, Framsóknarflokks og Al-
þýðubandalags. -hlh
DV kemur næst út þriöjudaginn 5.
júní.
Smáauglýsingadeild DV er opin í
dag, laugardag, frá kl. 9-14.
Lokað á morgun, hvítasunnudag.
Opiö mánudag frá kl. 18-22.
Síminn er 27022.
SKIflll»riAII
25050
SCNDIBILASTOÐIN Hf
opið um kvöld og helgar
fóphicky 1»
Fned
Chicken
171
Faxafeni 2, Reykjavík
Hjallahrauni 15, Hafnarfirði
Kjúklingar sem bragö er aö
Opið alla daga frá 11-22
Atvinnumennska orðin alls ráðandi í íslenskri knattspymu:
Félög greiða milljónir
króna fyrir leikmenn
einnig er farið að greiða bónus fyrir unna leiki
í ár hefur mikið verið um það
rætt að góðir leikmenn, sem skipt
hafa umfélög í knattspyrnunni, fái
stórfé fyrir. Ríku félögin séu tilbúin
til aö greiða milljónir króna fyrir
bestu leikmennina. Þessi umræöa
hefur vaknað á ný eftir að Atli
Eðvaldsson gekk til liðs við KR i
fyrradag.
Atli gerði i fyrra tveggja ára
samning við tyrkneskt knatt-
spymufélag. Fyrir þaö fékk hann
mikla peninga eins og atvinnu-
knattspymumenn fá þegar félög
kaupa þá. Atli er hálfnaöur með
samninginn viö tyrkneska félagiö
en getur fengið sig lausan eigi að
síður. Hann getur einnig farið til
Tyrklands í haust og lokið sínum
samningi og fengið launin sin.
•Þennan samning varð KR að kaupa
til að fá Atla í sínar raðir. Engin
leið er að fá uppgefið hvert kaup-
verðiö á Atla er en þar er um marg-
ar milljónir króna að ræða.
Fyrir að leika með Val sumariö
1988 fékk Atli 2 milljónir króna.
Þetta fékk DV staðfest í gær. Síðan
eru liðin tvö ár og Atli þar að auki
með samning í höndunum við
Tyrkina.
Þá hefur DV fengið staðfest að
bæði Fylkir og Breiðablik reyndu
mikiö til að fá Pétur Ormslev til sín
í vetur. DV hefur heimildir fyrir
þvi aö Fylkir hafi boðið honum 1,5
milljónir króna fyrir að koma.
Breiðablik bauð svipað. Fram tókst
að halda Pétri.
Toppleikmenn, sem skipt hafa
um félög, fá frá 1,5 milljónum króna
fyrir skiptin. Fullyrt er að lands-
liðsmaöur kosti ekki minna en 2
milljónir króna ef félag ætlar að fá
hann til sín.
Margir frægir kappar hafa skipt
um félag í ár. Nefna má Ólaf Gott-
skálksson markvörð sem fór úr ÍA
í KR. Ragnar Margeirsson sem fór
í KR. Kiartan Einarsson úr ÍBK og
Heimir Guðjónsson úr KR fóru i
KA og fleiri mætti nefna.
Þá eru sum félögin með júgóslav-
neska leikmenn sem að vísu voru
ekki keyptir en hafa mjög góð laun
hjá félögunum íyrir að leika með
þeim.
Þá hefur DV það eftir öruggum
heimildum að minni félögin, og það
alveg niður í 2. deíld, séu farin að
greiða leíkmönnum sinum bónus
fyrir unna leiki. Eitt 2. deildar liö-
anna greiðir sinum mönnum 8 þús-
und krónur hverjum fyrir unninn
leik.
Það er því ekkert leyndarmál
lengur að atvinnumennska í fullri
alvöru hefur hafið innreið sína i
íslenska knattspyrnu.
-S.dór
Gjaldheimtan
lokar aðalskrif-
í
stofu Arnarflugs
flug eðlilegt
Það fer vel á með Sigurjóni Péturssyni, borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins, og Davíð Oddssyni borgarstjóra er
þeir skoða hið nýja ráðhús Reykjavikur. Reisugildi ráðhússins var í gær og í tilefni dagsins skoðuðu borgarfulltrú-
ar og gestir hið fokhelda hús. Borgarfulltrúi Kvennalistans mætti hins vegar ekki og með því vildi listinn mót-
mæla staðsetningu ráðhússins í Tjörninni. DV-mynd Brynjar Gauti
Gjaldheimtan í Reykjavík lokaði
aðalskrifstofum Amarflugs rétt fyrir
klukkan fimm í gær vegna vanskila
fyrirtækisins á staðgreiðslu skatta
starfsfólksins. Til að koma í veg fyrir
lokun hefði fyrirtækið þurft að reiða
fram um 7 milljónir króna. Það tókst
ekki.
Að sögn Óla Tynes, blaðafulltrúa
Arnarflugs, veröur helgin notuð til
þess að safna saman þessum fjár-
munum og stefna forsvarsmenn fyr-
irtækisins að því að skrifstofan verði
opnuð upp úr klukkan níu á þriðju-
dagsmorgun. Ef það tekst mun lok-
umn lítil áhrif hafa fyrir viðskipta-
menn Arnarflugs þar sem skrifstofan
í Keflavík er enn opin og flug verður
með eðlilegum hætti um helgina.
-gse