Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1991, Side 3
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1991.
3
DV
Fréttir
Skólanefndarformaður Reykhólaskóla:
Gagnrýnin á skólastjórann
kom okkur í opna skjöldu
SUBARU LEGACY 4WD
FRÁBÆR FERÐABÍLL
til afgreiðslu strax
„Fjölmiðlar eru ekki réttur vettvang-
ur til að leysa viðkvæm mál á borð
við það sem komið hefur upp í tengsl-
um við Reykhólaskóla. Ég harma þá
umfjöllun sem var í DV á fimmtudag-
inn um þetta mál og tel reyndar að
þar sé ekki farið alls kostar rétt með
staðreyndir. Fullyrðingar um of-
stjórn skólastjórans og ranglátan aga
koma okkur gjörsamlega í opna
skjöldu," segir Steinunn Rasmus,
formaður skólanefndar Reykhóla-
skóla.
í frétt DV var greint frá því að harð-
ar deilur væru milli skólayfirvalda
og margra foreldra barna í skólan-
um. Deilurnar standa fyrst og fremst
um þá stjórnunarhætti sem settur
skólastjóri hefur innleitt á undan-
fömum tveim árum. Foreldrar saka
skólastjórann um of ranglátan aga
og of mikla stjórnsemi.
Á þriðja tug foreldra hafa krafist
þess að skólastjórinn verði ekki end-
urráðinn næsta skólaár. Ekki mun
þó reyna á þessa kröfu foreldranna
því skólastjórinn hefur ákveðið að
hætta störfum. Sömu ákvörðun hafa
kennarar skólans tekið. Einn leið-
beinandi, sem starfaði við skólann
síðastliðinn vetur, mun þó hafa tekið
þá ákvörðun að sækja um starf við
skólann næsta skólaár.
í kjölfar fréttar DV sendi skóla-
nefnd Reykhólaskóla frá sér fréttatil-
kynningu. Þar er fullyrt að í frétt
DV sé ekki farið rétt með staðreynd-
ir. Því er haldið fram að almennt séð
hafi ekki risið harðar deilur milli
foreldra og skólayfirvalda. Þvert á
móti hafi samstarf foreldra og starfs-
fólks skólans veriö með miklum
ágætum. Einnig er því mótmælt að
allir kennarar skólans hafi sagt upp
störfum.
Vegna þessarar fréttatilkynningar
frá skólanefndinni vill DV taka fram
að blaðið stendur við þá frétt sem það
birti síðastliðinn fimmtudag. Þó vili
DV taka til greina athugasemd sem
borist hefur frá einum hreppsnefnd-5
arfulltrúa, Katrínu V. Þóroddsdótt-
ur. Hún segir að sú traustsyfirlýsing
á skólastjórann, sem send hafi verið
í nafni hreppsnefndar til allra íbúa
hreppsins og greint var frá í frétt DV,
hafi ekki verið rædd né samþykkt
af nefndinni. Því sé ekki hægt að líta
á þau skrif sem traustsyfirlýsingar
frá hreppsnefndinni. -kaa
Atvinnuleysi
er fjórðungi
minna
enífyrra
í apríl síðastliðnum voru að jafnaði
1.750 manns atvinnulaus eða um 1,3
prósent af áætluðum mannafla á
vinnumarkaðinum. Samkvæmt
þessu hefur skráöum atvinnuleysis-
dögum fækkað frá mánuðinum á
undan. Skráðir atvinnuleysisdagar á
landinu öllu í apríl voru tæplega 38
þúsund eða um 1600 dögum færri
heldur en í mars. Sé litið til apríl-
mánaðar í fyrra er skráð atvinnu-
leysi nú um íjóröungi minna en mið-
að við síöustu fimm ár er atvinnu-
leysið nú ellefu þúsund dögum yfir
meðaltali.
í frétt frá vinnumálaskrifstofu fé-
lagsmálaráðuneytisins kemur fram
að í apríl reyndist atvinnuleysið ívið
meira hjá konum heldur en körlum.
Að meðaltali voru 1,5 prósent kvenna
atvinnulaus en 1,3 prósent karla
voru atvinnulaus.
Verst var atvinnuástandið á Norð-
urlandi vestra en þar reyndust 4,1
prósent kvenna og 3,2 prósent karla
vera atvinnulaus. Best reyndist at-
vinnuástandið á Vestfjörðum en þar
voru 9 karlmenn atvinnulausir en
engin kona. Á höfuðborgarsvæðinu
reyndust 0,9 prósent mannaíla á
vinnumarkaði atvinnulaus.
-kaa
Búnaður í Subaru Legacy er m.a.
• Sítengt fjórhjóladrif og hátt og lágt drif.
• 16 ventla vélar, 1.8 eða 2.2L
• 14 tommu felgur. Dekk: 14 x 185.
• Sjálfstæð gormafjöðrun á hverju hjóli.
Fimm gíra handskipting eða 4ra gíra sjálfskipting.
• Aflstýri og veltistýri.
• Samlæsing í hurðum og afturhlera.
• Rafdrifnar rúður með öryggislæsingum.
• Rafdrifnir speglar.
• Höfuðpúðar á aftursætum.
• Upphituð afturrúða með rúðuþurrku og sprautu.
• Þvottasprautur á ökuljósum.
• Aflhemlar, diskabremsur.
„Hill holder" samtenging bremsu og kúplingar í brekku.
• Útvarpsloftnet og hátalarar í hurðum.
• Hæðarstilling ökuljósa í mælaborði.
Aktu ekki út í óvissuna. - Aktu á Subaru.
Subaru er náttúrukær.
Ingvar
Helgason ht
Sævarhöfða 2
sími 91-674000
Subaru Legacy stallbakur
Subaru Legacy skutbill
■