Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1991, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1991.
Hrói höttur
í síðustu viku var frumsýnd í
Bretlandi myndin Robin Hood um
samnefnda sögupersónu. Þetta er í
sjálfu sér ekki í frásögur færandi
nema vegna þess að samtímis er
verið aö kvikmynda aðra mynd um
Hróa hött sem ber heitið Robin
Hood: Prince of Thieves og verður
hún frumsýnd 17. júlí næstkom-
andi.
En er ekki verið að bera í bakka-
fullan lækinn með því að gera tvær
myndir um sömu sögupersónuna
með svona stuttu millibili? Það er
ekki skoðun aðstandenda mynd-
anna og raunar voru uppi áætlanir
á tímabili um að gera einar íimrn
myndir um Hróa hött sem átti að
frumsýna á þessu ári. Sem betur
fer verða þær aðeins tvær.
En allt bendir til þess að sam-
keppnin um hylli áhorfenda verði
ójöfn. Fyrri myndin hefur hlotiö
frámunalega lélega dóma þar sem
sagt er að Hróa hött vanti þann
léttleika og lífsgleði sem hafi verið
aöalsmerki hans í eldri myndum.
í stað þess er gert meira úr þeirri
siðferöilegu skyldu sem rekur Hróa
áfram í baráttu hans fyrir þeim
sem minna mega sín.
Hörkusamkeppni
Leikstjórinn John Irvin hefur
mikla reynslu að baki sem hann
öðlaöist á sínum yngri árum þegar
hann vann fyrir breska sjónvarpið.
Hann hefur einnig leikstýrt mynd-
um á borð við Champions og Ham-
burger Hill sem fjallaði um Víet-
namstríðið. Samt sem áöur nær
hann aldrei góðum tökum á efnis-
þræðinum og þrátt fyrir tilheyr-
andi skylmingar og slagsmál tekst
honum aldrei að lyfta myndinni
upp úr meðalmennskunni.
Þaö er fátt frægra leikara í mynd-
inni en það er Patrick Bergen sem
leikur Hróa hött. Samkvæmt þessu
ætti að vera auðvelt fyrir seinni
myndina að skjóta þeirri fyrri ref
fyrir rass, ekki síst þegar haft er í
huga að sjálfur Kevin Costner fer
með hlutverk Hróa hattar.
Síöan þetta var ákveöið hefur
Kevin hlotið óskarsverðlaunin fyr-
ir mynd sína Dances with Wolves.
Það er heldur ekkert til sparað
því Kevin Costner myndin kostar
um það bil þrefalt meira en Patrick
Bergen útgáfan og telst því réttilega
til stórmynda.
Slagur í Hollywood
En hvernig byijaði þetta kapp-
hlaup um Hróa hött?
Það hófst þegar Joe Roth, sem
starfaði áður hjá óháða kvik-
myndaframleiðandanum Morgan
Creek, réð sig sem einn af yfir-
mönnum 20th Century Fox kvik-
myndaversins í Bandaríkjunum.
Hann fann þar handrit að mynd
um Hróa hött og gaf strax grænt
ljós á framleiðslu hennar.
En innan mánaðar höfðu af ein-
hverjum ástæðum fjórir aðrir aðil-
ar lýst áhuga sínum á að gera einn-
ig mynd um Hróa hött. Meðal
þeirra var m.a. fyrrverandi vinnu-
veitandi Joe, Morgan Creek, ásamt
kvikmyndarisanum TriStar.
Strax hófst mikil keppni meðal
þessara aðila um aö gera besta
kvikmyndahandritið og síðan ekki
síður um að finna hinn „rétta“
Hróa.
Svo virðist vera sem flestir hafi
komist að þeirri niöurstöðu að Ke-
vin Costner eða Mel Gibson væru
hæfastir til að skila hlutverki Rob-
in Hood, því báðir fengu þeir
hvorki meira né minna en tilboð
um aö leika í þremur af þessum
fimm myndum. Jafnvel Patrick
Bergen fékk tvö tilboð.
fyrirtækiö ákvað að bjóða tiltölu-
lega óþekktum 39 ára leikstjóra,
sem aðeins á aö baki tvær myndir
sl. tíu ár, að leikstýra Robin Hood:
Prince of Thieves.
Það sem reið baggamuninn var
að þessi leikstjóri, sem ber heitið
Kevin Reynolds, er góðkunningi
Kevin Costner.
Myndin skyldi veröa stórmynd
og ekkert til þess sparað. Þegar upp
var staðið hljóðaði kostnaðaráætl-
unin upp á eina 3 milljarða króna.
Ráð undir rifi hverju
En Fox var ekki á þeim buxunum
að gefast upp. Það var reynt að ná
samningum við Mel Gibson en án
árangurs. Sarah Radclyffe, hinn
breski framleiðandi Róbin Hood
myndarinnar fyrir Fox, var því
sett í mikinn vanda. „Raunar var
staðan sú: Hvernig er unnt að
keppa við Kevin Costner?", hefur
verið haft eftir Sarah. „Það er að-
eins hægt með mönnum eins og
Mel Gibson og ... raunar veit ég
ekki um neinn annan.“
Fox fór að velta fyrir sér að sýna
myndina aðeins í Evrópu en gera
þess í stað þrjá klukkutíma sjón-
varpsþætti fyrir Bandaríkin.
Það var á þessu stigi sem leitað
var til Patrick Bergen. „Þar sem
þetta átti að vera sjónvarpsþátta-
röð í Bandaríkjunum var hægt að
kalla á aðra deildina,“ hefur verið
haft eftir Bergin. „Eða neðsta hlut-
ann úr fyrstu deild,“ leiðréttir
hann sig eftir smá umhugsunar-
frest.
Fox í Bandaríkjunum samþykkti
síðan Patrick Bergen sem Hróa
hött, setti kostnaöarþak sem var
um 60% lægra en upphafleg áætlun
og gaf síðan grænt ljós.
Sígild sögupersóna
Hrói höttur hefur alla tíð verið
vinsælt kvikmyndaefni. Líklega er
þekktasta útgáfan hin sígilda mynd
The Adventures of Robin Hood, þar
sem Errol Flynn fór á kostum í
hlutverki hans. Myndin var gerð
1938 og tekin í lit svo atriðin í Skíri-
skógi og Nottingham kastalanum
voru einstaklega áhrifamikil á
þeim tíma.
Raunar má rekja fyrstu myndina
um Hróa hött til 1909 þótt fyrsta
myndin sem eitthvað kvað að væri
1922 útgáfan með Douglas Fair-
banks.
Það er hægt að telja upp ótal Rob-
in Hood kvikmyndaútgáfur eins og
Banditt of Sherwood Forest (1946)
þar sem Cornel Wild lék son Robin
Hood, Prince of Thieves (1948), Ta-
les of Robin Hood (1952), þar sem
Robert Clark lék Robin Hood, Men
of Sherwood Forest (1956), Son of
Robin Hood (1959), Sword of Sher-
wood Forest (1961) og svo A Chal-
lenge for Robin Hood (1973). Einnig
áttu þau góðan sprett Sean Conn-
ery og Audrey Hepbum 1976 undir
stjórn Richard Lester í myndinni
Robin and Marion.
Það hefur einnig verið gerður
fjöldi sjónvarpsþátta um kappann
eins og 165 hálftíma þættir sem
hófust 1955 undir nafninu Robin
Hoood, þar sem Richard Greene lék
Robin og svo sjónvarpsþáttarööin
Robin of Sherwood, sem hóf göngu
sína 1984.
Að lokum má geta þess að Walt
Disney gerði árið 1973 teiknimynd-
ina Robin Hood.
Það má því segja að aödáendur
Hróa hattar hafi úr miklu að velja
til samanburðar þegar þessar nýju
útgáfur af hinum sívinsæla Hróa
hetti birtast á tjaldinu hérlendis.
Kevin Costner í hlutverki Hróa hattar.
Patrick Bergin í hlutverki Hróa hattar.
Atriði úr Hróa hetti.
Málin skýrast
Þegar ljóst var að stóru kvik-
myndaverin ætluðu sér í fullri al-
vöru að láta sverfa til stáls ákváðu
tveir af minni framleiðendunum
að pakka saman og játa sig sigraða.
TriStar, sem er í eigu Colombia
kvikmyndaversins, dró sig síðan í
hlé nokkrum mánuðum seinna eft-
ir að hafa ráðið Marshall Hersko-
tivz sem leikstjóra og eytt óhemjufé
í undirbúning. Herskotivz var í
miklum vandræðum með að finna
leikara til að leika Hróa hött og
þegar hann í lokin stakk upp á
Kevin Kline leist TriStar ekki á
blikuna og viðurkenndi sig einnig
sigrað. Þá voru bara Fox og Morgan
Creek eftir.
Umsjón
Baldur Hjaltason
Fox ráðgerði að gera myndina í
Kalifomíu og áætlaði kostnað upp
á eina 2,2 milljarða íslenskra
króna. Þeir réðu leikstjórann John
McTieman, sem á að baki myndir
eins og Die Hard og The Hunt for
the Red October.
Þar aö auki tilkynntu þeir aö
Kevin Costner yrði í aðalhlutverk-
inu.
Miklar sviptingar
En raunin varð önnur. í samtali
við kvikmyndaritið Empire er haft
eftir leikstjóranum John Irvin:
„John McTieman vildi aöeins leik-
stýra myndinni ef hann fengi Kevin
Costner. Þegar Kevin ákvað að
hafna boðinu var hann út úr mynd-
inni.“
Svo virðist sem Morgan Creek
hafi fundið besta mótleikinn þegar