Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1991, Blaðsíða 48
56
LAUGARDAGUR 18. MAf 1991.
Afmæli
Gunnlaugur B. Daníelsson
Gunnlaugur Birgir Daníelsson,
sölustjóri 0. Johnson & Kaaber hf.,
til heimilis að Kötlufelli 9, Reykja-
vík, er sextugur í dag.
Starfsferill
Gunnlaugur fæddist í Reykjavík
og ólst upp þar, í Ölfusinu og í
Hveragerði. Hann stundaði nám við
gagnfræðaskóla í Reykjavík, Hér-
aðsskólann á Laugarvatni og út-
skrifaðist úr Samvinnuskólanum
1949. Þá stundaði hann námskeið í
hótelstjórn við iðnskólann í Kaup-
mannahöfn 1954-56.
Gunnlaugur starfaði hjá Samein-
uðum verktökum 1950, stundaði
veitinga- og hótelstörf við Röðul hf.
og Hotel Kong Frederik í Kaup-
mannahöfn 1952-63 en hefur síðan
verið sölumaður og síðan sölustjóri
hjá 0. Johnson & Kaaber hf.
Gunnlaugur var formaður Sölu-
mannadeildar VR í átta ár, var rit-
ari stjórnar LÍV í fjögur ár og hefur
verið félagi í JC-hreyfmgunni í átta
ár. Hann hefur starfað innan Sjálf-
stæðisflokksins í þrjátíu ár, verið
formaður Hverfafélags Fella- og
Hólahverfis í fimm ár og varafor-
maður fulltrúaráðs flokksins í
Reykjavík í tvö ár. Gunniaugur hef-
ur starfað í Oddfellow-reglunni í sex
ár og hefur verið formaður Lyfja-
vöruhóps FÍS í þrjú ár.
Fjölskylda
Fyrri kona Gunnlaugs er Elín Ól-
afsdóttir, dóttir Ólafs ðlafssonar
veitingamanns og Helgu Jóhannes-
dóttur. Gunnlaugur og Elín skildu.
Sonur Gunnlaugs frá því fyrir
hjónaband er Jens Kristján, f. 2.10.
1949, sölustjóri hjá Sól hf., búsettur
í Reykjavík, kvæntur Kristínu Guð-
mundsdóttur og eiga þau eitt barn.
Börn Gunnlaugs og Elínar eru
Guðmundur Ingi, f. 15.9.1951, sveit-
arstjóri á Hellu, kvæntur Maríu
Bush og eiga þau íjögur börn; Ólafur
Þór, f. 12.1.1955, í þróttaþj álfari á
ísafirði, kvæntur Svanhvíti Jó-
hannsdóttur og eiga þau tvö börn;
Gunnlaugur Birgir, f. 28.7.1956, tón-
listarmaður í Reykjavík, kvæntur
Signýju Guöbjarnardóttur og eiga
þau fimm börn; Þórhallur Ölver, f.
19.4.1958, verslunarmaður í Reykja-
vík, kvæntur Bertu Richter og eiga
þau þrjú börn; Fanney, f. 7.7.1960,
starfar við kvikmyndagerð í Seattle
í Bandaríkjunum, var gift Guðjóni
Guðj ónssy ni og eiga þau eitt barn.
Gunnlaugurkvæntist20.2.1966
seinni konu sinni, Birnu S. Ólafs-
dóttur, f. 7.2.1939, sölumanni og
húsmóður, en hún er dóttir Ólafs
Stefánssonar, bifreiðastjóra í
Reykjavík, sem er látinn, og Guð-
rúnar M. Brandsdóttur húsmóður.
Seinni maður Guðrúnar og stjúpi
Birnu var Einar J. Karlsson sjómað-
ur sem einnig er látinn.
Sonur Gunnlaugs og Birnu er Ein-
ar Viðar, f. 10.8.1966, sölumaður hjá
Sanitas, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Sigríði Þóru Magnúsdóttur
og eiga þau tvö börn.
Hálfsystkini Gunnlaugs, sam-
feðra, eru Grétar Bergmann, fuiltrúi
hjá SÁÁ, kvæntur Guðlaugu Berg-
mann; Guðlaugur Bergmann, kaup-
maður í Reykjavík, kvæntur Guð-
rúnu Bergmann; Ásgeir Bergmann,
umbrotsmaöur hjá Odda.
Hálfsystkini Gunnlaugs, sam-
mæðra, eru Kristjana Möller, fé-
lagsráðgjafi í Noregi; Björn Möller,
sölumaður í Reykjavík, kvæntur
Guðfríði Guðmundsdóttur; Kristján
Ásgeir Möller, smiður í Reykjavík,
kvæntur Steinunni Hjartardóttur;
Steinunn Þorsteinsdóttir húsmóðir,
gift Geir Gíslasyni.
Foreldrar Gunnlaugs: Daníel
Bergmann bakarameistari, og Þur-
íður Tryggvadóttir Möller húsmóð-
ir.
Gunnlaugur var alinn upp hjá
Kristjönu Guðlaugsdóttur og
TryggvaBjörnssyni, móðurforeldr-
um sínum, og hjá móðursystur,
Fanneyju Tryggvadóttur.
Guðlaugur og Birna munu taka á
Gunnlaugur Birgir Danielsson.
móti gestum í Lions-salnum að Sig-
túni 8 frá klukkan 17-19 á afmælis-
daginn.
Til hamingju með
afmælið 19. maí
Kristján Þorláksson, Glitvangi 27, Hafnarfirði.
90 ára
Borghildur Guðjónsdóttir, Ytri-Fagradall, Skarðshreppi. 50ára
Aðalsteinn Ingólfsson, Logafold 190, Reykjavík. Magnús Sveinbjörnsson,
70 ára
Magnús Magnússon, Háaleitisbraut 54, Reykjavík. Þórarinn Sigurmundsson, Nýbýlavegi 40, Kópavogi. Grashaga 14, Selfossi.
40 ára
Eiríkur Brynjólfsson, Ægisíðu 129, Reykjavík. Þórður Einarsson,
60 ára
Erla Bótólfsdóttir, Drápuhlíð 38, Reykjavík. Huida A. Kristjánsdóttir, Engihlíð 20, Ólafsvík. Hjörleifur Hjörleifsson, Njörvasundi 5, Reykjavík. Nýhýlavegi 50, Kópavogi. Magnea Steingrímsdóttir, Langholti 12, Akureyri. Þorsteinn Jónsson, Sóleyjargötu 5, Vestmannaeyjum. Guðmundur Karl Tómasson, Efstahrauni 18, Grindavík.
Friðþjófur Þorgeirsson, Krókahrauni 14, Hafnarfirði.
Til hamingiu með
afmælið 20. maí.
Sigrún Björgvinsdóttir, Hamrageröí, Eiðahreppi. Sigi-íður Benny Guðjónsdóttir, Einholti 7, Reykjavik.
90 ára
Þórdis ívarsdóttir, Króki, Biskupstungnahreppi.
50 ára
85 ára
Jostein Eiden, Blönduvirkjun, Svinavatnshr. Arnþrúður Eiríksdóttir, Hraunbæ 48, Reykjavik. Sigmundur Björnsson, Hvannavöllum 6, Akureyri.
Guðmundur Sigfússon, Sauðanesi, Torfalækjarhreppí. Ingibjörg Jónsdóttir, Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfirði.
75 ára 40 ára
Jón H. Magnússon, Fornusöndunt, V-Eyjafjallahreppi. Ellen Ingibjörg Árnadóttir, Bæjartúni 5, Kópavogi. Olga Soffia Siggeirsdóttir, Súluhólum 2, Reykjavík. Páll Gunnarsson,
70 ára
Guðrún Sigurðardóttir, Bakkagötu 22, Presthólahreppi, Guðrún veröur stodd hjá dóttur sinni að Sauðhúsvöllum undir Eyjafjöllum á afmælisdaginn. Björn Bergþórsson, Veisu, Hálshreppi. Lynghaga 13, Reykjavík. Friðfinnur S. Sigurðsson, Vallargötu 15, Þingeyrí. 1 riðn Valdimarsdóttir, Garðarsvegi 18, Seyðisfirði. Anna Sigurðardóttir, Hamrahlið 28, Vopnafiröi. Magnús Ólafsson, Huldulandi 44, Reykjavík. Jón Sigfús Sigurjónsson, Hófgerði 5, Kópavogi. Sigurður Ragnarsson, Lágúhlíö, Mosfellsbæ. Sveinn Þorkelsson, Suðurgötu 34, Sandgerði, Berit Helene Johnsen, Hallormsstað, Vallahreppi. Hiidur Sigurbjörnsdöttir, Breiövangi 40, Hafnarfirði,
60 ára
Sigurlaug Barðadóttir, Álfhólsvegi 125, Kópavogi. Laufcy Kristjánsdóttir, Blöndutilíð 13, Reykjavík. Jóhanna Aðalsteinsdóttir, Fellsmúia 2, Reykjavík. Annu Þórðurdóttir, Miöhrauni 2, Miklaholtshreppi.
Skúli H. Jóhannsson
Skúli Hlíökvist Jóhannsson kenn-
ari, Sunnubraut 14 í Búðardal, verð-
ur fimmtíu ára 20 maí.
Starfsferill
Skúli er fæddur í Búðardal og ólst
þar upp til tólf ára aldurs-en fluttist
þá til Reykjavíkur. Hann fluttist aft-
ur til Búðardals 1969 og hefur búið
þar síðan.
Hann lauk námi frá Gagnfræða-
skóla verknáms 1958, námi í hús-
gagnasmíði árið 1964 frá Iðnskólan-
um í Reykjavík og í húsasmíöi frá
sama skóla 1969. Skúli fékk meist-
araréttindi í báðum þessum grein-
um árið 1973 og vann við þær um
árabil. Hann lauk námi frá Kenn-
araháskóla íslands 1986-og hefur
kennt við Grunnskólann í Búðardal
frá 1973, fyrst sem stundakennari
en síðan sem fastráðinn.
Hann hefur gegnt ýmsum trúnað-
arstörfum fyrir sveit sína.
Fjölskylda
Skúli kvæntist 14. nóvember 1964
Guðrúnu Maríu Björnsdóttur, f. 6.7.
1941, kennara. Foreldrar hennar eru
Björn Magnússon, sem nú er látinn,
og Bergþóra Árnadóttir, búsett á
Akureyri.
Börn Skúla og Guörúnar eru:
Björn Hlíökvist, f. 11.8.1964, bygg-
ingartæknifræðingur í Reykjavík.
Maki hans er Sigrún Guðjónsdóttir
frá Hömrum í Haukadal og eiga þau
einn son, Skúla Hlíðkvist, f. 13.11.
1986.
Kristín Hlíðkvist, f. 11.8.1968,
nemi við Kennaraháskóla íslands.
Bergþóra Hlíðkvist, f. 26.5.1971,
nemi í Menntaskólanum við Sund.
Systkini Skúla eru: Bjarni Hlíö-
kvist, f. 14.4.1930, verkstjóri í
verksm. Vírneti í Borgarnesi,
kvæntur Guðnýju Þorgeirsdóttur.
Una Svanborg, f. 17.4.1934, skrif-
stofumaður í Afurðarsölu Sam-
bandsins í Reykjavík. Maki hennar
er Kristinn Steingrímsson.
Ómar Hlíðkvist, f. 10.1.1946, fram-
kvæmdastjóri Samskipa. Hann er
kvæntur Sesselju Hauksdóttur.
Skúli Hlíðkvist Jóhannsson.
Foreldrar Skúla eru: Jóhann
Bjarnason, f. 18.10.1902, d. 1972, frá
Leiðólfsstöðum í Laxárdal, og Þur-
íður Skúladóttir, f. 12.3.1907, hús-
móðir, frá Gillastöðum í Laxárdal.
Þau bjuggu í Búðardal um árabil en
síðar í Reykjavík. Jóhann var versl-
unarmaður hjá Kaupfélagi
Hvammsíjaröar í Búöardal og síðar
starfsmaður hjá Bréfaskóla SÍS í
Reykjavík.
Skúli veröur að heiman á afmælis-
daginn en hjónin munu halda upp
á sameiginleg stórafmæli sín 6. júlí
nk. á heimili sínu í Búðardal.
Georg Michelsen
Georg Bernhard Michelsen bakara-
meistari, Miðleiti 1 í Reykjavík,
verður sjötíu og fimm ára 20 maí.
Starfsferill
Georg fæddist á Sauðárkróki og
ólst þar upp. Hann hóf nám 1930 í
bakaraiðn á Sauðárkróki hjá Snæ-
birni Sigurgeirssyni og var þar í
þrjú ár. Hann var síðan í eitt ár hjá
Jóni Simonarssyni, Bræðraborgar-
stíg 16 í Reykjavík; þar sem hann
útskrifaðist sem bakarameistari
árið 1934. Þá fór Georg í framhalds-
nám til Danmerkur. Hann ílentist
þar og kom ekki heim til íslands
fyrr en eftir stríð árið 1946.
Georg setti á stofn brauðgerð í
Hveragerði 1946 sem hann nefndi
Hverabakarí. Hann rak hana í 33
ár, þar til hann seldi hana, 1979, og
flutti til Reykjavíkur. Georg hefur
unnið í Myllunni síðan eða í ellefu
ár.
Georg var fréttaritari Morgun-
blaðsins í Hveragerði. Hann sat í
hreppsnefnd í tólf ár og var formað-
ur barnaverndarnefndar í Hvera-
gerði.
Fjölskylda
Georg kvæntist 17. maí 1942 Jytte
Karen Michelsen, f. 28.6.1923. For-
eldrar hennar voru Georg Petersen
veitingamaður og Elly Petersen sem
bjuggu í Kaupmannahöfn. Þau eru
bæðilátin.
Börn Georgs og Jytte eru: Edda
Maríanna, fráskilin. Hún á tvær
dætur, Önnu, sem er gift á Spáni,
og írisi sem er gift Valdimar Skarp-
héðinssyni.
Linda Susanne, gift Ögmundi
Friðrikssyni. Börn þeirra eru Rósa
Hrönn, Georg Rúnar, Sara og Hall-
dóra.
Sandra Díanna, gift Guðjóni
Rúnarssyni. Börn þeirra eru Rúnar
Gauti, Finna, Katla og Frost.
Georg átti ellefu systkini en á nú
sex bræður á lífi og eina systur.
Foreldrar Georgs voru Jörgen
Frank Michelsen, f. í Horsens í Dan-
mÖrku25.1.1882, d. 16.7.1954, Úr-
smíðameistari og kaupmaður á
Sauðárkróki, og kona hans, Guðrún
Pálsdóttir, f. 9.8.1886, d. 31.5.1967,
húsmóðir.
Ætt
Jörgen var sonur Jens Michelsen
múrarameistara og konu hans, Kar-
enarMichelsen.
Guðrún var dóttir Páls, b. á
Draflastöðum í Eyjaflrði, Ólafsson-
ar, b. á Gilsbakka, Benjamínssonar.
Móðir Páls var María Jónasdóttir,
b. í Meðalheimi, Jónssonar.
Móðir Guðrúnar var Kristín
Gunnlaugsdóttir, b. á Draflastöðum,
Sigurðssonar, b. á Þormóðsstöðum,
Jónassonar, b. í Syðri-Gerðum í
Stóradal, Jónssonar, b. í Gerðum,
Einarssonar. Móðir Jónasar í
Syðri-Gerðum var Helga, systir Jós-
efs, langafa Kristjáns, afa Jónasar
frá Hriflu. Jósef var einnig langafi
Jóhannesar, afa Jóhanns Sigurjóns-
sonar skálds og Jóhannesar, afa
Benedikts Árnasonar leikstjóra,
föður Einars í Sykurmolunum. Þá
var Jósef langafi Jóns, langafa Sig-
Georg Bernhard Michelsen.
rúnar, móður Kristjáns Karlssonar
skálds. Enn var svo Jósef langafi
Ingiríðar, langömmu Steins Stein-
arr. Loks var Jósef langafi Finns
Jónssonar ráðherra, afa Hallgríms
Snorrasonar hagstofustjóra.
Annar bróðir Helgu var Jónas,
móðurafi Jónasar Hallgrímssonar
og langafi Kristínar, ömmu Krist-
jáns og Birgis Thorlacius. Þá var
Jónas langafi Friðbjörns, afa Ólafs
Jóhannessonar forsætisráðherra.
Þriðji bróðir Helgu var Davíð, lang-
afi Páls Árdal skálds, afa Páls Árdal
heimspekings og Steingríms Thor-
steinssonar prófessors. Davíð var
einnig langafi Jóns Magnússonar
forsætisráðherra. Þá var Davíð
langafi Sigríðar, langömmu þeirra
Inga Hrafns og Hannesar Péturs-
sonar skálds. Helga var dóttir Tóm-
asar, b. að Hvassafelli, Tómassonar,
ættfóður Hvassafellsættarinnar.
Móðir Kristínar Gunnlaugsdóttur
var María Siguröardóttir.