Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1991, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 18. MAÍ1991.
Veiðivon
Ætlar Davíð að enda borgar-
stjóraferilinn í Elliðaánum?
Hvort það verður Davíð Oddsson, forsætisráðherra og borgarstjóri, sem
opnar Elliðaárnar fyrsta daginn, er ekki vitað með vissu á þessari stundu.
En honum finnst það ekki leiðiniegt.
ur í veiðivatni fyrir utan Reykjavík.
Fiskurinn var fallegur og hélt mað-
urinn að þetta væri lax. Hringdi
hann í Morgunblaðið og mættu þeir
á staðinn til að mynda laxinn. Reynd-
ar hafði DV birt frétt nokkrum dög-
um áður um fyrstu laxana í Hlíðar-
vatni í Selvogi. En þaö kom annað í
ljós þegar fiskurinn var skoðaður
betur, þetta var 7 punda urriði. Hinn
fallegasti fiskur, en bara alls ekki lax.
Veiðitímaritin
í fullri vinnslu
Slagurirín á tímaritamarkaði veiði-
tímaritanna er harður þessa dagana
og vinna þau öll þessa klukkutíma
að því aö fullvinna blöðin. Þetta eru
Á veiðum, Sportveiðiblaðið og Veiði-
maðurinn. Eitt blað kemur þarna
nokkuð á eftir og er það Skotmark
sem átti að vera komið út í mars. En
ekkert bólar á því ennþá, hvað sem
nú veldur því. Um innihald blaðanna
er víst þagað þunnu hljóði.
Til hamingju með
afmaelið, Skagamenn
Stangaveiðifélag Akraness varð 50
ára fyrir skömmu og héldu þeir
Skagamenn veglegt afmæbshóf fyrir
alla sem vildu mæta. Mættu margir
veiðimenn á öllum aldri til þessa
hófs. Til hamingju, Stangaveiðifélag
Akraness.
-G.Bender
Tiltekt við veiðiárnar er nauðsyn áður en veiðitíminn hefst, eins og þeir
Óiafur H. Ólafsson, Halldór Þórðarson og Guðmundur Halldórsson gera
við Norðurá fyrir skömmu. DV-mynd Jón G.
Það er draumur margra að fá að
renna í Elliðaánum fyrstir, hvort
sem þeir heita Davíð Oddsson for-
sætisráðherra eða bara eitthvað allt
annað.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra
og borgarstjóri, er einn af debugæj-
unum í stangaveiðinni. Hann rennir
oft fyrir lax á hverju sumri, hvort
sem það er í Elliðaánum, Hafíjarð-
ará, Svartá eða bara Krossá í Bitru.
Hvort það verður síöasta embætt-
istverk Davíös að opna Elliðaárnar
þetta sumarið er ekki vitað með vissu
en hann hefur áhuga á því. Hann fær
alla vega að vera þegar borgarfull-
trúar renna fyrir lax seinna í sumar.
Allt aö komast á fullt
í Hvammsvík í Kjós
Allt er að komast á fullt i Hvamms-
vík í Kjós þar sem Lögreglufélag
Reykjavíkur hefur keypt staðinn.
Núna í maí verður opið um helgar
en strax í júní verður opið alla daga
vikunnar. Það er regnbogasbungur-
inn sem fæst til að taka agn veiði-
manna. Þeir sem vilja geta farið í
golf eða bara á hestbak sé áhugi á
veiði ekki fyrir hendi.
Laxinn varö að urriða
Opið hús hjá Stangaveiðifélagi
Reykjavíkur um síðustu helgi var vel
sótt og mjög fróðlegt. Margt
skemmtilegt kom þar fram og voru
sagðar margar veiðisögur.
Eitt vakti þó mikla athygli, þegar
veiðimaður einn mætti með lax og
hugðist gefa hann sem vinning í
happdrætti. En fiskinn hafði veiði-
maðurinn veitt nokkrum dögum áð-
Þjoðar-
spaug DV
Eyjólfur
Hér er aö finna miður skemmti-
Iega eftirmælavisu um mann
nokkurn er Eyjólfur hét:
Margir sakna eí munu hans,
menn því betri dóu.
Eyjólfur fór til andskotans
í annarri viku góu.
Bara
skjót'ann
Matthías Einarsson, sem var
yfírlæknir við St. Jósefsspítala í
mörg ár, allt til dauðadags, og
Magnús Einarsson dýralæknir
voru miklir kunningjar. Eitt sinn
voru þeir að rífast um það, hvort
erfíöara væri að lækna dýr eða
menn. Magnús dýralæknir kvað
það miklu erfiöara að lækna dýr
þar sem þau gætu ekki sagt til
eymslanna en Matthías sagði
miklu auðveldara að fást við þau
því ef ekkert fyndist meinið, þá
skipuðu dýralæknarnir einfald-
lega svo fyrir að dýrið skyldi
skotið.
Skömmu síðar veiktist Magnús
dýralæknir og var Matthías kall-
aður tii hans. Ekki gat Matthías
fundið út hvað amaði að Magnúsi
en skrifaði þó lyfseðil handa hon-
um rétti hann konu Magnúsar og
sagði um leið:
„Ef þessi meðul duga ekki þá
er ekkert annað að gera en að
skjót’ann.“
Listaverka-
sýning
Nokkrum skólanemendum var
eitt sinn boðið á nýlistasýningu á
Kjarvalsstöðum, Tveirnemendur
urðu brátt viðskila við hópinn og
sáu allt í einu brotið gler og beygl-
uð járn fyrir framan sig. Er kenn-
arinn þeirra gekk að þeim, heyrð-
ist annar nemandinn segja ótta-
sleginn:
„Komdu, Elb. Flýtum okkur í
burtu áður en þeir halda að við
höfum eyðilagt þetta.“
Finnur þú íimin breytingai? 105
Það er flugskip X39 sem kallar á stöðina. Ég er i einhverjum erfiðleik- Nafn:.....
um með aö halda mér á réttri braut...
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í Ijós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. Fimm Úrvalsbækur að
verðmæti kr. 3.743.
2. Fimm Úrvalsbækur að
verðmæti kr. 3.743.
Bækumar sem er í verðlaun
heita: Á eheftu stundu, Flugan
á veggnum, í helgreipum hat-
urs, Lygi þagnarinnar og
Leikreglur. Bækumar em
gefnar út af Frjálsri fjölmiðl-
un.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 105
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundruð-
ustu og þriðju getraun reynd-
ust vera:
1. Anna Guðrún Jósefsdóttir,
Þangbakka 10,109 Reykjavík.
2. Jón Halldórsson,
Njálsgötu 86,101 Reykjavík.
Vinningarnir verða sendir
heim.