Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1991, Blaðsíða 49
LAliGARDAGUP JL8. MAÍ 1991.
Afmæli
Þóra G. Hjaltadóttir
Þóra Guðrún Hjaltadóttir, for-
maður Alþýðusambands Norður-
lands, Holtagötu 9, Akureyri, er fer-
tugídag.
Starfsferill
Þóra fæddist að Melstað í Miðfirði
en flutti með foreldrum sínum að
Hrafnagili í Eyjafirði 1954. Hún lauk
gagnfræðaprófi frá Reykholti í
Borgarfirði 1967 og stundaði nám
við Húsmæðraskólann að Lauga-
landi í Eyjafirði 1968-69.
Á árunum 1970-80 stundaði Þóra
skrifstofustörf hj á Bifreiðaverkstæð-
inu Þórshamri hf. og hjá Endurskoð-
unarstofunni Bókend og var síðan
erindreki hjá Kjördæmisambandi
framsóknarmanna í Norðurlandi
eystra. Hún hóf störf sem vinnuha-
græðingur hjá Alþýðusambandi
Norðurlands 1980 en hún hefur veriö
formaður samtakanna frá 1981.
Þóra hefur átt sæti í miðstjórn ASÍ
frá 1984 og hefur gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum sem tengjast starfinu.
Hún hefur átt sæti í miðstjórn
Framsóknarflokksins í nokkur ár,
var um tíma í framkvæmdastjórn
flokksins, var varaformaður SUF,
formaður KFNE í eitt kjörtímabil og
var í ýmsum öðrum ráðum og nefnd-
um fyrir Framsóknarflokkinn. Þóra
var varamaður í bæjarstjórn Akur-
eyrar 1978-82 og varaþingmaður
1987-91. Hún sat í stjórn Utgerðarfé-
lags Akureyringa hf. 1983-91.
Fjölskylda
Þóra giftist 8.11.1969 Gunnari
Austfjörð en dóttir þeirra er Pálína
Austfjörð Gunnarsdóttir, f. 8.5.1970,
en hún er í sambúð með Sigurði
Sigþórssyni. Þóra og Gunnar skildu.
Þóragiftist 18.5.1986 Sigurjóni
Hilmari Jónssyni,f. 11.7.1947,húsa-
smíðameistara, en hann er sonur
Jóns Gunnlaugs Sigurjónssonar og
Birnu Finnsdóttur sem bæði eru
látin.
Sonur Þóru og Sigurjóns Hilmars
er Hilmar Þór Sigurjónsson, f. 13.3.
1986.
Börn Sigutjóns frá fyrra hjóna-
bandi eru Jón Gunnlaugur, f. 4.12.
1965, íris Björk, f. 16.4.1969, og Birna
Hrönn, f. 15.12.1972.
Systkini Þóru: Bergur, f. 20.2.1948,
rekur ásamt öðrum verslunina K.
Auðunsson í Reykjavík, en seinni
kona hans er Guðrún Júlía Haralds-
dóttir skrifstofumaður; Ingibjörg, f.
21.5.1953, húsmóðir á Merkigili í
Eyjafirði, gift Þorsteini Péturssyni
b.; Benedikt, f. 11.8.1962, b. í Hrafna-
gili; Ragnhildur, f. 28.10.1967, hús-
móðir og leiðbeinandi í Grímsey, í
sambúð með Alfreð Garðarssyni
sjómanni.
Foreldrar Þóru eru Hjalti Jósefs-
son, f. 28.5.1916, b. í Hrafnagili í
Eyjafirði, og Pálína R. Benedikts-
dóttir, f. 21.7.1925, húsfreyja.
Ætt
Hjalti er sonur Jósefs, lengst af b.
á Bergsstöðum, bróður Guðmundar
á Auðunnarstöðum, afa Friðriks
Sophussonar íjármálaráðherra.
Jósefvar sonur Jóhannesar, b. á
Auðunnarstöðum, Guðmundsson-
ar. Móðir Jóhannesar var Dýrunn
Þórarinsdóttir, systir Þuríðar,
langömmu Halldórs E. Sigurðsson-
ar, fyrrv. ráðherra. Móðir Jósefs var
Ingibjörg Eysteinsdóttir, systir
Björns í Grímstungu, afa Björns,
fyrrv. alþingismanns á Löngumýri
og langafa Páls, þingflokksfor-
manns á Höllustöðum, Más, sýslu-
manns í Hafnarfirði, og Ástu, móöur
Hannesar Hólmsteins Gissurarson-
ar. Móðir Hjalta var Þóra Guðrún
Jóhannsdóttir, b. á Hofi í Hjaltadal,
Jónssonar og Katrínar Lárusdóttur
frá Langanesi.
Pálína er dóttir Benedikts Líndal,
óðalsb. á Efra-Núpi, Hjartarsonar,
hreppstjóra á Efra-Núpi, Benedikts-
sonar, hómópata í Hnausakoti, Ein-
arssonar, b. í Núpsdalstungu, Jóns-
sonar.
Móðir Pálínu er Ingibjörg, systir
Skúla, fyrrv. ráðherra. Ingibjörg er
Þóra Guðrún Hjaltadóttir.
dóttir Guðmundar, b. á Svertings-
stöðum í Miðfirði og síðar kaup-
félagsstjóra á Hvammstanga, Sig-
urðssonar, b. á Svertingsstöðum,
Jónassonar. Móðir Guðmundar var
Ólöf Guðmundsdóttir, b. og smiðs á
Síðu, Guðmundssonar. Móðir Ingi-
bjargar Guðmundsdóttur var Guð-
rún Einarsdóttir, b. og gullsmiðs á
Tannstaðabakka í Hrútafirði,
Skúlasonar.
Þóra tekur á móti gestum á heim-
ili sínu milli klukkan 17.00 og 19.00
á afmælisdaginn.
Hermann Sveinbjömsson
Dr. Hermann Sveinbjörnsson, líf-
og umhverfisfræðingur og fyrrv.
aðstoðarmaður sjávarútvegsráð-
herra, Kjartansgötu 7, Reykjavík,
verður fertugur á morgun.
Starfsferill
Hermann lauk stúdentsprófi frá
MH1970, B.Sc. prófi í líffræði frá
HÍ1976, M.Sc. prófi í umhverfis-
fræðum frá Miami University Ox-
ford, Ohio 1978 og doktorsprófi í
auðlindahagfræði frá John Hopkins
University í Baltimore í Bandaríkj-
unum 1983.
Hermann starfaði hjá National
Wildlife Federation í Washington
1977-78, sérfræðingur hjá Land-
græðslu ríkisins 1978-79 auk þess
sem hann hefur unnið tímabundin
störf fyrir Vatnarannsóknarstofnun
Washington DC, Tilraunastöð HÍ í
meinafræði að Keldum, Landmæl-
ingar íslands, Raunvísindastofnun
HI, Rannsóknarstofnun landbúnað-
arins og Skógræktarfélag Reykjavík-
ur. Hann var deildarstjóri í iðnaðar-
ráðuneytinu frá 1983-87 og aðstoðar-
maður sjávarútvégsráðherra
1987-91.
Hermann hefur haldið árlega fyr-
irlestra um orku- og auðlindamál
við HÍ og við Jarðhitaskóla Samein-
uðu þjóðanna í Reykjavík.
Hermann var formaður umhverf-
isnefndar ríkisstjórnarinnar
1983-84, ráðgjafi Alexanders Stef-
ánssonar, þáv. félagsmálaráðherra
um umhverfismál 1983-87, sat í
Norrænu embættismannanefndinni
um umhverfismál 1984-87, var ritari
stóriðjunefndarríkisstjórnarinnar
1983-87, er stjórnarformaður Holl-
ustuverndar ríkisins frá 1988, for-
maöur Aflanýtingarnefndar sjávar-
útvegsráðuneytisins frá 1989 og er
varamaður í Rannsóknarráði ríkis-
ins frá 1987. Hann er meðlimur í
alþjóðafélagi umhverfis- og auð-
lindahagfræðinga (AERE) og í Fé-
lagi viðskipta- og hagfræðinga.
Fjölskylda
Hermann kvæntist 28.7.1979 Sól-
veigu Láru Guðmundsdóttur, f.
13.11.1956, sóknarpresti á Seltjarn-
arnesi, en hún er dóttir Guðmundar
Benediktssonar, ráðuneytisstjóra í
forsætisráðuneytinu, og konu hans,
Kristínar Claessen, læknaritara og
húsmóður.
Börn Hermanns og Sólveigar Láru
eru Benedikt Hermann, f. 31.1.1980,
Kristín Anna, f. 7.7.1988, og Vigdís
María, f. 13.7.1990.
Systkini Hermanns eru Vigdís
kennari, gift Gunnari Jónssyni,
bónda á Egilsstöðum í Fljótsdal, Lóa
Kristín viðskiptafræöingur, gift
Karli Konráð Andersen lækni og
Dagfinnur nemi.
Foreldrar Hermanns eru Svein-
björn Dagfinnsson, f. 16.7.1927,
ráðuneytisstjóri í landbúnaðar-
ráðuneytinu, og kona hans, Pálína
Hermannsdóttir, f. 12.9.1929, hús-
móðir.
Ætt
Sveinbjörn er sonur Dagfinns,
dagskrárfulltrúa, Sveinbjörnsson-
ar, b. á Grímsstöðum í Landeyjum,
Guðmundssonar, b. þar, Svein-
björnssonar. Móðir Dagfinns var
Anna, systir Ingibjargar, móður
Ingvars Vilhjálmssonar útgerðar-
manns. Anna var dóttir Ólafs, b. á
Bakka í Þykkvabæ, Árnasonar,
bróður Guðbjargar, langömmu
Rúnars Guðjónssonar, sýslumanns
í Borgarnesi. Móðir Sveinbjörns var
Magnea Ósk Halldórsdóttir, b. í
Árbæ í Ölfusi, Jónssonar, hrepp-
stjóra í Þorlákshöfn, Árnasonar,
formanns og hreppstjóra á Stóra-
Ármóti, bróöur Magnúsar á Hrauni,
langafa Aldísar, móður Ellerts
Schram ritstjóra. Magnús var sonur
Magnúsar, hreppstjóra í Þorláks-
höfn, Beinteinssonar, lrm. á Breiða-
bólstað Ingimundarsonar á Hólum,
Bergssonar, ættfóður Bergsættar-
innar Sturlaugssonar.
Móðir Árna var Hólmfríður Árna-
dóttir, systir Valgerðar, formóður
Briem-ættarinnar, en móöir Jóns var
Helga Jónsdóttir, lögsagnara á
Stóra-Ármóti, Johnsen, bróður Val-
gerðar, formóður Finsen-ættarinnar.
Móðir Magneu var Þuríður Magn-
úsdóttir, b. og hreppstjóra í Vatns-
dal í Fljótshlíð, bróður Jóns, í Þor-
lákshöfn.
Bróðir Pálínu er Steingrímur,
fyrrv. forsætisráðherra. Pálína er
dóttir Hermanns Jónassonar for-
Brandur Jón Stefánsson
Brandur Jón Stefánsson, fyrrv.
vegaverkstjóri, Kirkjuvogi 3, Vík í
Mýrdal, verður áttatíu og fimm ára
annan í hvítasunnu.
Starfsferill
Brandur fæddist í Litla-Hvammi í
Mýrdal í Vestur-Skaftafellssýslu og
ólst þar upp. Hann kynntist öllum
almennum sveitastörfum þess tíma
og byrjaði rétt eftir fermingu að fara
í sjóróöra á opnum árabátum frá
Sandinum. Þá var Brandur á vertíð-
um í Vestmannaeyjum.
Brandur tók eitt af fyrstu ökupróf-
unum hérlendis og keypti sér bíl
1927 en það var jafnframt fyrsti bíll-
inn austur í Mýrdal. Hann hóf ári
seinna áætlunar ferðir frá Vík að
Markarfljóti og með reiðslu þaöan á
hestum aö Hlíðarenda á móts við
bifreiðastöð Steindórs. Brandur
stundaði síðan sérleyfisferðir næstu
tuttugu og níu árin, ýmist með öðr-
um eða einn. Hann hóf rekstur gisti-
húss í Vík 1942 og rak það ásamt
konu sinni í fimmtán ár. Þá tók
hann aö sér vegaverkstjórn í Mýr-
dalnum 1942 og starfaði hjá Vega-
gerðinni síðan. Fljótlega stækkaði
umsjónarsvæði Brands og síðustu
ár hans hjá Vegagerðinni var hann
héraðsstjóri yfir vegum í Vestur-
Skaftafeílssýslu.
Brandur var m.a. formaður Ung-
mennafélagsins Garðarshólma um
tíma en á þeim árum stundaði hann
mikið íþróttir, einkum sund. Hann
stofnaði Flugbjörgunarsveitina í
Vík og var formaður hennar fyrstu
árin. Þá var hann einn af stofnend-
um Leikfélagsins Suðra og er eini
heiðursfélagi þess.
Brandur hefur ætíð átt heima í
Mýrdalnum að undanskildum sjö
árum er hann bjó í Reykjavík.
Fjölskylda
Brandurkvæntist 28.11.1932 Guð-
rúnu Jóhannesdóttur, f. á SRjögra-
stöðum á Fljótsdalshéraði 13.5.1914,
d. 19.1.1988, en hún var dóttir Jó-
hannesar Jónssonar, b. á Skjögra-
stöðum, og konu hans, Jónínu Jóns-
dóttur.
Böm Brands og Guörúnar eru
fjögur. Þau eru Jóhannes Stefán, f.
20.3.1933, forstjóri í Garðabæ,
kvæntur Þuríði Halldórsdóttur og
eiga þau þrjú börn; Hrönn, f. 1.10.
1935, húsmóðir í Vík í Mýrdal, gift
Guðjóni Þorsteinssyni og eiga þau
fiögur börn; Birgir, f. 17.5.1941, raf-
virki í Hafnarfirði, kvæntur Jó-
hönnu Þórhallsdóttur og eiga þau
tvö börn og eitt fósturbarn; Hörður,
f. 25.2.1948, bifreiðastjóri á Blöndu-
ósi, kvæntur Grétu Siguijónsdóttur
og eiga þau tvö börn.
Brandur átti sjö systkini en þrjú
þeirra eru látin. Systkini hans:
Ástríður, f. 14.10.1903, d. 30.3.1989,
húsmóðir að Litla-Hvammi, gift Sig-
urði B. Gunnarssyni og eru böm
þeirra fiögur; Ámý Sigríður, f. 6.5.
1905, húsmóðir í Vík, gift Jóni Þor-
steinssyni og eiga þau eitt bam;
Þuríður Guðrún, f. 14.10.1907, d. 1.5.
1982, húsmóðir í Vík, gift Jóhanni
Páli Tómassyni og eiga þau þijú
böm; Baldur, f. 22.11.1911, fyrrv. b.
að Hvammbóli í Mýrdal; Gunnar, f.
21.7.1915, d. 7.4.1984, b. í Vatns-
skarðshólum, kvæntur Unni G. Þor-
steinsdóttur og em böm þeirra
fimm; Helga, f. 19.9.1917, húsfreyja
í Hvammbóli; Vilborg, f. 31.5.1921,
Brandur Jón Stefánsson.
fyrrv. sýslumannsfrú í Vík, nú bú-
sett í Reykjavík, gift Jóni Kjartans-
syni og eiga þau tvö böm.
Foreldrar Brands vom Stefán
Hannesson, f. 16.3.1876, d. 30.12.
1960, bamakennari og b. í Litla-
Hvammi, og Steinunn Helga Áma-
dóttir, f. 12.9.1891, d. 20.8.1964, hús-
freyja.
Brandur veröur að heiman á af-
mælisdaginn.
Dr. Hermann Sveinbjörnsson.
sætisráðherra og konu hans, Vigdís-
ar Oddnýjar Steingrímsdóttur,
byggingameistara í Rvík, Guð-
mundssonar frá Svalbarða á Álfta-
nesi. Móðir Vigdísar var Margrét
Þorláksdóttir, af Húsatóftaætt í
Grindavík.
Hermann verður að heiman á af-
mælisdaginn
ALLT
fyrirGLUGGANN
úrval, gæöi, þjónusta
Rimlagluggatjöld í yfir 20
litum. Sérsniöin fyrir
hvern glugga eftir máli.
Sendum í póstkröfu um
land allt.
Einkaumboð á íslandi
fllFiabiep
Síðumúla 32 - Reykjavík -
Sími: 31870 - 688770.
Tjarnargötu 12 - Keflavík -
Sími: 92-12061.