Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1991, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 18. MAÍ1991.
Fréttir_________________________________________________________________________dv
Náttúrulækningahælið í Hveragerði:
Snorri með ávirðingar á
hendur hjúkrunarf ólki
„Hjúkrunarfélag íslands mun at-
huga hvort það eigi að fara í meið-
yrðamál við Snorra Ingimarsson
lækni vegna þeirra ummæla sem
hann viðhafði í viðtah við DV í vik-
unni,“ segir Hrönn Jónsdóttir,
hjúkrunarforstjóri á Heilsuhæli
Nátttúrulækningafélagsins í Hvera-
gerði.
En eftir Snorra er haft: „Það sem
þarna fer fram á ekkert skylt við
náttúrulækningar heldur er þetta
kukl og hindurvitni. Það er siglt und-
ir náttúrulækningaflaggi en það eru
engar náttúrulækningar stundaðar
þarna.“
„Auk þessara ummæla er ég meö
- segir Hrönn Jónsdóttir
afrit af bréfl sem Snorri ritaði Sig-
hvati Björgvinssyni heilbrigðisráð-
herra en mér barst þaö eftir króka-
leiöum. í því er hann með áviröingar
á mig og hjúkrunarfólkið hér á-hæl-
inu svo og á ýmsa aðra þætti er varða
stofnunina.
í þessu bréfi koma fram órökstudd-
ar staðhæfingar um starfsemina hér
líkt og í DV. Það er varla hægt að
kalla svona órökstutt tal annað en
bull.
Ég og þeir hjúkrunarfræðingar er
hér starfa höfum átt fund með Sig-
þrúði Ingimundardóttur, formanni
Félags hjúkrunarfræðinga, þar sem
viö höfum rætt þessi mál og hvernig
hægt sé að bregðast viö þeim.
Mér finnst alveg furðulegt að gera
stofnuninni þetta. Snorri hefur áður
talað um lögbrot hér og þá lagði ég
málið fyrir landlæknisembættið. Þá
var því haldið fram aö hjúkrunarfor-
stjóri hefði óeölilega mikil völd og
að hjúkrun hefði vaxið úr hófi fram
á undanfórnum árum. Embættið úr-
skurðaði að þetta væri órökstutt og
málinu var vísað frá enda væri ekk-
ert athugavert við störf okkar hér.
Eftir að landlæknisembættiö úr-
skurðaði þetta er svo komið fram
með nýjár ávirðingar á hendur mér.
Þetta er aðför að stofnuninni."
- Hvernig gengur samstarf hjúk-
runarfólks og lækna á hælinu núna?
„Síðan í haust hafa læknar ekki
fundað með rekstrarstjórum hælis-
ins, ekki með framkvæmdastjóra,
hjúkrunarforstjóra eða skrifstofu-
stjóra. Þeir hcifa heldur ekki fundað
með deildarstjórum síðastliðna þrjá
mánuði. Nú, mér vitanlega hafa þeir
ekki heldur fundað með sjúkranudd-
urum en þeir eru þó þeirra undir-
menn. Það eru að vísu fundir á hverj-
um degi klukkan eitt þar sem læknar
og hjúkrunarfólk hittist og á þeim
er reynt er að greiða úr þeim málum
sem koma upp á en það er ekki hægt
að segja að þessir fundir séu ánægju-
legir. Því er ekki að neita að þetta
hefur bitnað mjög á öllu fræðslu-
starfi hælisins. Það hefur orðið fórn-
arlamb þessara deilna.
Deila lækna við okkur varðar að
miklu leyti fræðslumálin hér á stofn-
uninni. Við viljum vinna fræðslu-
máhn í teymi en ekki láta læknana
segja okkur fyrir verkum. Þeim
finnst við ekki nógu faglegar. Það er
kannski vegna þess að við höfum
reynt að matreiða kennsluna þannig
að fólk skilji hvaö viö erum að fara.
Það er setja námsefniö fram á
mannamáli svo hún nýtist sem best
en það líkar þeim ekki,“ segir Hrönn.
Ekki náðist í Snorra Ingimarsson
vegnaþessamálsígær. -J.Mar
DV-mynd Brynjar Gauti
Vigfús Þór Árnason við líkan að Grafarvogskirkju.
Grafarvogskirkj a:
Fyrsta skóf lustungan tekin í dag
„Viö vonumst til að það verði hægt
að taka efri hæö byggingarinnar í
notkun voriö 1994 og aö viö getum
fermt fyrstu börnin í kirkjunni þá.
Hins vegar er óljóst hvort þessar
áætlanir standast," segir Vigfús Þór
Árnason, sóknarprestur í Grafar-
vogi.
Fyrsta skóflustungan verður tekin
að Grafarvogskirkju í dag klukkan
16.00 og er það sóknarpresturinn,
séra Vigfús, sem mun taka hana.
Þorsteinn Pálsson kirkjumálaráð-
herra mun flytja ávarp, kirkjukór
Grafarvogssóknar mun syngja, bisk-
up íslands, herra Ólafur Skúlason,
mun helga og blessa kirkjulóðina og
fulltrúi frá borgarstjórn Reykjavíkur
mun flytja ávarp.
Jóhann Pálsson, formaöur bygg-
ingarnefndar, flytur ritningarorð,
svo og þau Valgerður Gísladóttir
safnaöarfulltrúi og Ágúst ísfeld, for-
maður sóknarnefndar.
Grafarvogskirkja er teiknuð af
arkitektunum Finni Björgvinssyni
ogHilmariÞórBjörnssyni. -J.Mar
Kauptilboðið í Blikastaði:
Yf irgangur af hálf u borgarinnar
- segir minnihluti bæjarstjómar Mosfellsbæjar
„Bæjarmálaráð telur þaö yfirgang
af hálfu Reykjavíkurborgar að gera
kauptilboð í land sem annað sveitar-
félag hefur skipulagt sem framtíðar-
byggð sína og sérstaklega aö ætlast
til lögsögubreytingar í því sambandi.
Bæjarmálaráð ályktar að Mosfells-
bær hafni forkaupsrétti á kaupsamn-
ingi milli Reykjavíkurborgar og eig-
enda Blikastaða. Jafnframt aö hafna
skuli viöræðum við Reykjavíkurborg
um breytingu á lögsögumörkum
milli sveitarfélaganna í tengslum við
umræddan kaupsamning," segir -í
ályktun frá bæjarmálaráði Einingar
í Mosfellsbæ.
„Minnihluti bæjarstjórnar lagði
fram þessa ályktun á bæjarstjórnar-
fundi á miðvikudag og hún var bók-
uö. Máhð verður svo væntanlega
rætt á næsta fundi stjórnarinnar. Við
treystum því aö meirihlutinn fari þá
leið sem við leggjum til. Ef hann
hugsar sér að fara aðra leið en við
leggjum til, til að mynda að semja
um færslu á lögsögumörkum, mun-
um viö mótmæla því og krefjast
borgarafundar um málið," segir Jón-
as Sigurðsson en hann situr í bæjar-
málaráði Einingar.
,Menn hafa hvorki tekiö jákvætt
né neikvætt í þessa bókun minni-
hlutans. Við eigum í viðræöum við
Reykjavíkurborg varðandi kauptil-
boðið í Blikastaði. Það er í sjálfu sér
ekkert meira um þaö mál að segja á
þessu stigi," segir Páll Guöjónsson,
bæjarstjóri í Mosfellsbæ.
- Hvenær á þessum viðræöum að
vera lokið?
„Ég veit þaö ekki. Miðaö viö
ákvæöi laga um forkaupsrétt höfum
við frest til 29. maí til að taka afstöðu
til hvemig tekið veröur á þessu
máli.“ -J.Mar
Heilsuhæliö 1 Hveragerði:
Meirihluti stjórnar lýs-
ir stuðningi við Hrönn
„Við undirritaðir aðilar í stjórn og
varastjórn Náttúrulækningafélags
íslands viljum hér með lýsa stuðn-
ingi við málstað Hrannar Jónsdóttur,
hjúkrunarforstjóra á heilsuhæli fé-
lagsins í Hveragerði, en hún hefur
sem kunnugt er legið undir ámæli
lækna hæhsins fyrir kukl og hindur-
vitni.
Heilsuhæli Náttúrulækningafélags
íslands hefur frá upphafi notið þeirra
forréttinda að starfa eftir ákveðinni
hugmyndafræði og hefur Hrönn
ásamt hjúkrunarfólki á hælinu verið
stefnumarkandi við að færa hjúkr-
unarþjónustuna í nútímalegra horf
án þess að hverfa frá upphafshug-
myndum náttúrulækningastefnunn-
ar. Við viljum lýsa óánægju okkar
með athæfi núverandi yfirlækna
hælisins, Snorra Ingimarssonar og
Gísla Einarssonar, svo og Þórhalls
B. Ólafssonar, fyrrverandi læknis á
hælinu, sem hafa í ræöu og riti, leynt
og ljóst, unnið gegn náttúrulækn-
ingastefnunni sem hælinu er ætlað
að starfa eftir. Skrif þeirra til stéttar-
félaga, opinberra stofnana og fjöl-
miðla eru með hreinum ólíkindum.“
Undir þetta rita: Hrafnhildur Ólafs-
dóttir ritari, Regina Stefnisdóttir
varastjórnandi, Vilhjálmur Ingi
Árnasonformaður. -J.Mar
Það gæti vafist fyrir einhverjum að finna rétta skó i þessari hrúgu. Hér eru
samankomnir félagar úr véhjólaklúbbnum Sniglunum - og allir á sokkun-
um. Myndin var tekin á fræöslukvöldi klúbbsins i vikunni. DV-mynd S