Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1991, Blaðsíða 9
,ít!W tAM .81 HUOAQÍIAOUA.Í
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1991.
dv Svidsljós
Max von Sydow leikari og leikstjóri i hlutverki sínu í kvikmyndinni um
Palla sigurvegara.
Max von Sydow:
„Leik
meðan ég
stend uppi"
inavíu áriö 1986 eftir 13 ára útlegö.
Þá lék hann eitt stærsta hlutverkið
í dönsku myndinni Pelle Erobreren
eftir Bille August. Kvikmyndin var
tilnefnd til óskarsverðlauna og
Sydow fékk tilnefningu sem besti
leikari í aukahlutverki fyrir túlkun
sína á föður Pelle. Kvikmynd þessi
var sýnd í meira en ár hér á ís-
landi við verðskuldað hrós allra
sem sáu.
Sydow situr ekki auðum höndum
þessa dagana því auk þess að leika
afa Bergmans er hann að leika í
verkum Strindbergs og Bergmans
á fjölum Konunglega leikhússins í
Stokkhólmi. Hann leikur ennfrem-
ur aðalhlutverkið í nokkuð um-
deildu stykki sem þar eru nýlega
hafnar sýningar á. Það er leikrit
um ævi og einkalíf leikritaskálds-
ins Eugene O’Neill eftir Lars Nor-'
én. Uppfærsla þessi hefur vakið
talsverða athygli.
Síðan Sydow sneri heim aftur
réðist hann í það stórvirki að leik-
stýra sinni fyrstu kvikmynd og
varð dönsk ástarsaga sem gerist
um síðustu aldamót fyrir valinu.
Sagan er eftir Herman Bang og
heitir á dönsku Ved Vejen og hefur
verið sýnd víða í Skandinavíu,
meðal annars á danskri kvik-
myndaviku í Háskólabíó nýlega.
Sydow segist hafa heillast gjörsam-
lega af sögunni og því haffhann
gripið tækifærið þegar honum
bauðst að leikstýra mynd að eigin
vali fyrir danska aðila.
Kýs
leikhúsið frekar
„Sem leikari kýs ég leikhúsið
frekar en kvikmyndina. í leikhús-
inu hefur leikarinn meiri stjórn á
því sem áhorfandanum birtist en í
kvikmyndum er maður oft að
leggja sitt af mörkum sem hráefni
í afurð sem enginn veit hvað verður
úr. Ég hef oft leikið í kvikmyndum
sem hafa státað af góðu handriti
en þegar búið var að khppa mynd-
ina stóð eftir einhver óskapnaður
sem átti ekkert skylt við uppruna-
legt verk.“
-Pá
„Það er enginn sem segir að leik-
ari þurfi að hætta að leika aðeins
vegna þess að hann hefur náð
ákveðnum aldri,“ er haft eftir
sænska leikaranum Max von
Sydow sem nú er 62 ára gamall og
leikstýrði nýlega sinni fyrstu kvik-
mynd, er að leika stórt hlutverk í
danskri kvikmynd um ævi Ingm-
ars Bergman og leikur stórt hlut-
verk í Konunglega leikhúsinu í
Stokkhólmi.
„Ég til að mynda ætla að halda
áfram meðan ég stend uppi og get
munað textann minn nokkurn veg-
inn skammlaust.“
Ming keisari
og Jesús Kristur
Max segist frekar láta vilja muna
eftir sér sem afa Ingmars Bergman
en sem hinn illi keisari Ming eða
Jesús Kristur. Hann leikur afa
Bergmans í sex klukkustunda
löngum myndaflokki um líf og störf
þessa umdeilda sænska leikstjóra
sem verið er að vinna í Danmörku.
„Mér finnst þetta sérlega
skemmtilegt því það var einmitt
Ingmar Bergman sem gerði mig
frægan á sínum tíma og var afskap-
lega þýðingarmikið afl í mínu lífi.“
Von Sydow varð þekktur árið
1956 þegar hann lék aðalhlutverkið
í kvikmynd Bergmans, Sjöunda
innsiglið. Þar lék hann hlutverk
riddarans sem tefldi við dauðann
og beinabert andlitið sem lengi hef-
ur verið hans helsta vörumerki
greyptist í minni þeirra sem sáu.
Von Sydow hélt síðar vestur um
haf og lék í fjölda kvikmynda í
Hollywood. Þær þóttu misjafnlega
góðar enda sýndi leikarinn litla
gagnrýni við val á hlutverkum.
Þannig varð hann til þess að leika
Jesú Krist í kvikmyndinni The
Greatest Story Ever Told og þótti
það ekki merkilegt innlegg í kvik-
myndasöguna.
Sneri heim
eftir 13 ára útlegð
og sló í gegn
Sydow sneri aftur heim til Skand-
VIÐ BYRJUM Á ÞRIÐJUDAG MED
SUMARTILBOD SEM ENGINN ÆTTI
AÐ LÁTA FRAM HJÁ SÉR FARA,
HÉR AÐ NEÐAN ER SÝNISHORN AF
VIDEOVÉLUM SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Á
FRÁBÆRU TILBOÐSVERÐI. >:
SUMAR
tilboð
13 *
PANASONIC NV MS70
FULLKOMIN S-VHS STERIO
VIDEOUPPTÖKU VÉL
99.800.
SONY CCD-F350
8mm VIDEOUPPTÖKUVÉL
EINFÖLD OG ÞÆGILEG í
NOTKUN
73,900.-
59.980.
PANASONIC NV-MC20
VHS VIDEOTÖKUVÉL MEÐ
TÖSKU
PANASONIC NV-S1
SNILLDARLEGA HÖNNUÐ
VIDEOUPPTÖKUVÉL MEÐ
INNBYGGÐUM
TITRINGSJAFNARA
JAPIS
BRAUTARHOLT! 2, OG KRINGLUNNI SIMI 625200