Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1991, Page 16
16
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1991.
Skák
Glæsilegur sigur
Margeirs á St. Martin
Þaö er vart í frásögur færandi þótt
Margeir Pétursson stórmeistari leggi
land undir fót og tefli á skákmóti.
Hitt er óvenjulegra að hann fari alla
leiðina suður í Karíbahaf til að finna
sér mótherja. Margeir er nýkominn
frá eyjunni Saint Martin sem þar er
aö finna og náði glæsilegum árangri
- varð einn efstur í 120 manna hópi.
Um langan veg er að fara í sólina
og sumarið á Saint Martin og skák-
mennirnir þar voru því lausir við
„rútubílafarm afRússum“ semfylgir
Skák
Jón L. Árnason
mótunum í Evrópu. Mótið var þó vel
skipað og settu bandarískir stór-
meistarar þar sterkan svip á. Mar-
geir var einn íslendinga á mótinu en
þarna voru m.a. langt að komnir
Wedberg hinn sænski, Motwani frá
Skotlandi og Renet hinn franski,
nokkrir Júgóslavar og þrír Sovét-
menn, búsettir í Frakklandi.
Margeir náöi snemma forystu og
hélt henni allt til loka. Jafntefli í
tveimur síðustu skákunum við
Browne og Dzindzihashvili tryggði
honum óskipt efsta sætið. Meðal
þeirra sem lágu í valnum óvígir eftir
meðferð Margeirs, voru Bandaríkja-
mennimir Alexander Ivanov og
Dmitri Gurevich, Renet og Skotinn
Lawson.
Margeir hlaut 7,5 v. af 9 möguleg-
um og tapaði ekki skák. Næstir komu
Bandaríkjamennirnir Dzindzihas-
hvili, Kudrin, Ivanov og D. Gurevich
og Rausis frá Litháen, með 7 v.
Frammistaða Margeirs sýnir enn
og aftur hversu þrautreyndur hann
er orðinn á opnu mótunum. Gífurleg
reynsla hans og næmur stöðuskiln-
ingur gerir hann að erfiöum mót-
herja fyrir hvern sem er. Sjáið t.d.
eftirfarandi skák hans frá mótinu,
þar sem stórmeistararnir meta stöð-
una á mismunandi hátt en í ljós kem-
ur að mat Margeirs er rétt.
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: Dimitry Gurevich
Benóný-vörn.
1. d4 g6 2. e4 Bg7 3. c4 c5 4. d5 d6 5.
Rc3 e6 6. Rf3 Re7 7. Bd3 exd5 8. cxd5
Fram er komin dæmigerð staða
fyrir Benóný-vörn, utan hvað kóngs-
riddari svarts er á e7 í stað f6, eins
og venja er. Riddarinn stendur lakar
á e7 ef frá er talið, að þar lokar hann
ekki leið f-peðsins. Þetta hyggst
svartur færa sér í nyt en fer ekki
rétt að því.
8. - 0-0 9. Bf4 Bg4?! 10. h3 Bxf3 11.
Dxf3f5?
Óeðlileg framrás eftir að svartur
hefur látið hvítreita biskup sinn af
hendi. Takiö eftir að nú fær hann
ekki valdað e6-reitinn, sem nú er eins
og opið sár á stööunni.
12. 0-0 a6 13. Hael fxe4 14. Dxe4 Rc8
Leikur eins og þessi, sem svartur
var knúinn til að leika, sýnir vel að
eitthvað hefur farið úrskeiðis.
15. Bg3 Rd7 16. De6+ Hf717. Re4! Rf8
18. Dg4 Bxb2
í erfiðri stöðu er oft ekki verra að
næla sér í peð.
19. Rg5 Hg7 20. He2 h5 21. Df4 Be5?
22. Hxe5! dxe5 23. Dxe5
Eftir skiptamunsfórnina ræður
hvítur lögum og lofum á borðinu.
Menn svarts standa álappalega og
hrókurinn á a8 er ekki enn kominn
í leikinn. Úr þessu reynir svartur nú
að bæta.
23. - b5 24. Re4 c4
Gurevich bauð jafntefli um leið og
hann lék þennan leik en afsakaði það
eftir skákina - sagðist hafa misskilið
stöðuna og ekki áttað sig á því hve
hún væri slæm.
25. Bbl De7 26. Dd4 Da7 27. Rf6+ Kh8
28. Df4 Rh7 29. Dh6 Re7 30. Be5 Rg8
31. Rxg8 Kxg8 32. Bxg6 Hd8?
Flýtir fyrir óumflýjanlegum úrslit-
um.
33. Bxh7 +
Og svartur gaf, því að eftir 33. -
Hxh7 34. Dg5+ er Hd8 fallinn fyrir
lítið.
Góð frammistaða
Jóhanns
Eftir slaka byrjun á minningarmót-
inu um dr Euwe í Amsterdam tókst
Jóhanni Hjartarsyni heldur betur að
rétta sinn hlut. Er yfir lauk hafði
hann hlotið 4 vinninga í þessu firna-
sterka móti og má vel við þá frammi-
stöðu una. Jóhann tapaði fyrir Tim-
man og Short í fyrri hluta mótsins
en fleiri ósigra þurfti hann ekki að
þola. Hann hélt sínu gegn Kasparov
og Karpov (svo fáeinir séu nefndir)
og lagði Júgóslavann Ljubojevic.
Lokastaðan varð þessi:
1. - 2. Short og Salov 6 v.
3. - 4. Karpov og Kasparov 5,5 v.
5. Kortsnoj 4,5 v.
6. - 7. Jóhann og Timman 4 v.
8. M. Gurevits 3,5 v.
9. -10. Ljubojevic og van der Wiel 3 v.
Garrí Kasparov varð nú í annað
sinn síðan hann varð heimsmeistari
aö sætta sig við annað en sigur -
fyrra skiptið var í Linares í vetur er
Ivantsjúk skákaði honum. Hann fór
hægt af stað - eins og Jóhann - og
hafði t.a.m. ekki unnið skák eftir sex
umferðir. Þá setti hann loks á fulla
ferð, valtaöi yfir Kortsnoj og síðan
Ljubojevic í lokaumferðinni.
Jóhann tefldi við Kasparov í
fimmtu umferð og sannast sagna var
útlitið hreint ekki gæfulegt framan
af tafli. Eftir peðsfórn í byrjun fékk
Kasparov „alla stöðuna" eins og
gjarnan er sagt. Jóhann var hins
vegar ekki á þeim buxunum að gef-
ast upp fyrr en í fulla hnefana. Hon-
um tókst að þæfa taflið og gera
heimsmeistaranum erfitt fyrir. Þeg-
ar svo jafnteflið blasti við var ber-
sýnilegt að Kasparov var allt annað
en ánægður. Hann barði í borðið og
lét öllum illum látum. Það er heldur
ekki á hverjum degi sem hann glutr-
ar svona stöðu niður.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Garrí Kasparov
Kóngsindversk vörn.
1. d4 Rí6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6
5. f3 0-0 6. Bg5 a6 7. Dd2 Rbd7 8. Rge2
c5 9. d5 b5 10. cxb5 Re5 11. Rcl axb5
12. Rxb5 Ba6 13. a4 c4 14. Rc3 Rfd7 15.
Be2 Hb8 16. Be3 Da5 17. Ha3 Rc5 18.
Rdl c3! 19. bxc3 Hbl
20. Bxc5
Hermt er að er Jóhann lék þennan
leik hefði svipur Kasparovs lýst van-
þóknun, ef ekki fyrirlitningu. Það er
vissulega ekki fagurt að þurfa að láta
svartreita biskupinn af hendi en
hvað átti Jóhann til bragðs að taka?
Kasparov hótaði t.d. 20. - Hxcl 21.
Dxcl Rd3+ og vinna drottninguna
og 20. 0-0 strandar á 20. - Hxcl 21.
Bxa6 (eða 21. Dxcl Bxe2) Hxdl o.s.frv.
Jóhann er sannarlega ekki öfunds-
verður af stöðunni.
20. Dxc5 21. Hb3 Hxcl 22. Bxa6
Ekki 22. Dxcl Bxe2 23. Kxe2 Dc4 +
og vinnur hrókinn.
22. - Hal 23. Be2 Rc4 24. Bxc4 Dxc4
25. Db2 Hxa4 26. Kf2 Dc5 + 27. Re3 Bh6
28. Hel Hfa8 29. Hb8 + Hxb8 30. Dxb8+
Kg7 31. Db2 Da7?
Nú eða í næsta leik er 31. - f5! bráð-
drepandi.
32. Dcl Ha3? 33. Kg3 Dc5 34. Db2!
Bxe3 35. Hxe3 Dxe3 36. Dxa3 Del+ 37.
Kh3 h5 38. Da6!
E.t.v. hefur Kasparov ekki séð
þennan leik fyrir. Hvítur valdar fl-
reitinn og sleppur með skrekkinn.
38. - g5 39. g3 g4+ 40. fxg4 hxg4+ 41.
Kh4 Dxe4 42. Dc8 Dh7 + 43. Kxg4 Dxh2
44. DI5 De2+ 45. Kh3 De3 46. c4
Og í þessari stööu sömdu kapparn-
ir um jafntefli.
Sviðsljós
Grásleppubátur togaður inn til Hafnarfjarðar eftir að hafa fengið net í skrúfuna.
DV-mynd S
Grásleppubát-
ur í ógöngum
Grásleppubátur sem var á veiöum
fyrir utan Straumsvík fyrir stuttu
fékk netin í skrúfuna.
Sjómaðurinn reyndi ítrekað að
veifa til báta sem sigldu fram hjá til
að fá þá til að toga sig í land, en báta-
sjómennirnir, sem hann veifaði til,
töldu að hann væri að veifa í kveðju-
skyni og veifuðu aðeins á móti.
Hann greip því til þess ráðs að
skjóta upp neyðarblysi og lét hjálpin
þá ekki á sér standa. Nærstaddur
bátur, Arndís HF 147, kom honum
þegar til hjálpar og tók hann í tog inn
til Hafnarfjarðar.