Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1991, Qupperneq 22
22
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1991.
Sérstæö sakamál
Michael Leithsbridge var mjög
ástfanginn af Christine Farrah en
skyndilega vaknaöi meö honum
grunur um að hún væri honum
ótrú. Hann fór að láta fylgjast með
ferðum hennar og þá kom fram
misræmi í frásögn hennar sem
hann gat aðeins túlkað þannig að
hún hefði verið honum ótrú. Við
það vaknaöi með honum afbrýði-
semi sem átti eftir aö veröa örlaga-
rík fyrir þau bæði.
„Mér þykir það leitt, Mike, en ég
get ekki hitt þig annað kvöld. Ég
lofaði að fara til Louise en það verö-
ur veisla hjá henni þá því hún ætl-
ar að gifta sig á laugardaginn. Ég
vona að þú sért ekki búinn að
gleyma því. Og á fimmtudagskvöld-
ið verð ég i kvöldskólanum. En á
fóstudaginn..."
Christine Farrah lagði á og brost-
i. Michael Leithsbridge, sem hún
hafði verið að tala við, var þrjátíu
og sjö ára. Hann var vel stæður
enskur kaupsýslumaður og átti
tölvufyrirtæki og Christine hafði
verið með honum í ár. Hún var
viss um að hann væri maðurinn
sem hún hafði beðið eftir. Hana
langaði ekki til að giftast neinum
öðrum.
Mánuðum saman hafði Christine
beðið eftir því að hann bæri upp
bónorðið. En þar eð hann hafði enn
ekki gert það hafði hún ákveðið að
taka málið í eigin hendur. Hún
ætlaði að láta bónorðið koma hon-
um á óvart miðvikudaginn 3. ágúst
1988. Fyrst ætlaði hún að koma
heim til hans án þess að gera boö
á undan sér. Þegar hann hefði svo
lýst yfir því að hann ætlaði aö
kvænast henni héldu þau í trúlof-
unarveisluna sem hún var þegar
farin að undirbúa því hún var svo
viss um hvert svar hans yrði þegar
hún bæði hans.
Reiður
vinkonunni sinni
Michael, eða Mike eins og Christ-
ine kallaði hann, vissi ekkert um
hvað hún hafði í huga. Þegar hann
heyröi afsökun hennar fyrir því að
hitta hann ekki kvöldið eftir varð
hann bálreiður. Hann vissi að hún
sagði ósatt. Hún var sjálf búin að
segja honum að veislan heima hjá
vinkonu hennar yrði á föstudags-
kvöldinu, enda skyldi brúökaups-
veislan haldin daginn eftir.
„Hún er orðin einum of ósann-
sögul,“ muldraði Michael reiöilega
við sjálfan sig. „Og skyldi hún ekki
líka hafa verið að ljúga á fimmtu-
daginn var? Og fimmtudaginn í
vikunni þar á undan? Þá hafði hún
sagt að hún yrði í kvöldskólanum."
Michael kreppti hnefann. Hann
haföi ætlað aö koma henni á óvart
eftir kennslu á fimmtudagskvöld-
inu i fyrri viku. En þegar hann kom
að skólanum hafði bíllinn hennar
ekki verið á stæöinu.
„Fyrirgefðu, en var Christine
Farrah ekki í tíma hjá þér í kvöld?“
spurði hann loks kennarann, Ge-
orge Wilkes, þegar hann kom út
úr skólahúsinu.
„Nei, hún var ekki hérna í kvöld.
Og hún var ekki heldur hérna á
fimmtudaginn var. Mér skilst að
frænka hennar hafi veikst og það
séu einhver vandræöi á heimil-
inu.“
„Það vissi ég ekki,“ sagði Mic-
hael. „En má ég biðja þig um að
hafa ekki orð á því viö hana að ég
hafi komið hingaö í kvöld?“ sagði
hann óstyrkri röddu. Svo ók hann
heim til sín, fullur afbrýðisemi.
„Ég verð að fletta ofan af þessu,"
sagði Michael við sjálfan sig þegar
hann kom heim. „Hver skyldi það
vera sem hún er með? Ég verð að
komast að því. En hún þekkir mig
George Wilkes.
Richard og Melanie Atkins.
Timmins rannsóknarlögreglumað-
ur.
og bílinn minn. Ég verð að fá ein-
hvern sem hún þekkir ekki til að
hjálpa mér.“
í huga sínum fór Micahel yfir þá
sem hann þekkti og fljótlega ákvað
hann að leita til sins gamla vinar,
Richards Atkins, og konu hans,
Melanie, en þau höfðu áður aðstoð-
að hann við svipaðar aðstæður. Þaö
var þegar þáverandi vinkona hans,
Karen Burford, sneri við honum
bakinu og fór að vera meö öðrum
manni. Þá höfðu Richard og Mel-
anie veitt honum styrk og talið í
hann kjark. Og það höfðu þau
reyndar líka gert síðar þegar önnur
vinkona hans, Susan Rason, hafði
snúið við honum bakinu eftir
þriggja vikna kynni og sagt honum
að hún væri gift.
Miachel vildi ekki að hann þyrfti
að bíöa enn einn ósigur. Hann ætl-
aði ekki að láta gera sig að athlægi
enn einu sinni. Hann fór heim til
Atkinshjónanna og sagði þeim allt
af létta og bað þau um aðstoö við
að komast að því hvar Christine
væri þegar hún þættist ekki hafa
tíma til að vera meö honum.
Njósnirnar hpfjast
„Ég er viss um að hún situr á
einhverri krá,“ sagði Michael. „Og
fari hún i eitthvert hús verð ég að
fá að vita hvar það er. Þá verðurðu
aö hringja til mín, Richard, og segja
mér það.“ Richard Atkins kinkaði
kolh.
Michael fór nú og sýndi Richard
hvar Christine átti heima. Hann
benti honum sömuleiðis á bláan
Ford Fiestabíl sem hún átti og ók
síðan með hann að fyrirtækinu sem
hún vann í.
Daginn eftir fylgdist Richard með
þvi úr nokkurri fjarlægð er Christ-
ine fór úr vinnunni og ók heim aö
húsinu við Smithfield Terrace þar
sem hún bjó. Eftir að hann hafði
beðiö fyrir utan það í tvær stundir
birtist Christine, gekk út í bíl sinn
og ók til krár í hinum enda borgar-
innar. Richard elti hana, fann bíla-
stæði og bjó sig undir að.hringja
til vinar síns til að segja honum
tíöindin. Klukkan var þá rúmlega
níu um kvöldið.
Nokkrum augnabhkum síðar
hringdi síminn heima hjá Michael.
Hann svaraði nær samstundis.
„Hvar er hún?“ spurði hann um
leið og hann lyfti símtólinu. En það
var ekki Richard sem hafði hringt,
heldur Christine.
„Á hvaða símtali áttirðu von á?“
spurði Christine. „Hver er „hún“?“
Michael reyndi í skyndi að segja
eitthvað til aö róa Christine, en
flýtti sér svo að ljúka samtalinu því
hann þóttist viss um að hann ætti
von á því að heyra frá Richard á
hverri stundu. Og rétt á eftir
hringdi hann. Þá þóttist Michael
viss um aö hann hefði fengið sínar
verstu grunsemdir staðfestar.
Christine var á krá sem hét The
Feathers.
Afbrýði-
semin magnast
Þegar Michael hafði lagt á flýtti
hann sér út í bílinn sinn og ók af
staö til aö hitta Christine. Þaö var
næstum oröið dimmt þegar hann
gekk inn í The Feathers. Hann gekk
að afgreiðsluboröinu og bað um
drykk en fór síðan að svipast um
eftir henni. Hana var hins vegar
hvergi aö sjá. En í staðinn fyrir aö
fara aftur heim ók hann að húsinu
sem Christine bjó í til þess að
kanna hvort hún væri þar eða á
næstu krá.
Hann fann bílinn hennar við krá
skammt frá húsinu sem hún bjó í
og þá var sem ímyndunarafl hans
fengi byr undir báða vængi. Hann
fór að leita að henni en fann hana
hvorki í þessari krá né öðrum sem
hann kom í allt fram til klukkan
þrjú um nóttina. Þá ók hann aftur
að heimili hennar. Þar var bíl
hennar ekki að sjá. Hann þóttist
því viss um að hún væri hjá elsk-
huga sínum þessa nótt.
Afbrýðisamari en nokkru sinni
ók Michael heim til sín. Þegar hann
kom þangað sá hann Christine þar
sem hún sat á tröppunum hjá hon-
um. Hún skalf af kulda.
Michael missir
stjórn á sér
„Hvar hefurðu verið, Michael?"
spurði Christine þegar hann steig
út úr bílnum. „Ég er búin að sitja
hérna í marga klukkutíma."
„Þykist þú vera búin að bíða hér
í marga klukkutíma?" hrópaði
Michael. „Hvern flandann á þessi
lygi að þýða, lauslætisdrósin þín?“
Svo tók hann að slá hana. Hún
æpti en hann tók þá um hálsinn á
henni og sleppti ekki takinu fyrr
en hún lá lífvana á jörðinni.
Þegar Michael hafði dregið líkið
inn í húsið varð honum ljóst hvað
hann hafði gert. Þá lagðist hann á
hnén við hliðina á því og bað
Christine um að vakna aftur til lífs-
ins.
Síðar um nóttina, þegar hann var
búinn aö drekka úr flórum glösum
af viskíi, hringdi Michael til lög-
reglunnar og skýrði frá því að hann
heföi orðið vinkonu sinni að bana.
Hún væri eina stúlkan sem hann
hefði nokkru sinni elskað heitt og
innilega en nú væri hún dáin.
Skýringin
Nokkrum klukkustundum eftir
að Michael var kominn í hendur
lögreglunnar kom yfirmaöur rann-
sóknardeildarinnar, Timmins, á
hans fund.
„Hver var hann sem Christine
hélt við?“ spurði Michael. „Hvern-
ig leit hann út? Hve oft voru þau
saman? Hvar vann hann?“ Spurn-
ingunum rigndi yflr Timmins en
hann svaraði engri þeirra. Þess í
stað sagði hann loks: „Veistu að
Christine elskaði þig í raun og
veru?“
Svo fór Timmins að segja Michael
Leithsbridge hvað gerst hafði. Síð-
ustu þrjár vikurnar hafði Christine
oft verið upptekin við að undirbúa
veislu sem hafði átt að koma hon-
um á óvart. í raun haföi það átt að
verða trúlofunarveisla þeirra. Og
þegar hún hafði hringt til hans úr
The Feathers síðasta kvöldið sem
hún lifði var það einungis til þess
að ganga úr skugga um að hann
væri heima því hún ætlaði á fund
hans til að biðja hann um aö verða
maöurinn hennar. Þá biöu foreldr-
ar þeirra beggja og nokkrir nánir
vinir eftir því að veislan gæti hafist
því enginn haföi efast um hvert
svar Michaels yrði. En Christine
fékk hvorki tækifæri til aö bera
upp bónorðið né gefa skýringu á
því hvers vegna hún hafði ekki
sótt kvöldskólann.
Þegar Michael fékk þessar fréttir
féll hann gersamlega saman. Varð
að bera hann til klefans sem hann
var hafður í. Þar grét hann og þaö
geröi hann líka síðar þegar hann
fékk þungan dóm fyrir aö hafa
myrt konuna sem hann elskaði...og
sem elskaði hann engu minna.