Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1991, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1^91.
23
Sinead O'Connor:
Skallinn ger-
ir mig fallega
„Þaö halda margir aö ég raki af
mér hárið til þess að vekja á mér
athygli og skallinn sé nokkurs konar
vörumerki fyrir mig. Það er mis-
skilningur. Mér finnst skallinn gera
mig fallega og vil vera svona og ekki
öðruvísi,"
Þannig svarar írska söngkonan
Sinead O’Connor fyrir sig þegar for-
vitnir blaðamenn og aðdáendur vilja
fá að vita hvers vegna hún kýs að
Með fyrrum unnusta sínum, O’Cella-
igh.
Tekur við verðlaunum fyrir Nothing
Compares 2 U.
raka allt hárið af höföinu og ganga
um eggsköllótt svo hún minnir helst
á pínulítinn munk. Sinead bætir því
viö að hún vilji að fólk hlusti meira
á það sem hún hefur fram að færa í
tónlist sinni en eyði ekki tíma í
vangaveltur um útlit hennar.
Sex milljón eintök
Sinead O’Connor hefur náð um-
talsverðri frægð fyrir tónlist sína.
Lag hennar Nothing Compares 2 U
seldist hraðar á Ameríkumarkaði en
dæmi eru um áður og alls seldist sú
plata í 6 milljónum eintaka. Margir
þakka það áhrifamiklu myndbandi
sem kynnti lagið en þar grét söng-
konan fögrum tárum. Voru þau ekta?
„Auðvitað voru þau ekta. Hvað
annað? Ég lagði hjartað á borðið og
söng um mínar eigin tilfmningar sem
voru svo sárar að ekki var annað
hægt.“
Vildi ekki berja gamalmenni
En Sinead hefur vakið athygli í
Ameríku fyrir fleira en tónlist. Hún
hefur tekið sérkennilega póhtíska
afstöðu á stundum. Þannig neitaöi
hún að koma fram á tónleikum þar
sem leika átti ameríska þjóðsönginn
í upphafi samkomunnar. Sinead
sagðist ekki geta verið viðstödd flutn-
ing söngsins af pólitískum ástæðum.
Einkum þeim að hún sagði Amerík-
ana beita ritskoðun og setja hömlur
á tjáningarfrelsi listamanna. Einnig
neitaði hún að koma fram á sömu
skemmtun og ameríski grínistinn
Andrew Dice Clay átti að koma fram
en hún sætti sig ekki við gamanyrði
hans sem einkennast af kynþátta-
hatri og.kvenfyrirlitningu.
Eins og nærri má geta urðu Amer-
íkanar afar sárir fyrir hönd síns
þjóðsöngs og létu reiði sína óspart í
ljós. Meðal þeirra sem fordæmdi
Sinead opinberlega fyrir framkomu
hennar í þessu máli var Frank Sin-
atra dægurlagasöngvari og starfs-
bróðir Sinead. Hann lét svo ummælt
að við svona stúlkur væri ekkert aö
gera annað en að flengja þær duglega
fyrir óþekktina.
„Ég var stödd á sama hóteli og Sin-
atra fyrir skömmu,” segir Sinead og
glottir að öllu saman. „Ég var skít-
hrædd um að hann myndi ráðast á
mig í lyftunni eða eitthvað. Hvað átti
ég að gera? Ekki hefði ég getað lamið
gamalmenni.”
Átti erfiða æsku
Sinead fæddist árið 1966 í Dublin á
írlandi. Foreldar hennar skildu þeg-
ar hún var 11 ára og hvort sem kenna
má því eða upplagi þeirrar stuttu var
Sinead erfitt og uppreisnargjarnt
barn. Hún leiddist snemma út í vafa-
samt atferli og var handtekin fyrir
búðahnupl 13 ára að aldri, fyrir að
stela einu pari af skóm. Fyrir vikið
var hún send í betrunarvist og dvaldi
næstu ár á ýmsum stofnunum fyrir
stúlkur af hennar tagi. Þegar hún
dvaldi í Newton skólanum í Water-
ford var hún beðin að syngja opin-
berlega í fyrsta sinn og var tækifærið
brúðkaup eins af kennurunum við
skólann. Þetta varð frumraun henn-
ar á þessu sviði eftir því sem best er
vitað og sú stutta söng lagið Ever-
green sem er betur þekkt í flutningi
Barböru Streisand. Eftir brúðkaupið
var henni boðið að syngja með írsku
hljómsveitinni In Tua Nua og þar
með byrjaði boltinn aö rúlla.
1985 var hún aö syngja með hljóm-
sveit í Dublin sem hét Ton Ton Maco-
ute og fulltrúi enskrar plötuútgáfu
sem heyrði í þeim bauð henni um-
svifalaust plötusamning. Sinead var
orðin fræg.
Flókin ástamál
í kjölfarið fylgdi athygli fjölmiðla.
Sérstaklega vöktu sérlega flókin
ástamál hennar við hina ýmsu um-
boðsmenn talsverða athygli. í dag er
hún hins vegar laus og liðug, einstæð
móðir sonarins Jake, og neitar að
ræða sín einkamál við fjölmiöla um-
fram það að viðurkenna að þau eru
í hinni mestu upplausn og flækju.
„Kannski hræði ég karlmenn,”
segir hún afsakandi. „Ég hef aldrei
farið út með karlmanni án þess að
eiga frumkvæðið. Margir þeirra eiga
erfitt með að þola slíkt. Svo býst ég
við að ég teljist ekki sérlega kvenleg
á hefðbundinn mælikvarða.”
Sinead á hús í Los Angeles þar sem
hún dvelst löngum ásamt syni sínum
en hún á einnig hús í London. Hún
segir að amerískir aðdáendur fari í
taugarnar á henni því þeir séu svo
yfirþyrmandi og stöðugt að taka af
henni myndir eins og hún væri Frels-
isstyttan eða eitthvað álíka tákn. En
hún segist kunna vel við frjálslegt
andrúmsloft Los Angeles sem er auk
þess mjög falleg borg. En er hún orð-
in rík?
Óskum landsmönnum
gledilegs sumars
Plöntuúrvalið er hjá okkur.
Komið og kynnið ykkur
i/erð og gæði.
15% afsláttur til eldri borgara
Góð þjónusta
Verið velkomin,
opið alla daga.
GRÓÐRARSTÖÐIN BIRKIHLÍÐ
Birkigrund 1, Kópavogi
sími 46612
GARÐPLÖNTUSALAN ALASKA
Breiðholti - sími 76450
Sinead O’Connor.
„Ég hef satt að segja ekki hugmynd
um það hve efnuð ég er. Ég ólst upp
við fátækt og það sem ég fyrst og
fremst vil fá út úr þessu er einhvers
konar öryggi fyrir mig og son minn.
Ég geri mér vel ljóst að frægðin er
fallvölt og ef til vil sel ég aldrei aftur
eins margar plötur og ég gerði á síð-
asta ári. En ég hef enga sektarkennd
yfir því að eiga peninga þó ég hafi
reyndar aldrei lagt neitt á mig sérs-
taklega til þess að eignast þá.
Fólki hættir til þess að gleyma því
hvaö ég er ung. Það heldur að vegna
þess að ég er fræg hafi ég skoöanir á
öllum hlutum eins og stjórnmála-
maður. En ég er að fást við tilfinning-
ar og innsæi og þekki sjálfa mig mjög
vel og veit vel hvað ég get og hvað
ég get ekki.“ -Pó
GRÆNI
SÍMINN
FYRIR LANDSBYGGÐINA
Við hjá DV höfum ákveðið að taka í notkun
svokölluð GRÆN NÚMER sem er ný þjónusta hjá
Pósti og síma.
Ef þú, lesandi góður, hringir í þessi númer greiðir
þú aðeins gjald fyrir staðarsímtal eða gjaldflokk 1.
DV, sem er rétthafi GRÆNA NÚMERSINS, greiðir
hins vegar langlínugjaldið. Það er því sama hvaðan
af landinu þú hringir, þú munt ætíð bera
lágmarkskostnað vegna símtalsins.
Pjónusta GRÆNA SlMANS verður eingöngu ætluð
vegna áskriftar og smáauglýsinga.
ÁSKRIFTARSÍMINN:
99-6270
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN:
99-6272
1
SIMINN
— talandi dæmi um þjónustu!