Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1991, Side 25
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 'M'
25:
Bretlandi. Ræstingastörfin hjá sendi-
ráöinu dugöu þó ekki til aö fram-
fleyta fimm manns og því skúraði
Kristín víðs vegar um bæinn. „Ég
leysti alltaf af í sumarfríum í Arnar-
hvoli. Eftir að Norræna húsiö var
opnað þreif ég þar allt daglega og
átti aldrei frí. Börnin hjálpuðu mér
með það þegar þau voru komin í
nám.“ Þess má geta að öll.börn Krist-
ínar fóru í langskólanám en þau eru
Ingibjörg, sem er kennari, Lára, sem
er lögfræðingur ASÍ, Halldór, sál-
fræðingur, er núna í framhaldsnámi
í Bandaríkjunum, og Sigurður, lækn-
ir, sem einnig er í framhaldsnámi.
Kristín vann við ræstingar hjá
Loftleiöum í níu ár og hún segist
vera þakklát fyrir það starf því það
gerði að verkum að hún gat leyft
tveimur börnum að fara sem skipti-
nemar. Þegar flugfélögin sameinuð-
ust var hún ein þeirra sem misstu
vinnuna og það þótti henni óréttlátt
á sínum tíma en lítið við að gera.
Ferðast á reiðhjóli
Allar skúringarnar í gegnum árin
hafa að sjálfsögðu gert að verkum
að líkaminn hefur slitnað en Kristín
lætur það ekki á sig fá. Alla tíð hefur
hún hjólað um bæinn hvert sem hún
hefur þurft að fara og gerir enn. Fyr-
ir sjö á morgnana hjólar hún niður
í sendiráð, 66 ára gömul og þrífur,
en síöan hjólar hún inn í Bústaða-
hverfi þar sem hún passar barna-
börnin alla daga fyrir Láru, dóttur
sína. „Ég þurfti að kenna börnunum
mínum að hjóla á sínúm tíma og við
hjóluðum oft niður í Nauthólsvík.
Það varð til þess að ég fór að hjóla í
vinnuna. Eftir að ég eltist keypti ég
mér betra hjól og núna er ég búin
aö fá mér gírahjól. Á síöasta ári hjól-
aði ég tíu kílómetra á dag alla daga
ársins,“ segir Kristín og bað er ekki
að sjá að þessi hressa kona hafi þræl-
að við skúringar allt sitt líf.
Síðasthðið sumar var mikið um aö
vera í breska sendiráðinu þegar von
var á Elísabetu drottningu í opinbera
heimsókn. Allt starfsfólk sendiráðs-
ins og þar á meðal Kristín fékk boðs-
kort sent í veislu í skipi drottningar,
Britannicu. Kristín segist hafa verið
hálffeimin í þeirri veislu en þá vissi
hún ekkert um fyrirhugaða orðuveit-
ingu. Hún heilsaði drottningunni
eins og aðrir starfsmenn en síðan
ræddi Elísabet stuttlega við alla.
Falleg þjónustuorða
Það var síðan um haustið að breski
Þessi mynd var tekin þegar Kristín tók við orðunni úr hendi breska sendi-
herrans á íslandi, sir Richard Best.
sendiherrann, sir Richard Best, kall-
aði Kristínu á sinn fund og rétti
henni bréf þess efnis að drottningin
hefði ákveðið að sæma hana orðu,
British Empire Medal, fyrir vel unn-
in störf í sendiráðinu í 33 ár. í sér-
stöku hófi nokkru síðar afhenti
sendiherrann Kristínu orðuna.
í veisluna bauö Kristín núverandi
eiginmanni sínum, Gísla Kristjáns-
syni, börnum og tengdabörnum en
sendiherrann bauð öllu því starfs-
fólki sem unnið hefur í sendiráðinu
í gegnum árin og er búsett á íslandi
og það þótti Kristínu mjög vænt um.
British Empire Medal er þjónustu-
orða og ákaflega falleg. Hún er þykk
og þung og að framan er mynd af
Georg V. og að aftan upphafsstafir
drottningar. Á rönd orðunnar er
grafið fullt nafn Kristínar Símonar-
dóttur. Með orðuveitingunni er
Kristín komin í hóp þeirra sem
breska sendiráðið býður þegar veisl-
ur eða aðrar athafnir eiga sér stað.
Hún fékk nú síöast boð um hóf í
bresku herskipi sem kom hingað í
fyrradag en hafði ekki hug á að þiggja
það.
Kristín Símonardóttir hefur auk
þess að skúra alla sína ævi látið fé-
lagsmál nokkuð til sín taka og þá
sérstaklega hjá verkakvennafélag-
inu Framsókn. Hún er mikill aðdá-
andi gömlu dansanna og tónlistar-
unnandi. Kristín var einstæð móðir
f sautján ár sem kom börnum sínum
upp og til mennta á svitadropunum
af skúringavinnunni og það er gleöi-
legt til þess að vita að slík kona skuli
fá viðurkenningu fyrir störf sín - og
ekkert verra aö hún skuli koma alla
leið úr Buckinghamhöll.
-ELA
Til sölu
Caterpillar 225 B LC
árg. '88. Vinnustundir 4800.
Allar upplýsingar á
Bílasölunni Skeifunni, sími 689555.
óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem veróa til sýnis þriðjudaginn 21. mai 1991 kl.
13-16 i porti bak viö skrifstofu vora aó Borgartúni 7, Reykjavík og viðar.
Tegundir
1. stk. Chrysler Cherokee Limited 4x4
1. stk. Jeep Wagoneer 4x4
1. stk. Ford Bronco 2 4x4
1. stk. Subaru 1800 GL station 4x4
3. stk. Subaru 1800 pickup 4x4
2. stk. Lada Sport 4x4
1. stk. Volvo 240 GLI
1. stk. Volvo 245 station
2. stk. Toyota Corolla 1300
1. stk. Toyota Corolla 1300 DX
1. stk. Ford Escort 1300
1. stk. Mazda B-1800 pickup
1. stk. Scanía Vabis 76 vörubifreió
1. stk. Kawasaki KZ1000 bifhjól P1
Til sýnis hjá Vegageró rikisins
Reyóarfirói
1. stk. Champion 740 A veghefill
Til sýnis hjá Vegagerö ríkisins
ísafirói
1. stk. Toyota Tercel station
Til sýnis hjá Vegageró rikisins
(vélaverkstæói) Borgartúni 5
2. stk. Leyland 600 disilvélar
Árgeró
bensin 1990
bensín 1987
bensín 1984
bensín 1987
bensín 1982-63
bensin 1987-88
bensin 1988
bensin 1982
bensín 1987
bensín 1986
bensín 1986
bensin 1982
dísil 1966
1982
1981
4x4 bensin 1987
Tilboðin veróa opnuð sama dag kl. 16.30 aó vióstöddum bjóöendum. Réttur er áskilinn
til aó hafna tilboóum sem ekki teljast viðunandi.
IIMIMKAUPASTOFIMUN RIKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
SMÁAUGLÝSINGADEILD
verður opin um hvítasunnuhelgina
sem hér segir:
OPIÐ
laugardag 18. maí frá kl. 8-14
mánudag 20. maí frá kl. 18-22
LOKAÐ
sunnudag 19. maí, hvítasunnudag
kemur út laugardaginn 18. maí
og síðan þriðjudaginn 21. mai
SIMINN ER 27022