Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1991, Síða 34
42
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1991.
Sviðsljós
Michael Jackson:
Óopinber ævi-
saga veldur usla
Michael Jackson, poppsöngvari
og sérvitringur, hefur nú hlotið
sömu örlög og Nancy Reagan. Út
er komin í Ameríku óopinber ævi-
saga hans eftir Randy Tarborelli
og heitir sú: Michael Jackson - töfr-
arnir og geðveikin, og er, eins og
ævisaga Nancyar, ekki rituð í sam-
vinnu við viðfangsefnið.
Tarborelli þessi, sem með þessu
framtaki stillir sér upp við hlið
Kitty Kelley í afar óvinsælum hópi
rithöfunda, hefur áður ritað svip-
aða bók um Díönu Ross. Söng-
konan varð afar óánægð en fór
ekki í meiðyrðamál. Ekki er enn
ljóst hver viðbrögð poppgoðsins
Jacksons verða. >
Umdeildasta fullyrðing bókar-
innar, og sú sem líklegust er til að
verða tilefni málshöfðunar, er um
meint ástarsamband Jacksons við
David Geffen, risa í skemmtanaiðn-
aði vestra, sem er reyndar að eigin
sögntvíkynhneigður. Þó Tarborelli
segist hafa rætt við hundruð
manna er aðeins vitnað í örfáa
undir nafni í bókinni en þess meira
stuðst við nafnlausa heimildar-
menn og skýrslur af ýmsu tagi sem
Tarborelli segist hafa undir hönd-
um. Tarborelli var ritstjóri tíma-
ritsins Soul í nokkur ár og hefur
skrifaö bækur um tónlist auk ævi-
sögu fröken Ross sem áður er getið.
Bók hans um Jackson þykir
draga upp mynd af listamanninum
sem einmana, ráðvilltum, sérvitr-
um listamanni sem eigi vart kost á
að fóta sig meðal samborgara
sinna. Mikið er gert úr vangavelt-
um um kynhneigð Jacksons og
verður það ein helsta niðurstaöa
höfundar að Jackson sé að mestu
fráhverfur kynlífi. Orsakir þess
séu einkum strangt trúarlegt upp-
eldi hans sem vottur Jehóva,
ofurást á móðurinni og síðast en
ekki síst slæmt fordæmi sem faðir
hans gaf með stöðugu framhjá-
haldi.
Ekki þarf neinn að undra þó for-
vitni ríki um þennan umtalaöa
listamann. Jackson hefur verið í
fréttum um árabil fyrir sérvisku
af ýmsu tagi, hann var sagður sofa
í súrefnistanki og fleira. Jackson
hefur ennfremur gengist undir
fleiri fegrunaraðgerðir en flestir,
þar af sex til að laga nefið, og gert
róttækar ráðstafanir til aö lýsa
hörund sitt.
Höfundur ævisögunnar fullyrðir
að Jackson sé ekki aðeins háður
skurðaðgerðum heldur vilji hann
með þessu hafna föður sínum, likj-
ast móður sinni og fela kynhlut-
verk sitt.
Eftir „nánum aðstoðarmönnum“
Michaels erú höfð ýmis ummæli
hans um kollegana í skemmtana-
iönaðinum. Þar á meðal að: Frank
Sinatra geti ekki sungið, að Bruce
Springsteen sé ofmetinn, að Prince
sé alveg á mörkunum og Michael
myndi aldrei vilja vinna með hon-
um, að Madonna sé léleg söngkona
og sé sæmst að viðurkenna að það
eina sem hún geri sæmilega sé að
markaðssetja sjálfa sig.
í Herald Tribune, þar sem fjallað
er um téða bók, er gefið í skyn að
næsta viðfangsefni Tarborellis sé
einmitt Madonna sjálf. Nema að
Kitty Kelley verði fyrri til að skrifa
um hana.
-Pá
Michael Jackson er fúll þessa dagana vegna óopinberrar ævisögu.
Carola lét ekki Gibb-bræðurna segja sér fyrir verkum.
Sigurvegari Eurovision:
Carola lætur
engan vaða
ofan í sig
Nauðungaruppboð
á eftirtalinni fasteign fer
fram á skrifstofu embættisins,
Strandgötu 31, Hafnarfirði,
á neðangreindum tíma:
Reykjavíkurvegur 40, jh., Hafnarfirði,
þingl. eig. Inga Ragnai-sdóttir, mið-
vikudaginn 22. maí nk. kl. 13.30. Upp-
boðsbeiðendur eru Valgarðm- Sig-
urðsson hdl. og Veðdeild Landsbanka
Islands.
BÆJARFÓGETINNIHAFNARFIRÐI,
GARÐAKAUPSTAÐ 0G Á SELTJARNARNESI.
SÝSLUMASURINN1KJÓSARSÝSLU.
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum fasteignum
ferfram á skrifstofu embættisins,
Strandgötu 31, Hafnarfirði,
á neðangreindum tíma:
Pálshús (lóð úr landi) Garðabæ, þingl.
eig. Jón Guðmundsson, miðvikudag-
inn 22. maí nk. kl. 13.25. Uppboðs-
beiðendur eru Gjaldheimtan í
' Garðabæ, Gjaldheimtan í Reykjavík
og Innheimta ríkissjóðs.
Vesturgata 18,301, Hafnarfirði, þingl.
eig. Mávadrangur h£, miðvikudaginn
22. maí nk. kl. 13.45. Uppboðsbeiðandi
er Búnaðarbanki íslands.
Ásland 16, Mosfellsbæ, þingl. eig.
Anna Helga Schram, miðvikudaginn
22. maí nk. kl. 13.55. Uppboðsbeiðend-
ur eru Baldur Guðlaugsson hrl. og
Logi Egilsson hdl.
Barrholt 23, Mosfellsbæ, þingl. eig.
Emil Adolfsson, miðvikudaginn 22.
- maí nk. kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur
eru Innheimta ríkissjóðs, Magnús M.
Norðdahl hdl., Sveinn H. Valdimars-
son hrl., Veðdeild Landsbanka íslands
og Öm Höskuldsson hrl.
Eyrartröð 4, Hafnarfirði, þingl. eig.
Aðalsteinn Sæmundsson, miðviku-
daginn 22. maí nk. kl. 14.05. Uppboðs-
beiðandi er Ólöf Finnsdóttir lögfr.
Skeiðarás, Lyngholti, Garðakaupstað,
þingl. eig. Sigurðm Sveinbjömsson
hf., miðvikudaginn 22. maí nk. kl.
14.25. Uppboðsbeiðandi er Iðnþróun-
arsjóður.
Bfrkiteigur 1A, Mosfellsbæ, þingl. eig.
Ólaíúi' G. Óskarsson/Ólaíúr Hraun-
dal, frmmtudaginn 23. maí nk. kl.
13.20. Uppboðsbeiðendm eru Jón Ing-
ólfsson hdl., Sveinn H. Valdfrnarsson
hrl. og Veðdeild Landsbanka íslands.
Blátún 5, Bessastaðahreppi, þingl. eig.
Þórður Þórðarson, funmtudaginn 23.
maí nk. kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur
em Ásbjöm Jónsson hdl., Ásgeir
Thoroddsen hrl., Garðar Garðarsson
hrl„ Hallgi'ímur B. Geirsson hrl., Inn-
heimta ríkissjóðs, Klemenz Eggerts-
son hdl., Veðdeild Landsbanka ís-
lands, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
hrl. og Ævar Guðmundsson hdl.
Hörgatún 7, Garðakaupstað, þingl.
eig. Erla I. Sigurðardóttir, fimmtudag-
inn 23. maí nk. kl. 13;35. Uppboðs-
beiðendur em Guðjón Ármann Jóns-
son hdl. og Veðdeild Landsbanka Is-
lands.
Lindarbyggð 11, Mosfellsbæ, þingl.
eig. Baídui' Guðnason og Öryrkja-
bandalag ísl., fimmtudaginn 23. maí
nk. kl. 13.40. Uppboðsbeiðendm em
Ámi Einarsson hdl., Ásgeir Thorodd-
sen hrl., Helgi Jóhannesson lögfr.,
Innheimta ríkissjóðs, íslandsbanki hf.,
Jóhannes A. Sævarsson hdl., Jþn Ing-
ólfsson hdl., Landsbanki íslands,
Reynir Karlsson hdl., Skúli J. Pálma-
son hrl., Veðdeild Landsbanka íslands
og Óm Höskuldsson hrl.
Skútahraun 11, Hafnarfirði, þingl. eig.
Sigmðm Sigurjónsson, en tal. eig.
Samtak hf. bátasmíði, íimmtudaginn
23. maí nk. kl. 13.55. Uppboðsbeiðandi
er Iðnþróunarsjóður.
Blikastígm 5, Bessastaðahreppi,
þingl. eig. Guðmundur Þ. Egils-
son/Sigrún Óskarsdóttir, fimmtudag-
inn 23. maí nk. kl. 14.00. Uppboðs-
beiðendur em Ámi Pálsson hdl., og
Veðdeild Landsbanka íslands._______
Lindarflöt 12, Garðakaupstað, þingl.
eig. Skúli Ólafsson, fimmtudaginn 23.
maí nk. kl. 14.10. Uppboðsbeiðandi er
Gjaldheimtan í Garðabæ.
Hjallabraut 2, 3. h. t. v., Hafnarfirði,
þingl. eig. Sigmsteinn Húbertsson,
funmtudaginn 23. maí nk. kl. 14.15.
Uppboðsbeiðandi er Valgarður Sig-
mðsson hdl.
Álafoss, lager og skrifst., Mosfellsbæ,
þingl. eig. Álafoss hf., fimmtudaginn
23. maí nk. kl. 14.35. Uppboðsbeiðandi
er Iðnaðarbanki Islands.
Melabraut 18, Hafharfirði, þingl. eig.
Hagvirki h£, fimmtudaginn 23. maí
nk. kl. 14.40. Uppboðsbeiðendur em
Hróbjartur Jónatansson hdl. og Ut-
vegsbanki íslands.
Litlabæjaivör 5, Bessastaðahreppi,
þingl. eig. Sofíia Jónsdóttir, en tal.
eig. Rut Helgadóttir, fimmtudaginn
23. maí nk. kl. 14.45. Uppboðsbeiðend-
ur em Bjöm Jónsson hdl., Ingvar
Bjömsson hdl., Innheimta ríkissjóðs,
Jón Ingólfsson hdl. og Pétm Kjerúlf
hdL___________________________
Austmströnd 14, 202, Seltjamamesi,
þingl. eig. Þuríður Magnúsdóttir,
fimmtudaginn 23. maí nk. kl. 14.50.
Uppboðsbeiðendm em Ólafúr Axels-
son hrl. og Valgarðm Sigmðsson hdl.
BÆJARFÓGETINN í HAFNARFIRÐl,
GARÐAK.AUPSTAÐ 0G Á SELTJARNARNESL
SÝSLUM.ABURLNN í KJÓSARSÝSLU.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Lyngás 10A. 203, Garðabæ, þingl. eig.
Kristmann Ámason, fer fram á eign-
inni sjálfi-i fimmtudaginn 23. maí nk.
kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur em Bjöm
Ólafúr Hallgrímsson hdl., Tómas H.
Heiðar lögfræðingur og Valgarðm
Sigurðsson hdl.
Lækjarfit 7, 103, Garðabæ, þingl. eig.
Ásgeir Ásgeirsson, fer fram á eigninni
sjálfri fimmtudaginn 23. maí nk. kl.
14.01. Uppboðsbeiðendm em Gjald-
heimtan f Garðabæ, Helgi Sigmðsson
hdl. og Þorsteinn Einarsson hdl.
BÆJARFÓGETINN í HAFNARFIRÐI,
GARÐAKAUPSTAÐ 0G Á SELTJARNARNESI.
SÝSLUMAÐURINN í KJÓSARSÝSLU.
Carola Sogaard, sú er sigraði fyrir
Svía í Evrovisionkeppninni á dögun-
um, er enginn nýgræðingur í tónlist-
arheiminum þó ung sé að árum. Car-
ola er 24 ára og segist stöðugt vera
að vaxa sem listamaður og sé á réttri
leið í tónlistinni.
Leiðin hefur þó ekki alltaf legið upp
á viö í lífl hennar því Carola hefur
fengið að kynnast mótstreyminu
líka. „Þó gagnrýnendur séu ekki allt-
af hrifnir af mér þá fer ég samt mín-
ar leiðir,“ segir hún. Carola tók þátt
í Eurovision í annað skiptið nú og
segist vera mikið fyrir keppnina og
stemmninguna í kringum hana.
Það var áriö 1983 sem Carola tók
fyrst þátt í Eurovision. í maí á síö-
asta ári gifti hún sig en sá heppni var
Svíi, einu ári yngri en hún, að nafni
Runar Sogaard en við það breyttist
eftirnafn Carolu úr Hággkvist í
Soggaard. Carola og Runar leigja sér
ibúð í Uppsölum en bíða spennt eftir
aö flytja í eigin íbúð sem verður nú
með sumrinu. Þau hjónin fengu arki-
tekt til að teikna draumahúsið, sem
á að standa nálægt sjónum, og nú er
draumurinn að rætast og ekkert hef-
ur verið til sparað.
Carola hefur aldrei farið leynt með
trúarskoðanir sínar en hún er í söfn-
uði sem kallar sig Lífsins orð en hann
hefur bækistöðvar í Uppsölum. Þess
vegna hafa þó hjónin búið á þeim
stað en þau eru bæði meðlimir safn-
aðarins. í einkalífmu er það sem sagt
sálmasöngurinn hjá Carolu en útá-
við eru þaö popplög og diskótaktur
sem náð hafa geysilegum vinsældum
bæði i Svíþjóö og öðrum löndum.
Hún segist þó alltaf halda fast i skoð-
anir sínar og ekkert geti breytt
henni.
Árið 1986 komst Carola í samband
við Bee Gees-bræðurna i Kaliforníu,
þá Maurice, Robin og Barry Gibb.
Þeir sömdu lög fyrir hana og stjórn-
uðu upptöku á stórri plötu. Sú plata
kom þó aldrei út heldur lítil tveggja
laga plata. Maurice Gibb sagði að
Carola heföi ekkert gert til að halda
við sínum alþjóðlegu vinsældum.
Hún fékk gott tækifæri í Kaliforníu
en klúðraði málinu og fleygði því í
sjóinn er haft eftir Maurice. Carola
vill ekkert tala um samband sitt og
Gibb-bræðranna.
Carola er sögð hörð og ráðrík og
hugsanlega fékk hún of litlu ráöið
með stóru plötuna með þeim Gibb-
bræðrum sem átti að gera hana
heimsfræga. En Carola segist vera
glöö yflr að vera sjálfstæð og að hún
geti tekið eigin ákvarðanir. Hún hef-
ur sagt sænsku blöðunum að hún
hafi hugsað sér að koma með barn á
næsta ári en eiginmaðurinn er hins
vegar á því að bíða megi í nokkur
ár með bleiuskiptin enda ætlar Car-
ola sér ekki að standa innan fjögurra
veggja heimilisins.