Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Side 12
12
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1991.
Erlendbóksjá
Þar sem framtíðin
er dagurinn í gær
Árið 1979, skömmu eftir að leiðtogar
Egyptalands og ísraels undirrituðu
sögulegt samkomulag sem kennt er
við Camp David í Bandaríkjunum,
sendi stórblaðið The New York Ti-
mes einn blaðamanna sinna, Thomas
L. Friedman, til Líbanon. Þar gerðust
miklir atburðir næstu árin. Fried-
man sendi blaði sínu fréttir og frétta-
skýringar sem sumar hverjar vöktu
slíka athygli að hann fékk hin eftir-
sóttu Pulitzerverðlaun fyrir vikið.
Þegar Friedman hafði fengið nóg
af dvölinni í Líbanon, áriö 1984, færði
hann sig um set og varð fréttamaöur
blaðs síns í ísrael um nokkurra ára
skeið. Hann sneri loks heim til
Bandaríkjanna á ný árið 1988 og hóf
aö rita þessa bók um lífsreynslu sína
í suðupotti araba og gyðinga.
Hundrað þúsund
fórnarlömb
Beirút vekur svipaðar hugrenning-
ar með fólki og Belfast. Það fyrsta
sem kemur í hugann eru sprengingar
og manndráp. Og ekki að ófyrir-
synju. Á um það bil einum og hálfum
áratug hafa meira en eitt hundrað
þúsund manns orðið fórnarlömb of-
beldisins í Beirút; annaðhvort látið
lífið eða særst. Eignartjón almenn-
ings er ómetanlegt.
Friedman "kveðst eftir tæplega
fimm ára dvöl í Beirút líta á borgina
eins og gríðarlegt hyldýpi þar sem
finna megi myrkasta afkima m§nn-
legrar hegðunar. Beirút sé borgar-
frumskógur þar sem ekki einu sinni
lögmál frumskógarins gildi lengur.
Til þess að halda sönsum í borg þar
sem næsti bíll eða næsta hús getur
skyndilega sprungið í loft upp þegar
þú gengur framhjá, þar sem skotbar-
dagi getur hafist hvar og hvenær sem
er, verða íbúarnir aö einangra sig
andlega frá ógninni, loka henni úr
huga sér og einbeita sér að öðru.
Bönd blóðs og trúar
En þetta er líka borgin sem fyrr á
öldinni var miðstöö viðskipta og at-
hafnalífs í arabaheiminum. Líbanon
var þá líkt við Sviss. Hvað gerist?
Friedman tekst frábærlega að skil-
greina hvers vegna og hvemig Lí-
banon leystist upp í frumeindir sínar
miöborg Beirút eftir vopnaviðskipti.
og varð að landi þar sem allir berjast
gegn öllum. Þegar í harðbakkann sló
reyndust nefninlega engir „Líbanir"
til. Bönd blóðs og trúar skiptu miklu
meira máli en þjóðerni sem búið var
til á evrópsku teikniborði; ættin, ætt-
bálkurinn, trúflokkurinn. Þegar
samstaðan rofnaöi endanlega um þá
helmingaskiptareglu milli múslíma
og kristinna manna, sem gamla ný-
lenduveldið hafði efnt til, kom í ljós
að enginn leit á sig fyrst og fremst
sem Líbana. Sérhóparnir urðu marg-
ir; þegar mest var létu ríflega fjöru-
tíu vopnaðir flokkar til sín taka í
Beirút, að vísu mismunandi sterkir.
Þeir tókust á um völd en ekki hug-
sjónir, auð en ekki stefnur.
Vanmat á aðstæðum
Á þeim árum sem Friedman var í
Líbanon gerðu ísraelsmenn innrás í
landið, hröktu Palestínumenn, undir
forystu Arafats, úr landi og lömuðu
samtök hans, PLO, um skeið. Einu
markmiöi innrásarinnar var því náð,
þótt fjöldamorðin í flóttamannabúð-
um Palestínumanna vörpuðu þar á
dimmum skugga.
ísraelsmenn misskildu hins vegar
gjörsamlega stöðu mála í Líbanon.
Þeir ætluöu sér að koma þar upp
vinsamlegri ríkisstjórn kristinna
falangista, gera við hana friðarsamn-
inga og hverfa svo úr landinu. Segja
má að allt þetta þrennt hafi gerst, en
það skipti engu máli því sú stjórn var
ekki viðurkennd af öðrum en falang-
istum sjálfum.
Bandaríkjamenn gerðu sams kon-
ar mistök. Reaganstjórnin sendi her-
sveitir til Líbanon með það í huga
að styrkja „stjórn" landsins. Þeir átt-
uöu sig ekki á því að með því að
stvöja einn deiluaöila í landinu
öfíuðu þeir sér óvildar hinna. Þá lex-
íu lærðu þeir fyrst þegar tugir
Bandaríkjamanna féllu í sjálfs-
morðsárás múslíma. Vanmat banda-
rískra ráðamanna á aðstæðum, og
vanþekking, varð því dýrkeypt.
Menn gærdagsins
Eftir vistina í Beirút reyndist lífið
í ísrael tiltölulega rólegt fyrir Fried-
man. Þar til Intifada, sem hann líkir
reyndar við jarðskjálfta, reið yfir í
desember árið 1987.
Friedman gerir góða grein fyrir
þessari uppreisn Palestínuaraba á
þeim landsvæðum sem ísraelsmenn
hertóku í sex-daga-stríðinu tuttugu
árum áður, hvernig hún kviknaði og
hvers vegna. Hann segir Intifada
reiðiöskur fólks sem hafi árum sam-
an byrgt innra með sér sífellt óbæri-
legri sársauka. Uppreisnin, sem kom
PLO jafnmikið á óvart og ísraels-
mönnum, sé þein afleiðing þess að
til sé komin ný kynslóð araba sem
hafi alla sína tíð búið við hernám og
valdníðslu herraþjóðar.
í þéssari bók er einnig mjög grein-
argóð lýsing á stjórnmálalífinu í ísra-
el þar sem stóru flokkarnir tveir,
Líkúd og Verkamannaflokkurinn,
hafi í raun og veru sameinast um aö
ræða ekki í alvöru þá grundvallar-
spurningu hvers konar ríki ísrael
eigi að vera. í raun og veru sé engin
stefna til meðal ráðamanna í ísrael
um hvað eigi að gera við hernumdu
svæðin og Palestínumenn sem þar
búa. Meginmarkmiö foringjanna sé
því að halda sjó. Þegar þeir horfi til
morgundagsins líti þeir í raun og
veru til baka. Framtíðarsýn þeirra
sé dagurinn í gær.
Snjöll frásögn
Bók Friedmans er snjöll, fróðleg
og spennandi lýsing jafnt á daglegu
lífi sem stjórnmálalegum og hernað-
arlegum vandamálum í þessum
tveimur að mörgu leyti ólíku löndum
sem örlögin hafa tvinnað saman í
blóðugum hildarleik. Bandaríska
blaöamanninum tekst afar vel að
segja frá atburðarás og viðbrögðum
almennings, lýsa aðstæðum og rekja
viötöl sín við fólk úr öllum þjóðfé-
lagsstéttum. Hann á einnig auðvelt
með að skilgreina og skýra miskunn-
arlausa refskák stjómmálanna í
þessum heimshluta.
En Friedman hefur enga lausn á
vandanum. í eftirmála, sem ritaður
er árið 1989, leggur hann að vísu fram
hugmyndir um hugsanlega lausn á
vanda Palestínumanna, en hefur
þann fyrirvara á að einungis yfir-
þyrmandi nauðsyn muni knýja Isra-
elsmenri og Palestínumenn til raun-
verulegra samninga. Mestar líkur
séu á því að engu verði breytt.
FROM BEIRUT TO JERUSALEM.
Höfundur: Thomas L. Friedman.
Anchor Books, 1990.
Lögreglumadur í
Prag kommúnista
Boruvka er liðsforingi í lögregl-
unni í Prag á árunum eftir innrás
Sovétríkjanna í Tékkóslóvakíu í
ágúst 1968. Hann starfar að rann-
sókn morðmála og er yfirleitt afar
óhamingjusamur maöur vegna
þess að undir stjórn kommúnista
á einungis að upplýsa og refsa
fyrir sum morð.en ekki önnur.
Höfundur þessara fimm smá-
sagna um glæpamál sem
Boruvka rannsakar, Josef
Skvorecky, flúði land eftir inn-
rásina og hefur síðan stundað rit-
störf og kennslu í Kanada. Hann
segir allar fimm sögurnar laus-
lega byggðar á raunverulegum
atburðum í Tékkóslóvakíu.
Þetta eru áhugaverðar sögur en
kannski fyrst og fremst vegna
þeirrar myndar sem þær gefa af
hversdagslífinu í Tékkóslóvakíu
eftir að Pragvoriö var liðið undir
lok, þeirri spillingu sem blómstr-
aði undir alræði kommúnista-
flokksins og tilraunum venjulegs
fólks til að halda áfram að lifa
lífi sínu hvaö sem á dúndi ut-
anfrá.
THE END OF LIEUTENANT BORUVKA.
Höfundur: Josef Skvorecky.
Faber & Faber, 1991.
Aðlesablöðí
Frakklandsferð
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Thomas Harrls:
THE SILENCE OF THE LAMBS.
2. Terry Pratchett & Nell Gaiman:
GOOD OMENS.
3. Wilbur Smlth:
GOLDEN FOX.
4. Dunielle Steel:
MESSAGE FROM NAM.
5. Rosamunde Pilcher:
SEPTEMBER.
6. Rosoi Thomas:
Q WOMAN OF OUR TIMES.
7. Mary Wesley:
A SENSIBLE UFE.
0. Vlrginla Andrews:
WEB OF DREAMS.
9. Terry Pratchett:
DIGGERS.
10. Bret Easton Ellls:
AMERICAN PSYCHO.
Rlt almenns eðlís:
1. Peter Mayle;
A VEAR fN PROVENCE.
2. PROMS '91.
3. Drlvlng Standards Agency:
YOUR DRIVING TEST.
4. Rosemary Conley:
COMPLETE HIP 8. THIGH DIET.
5. Hopklns & Sugerman:
NO ONE HERE GETS OUT ALIVE.
6. Davld Heasayon:
THE BEDDING PLANT EXPERT.
7. Ðlll Frlndall:
PLAYFAIR CRICKET ANNUAL
1991.
B. GARDENS OF ENGLAND & WALES
1991.
9. Davld lcke:
THE THRUTH VIBRATIONS.
10. Rosemary Conley:
INCH-LOSS PLAN.
(Byggt 8 The Sunday rimes)
Bandaríkin
Skáldeögur:
1. Scott Turow:
BURDEN OF PROOF.
2. C. V. Andrews:
SECRETS OF THE MORNING.
3. Johanna Lindscy:
ONCE A PRINCESS.
4. Danlelle Steel:
MESSAGE FROM NAM.
5. Thomas Harrls:
THE SILENCE OF THE LAMBS.
6. Thomas Harrla:
RED DRAGON.
7. Sue Grafton:
„G“ IS FOR GUMSHOE.
S. Sue Mltler;
FAMILY PICTURES.
9. Domlnick Dunne:
AN INCONVENIENT WOMAN.
10. Cathorino Coulter:
IMPULSE.
11. Stephen King:
THE STAND.
12. Joseph Wambaugh:
THE GOLDEN ORANGE.
13. Lillan Jackson Braun:
THE CAT WHO LIVED HIGH.
14. Elmore Leonard:
GET SHORTY.
18. Dale Brown:
HAMMERHEADS.
16. Tom Robbins:
SKINNY LEGS AND ALL.
Rit almertns eðlis:
1. Deborah Tanncn:
YOU JUST DON'T UNDERSTAND.
2. Robert Fulghum:
ALL I REALLY NEED TO KNOW
LEARNED IN KINDERGARTEN.
3. Robert Fulghum;
IT WAS ON FIRE WHEN I LAY
DOWN ON IT.
4. M. Scott Peck:
THE ROAD LESS TRAVELED.
5. George F. Wlll:
MEN AT WORK.
$. S. Jtlt Ker Coneway:
THE ROAD FROM COORAIN.
7. Mary Catherine Bateson:
COMPOSING A LIFE.
8. Thomas L. Friedman:
FROM BEIRUT TO JERUSALEM.
9. Bernie S. Slegel:
LOVE, MEDICINE AND
MIRACLES. .
10. Stephen W. Hawklng:
A BRIEF HISTÓRY OF TIME.
(Byggl á New York Tlmes Book Hevlew)
Danmörk
Skáldsögur:
1. Johannes Mollehave:
SKUFFELSER DER IKKE GIK I
OPFYLDELSE.
2. Anne Karin Elstad;
MARIA, MARIA.
3. A. de Saint Exupery:
DEN LILLE PRINS.
4. Jean M. Auel:
HULEBJ0RNENS KLAN.
5. Vaclav Havel:
FJERNFORH0R.
6. Tom Wolfe:
FORFÆNGELIGHEDENS BÁL.
7. Jean M. Auel:
MAMMUTJÆGERNE.
8. Betty Mahmoody:
IKKE UDEN MIN DATTER.
9. Maria Hclleberg:
SOM EN VREDENS PLOV.
10. Isabel Allende:
EVA LUNA.
(Byggt á PoliUken Sondag)
Umsjón: Elías Snæland Jónsson
Það er kominn tími sumarleyf-
isferöa á ný. Margir halda til f]ar-
lægra landa án þess að kunna
mikið fyrir sér í tungumálinu.
Þessi handhæga bók er ágæt
svona rétt fyrir sumarferð til
Frakklands til aö þjálfa sig í að
skilja eitthvað af því sem lesa
má í frönskum dagblöðum þegar
út er komiö. Hún er miðuö við
þá sem hafa einhverja nasasjón
af tungumálinu en litla æfingu í
að lesa frönsk blöð.
Bókinni er skipt í sautján kafla
eftir efnisþáttum dagblaða.
Dæmi: fréttir, íþróttir, veöur,
auglýsingar verslana o.s.frv!
Tekin eru bein dæmi úr blöðun-
um, svo sem fyrirsagnir, fréttir,
auglýsingar, og skilningur le-
sandans auðveldaður með leið-
andi spurningum sem eru á
ensku. Af og til er svo upprifjun
á helstu frönsku orðunum sem
fyrir hafa komið.
Tiltölulega fljótlega stendur les-
andinn sig aö því að skilja al-
mennar blaðafrásagnir sem hann
hefði aö óreyndu fortekiö fyrir
aö kunna nokkur skil á.
THE PENGUIN FRENCH NEWSREAD-
ER.
Höfundur: lan MacDonald.
Penguin Books, 1989.