Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Síða 17
17 LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1991. Vísnaþáttur Eyfirskt þjóðfræðarit Jóhannes Óli Sæmundsson, lengi skólastjóri á Árskógsströnd en síðast námsstjóri á Akureyri, mun hafa verið aðalhvatamaður að útgáfu árs- ritsins Súlur sem enn er gefið út á Akureyri. Það hóf göngu sína 1971 og í hð hans gengu margir ritfærir menn á Norðurlandi. Ég nefni þá rit- stjórana Erhng Davíðsson og Jakob Ó. Pétursson. Þessir þrír eru nú látn- ir en merkið hefur ekki verið látið faha. Öh þessi ár hefur það birt norð- lenskt þjóðfræðaefni og stökur. Allir kannast við söguna um Kölska og Gnýputóft. Hér kemur fram að vísan alkunna er úr Húnaþingi: Gijót er nóg í Gnýputóft, glymur jám í steinum, þótt túnið sé á Tindum mjótt, tefur það fyrir einum. Bóndinn gerði samning við Kölska en fól guðsorðabók á milli steina svo sá gamh misti af kaupunum. Þetta er gott að vita. Og þessi er um mann frá Hnausum á sömu slóðum. Breiða ljái bhkar á, blöskra náir tausum, þegar knáir engjum á ahir slá á Hnausum. Gaman má hafa af vísum þó ekki sé mikill skáldskapurinn eða efnið, sé hugarfar móttakandans rétt sthlt. Magnús Teitsson kannast ég við sem hðtækan vísnamann, man þó ekki í svipinn meira um hann. Hér á hann þessa stöku: Ahan daginn Óh minn er að slá í rekju. Th að sjá er teigurinn sem tíkarskinn á þekju. Já, mörg er tækifærisvísan skemmtileg og getur lengi gegnt sínu hlutverki. Næsta vísa er eftir Guð- mund Stefánsson frá Minni-Brekku í Fljótum og er meira að segja tengd árinu 1912. Gremjan þýtur grimm í segg, gerist líthl skárinn, stráið hrýtur ekki af egg, illa bítur ljárinn. Ahar tengjast vísurnar sveitastörf- um, vori og sumri, séríslenskt krydd til að gera hið hversdagslega strit dáhtið upphafnara og skemmtilegra. Fleiri dæmi um þaö. Valdimar Benónýsson var lands- kunnur hagyrðingur, ættaður úr Húnaþingi.. Hér eru tvær gamlar sumarvísur eftir hann: Drekkur smárinn dauðaveig, dagsins tára nýtur. Einn ég skrára engjateig, ennþá ljárinn bítur. Ghtrar regn um grund og hól, glóa slegnu sárin. Blóma vegna brosir sól blítt í gegnum tárin. Af þessu riti eru komin út samtals 27 hefti. Ritsjóri nú er Árni J. Har- aldsson. Líklega eru eftirfarandi lausavísur eftir hann - þó er það ekki alveg víst. Undir þeim standa stafir hans: Sá ég áðan blómin blá brosa í dalbrekkunni, veturinn er fallinn frá fyrir vorbhðunni Þó að andi kalt á kinn og kreppi að þínu spori, Vísnaþáttur haustar seint ef hugurinn heilsar nýju vori. Þó að virðist þoka á fold og þrot á sumarhlýju, blóm sér munu brátt úr mold bregða á vori nýju. Ekki þarftu að óskapast yfir vetri hörðum þó að geri kuldakast og klaki að holtabörðum. Kunningi höfundar lýsti heilsu sinni og vísnasmiður færði í rím: Farlama og fótasár, fúið hróf í nausti, allur saman orðinn grár eins og héla á hausti. Svona hafa ungir og gamlir ort við vinnu sína svo lengi sem munað verður. Ætli það sé ekki ennþá gert? Vísur frá Vesturheimi En nú skulum við fá tilbreytingu í þáttinn, hverfa langt th baka í tím- ann. Allir kannast við vestur- íslenska skáldið Káin sem fæddur var á Akureyri 1860 og fór til Amer- íku á eftir eldri bróður sínum. Þá var ísland kalt og framtíðarlaust og æv- intýrin öh í nýja heiminum svokall- aða. Hann var þá tvítugur Akur- eyrarphtur með rætur í eyfirskri mold og þegar farinn aö gera skemmtilegar vísur. Hann hét þá Kristján Níels Jónsson. Hann ætlaði að koma heim aftur þegar hann væri orðinn nógu ríkur. Hann fékk lánað ættarnafn bróður síns og upphafstaf- irnir í heiti hans voru K.N. Úr því varð í framburði Káinn. Hann komst aldrei hærra í borgaralegum mann- virðingarstiga en að verða fjósamað- ur og grafari hjá sóknarprestinum sínum. Skáldskapinn tók hann aldrei alvarlega. Þó kom það einu sinni til tals að bjóða honum að vera gerður gestur íslands á þúsund ára hátíðinni 1930. En hann færðist undan því, bar því við að hann ætti engin frambærileg samkvæmisföt, sem auövitað var satt. En hann kæröi sig ekkert um þetta boð. Hann vissi sig vera óhæfan til fínni samkvæma, alkunnur drykkjumaður. Þegar átti að leysa fatamálin orti hann: Ef ég fer, þá fer ég ber, ferðast eins og Gandhi. Þekktur er ég heima og hér holdi klæddur andi. „Heima“ var ísland. „Hér“ íslensku byggðirnar í Vesturheimi. Svo koma nokkrar vísur eftir Káin, settar hér af fullkomnu handahófi. Þó Káinn væri dálítið rakur stundum fara ekki af því sögur að það yrði th almennra vandræða. Einu sinni fann þó gömul kona ástæðu til að benda honum á að ef hann hefði drukkið minna hefði hann getað eignast góða konu og skemmtilegt heimili. Hann svaraði: Gamli Bakkus gaf mér smakka gæðin bestu öl og vín. Og honum á ég það að þakka að þú ert ekki konan mín. Gunnar Thoroddsen samdi skemmtilegt lag við þessa vísu. Skáldið sýndi vini sínum mynd af sér: Hér þú sjá skalt, maður, mynd. mynd sem dável þekkir. Norna álög, svik og synd, svipinn á henni blekkir. Og að gefnu thefni: Einlægt þú talar illa um mig, aftur ég tala vel um þig. Einmitt það besta af öllu er, aö enginn trúir þér - né mér. Önnur í líkum dúr: Aldrei brenni ég bragða vín, né bragi nenni að tóna. Fellt hefur erinþá ást til mín engin kvennpersóna. Th Stephans G. Hér ég dvel og huggun finn að hversdagsþrautum búnum. Hérna el ég aldur minn eins og naut hjá kúnum. Varla pláss fyrir meira núna. Jón úr Vör tæki á'hyerTheimili! „Síðan ég fékk mér Macintosh Classic-tölvu hef ég getað nýtt mér þetta sjálfsagða heimilistæki til að geta unnið heima ef ég vil. Maður er nefni- lega oft frjórri heima en á vinnustaðnum. Konan mín notar Macintosh-tölvuna við ýmis verkefni, s.s. ritvinnslu, bókhald o.fl. auk þess sem tölvukunnáttan kom henni að góðum notum þegar húnfór aftur út á vinnumarkaðinn. Svo nýtist tölvan einnig vel fyrir börnin. Mun algengara er nú að skólaverkefni og ritgerðir séu unnar á tölvu og einkunnir barnanna eru nú hærri en áður.“ Verð á Macintosh Classic-tölvu er aðeins 89.900,- kr. eða 85.405,- kr. stgr. Hún fæst einng með Munaláni og þá eru til dæmis greicld 25% við afhendingu: 22.475,- kr. og 3.025,- kr. á mánuði í 30 mán. Macintosh Classic Apple-umboðið Skipholti 21, Rvk. • Sími 91-624800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.