Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1991.
Veiðivon
Elliðaámar og Laxá í Kjós:
Hundruð veiðiáhuga-
manna mættu á staðinn
Páll Magnússon sjónvarpsstjóri segir nokkur vel valin orð við Ijósmyndara
blaðanna en hann hafði ekki fengið lax er myndin var tekin.
Það var þröng á þingi þegar Elliðaámar voru opnaðar og allir vildu mynda
Davíð. Eggert Skúlason, fréttamaður Stöðvar tvö, í myndavélaflóðinu en
ekki fiska.
Málin rædd uppi í brekku. Jón Stefánsson og Runólfur Heydal kíkja eftir laxi.
DV-myndir G.Bender
Þeir voru margir sem lögðu leið
sína að Elliðaánum og Laxá í Kjós
fyrstu veiðidagana.
Þeim íjölgar dag frá degi sem byija
í veiðinni þó ekki verði veiðin
kannski alltaf mikil þó mikið sé
reynt.
„Þetta var 8 pund lax en hann fór
af eftir stutta stund,“ sagði Davíð
Oddsson borgarstjóri er hann setti í
fyrsta lax sumarins og missti hann
skömmu seinna eftir stutta baráttu á
Breiðunni í Elliðaánum. Það eina
sem Davíð hafi upp úr þessu voru
urriðatittir í matinn. En hann reyndi
og reyndi.
-G.Bender
Davíð Oddsson, borgarstjóri og for-
sætisráðherra, fer í veiðipeysuna
sina en allt kom fyrir ekki. Fiskurinn
vildi ekki taka, nema nokkrir urriða-
tittir.
Þjóðar-
spaugDV
Bílarnir
Gamall bóndi, sem var aö
hneykslast á unga fólkinu nú til
dags. komst svo aö orði: i
„Þetta unga fóík er alveg hætt
að geta gengið nema þá í bílum.“
Harma
liðna daga
Eftir að bresku hermennirnir
yfírgáfu ísland kvað einn maður
þessa vísu:
Flugmennimir sviptir sorg
suður um loftin slaga,
en hórurnar á Hótel Borg
harma liðna daga.
Skrítin vél
Bóndi í Kjós var eitt sinn að
sýna fimm ára gömlum dreng
útungunarvél og voru ungamir
að koma út.
„Finnst þér ekki skrítið hvernig
ungarnir koma út úr vélinni,"
spurði bóndi strák.
„Jú,“ svaraði stráksi „en mér
finnst samt miklu skrítnara
hvemig ungamir komast inn í
eggin.“
Haltur
Lögregluþjónn í Reykjavík
stoppaöi eitt sinn dauðadrukkinn
mann í Aðalstræti og tilkynnti
honum að hann gengi með annan
fótinn upp á gangstéttinni en
hinn niðri á götunni.
„Þaö var gott að þú bentir mér
á þetta.“ svaraöi sá dmkkni, „ég
hélt nefnilega að ég værí svona
skrambi haltur."
Til styrktar
Svo var það sagan af dagskrár-
gerðarmanninum á Bylgjunni
sem tilkyimti eitt simi að næsta
lag væri samið til styrktar eyöni.
Á eftir laginu sagði dagskrár-
gerðarmaðurinn að lagið væri nú
reyndar samið til styrktar út-
breiðslu sjúkdómsins ægilega...
Finnur þú fimm breytingar? 109
4952
Ég skal aldrei aftur nota þig sem verjanda minn...
Heimilisfang:.
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. Fimm Úrvalsbækur að
verðmæti kr. 3.743.
2. Fimm Úrvalsbækur að
verðmæti kr. 3.743.
Bækurnar sem er í verðlaun
heita: Á eheftu stundu, Flugan
á veggnum, í helgreipum hat-
urs, Lygi þagnarinnar og
Leikreglur. Bækurnar eru
gefnar út af Frjálsri fjölmiðl-
un.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 109
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundruð-
ustu og sjöundu getraun
reyndust vera:
1. Jakobína Kristjánsdóttir,
Höfðabrekku 21, Húsavík
2. Axel Axelsson,
Leirubakka 22,109 Reykjavík
Vinningarnir verða sendir
heim.