Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Page 32
FQSTUÐAGUR 14. JÚNÍ 1991. „Ertu lifandi, helvítið þitt" - Ólafur Gauti lýsir ævintýralegu áramótaferðalagi í Burstarfelli „Ertu lifandi, helvítið þitt.“ Þetta var það fyrsta sem ferðafélagar Ólafs Gauta Sigurðssonar sögðu við hann þegar þeir gengu fram á hann í snjó- skafli við rætur Burstarfells í Vopna- firði á gamlárskvöld í vetur. Það var kannski ekki einkennilegt þó þeim yrði þetta aö orði því Ólafur hrapaði röska 60 metra fyrir björg en steypti síðan stömpum 100 metra í viðbót niður snarbratta, stórgrýtta skriðu. Slapp ekki alveg óbrotinn Þegar staðið er á brún Burstarfells þar sem Ólafur tók flugið er eríltt að ímynda sér að nokkur nema fugl- inn íljúgandi komist óbrotinn niður gínandi hamrastábð. Ólafur slapp að vísu ekki alveg óbrotinn frá sinni flugferð. Riibein brotnuöu og lungað lagðist saman og hann fékk slæmt mar og tognun á öxl og mjöðm. „Við vorum 10 saman Jökuldælir á tveimur jeppum og ferðinni var heit- ið á áramótadansleik í Vopnafirði. Þegar við komum niður á brún Búrstarfells, þar sem sveitin blasir við, ákváðum við að skjóta upp flug- eldum til þess að láta Vopnfirðinga vita að það væru komnir gestir. Fé- lagi minn stakk niður rakettu fremst í brúninni og bað mig að kveikja í. Ég tók út úr mér sígarettu til þess en náði ekki vel svo ég steig eitt skref í viðbót og þá flaug ég af stað,“ sagði Ólafur Gauti í samtali við DV á dög- unum. DV fór með Ólafi á staðinn og hann rifjaði þessa sérstæðu lífs- reynslu upp. Varð hann ekkert hræddur þegar hann flaug af staö? Hélt aö þetta væri smábarð „Nei, ég varð það nú eiginlega ekki. Ég vissi náttúrlega ekkert hvað þetta var hátt og hélt jafnvel að þetta væri smá helvítis barð. Ég hrapaði 21 metra fyrst og lenti með fjandi mikl- um skelli í snjóskafli á syllu rétt neð- an við brúnina. Ég heyrði hróp og köll i félögum mínum uppi á brún- inni og vatt mér til í bælinu til þess að sjá upp en þá flaug ég af stað aftur og í þetta skipti röska 40 metra. Ég var frekar rólegur allan tímann og horfði bara á klettana þjóta framhjá og beið eftir þetta yrði allt búiö og beið eftir að lenda þaðan sem ég steypti stömpum niður bratta skrið- una að minnsta kosti 100 metra í við- bót. Þar missti ég meðvitund. Ég varð aldrei neitt hræddur að ráði og býst við að félögum mínum uppi á brún- inni hafi liðið miklu verr en mér.“ Töldu sig aldrei sjá hann lifandi meir Félagar Ólafs óku sem fljótast þeir máttu ofan af brúninni og fyrir neð- an klettana skiptu þeir liði. Tveir lögðu af stað gangandi inn með fjall- inu þangað sem ætla mátti að Ólafur hefði lent en hinir óku áfram niður að bænum á Burstarfelli til þess að I komast í síma og ná í hjálp. Flestir í hópnum vissu hvemig aöstæður voru í fjaliinu og voru því sannfærð- ir um að þeir myndu aldrei sjá félaga sinn á lífi aftur. Ólafur gægist fram af brúninni sem hann hélt að væri smábarð. Gekk af stað til byggða Meðan þessu fór fram lá Ólafur Gauti meðvitundarlaus í snjóskafli í hlíðum Burstarfells. Þegar hann rankaði fyrst við sér hélt hann sig hafa lent í bílslysi en fljótlega áttaði hann sig á aðstæðum og hvað gerst hafði. Hann staulaðist á fætur og haltraði af stað til byggða. „Ég ætlaði fyrst að labba niður í Burstarfell til þess að ná í hjálp ef ég væri einn á lífi en sá fljótlega lög- reglubílinn niðri á vegi og áttaði mig þá á því að ég væri eini bjálfinn sem hefði farið fram af.“ Félagar Ólafs gengu síðan fram á slóðina eftir hann og það urðu fagn- aðarfundir þó fyrsta ávarpiö væri kannski dálítið hranalegt. Þeir gengu síðan með honum dálitla stund en þá komu menn úr björgunarsveitinni á Vopnafirði á staðinn með sjúkra- börur. ',,Ég var alveg að drepast í mjöðm- inni og það var erfitt að labba í rúm- lega hnédjúpum snjó,“ sagði Ólafur. „Þess vegna varð ég ósköp feginn að sjá björgunarsveitarmennina frá Vopnafirði sem eiga heiöur skilinn fyrir hvað þeir voru ótrúlega fljótir á staðinn. Auðvitað héldu þeir að égværi dauður Auðvitað héldu þeir að ég væri dauður. Það héldu það allir. Mér skilst að lögreglan á Vopnafirði hafi tekiö með sér svartan ruslapoka tfi þess að hirða mig upp í.“ - En voru þeir félagar ekkert við skál þar sem förinni var heitið á ára- mótadansleik? „Við vorum eiginlega ekkert byij- aðir að staupa okkur þegar þetta gerðist. Ég hef heyrt að kjaftasögurn- ar segi að við höfum allir verið blind- fullir en það er ekki rétt. Hitt er svo annað mál að þegar ég hitti Garðar, félaga minn, þarna niðri í urðinni þá spurði ég fljótlega eftir flöskunni og maður hafði hana hjá sér á sjúkra- börunum og var svona aðeins að skjóta á sig. En svo tók læknirinn hana af mér þegar við komum niður að bílnum. Hann hafði ekki húmor fyrir því að ég væri að smakka það,“ sagði Ólafur og glotti eins og Jökul- dælingur. Settistupp ogfór sjálfur úr stígvélinu Ólafi var ekiö sem skjótast á flug- völlinn á Vopnafirði þaðan sem DV-myndir GVA sjúkraflugvél flutti hann til Akur- eyrar. Þar dvaldist hann næstu 4 daga áður en hann fékk að fara heim. „Læknarnir á Akureyri skáru utan af mér þessa finu lopapeysu sem ég var í og annað stígvélið. Þegar þeir ætluðu að fara að klippa utan af mér skyrtuna settist ég upp og fór úr hinu stígvélinu og skyrtunni. Þá sáu þeir að ég myndi ekki vera eins mikið slasaður og haldið var í fyrstu," og nú hlær Ólafur innilega að endur- minningum sínum. „Ég verð að bæta mér þetta upp næst. Ég missti af þessu fina ára- mótaballi á Vopnafirði en ég mæti bara tvíefldur til leiks næst.“ Alls var Ólafur frá vinnu í einn og hálfan mánuð eftir óhappiö en var vel rólfær allan tímann og segist ekki kenna sér neins meins í dag. Ólafur Gauti er næstelstur 4ra systkina og býr ásamt foreldrum sín-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.