Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Side 33
FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1991.
^45
um og tveimur móðursystkinum á
Aðalbóli á Hrafnkelsdal sem er
fremsti bær í byggð á Jökuldal. Þar
er þríbýli og var lengi ein fjárflesta
jörö á Jökuldal auk þess að vera
lengst byggðra bóla frá sjó á landinu
en þaðan eru röskir 100 kílómetrar
til sjávar. Engar kindur eru á Aðal-
bóli síðan allt fé sunnan Jökulsár á
Dal var skorið vegna riðuveiki fyrir
2 árum, alls um 1.000 fjár.
Vill ekki aka á lömb
en hlífir ekki álftinni
LandCruiserinn er þungur á skrið-
inu fram dalinn og stöku sinnum
þarf að hemla snögglega vegna
lamba og sauðfjár sem eðli sínu trútt
liggur og dormar á veginum.
„Það er leiðinlegt aö keyra á þessi
grey,“ segir Sveinn bóndi. „Ég keyrði
hins vegar á álft um daginn og sá
ekkert eftir því. Hausinn á henni
festist í stuðaranum og slitnaði af.
Mér datt ekki í hug að slá af fyrir
hana. Þessi kvikindi eru mun verri
vargur í túnum og graslendi en
sauðkindin er nokkurn tímann."
Jökuldælir sem
fara eigin leiðir
Jökuldæhr hafa löngum haft orð á
sér fyrír að vera sérstakir til orðs og
æðis og láta sér ekki allt fyrir brjósti
brenna. Þannig sór Sigurður á Vað-
brekku, nágranni Aðalbólsmanna,
þess dýran eið að skerða hvorki hár
sitt né skegg fyrr en hann mætti taka
fé á ný og er að sögn orðinn harla
viUimannslegur.
Sveinn, móðurbróðir Ólafs og
bóndi á Aðalbóli, ekur blaðamanni
og Ólafi upp Jökuldal og fram á
Burstarfell til þess að minnast við
staðinn. Ferðin er farin í rosknum
Toyota LandCruiser jeppa og dísil-
vélin látin mala hressilega fram
krókóttan veginn eftir Jökuldalnum
og upp Möðrudalsöræfi á leið til
Vopnaijarðar. Sveinn bóndi kemur
við í Kaupfélaginu á EgUsstöðum pg
tekur 200 kíló af sykri með sér. Ég
spyr hann hvað bændur ætli að gera
við allan þennan sykur.
Þarf aö baka
nokkrar kökur
„Þaö þarf að baka nokkrar kök-
ur,“ segir Sveinn bóndi og hann og
Óli, frændi hans, líta hvor á annan
og glotta skelmislega. Ekki fást nein
greiðari svör um sykurkaup dala-
bænda svo ég spyr hvort það sé rétt
að á Jökuldal sé talinn óþarfi að eiga
klukku heldur sé nóg að eiga dagatal?
„Það getur verið sitthvað til í því á
sumum bæjum," segir Sveinn bóndi.
„Þaö er ekkert bráðnauðsynlegt að
vita alltaf hvað klukkan er. Það er
hins vegar gott að eiga dagatal til að
glöggva sig á því hvaða mánuður sé.“
- En verða dalabændur aldrei leiðir
á fásinninu og eríiðum samgöngum?
„Pósturinn kemur orðið frameftir
þrisvar í viku svo samgöngurnar eru
ekkert vandamál. Þarna er gott að
búa, sérstaklega með sauðfé. Það er
hins vegar búið að eyðileggja fyrir
okkur fjárstofninn með þessum niö-
urskurði. Við megum taka fé undan
Eyjafjöllum og aö vestan og það er
allt öðruvísi fé en við bjuggum með
og hætt við að það verði aldrei eins
vænt. Það er hægt að lifa sæmilega
af því sem 500 kindur gefa af sér.“
Tilraunir til þess að ræða við jökul-
dælska fjárbændur um ofbeit og
gróðureyðingu bera engan árangur
sem hægt er aö færa í letur án þess
að það varði við meiðyrðalögin.
Kaldranaleg
kímnigáfa
Kaldranaleg kímnigáfa Jökuldæla
kom ekki í veg fyrir að ævintýralegt
hrap Ólafs væri haft í flimtingum á
þorrablóti í hans heimasveit. Það var
lagt þannig út að þetta hefði verið
hður í flóknum landamerkjaþrætum
Jökuldæla við Vopnfirðinga sem
snúast um landamerki á heiðinni
mihi sveitanna. Einhveijir Vopnfirð-
ingar tóku sig til og færðu skilti á
heiðimú sem tilkynnir vegfarendum
að þeir hafi nú yfirgefið Jökuldals-
hrepp. Jökuldæhr svöruðu í sömu
mynt og grófu skiltið upp og færðu
Ólafur Gauti í hliðum Burstarfells þar sem hrapið endaði.
Uppi á brúninni þar sem flugið hófst.
hátt úr lífsháska. Afi hans, Páll
Gíslason frá Skógargerði, sem síöar
bjó á AðalbóU, vann það frækilega
afrek 19 ára gamall aö bjarga sér á
sundi úr Jökulsá á Dal eftir að kláfur
sUtnaði undan honum. Páll er eini
maðurinn sem vitað er að komist
hafi lifandi úr fangbrögðum við
Jöklu en fjöldi manns hefur drukkn-
að í ánni í aldanna rás.
Áin setur svip sinn á sveitina þar
sem hún beljar fram, kolmórauð árið
um kring, ófær hverri skepnu. En
þeir frændur eru helst á því að Jökul-
dæUngum þyki vænt um Jöklu
gömlu og kunni sambýUnu viö hana
vel.
„Ég vil hvergi annars staðar vera
en á Jökuldal," segir Ólafur Gauti
að lokum við blaðamann þar sem
sem hann situr á brún Burstarfells
og virðir fyrir sér slysstaðinn. „Ég
er og verð Jökuldælingur og reikna
fastlega meö því að verða bóndi á
Aöalbóli þegar þar að kemur. Þar
hefur mitt fólk verið mjög lengi og
þetta er fallegasta sveit á íslandi, það
er engin spurning."
-Pá
það langt niður á heiði í átt til Vopna-
íjarðar.
„Þetta er prinsipmál,“ segir Sveinn
á Aðalbóli þegar ég spyr hann hvort
nokkru máli skipti hvaða hreppi
þessar auðnarlegu mýrapöldrur og
gijóthólar tUheyri langt inni á heið-
inni.
Burstarfells-Blesi
Niðri á Vopnafirði er okkur sagt
að Ólafur Gauti sé af sveitungum sín-
um kallaður Burstarfells-Blesi eftir
flug sitt í fjallinu. Burstarfells-Blesi
var einn frægasti reiðhestur Jóns
Stefánssonar, bónda í Möörudal, og
var þekktur vítt um sveitir fyrir til-
þrif sín. Vopnfirðingar fullyrða enn-
fremur að Ölafur Gauti hafi heillað
vopnfirskar stúlkur með því að bjóða
þeim í ökuferðir upp á Burstarfell til
að sýna þeim staðinn þar sem hann
hrapaði.
Bjargaöist á
sundi úr Jökulsá
Ólafur Gauti er ekki sá fyrsti í sinni
ætt_sem bjargast á ævintýralegan
ÍBÚÐ TIL SÖLU
3ja herbergja íbúðtilsölu. Stuttfrá háskólanum (litla
Skerjafirði). Laus nú þegar. Engin áhvílandi lán á
íbúðinni. Sanngjarnt verð.
Upplýsingar í síma 624923 eða 985-23634.
F YLLIN G AREFNI
Höfum fyrirliggjandi grus á hagstæöu veröi.
Gott efni, lítil rýmun, frostþolið og þjappast
vel.
Ennfremur höfum við fyririiggjandi
sand og möl af ýmsum grófleika.
Sævarhöföa 13 - sími 681833
KENNARAR
Enn eru lausar nokkrar kennarastöður við grunnskól-
ann á Hólmavík. Okkur vantar íþróttakennara, sér-
kennara og kennara í almenna kennslu.
Nánari upplýsingar gefa Sigrún Björk Karlsdóttir
skólastjóri í síma 95-13123 og formaður skólanefnd-
ar, Jón Alfreðsson, í síma 95-13155.
Skólanefnd
-----------------------------------------
Útboð
Suðuriandsvegur, Vorsabær -
Seljaland 1991/1992
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum I ofan-
greint verk. Lengd vegarkafla: 10,1 km, fyllingar
147.000 m3, burðarlag 24.000 m3.
Verki skal lokið 15. maí 1992.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Selfossi og í Reykjavik, Borgartúni 5 (aðal-
gjaldkera), frá og með 18. júní 1991.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 8. júlí 1991.
Vegamálastjóri
Brottför: 20. júní, 27. júní, 4. júlí, 11. júlí, 18. júlí.
Verð
4 í íbúð
3 í íbúð
2 í íbúð
1 vika
29.800, -*
31.900,-
33.800, -
2 vikur
38.310,-*
42.380,-
50.610,-
3 vikur
48.550,-*
54.640,-
65.020,-
* Verð miðað við tvo fullorðna og tvö börn undir 12 ára.
Gisting: Torpa, glæsileg, ný, loftkæld
íbúðabygging, sérstaklega vel staðsett,
stutt frá Levante-ströndinni.
Takmarkað sætaframboð
á ofangreindu verði.
Hafðu samband.
Sjáumst.
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
AÐALSTRÆTI 16 • 101 REYKJAVlK • SÍMI 91-621490 •