Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Side 37
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1991. 49 Helgarpopp Islenskt tón- ;!| listar- sumar Eins og flestum er kurmugt hef- ur útgáfa á íslenskri tónlist færst að stærstum hluta yflr á nóvem- ber og desember á undanförnum árum. Þessi þróun var í gangi allan síðasta áratug og er ástæð- an sú að íslensk tónlist hefur lítt selst á öðrum árstímum. Sem dæmi má nefha að kóngurinn í rokkinu hér heima, Bubbi Mort- hens, hefur undanfarin flmm ár ætíð sent frá sér nýjar plötur í október eða nóvember (undan- skiidar tólf tommu plötur og Blús fyrir Rikka) og selt í stórum up- plögum. Árið 1985sendi Bubbi frá sér Konu-plötuna í byrjun júni- mánaðar og þrátt fyrir að þar sé á ferð eitt besta verk hans fyrr og síðar þá var sala ákaflega hæg það ár (á mælikvarða Bubba Morthens). Það er dýrt að gefa út hljóm- plötu á íslandi og lætur nærri að meðalkostnaður á hljómplötu nálgist fimm milljónir króna sem þýðir að yflr fjögur þúsund eintök þurfa að seljast til að endar nái saman. Þessi staðreynd skýrir að miklu leyti þá þróun sem hefur átt sér stað í íslenskum útgáfu- málurn og fyrr var getið. Áhættu-faktorinn minnkar ef plata er gefin út fyrir jólavertíð- ina því dæmin sanna að sölu- möguleikar hijómplötu stórauk- ast á þeim gjafavörumarkaði sem er undanfari jóla. Blómleg, íslensk útgáfa í sumar íslensk tónlist hefur verið að breytast í jólapakkaíramleiöslu og þeirri þróun vilja menn í tón- listargeiranum nú snúa við. ís- lenskir útgefendur, flytjendur og höfundar hafa nú tekið höndum saman í viðleitni sinni til að breyta sumrinu í tónlistarsumar þar sem íslenskri tónlist skal lyft í hæstu hæðir. Meðalið í átakinu er að sjálfsögðu útgáfa á íslenskri tónhst og er þegar ákveðin útgáfa á yfir 20 hljómplötum. Meðal þessara 20 eru nokkrar endurút- gáfur sem gera þaö að verkum að flóra íslenskra tónlístarmanna síðustu 30-40 ára fær sín notið á íslensku tónlistarsumri, nýrækt- in og gömlu gullmoiarnir. Herferðin sem ber yfirskriftina íslenskt tónlistarsumar hefst op- inberlega á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, og munu tónlistarmenn víöa um land stiga á svið og leika íslenska tónlist sjálfum sér og öðrum til yndisauka. vyÁi Þeir sem standa að átakinu eru Samtök hljómplötuframleiöenda, Pélag tónskálda og textahöfunda, Samband tónskálda og eígenda flutningsréttar og Félag íslenskra hljómlistarmanna. Svo er bara að vona að landsmenn taki við sér því það eru fyrst og síöast þeir sem ráða hversu blómlegt tónlistarlíf er í landinu. Nú ríður á að veíta íslenskri tónlist vaxtar- skilyrði, árið um kring. Rokk og ról undir danskri sól Frændur vorir í Danaveldi munu bjóða til tónlistarveislu síðustu helg- ina í júní og verður rokkað bæði á Sjálandi og Fjóni. Á Sjálandi er það hin hefðbundna Hróarskelduhátíð sem stendur til boða en hátíðin er nú haldin í tuttugasta skipti. Það voru ungir menn með „viðskiptavit" sem ætluðu að búa til evrópska Woodstock sem hrintu ævintýrinu í Hróarskeldu af stað árið 1971. Illu heilli lágu hugsjónir þessara frum- herja aðeins að litlu leyti í því að búa til góða rokkhátíð, Mammon skipaði stærri sess í huga þeirra en tónlistar- gyðjan. Afrakstur brenglaðs hugarf- ars var brengluð tónleikahátíð, fáir mættu og tap varð mikið. Nýir Umsjón Snorri Már Skúlason Hörð samkeppni frá Fjóni Fjónbúar láta ekki sitt eftir liggja téða helgi í lok júni og verður efnt til mikils tónateitis í Ringe á Fjóni. Sú hátíð, sem kallast Midtfyns Festi- val upp á dönskuna, mun ef að líkum lætur veita Hróarskelduhátíðinni harða samkeppni. Þar munu rokk- risar á borð við Bob Dylan, B.B. King, Donovan og Rober Cray Band stíga á svið. Auk þeirra má sjá og heyra Living Colour, Tanitu Tikaram, Happy Mondays, Hothouse Flowers, Run Rig, JefTHealey Band, Toto, Dr. Hook, Dread Zeppelin, Georgia Satel- lites og Inspiral Carpets. Og nú er bara fyrir þá rokkunnend- ur íslenska sem verða á ferð í Dan- mörku á þessum tíma að velja. Sá á kvölina sem á völina. menn með nýtt hugarfar tóku við og í áranna rás hefur tónleikahátíðin í Hróarskeldu vaxið að umfangi og vinsældum. Síðan 1971 hefur mestöll vinna við Hróarskelduhátíðina verið unnin í sjálfboðavinnu og þannig hefur tekist hægt og bítandi að koma fyrirtækinu á réttan kjöl, fyrst og síðast vegna fórnfýsi sjálfboðalið- anna. Þeirra vinna í gegnum árin hefur skipað tónleikahátíðinni í Hró- arskeldu í hóp stærstu og virtustu útihátíða veraldar. Gestahstinn er langur sem fyrr enda sviðin fjögur eða fimm sem eru notuð og munu yflr 70 hljómsveitir og sólóistar troða upp þá fjóra daga sem hátíðin varir. Hún hefst 27. júní og stendur fram á sunnudaginn 30. júní. Meðal stærstu nafna sem hátíð: in skartar nú eru: Paul Simon, Simple Minds, Albert Collins, Iggy Pop, Billy Idol, Dee Lite, Allman Brothers Band (blessuð sé minning Duane Allman), The Charlants, Mar- ianne Faithful, Elvis Costello og Iron Maiden. Mannlif er með fjölbreyttasta móti á Hróarskelduhátíðum. John Lennon og Yoko Ono sátt við lífið og tilveruna. Wyndin var tekin um það leyti sem Double Fantasy var gefin út, í nóvember 1980. Yoko ævareið Yoko Ono, sem heiðraði íslendinga með nærveru sinni fyrr á árinu, rann í skap tilburðir hljómsveitarinnar EMF á nýrri plötu sveitarinnar „Schubert Dip“. Reiði hinnar jap- önsku ekkju Johns Lennon er skilj- anleg því að í einu lagi á plötu EMF er morðingi Bítilsins í aðalhlutverki. HljómsveitarmeðUmir hafa nefni- lega tekið saman stúf þar sem morð- inginn, Mark Chapman, fer með text- ann úr Watching the Wheels lagi Lennons af plötunni Double Fantasy. Téð lagasmíð var nokkurs konar uppgjör Lennons við árin 1975-1980 þar sem hann sagðist sáttur við að hafa dregið sig út úr skarkala sviðs- ljóssins. Þetta voru árin sem John Lennon notaði til að fílósófera einn með sjálfum sér, baka brauð og skipta um bleiur á syninum Sean. Hann var hamingjusamur og sú hamingja skein í gegn í texta lagsins. Hann talaði beint frá hjartanu eins og fyrri daginn og því er skiljanlegt að Yöko fengi hland fyrir hjartað við að heyra manninn sem batt enda á líf meistarans, fara með orð sem John Lennon orti sem óð til lífsins. Ástæðan til þess að meðlimir EMF fóru þessa óvenjulegu leið í „list- sköpun" sinni eru væntanlega upp- hafsorð textans Watching the Wlieels en þar segir: People say I’m crazy doing what I’m doing. Það að láta morðingjann fara með þessa og fleiri hendingar úr textanum er skot yflr markið og nú hefur Yoko Ono sem sagt lögsótt hljómsveitina og ku skaðabótakrafan vera svimandi. Hljómsveitarmeðlimir í EMF eru hins vegar svekktir á ekkjunni og segja hana ekki hugsa um þetta sem listsköpun heldur sé hún með hug- ann við það eitt að ávaxta pund sitt. Hljómplötufyrirtæki hljómsveitar- innar hefur tekið kvartanir Yoko góðar og gildar að því leyti að platan verður ekki pressuð oftar með rödd Chapmans í laginu Lies, en sá er tit- fll þessa umdeilda lags.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.