Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Qupperneq 50
L^ypARDAGUK 15. jýNj.^., & A£mæli Þrándur Thoroddsen Þrándur Thoroddsen, kvikmynda- stjóri og þýðandi, Grundarlandi 21, Reykjavík, verður sextugur 17. júni. Starfsferill Þrándur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp og í Mýrdalnum. Hann lauk stúdentsprófi frá MR1950, stundaði nám í erfðafræði og gerla- fræði við Kaupmannahafnarhá- skóla 1950-56 og stundaði síðan nám í kvikmyndastjórn við Kvikmynda- háskólann i Lodz í Póllandi 1960-66 en hann tók lokapróf1964 og Diplomvörn 1966. A unglingsárunum var Þrándur í sveit í Mýrdalnum. Hann stundaði síðar sumarstörf í bæjarvinnunni hjá Reykjavíkurborg, starfaði við landmæÚngar hjá Landnámi ríkis- ins, var tækniteiknari hjá Raf- magnsveitu Reykjavíkur 1956-58 og varhásetiátogara. Þrándur vann að gerð fræðslu- mynda í Póllandi á árunum 1961-66, var forstööumaður kvikmynda- deildar RÚV1966-72, kenndi kvik- myndafræði við menntaskóla og hefur verið sjálfstæður framleið- andi kvikmynda sem einkum hafa verið gerðar fyrir RÚV. Þá hefur hann stjórnað þáttagerð þar um ára- bil. Meðal mynda Þrándar má nefna áramótaskaup, Örlagahárið, Heklu, Mývatn, Þjórsárver, Aldrað fólk og unga, Akranes 1974, Fáka, Þjóðsöng, Lax, Nínu Tryggvadóttur, Ásgrím Jónsson, Kjarval, Líf til éinhvers, Tökum höndum saman og margar fleiri. Þrándur hefur þýtt fiölda sjón- varpsmynda og þátta frá hinum ýmsu löndum. Hann hefur þýtt barnabækur og leikrit fyrir útvarp og leikhús. Hann er meðhöfundur kabarettsins Lagt í pottinn, hefur stundað ljóðaþýðingar, ort texta við sönglög og hefur verið ritstjóri Orðabókar NFTV um kvikmyndir ogsjónvarp. Fjölskylda Þrándur kvæntist 29.8.1969 Sig- rúnu Ingu Jónsdóttur, f. 6.4.1943, kortateiknara, en hún er dóttir Jóns A. Sigurðssonar, hljóðfæraleikara við Sinfóníuhljómsveit íslands, og Ámýjar Sigurðardóttur frá Skuld í Vestmannaeyj um. Börn Þrándar eru Rannveig, f. 23.5.1966, nemi við HÍ; Sólveig, f. 24.5.1970, sem var að ljúka stúdents- prófi; Jón, f. 20.11.1977, nemi; Guð- mundur, f. 1.8.1980. Dóttir Þrándar með Helenu Zashiwsku er Anna Sóley, f. 11.8.1967. Hálfsystkini Þrándar, samfeðra: Dóra TÚoroddsen, f. 1914, húsmóðir og ekkja eftir Braga Brynjólfsson bóksala; Ásta Thoroddsen, f. 1916, húsmóðir og ekkja eftir Eðvald Brunsted Malmquist garðyrkju- ráðunaut; Skúli Thoroddsen, f. 1918, d. 1973, augnlæknir í Reykjavík, var kvæntur Drífu Viðar, listmálara og rithöfundi, sem er látin, en síðar kvæntur Önnu Guðrúnu Jónsdótt- ur; Unnur Thoroddsen, f. 1922, nú látin, lyfiafræðingur, var gift Karli Jóhannssyni, eftirhtsmanni hjá Út- lendingaeftirlitinu; Hrafnhildur Gríma Thoroddsen, f. 1923, meina- tæknir, gift Viggó Tryggvasyni lög- fraéðingi; Regína Benedikta Thor- oddsen, f. 1924, hjúkrunarfræðing- ur, gift Smára Karlssyni flugstjóra. Kjörsystir Þrándar og dóttir Hrafn- hildar Grímu er Ásta Björt Thor- oddsen, f. 1942, tannlæknir. Foreldrar Þrándar voru Guö- mundur Thoroddsen, f. 1.2.1887, d. 6.7.1968, prófessor við HÍ og yfir- læknir við Landspítalann, og seinni kona hans, Siglín Guðmundsdóttir, f. 17.6.1901, d. 22.5.1966. Ætt Meðal systkina Guðmundar voru Unnur, móðir Skúla Halldórssonar tónskálds; Skúli, lögfræðingur og alþingismaður; Kristín Ólína, yfir- hjúkrunarkona Landspítalans; Katrín, yfirlæknir og alþingismað- ur; Jón Thoroddsen, lögfræðingur og skáld, sá er Tómas Guðmundsson orti eftir; Bolli borgarverkfræðing- . ur; SigurðurThoroddsen, verkfræð- ingur og alþingismaður, faðir Dags skálds; María Kristín, móðir Jóns Thors Haraldssonar sagnfræðings. Guðmundur var sonur Skúla Thor- oddsens, alþingismanns og ritstjóra, bróður Þorvalds Thoroddsens nátt- úrufræðings og Þóröar læknis, föð- ur Emils tónskálds og Þorvalds for- stjóra. Skúli var einnig bróðir Sig- urðar verkfræðings, fóður Gunnars Thoroddsens forsætisráðherra. Skúii var sonur Jóns Thoroddsens, Þrándur Thoroddsen. skálds og sýslumanns á Leirá, Þórð- arsonar beykis, Þóroddssonar aö Reykhólum, ættföður Thoroddse- nættarinnar. Móðir Skúla var Krist- ín Ólína Þorvaldsdóttir, umboös- manns í Hrappsey, Sívertsen. Móðir Guðmundar var Theodóra Thor- oddsen skáldkona, dóttir Guömund- ar Einarssonar prófasts á Kvenna- brekku í Dölum. Siglín var dóttir Guðmundar, b. á Brekkum í Mýrd- al, Guðmundssonar, og Rannveigar Guðmundsdóttur. Þrándur verður í Klakkseyjum á Breiðafirði á afmælisdaginn. Menning_____________________________ Fingur- gómatipl Þriðjudagskvöldiö 12.6. héldu Einar Jóhannesson, Beth Levin og Ric- hard Talkowsky kammertónleika í Sigurjónssafni úti í Laugarnesi. Verk- efnin voru „klarínettpíanótríó" (ef kenna má tóngreinina svo við áhöfn- ina klarínett (í stað fiðlu) - píanó - selló) eftir Beethoven, Brahms, Glinka og Þorkel Sigurbjörnsson. Þetta er skemmtileg hljóðfæraskipan og að mati undirritaös úlæbrigðaríkari og safameiri en sú hefðbundna sem vill oft láta einkennilega þurrt í eyrum þrátt fyrir fiölda óumdeilanlegra meistaraverka. í tónleikaskrá kom fram að tríó þeirra Beth, Einars og Richards var stofnað á þessu ári með tónleika- hald á íslandi og á Spáni i huga. Richard Talkowsky hefur leikið í knéfiðludeild S.í. undanfarin miss- eri og mun áður hafa starfað með landa sínum Ms Levin frá Fíladelf- íu en þó munu öll þrjú ekki hafa leikið saman fyrr en á þessu ári. Það eru ekki nema færustu og reyndustu hljómlistarmenn sem geta sett upp kammertónleika eftir örfárra vikna samstarf og fengið hlutina til að hljóma sannfærandi. Miðað við þennan stutta aðdrag- anda voru tónleikamir í Sigurjóns- safni frábærlega vel heppnaöir. Þó að sellistinn skilaði nokkram hálfóhreinum tónum á stangli, píanistinn slægi 4-5 feilnótur og klarínett- leikurinn væri tvisvar til þrisvar örlitið hikandi í rytma þá er fremur sjaldgæft að maður standi hér um bil agndofa meðan tíminn fossar fram hjá í stríðum straumum og unaðskliður gælir við heiladingulinn, eins og hér átti sér stað. Hér huldi listin listina. Áheyrandinn komst í beint samband. Þó að prógrammið hafi kannski haft full-rómatíska yfirvigt (Glinka og Brahms; Beethoven var æskuverk, Op. 11 frá 1797) voru verkin öll skemmtileg á aö hlýöa; engin stórskotaliðsstykki en góð og gegn músík Tónlist Ríkaröur ðrn Pálsson fyrir sumartónleika. Samleikur þeirra félaga var ótrúlega samstilltur miðað við aðstæður og er vonandi á engan hallað þó að hið rytmíska píanississimo-spil Beth Levin sitji einna mest eftir í manni, verandi svo góðu vanur frá virtúós af hlaupvídd Einars Jóhannessonar. Vera má að undirritaður þekki ekki beztu hliðar beztu píanista okkar nógu vel þegar hann dirfist að skjóta því fram að súperveikur píanóleik- ur gerist sjaldan mjög nákvæmur í takti hér um slóðir. Þá er úamrarnir rétt ná að kyssa strengina kurteisiskossi vill ósjálfrátt einstaklingsrúbató oft taka völdin og þar skilur milli feigs og ófeigs í kammersamleik. Alla- vega þótti honum únifiafnt fingurgómatipl Ms Levin allhressileg tilbreyt- ing og skyldi engan furða hvi þeir Einar og nafni sækjast eftir samleik við slíkan píanista. Óhætt ætti að vera að spá hinu nýja tríói góðum undirtektum á næstu vikum. Einar Jóhannesson, klarinettuíeik- ari í samstilltu tríói. Svanfríður G. Þóroddsdóttir Svanfríöur Guðrún Þóroddsdóttir húsmóðir, Hólmagrund 4 á Sauðár- króki, verður sextug 17. júní. Fjölskylda Svanfríður giftist 19. janúar 1953 Árna Guðmundssyni, f. 8.7.1927, framkvæmdastjóra Hraðfrystihúss- ins Skjaldar. Börn Svanfríðar og Áma eru: Kristín Dröfn, f. 9.12.1952, húsmóðir á Sauðárkróki, maki Guðmundur Gunnarsson verslunarmaður. Þau eiga þrjú börn: Árna Þórodd, f. 7.4. 1978; Gunnar Gígjar, f. 12.4.1979; Ragnar Frey, f. 3.5.1985. Guðmundur Þór, f. 30.12.1955, sjó- maður á Sauðárkróki, maki Ólöf Herborg Hartmannsdóttir skrif stofustúlka. .’au eiga tvö börn, Árna Rúnar, f. 26.6.1981, og Guönýju Kötlu, f. 23.2.1983. Ólöf Svandís, f. 24.1.1960, húsmóð- ir á Sauðárkróki, maki Stefán Pétur Jónsson, verkstjóri á Sauðárkróki. Þau eiga fiögur úörn, Gígju Hrund, fi 25.5.1980, Klöru Björk, f. 13.6.1984, og tviburana Eddu Borg og Höllu Mjöll.f. 29.1.1991. Eva Lilja, f. 31.8.1967, gæslukona á Leikskóla Sauðárkróks. Svanfríður á þrjú systkini. Ragn- ar, f. 6.4.1930, er sjómaður í Stykkis- hólmi, maki Svanhvít Pálsdóttir verslunarkona, þau eiga átta börn. Jósef Reykdal, f. 20.8.1933, er verk- stjóri í Steinullarverksmiðjunni, kona hans er Anna Soífía Jónsdótt- ir, verslunarmaður á Sauðárkróki, þaueigaþrjúbörn. Svandís Jónasína, f. 17.2.1941, er húsmóðir á Sauðárkróki, maki Ey- steinn Jónsson, verkamaður á Sauðárkróki, þau eiga fiögur börn. Jónasína Kristín, f. 21.3.1935, d. 3.8.1935. Foreldrar Svanfríðar voru Þór- oddur Pálmi Jóhannsson, f. 5.3.1894, d. 4.5.1965, og Ólöf Jósefsdóttir, f. 31.1.1904, d. 19.7.1983. Öm Hallsteinsson \ Örn Hallsteinsson prentari, Dalseli 29 í Reykjavík, verður fimmtugur 18.júní. Starfsferill Örn fæddist og ólst upp í Hafnar- firði. Hann bjó þar til ársins 1976 er hann flutti til Reykjavíkur þar sem hannbýrenn. Hann lauk prófi frá Barnaskóla Hafnarfiarðar og landsprófi frá Flensborg. Örn er lærður prentari. Hann vann hjá Prentsmiðju Hafnar- fiarðar frá 1959-1967 og í Fjarðar- prenti árin 1967-1971 en þá fór hann að vinna hjá Morgunblaðinu og hef- urunniðþar síðan. Örn lék handbolta með FH um margra ára skeið og lék einnig um árabil með landsliði íslands í hand- knattleik. Fjölskylda Örn kvæntist 18. júlí 1970 Valgeröi Eiríksdóttur, f. 28.9.1943, verslunar- manni. Foreldrar hennar eru Eirík- ur Jónsson málari og Jenný Frið- riksdóttir Welding húsmóðir. Örn og Valgerður eiga tvo syni. Þeir eru Hallsteinn, f. 9.4.1970, nemi, 0gValurÖ.,f.29.7.1973. Öm á þrjú systkini. Þau eru: Geir Hallsteinsson, f. 7.8.1946, íþrótta- kennari, maki Ingibjörg Logadóttir Eldon. Börn þeirra eru Arnar, Brynjar, Logi og Nína. Þau eru bú- settíHafnarfirði. Ingvar Hallsteinsson, f. 6.4.1935, prentari, búsettur í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Maki hans er Ed- ith Hallsteinsson og eiga þau fiögur börn, Höllu, Ingvar, Andra og Mark- ús. Sylvía Hallsteinsdóttir, f. 21.2. 1945, bankastarfsmaður, maki Helgi Númason og eiga þau þijú börn, Ingibjörgu, Kristjönu og Hörpu. Þau eru búsett í Hafnarfirði. Örn Hallsteinsson. Foreldrar Arnar voru Hallsteinn Hinriksson, f. 1904, d. 1974, íþrótta- kennari og Ingibjörg Árnadóttir, f. 1910, d. 1990, húsmóðir. Þau bjuggu aðTjarnarbraut 11 í Hafnarfirði. Örn og Valgerður taka á móti gest- um í Sóknarhúsinu, Skipholti 50A, milli kl. 17 og 2017. júní. Já... en ég nota nú yf irleitt beltið! ^ UMFERÐAR RÁO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.