Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1991. Veiðivon Rjúpnaveióin hefur gengið betur en sumir þoróu að vona og hafa marg- ir fengið vel i matinn af rjúpu. Hann Einar Þorláksson fékk þessar rjúpur á Kili fyrir fáum dögum. Einhver þúsund af rjúpu hafa fengist um allt land. DV-mynd SS Veiðieyraö Stangaveiðifélag Patreksfjarðar hélt árshátíð sína fyrir um viku og var hátíðin fjörleg og fróðleg. Veitt voru verölaun fyrir stærstu laxana og dregið var í veglegu happdrætti. Víðidalsá leigð út fyrir24 milljónir Fyrir skömmu var Víðidalsá í Húnavatnssýslu leigð út fyrir 24 miUjónir en aöeins veiddust 660 laxar í henni á síðasta sumri. Vonandi er að veiðin veröi betri næsta sumar fyrir veiöimenn. Blanda og Svartá hafa verið boðnar út enn eitt árið og á víst að leigja árnar saman nú. Það var Veiðifélagið Ós sem hafði árnar á leigu í sumar. Stangaveiðiárbókin verðurgjörbreytt Aöeins kemur út ein stangaveiði- bók fyrir þessi jól fyrir veiðimenn og það er Stangaveiðiárbókin. Það er Isafold sem gefur bókina út en bókinni hefur verið breytt stórlega frá fyrri bókum. Yfir 40 síður eru núnaílit. -G.Bender Sjóbirtingsveiðinni lokið: Góð veiði undir það síðasta í Grenlæknum „Veiðin hefur oft verið betri hérna hjá okkur í sjóbirtingsveið- inni, en einn og einn vænn hefur veiðst þetta sumar og haust,“ sagði Vigfús G. Helgason í gærkvöld en sjóbirtingsveiðinni lauk fyrir skömmu. „Geirlandsá gaf 151 flsk, laxarnir urðu 92, bleikjurnar 14 og sjóbirt- ingarnir urðu 45. Stærsti laxinn var 13 pund en stærsti sjóbirtingur- inn er 13,5 punda. Mávabótaálarnir gáfu aðeins 57 fiska, sem ekki telst mikið þar um slóöir. í Vatnamótun- um urðu lokatölurnar 239 fiskar og aðeins veiddust þar 2 laxar. Jón H. Jónsson veiddi stærsta sjóbirt- inginn. í Hörgsá, Brunná og Laxá veiddust fáir fiskar," sagði Vigfús. „Þetta er ekki góð sjóbirtingsveiði. Þetta er verra en í fyrra. Ástæðan Ílveiðivop úp Gunnar Bender fyrir þessari minnkandi veiði er ekki ljós, þetta eru náttúrlegar að- stæður meðfram,“ sagði Vigfús. DV hefur heimildir fyrir því að veiðin undir það síðasta hafi verið mjög góð í Grenlæknum og fengu margir veiðimenn góða veiði. Ein- hverjir fengu á milli 80 og 100 fiska þegar best var. Aðrir voru með 15 til 30 fiska eftir tveggja daga veiði. -G.Bender Jón H. Jónsson, Kelfvikingurinn fengsæli, veiddi stærsta sjóbirtinginn í Vatnamótunum og var f iskurinn 16 pund. DV-mynd FRE Þjóðar- spaug DV Um piparkerbngu eina var eitt sinn ort; Engan lítur auga hýru, andiit hörkudrætti ber, eins og geymi ediksýru óblandaða í munni sér. Kristniboðið „Var ekki hættulegt að vera þarna úti?“ spurði kona ein gaml- an kristniboöa. „Jú. vissulega,“ svaraði sá gamli. „Stundum lifðum viö af, stundum ekki.“ Eins ogsálin Prestur nokkur hafði haldið lík- ræðu yíir húsíreyju einni og sagt meðal annars að hún hefði verið „há og grönn eins og sálin.“ Ekki voru nú allir kirkjugestir sáttir við þá samlíkingu en einn þeirra kvað þó: í líkamsvexti Uktist nál, ljóshærð, andUtsfögur, hrein var talin hennar sál, há en grönn og mögur. Hundadagamir Meðan vinbannið stóð hér sem hæst fengu sumir, sem gott þótti i staupinu, lyfseðla hjá læknum upp á spiritus, en gegn hveijum þeirra fékkst 200 gramma glas fullt af spíritusi í lyfjabúöum. Voru þessi glös almennt köUuö „hundar“ eða „hundaskammt- ar". Háttsettur borgari í Reykjavík, með ættamafnið Jensen, var mikUl túramaður og hafði þann sið að safna 10 til 20 „hundum“ og fara svo á margra daga kend- erí. Einu sinni kom kunningi Jens- ens heim tU hans og spurði eftir honum. Frú Jensen varð fyrir svörum og sagði við komumann: „Jensen minn er ekki í góðu standi núna. Hann er að skemmta sér viö glösin sín.“ „Einmitt það já,“ svaraði kunn- inginn. „Það eru þá byrjaðir hundadagarnir hjá honum, bless- uðum." Finnur þú fimm breytingai? 128 Ég er frá fasteignaskattadeildinni. Eruð það þér sem eruð eigandinn? Nafn: Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1. Fimm Úrvalsbækur að verðmæti kr. 3.743. 2. Fimm Úrvalsbækur að verðmæti kr. 3.743. Bækurnar sem eru í verðlaun heita: Á elleftu stundu, Flugan á veggnum, í helgreipum hat- urs, Lygi þagnarinnar og Leikreglur. Bækurnar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiðl- un. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 128 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir hundrað tuttugustu og sjöttu getraun reyndust vera: 1. ArnórJónsson Vesturfold 37,112 Reykjavík 2. Stefán Björnsson Úthlíð 3,105 Reykjavík Vinningarnir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.