Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Side 55
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1991.
67
Afmæli
Auður Eir Guðmundsdóttir
Auður Eir Guðmundsdóttir deildar-
stjóri, Fífuhjalla 13, Kópavogi, verð-
urfertugámorgun.
Starfsferill
Auður fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp og á Seltjarnarnesinu. Hún
lauk stúdentsprófl frá MR1971.
Auður starfaði við Útvegsbankann
með hléum á árunum 1971-80, starf-
aði við Iðnaðarbankann 1980-81, var
aðstoðarframkvæmdastjóri og
framkvæmdastjóri við gerð þriggja
íslenskra kvikmynda 1981-83, starf-
aði hjá Útvegsbankanum sem gjald-
keri og síðan deildarstjóri gjald-
keradeildar aðalbankans fram að
sameiningu bankanna og hefur ver-
ið deildarstjóri í þjónustudeild ís-
landsbanka síðan.
Auður sat í stjórn Heimdallar
1969-70 og var formaður Æskulýðs-
ráðs Seltjarnarness 1977-81. Hún
hefur setið í varastjórn og stjórn
Sambands íslenskra bankamanna
frá 1987 og er nú ritari stjórnarinnar
auk þess sem hún er fulltrúi SÍB í
sambandsnefnd um reiknistofu
bankanna og í fleiri nefndum.
Fjölskylda
Auður giftist 22.1.1972 Helga
Gestssyni, f. 4.1.1949, lektor. Hann
er sonur Gests Þórðarsonar, lengst
af gjaldkera hjá I. Brynjólfsson og
Kvaran, og Kristínar Helgadóttur,
fyrrum eiganda Sápuhússins hf.
Börn Auðar og Helga eru Jón
Gestur Helgason, f. 6.10.1974, nemi
við MR, og Kristín Helgadóttir, f.
24.5.1976, grunnskólanemi.
Systkini Auðar eru Guðmundur
Kristinn, f. 9.1.1955, símvirki, bú-
settur í Moosomin í Kanada, kvænt-
ur Vigdísi Sigtryggsdóttur frá
Nýjabæ á Seltjarnarnesi og eiga þau
tvö börn; Helga Kristín, f. 25.12.1955,
húsmóðir í Ytri-Njarðvík, gift Stef-
áni Sigurðssyni, forstjóra Shpp-
stöðvarinnar í Njarðvík og eiga þau
fjórar dætur; Þórdís, f. 19.8.1968,
listnemi og rafeindavirki á Seltjarn-
arnesi og er sambýlismaður hennar
Sigurður Vignir Guðmundsson list-
málari.
Foreldrar Auðar eru Guðmundur
Jónsson, f. 13.11.1929, og Hulda
Auður Kristinsdóttir, f. 13.2.1932,
fjármálastjóri. Þau shtu samvistum
en Guðmundur er nú kvæntur Ingi-
björgu Þorbergs.
Ætt
Guðmundur er sonur Jóns, versl-
unarstjóra í Reykjavík, Guðmunds-
sonar, b. á Breiðabólstað í Ölfusi,
Guðmundssonar, b. í Lambhaga
Guðmundssonar, b. í Fróðholtshjá-
leigu, Guðnasonar, bróður Gests, b.
í Vorsbæ, langafa Oddnýjar,
langömmu Vals Arnþórssonar
bankastjóra. Móðir Guðmundar á
Breiðabólstað var Arndís Jónsdóttir
frá Stóra-Hofi, systir Guðlaugar,
langömmu Jóns Dalbú sóknarprests
en hálfbróðir Arndísar, sammæðra,
var Jón, b. á Stóra-Hofi, langafi
Kristínar, móður Þórðar Friðjóns-
sonar, forstöðumanns Þjóðhags-
stofnunar. Móðir Jóns verslunar-
stjóra var Þórdís, dóttir Tómasar
Ólafssonar, b. á Vestra-Fróðholti, og
Guðrúnar Jónsdóttur, b. á Hamra-
hól í Holtum, Gunnarssonar, b. á
Sandhólaferju, bróður Rannveigar,
langömmu Magdalenu, langömmu
Jónasar Kristjánssonar, ritstjóra
DV.
Móðir Guðmundar píanóleikara
var Kristín Pálmadóttir, Péturs, sjó-
manns í Reykjavík, Sigurðssonar, í
Móakoti á Vatnsleysuströnd, Sig-
urðssonar. Móðir Pálma Péturs var
Lilja Þórðardóttir frá Vémunda-
stöðum í Ólafsfirði. Móðir Kristinar
var Sigríður Ásbjörnsdóttir, b. í
Melshúsum, Ásbjörnssonar. Móðir
Ásbjörns var Málfríður Ásmunds-
dóttir Jörgenssonar Hansson Kling-
enberg, ættföður Klingenbergsætt-
arinnar.
Hulda er dóttir Kristins Jóhanns,
bifreiðastjóra í Reykjavík, Helga-
sonar, í Gili í Fljótum Hafhðasonar,
í Skálahnjúk, Hafliðasonar. Móðir
Helga var Guðrún Helgadóttir, í
Beinhöll, Árnasonar. Móðir Krist-
ins var Kristín Sigríður Eiríksdóttir,
Auður Eir Guðmundsdóttir.
b. á Stórubrekku, Bjarnasonar.
Móðir Kristínar Sigríðar var Kristín
Ólafsdóttir frá Hornbrekku í Ólafs-
firði.
Móðir Huldu er Helga Marín Ní-
elsdóttir, b. á Æsustöðum, bróður
Magnúsar ríka á Grund. Móðir
Helgu Marínar var Sigurlína Rósa
Sigtryggsdóttir, á Úlfsá og í Æsu-
staðagerði, Sigurðssonar og Frið-
rikku Sigríðar Friðriksdótturfrá
Baldursheimi.
Tekið verður á móti gestum á af-
mælisdaginn í matsal Islandsbanka
í Húsi verslunarinnar (áður Veit-
ingahöllin).
Kristinn Ólafur Karlsson
Kristinn Ólafur Karlsson netagerð-
armeistari, Smyrlahrauni 47, Hafn-
arfirði, verður sjötugur á morgun.
Starfsferill
Kristinn er fæddur á ísafirði og
ólst þar upp. Hann vann í Kaðli hf.
sem ungur maður og stundaði nám
í Iðnskólanum á ísafirði sem þá var
kvöldskóli.
Kristinn íluttist til Hafnarfjarðar
1945 og setti á fót netaverkstæði
sama ár sem hann rak allar götur
til ársins 1974. Þá varð hann fyrir
slysi og seldi verkstæðið. Kristinn
vinnur nú á netaverkstæði Aciaco
hf. á Seltjarnarnesi.
Fjölskylda
Kona Kristins er Ásta Kristins-
dóttir, f. 25.9.1925. Foreldrar hennar
voru Kristinn Þorsteinsson skip-
stjóri og Soffía Sigurjónsdóttir, en
þau voru búsett í Hafnarfirði.
Börn Kristins og Ástu: Lilja, f.
19.11.1947, maki Þorsteinn S. Jóns-
son matsveinn, þau eiga tvö börn;
Salóme, f. 22.6.1949, maki Hreiðar
Júlíusson framkvæmdastjóri, þau
eigaþijú börn; Soffía, f. 2.4.1953,
maki Guðni Ingvarsson múrari, þau
eiga tvö börn; Sigríður Anna, f. 29.8.
1957, maki Örn Sveinbjörnsson,
starfsm. hjá ÍSAL, þau eiga þrjú
börn; ÁstaKristín, f. 26.8.1959, maki
Þorsteinn Heiðarsson fiskverkam.,
þau eiga þrjú börn; Karl, f. 4.4.1961,
matsveinn, maki Sólborg Steinþórs-
dóttir hótelstjóri, þau eiga tvö böm.
Kristinn á þrjú systkini á lífi, syst-
urnar Kristínu og Ólafíu og hálf-
hróðurinn Friðþjóf.
Foreldrar Kristins: Karl Kristins-
son, næturvörður og verkamaður,
og Salóme Ólöf Björnsdóttir, hús-
móðir og verkakona, þau bjuggu á
Kristinn Ólafur Karlsson.
ísafirði og í Kópavogi en eru nú
bæði látin.
Kristinn tekur á móti gestum á
afmæhsdaginn í Haukahúsinu við
Flatahraun, Hafnarfirði, kl. 16-19.
Kristín Jónsdóttir
Kristin Jónsdóttir verkakona,
Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, er
áttræðídag.
Fjölskylda
Kristín er fædd að Hafnanesi, Fá-
skrúðsfirði, og ólst þar upp.
Hennar maður var Óskar Ólafs-
son, f. 15.8.1905, d. 23.1.1986, pípu-
lagningameistari, en foreldrar hans
voru Ólafur Sigurðsson og Aðal-
heiður Jónsdóttir.
Börn Kristínar og Óskars: Adolf,
f. 30.11.1928, maki Ásta Vigfúsdótt-
ir, þau eiga fimm börn; Jóna Guð-
laug, f. 16.2.1930, hennar maður var
Kristleifur Magnússon, látinn, þau
eignuðust þrjú böm; Aðalheiður, f.
8.11.1934, maki Þorleifur Sigurlás-
son, þau eiga fimm böm; Guðmunda
Eygló, f. 1.12.1937, maki Svavar
Steingrímsson, þau eiga þrjú börn;
Kristín Ósk, f. 14.10.1940, maki Frið-
björn Kristjánsson, þau eiga fjögur
börn; Albína Elísa, f. 25.6.1945, maki
Huginn Sveinbjömsson, þau eiga
þijúbörn; Ólafur, f. 27.5.1944, d. 9.8.
1986, kona hans var Harpa Njáls-
dóttir, þau eignuðust tvö börn;
Hrefna, f. 30.4.1951, maki Kristján
Ingólfsson, þau eiga þijú börn; Örn,
f. 18.2.1953, maki Hulda Kjæmested,
þau eiga tvö böm; Guðrún, f. 12.11.
1957, maki Almar Hjarðar, þau eiga
tvö böm.
Systkini Kristínar: Elísabet, maki
Gunnar Bjamason; Jakobína, henn-
ar maður var Andrés Sigurðsson,
látinn; Anna, makiBaldur Jónsson;
Bára, maki Sigurður Hjartarson;
Jóhann, látinn, hans kona var Krist-
ín Þórarinsdóttir; Halldór, látinn,
Kristín Jónsdóttir.
hans kona var Anna Erlendsdóttir;
Hörður, látinn, hans kona var Elín
Traustadóttir. Tvö systkina Kristín-
ardóuíæsku.
Foreldrar Kristínar: Jón Níelsson
útvegsbóndi og Guðlaug Halldórs-
dóttir, en þau bjuggu að Hafnanesi,
Fáskrúðsfirði.
90 ára
Sveinbjörg Halldórsdóttir,
Hólmgarði 18, Reykjavík.
85 ára
SiguróurGunnarsson,
Laugarnesvegi 81, Reykjavík.
Sólveig Einarsdóttir,
Hraunbraut 1, Grindavik.
Jón Þorvarðarson,
Snorrabraut58, Reykjavík.
Kristmundur Bjarnason,
Laufási 14, Egilsstöðum.
60ára
Ásgeir Kristjón Sörensen,
Köldukinn 11, Hafnarfirði.
Ástvaldur Kristmundsson,
Vesturbergi 67, Reykjavík.
Valgerður Sveinsdóttir,
Bmnnum 15, Patrekshreppi.
50 ára
Sigriður Sigurðardóttir,
Laugamesvegi 104, Reykjavík.
Dagmar Jóhannesdóttir,
Fögmiúíð 17, Eskifirði.
Hlöðver Jónsson,
Strandgötu 41, Eskifirði.
Ármann Bjarnason,
Hásteinsvegi 18, Vestmannaeyjum.
Rósa Gunnlaugsdóttir (á afmæli
11.11),
Fannborg 1, Kópavogi.
Hún tekur á móti gestum á heimili
sínu 10.11 kl. 15-19.
Sigurður Óskarsson,
Miðvangi 16, Hafnarfirði.
Hilmar Reynir Ólafsson,
Guhteigi 12, Reykjavík.
ErlingurKristjánsson,
Blómvangi 6, Hafnarfirði.
Inga Sólveig Sigurðardóttir,
Hraunbæ 64, Reykjavík.
Inga Hansdóttir,
Hveraibld 62, Reykjavík.
Magnea Rann veig Þorgeirsdóttir,
Laugavegi 133, Reykjavík.
Björn Kristjánsson,
Hólabraut 5, Blönduósi.
Sigrún Þórhallsdóttir,
Sniðgötu 1, Akureyri.
Árni Sigurbjörnsson,
Móabarði 6, Hafnarfirði.
Guðmundur Pétursson,
Norðurvöhum 16, Keflavík.
S vanfríður Inga Jónasdóttir,
Sognstúni 4, Dalvík.
• ÞuríðurPétursdóttir,
Heiðnabergi 6, Reykjavík.
Gunnar Einarsson,
Reynigrund 36, Akranesi.
Þorleifur Jóhannsson,
Spítalavegi 8, Akureyri.
Sigurður Rúnar Sæmundsson,
Öldugötu 8, Reykjavík.
Óskar Þór Óskarsson,
Réttarholti4, Borgarnesi.
Magnea Dagmar Sigurðardóttir
Magnea Dagmar Sigurðardóttir
húsmóðir, Helgubraut31, Kópavogi,
veröur áttatíu og fimm ára á mánu-
daginn.
Fjölskylda
Dagmar er fædd á Skammbeins-
stöðum, Holtum, Rangárvallasýslu,
ogólst þarupp.
Dagmar kvæntist 14.6.1931 Tóm-
asi Sigvaldasyni, f. 26.12.1907, d.
11.6.1980. Foreldrar Tómasar: Sig-
valdi Jónsson og Ingileif Tómasdótt-
ír.
Börn Dagmarar og Tómasar: Hall-
dóra Erla, f. 28.9.1931, maki Stefán
G. Stefánsson; Sigurður, f. 10.6.1933,
d. 22.8.1990, kona hans var Valdís
Ólafsdóttir, þau eignuðust fjögur
böm; Inga Valdís, f. 31.8.1937, henn-
ar maður var Helgi Rafn Trausta-
son, látinn, þau eignuðust fimm
börn; Magnea Dagmar, f. 2.11.1946,
maki Rúnar Þórhallsson, þau eiga
tvö böm.
Systkini Dagmarar: Margrét, f.
25.2.1903, d. 23.11.1989, ráðskona;
Ágústa, f. 14.2.1905, d. 30.5.1990,
hennar maður var Steinberg Jóns-
son; Elísabet, f. 18.11.1907, látin,
hennar maður var Einar Einarsson;
Ehnborg, f. 20.5.1909, maki Bjarni
Jóhannsson; Lára, f. 16.6.1910, maki
Karl Vilhjálmsson. Hálfbróðir, sam-
mæðra: Guðmundur Árnason, f.
3.12.1913. Uppeldisbróðir: Benedikt
Björnsson.
ForeldrarDagmarar: Sigurður
Jakobsson, f. 25.9.1877, d. 15.6.1911,
bóndi, og Guðríður Þorsteinsdóttir,
f. 23.8.1877, d. 22.1.1941, en þau
bjuggu að Skammbeinsstöðum í
Holtum.
Ætl
Sigurður var sonur Jakobs Hjalta-
sonar, f. 19.8.1838, d. 16.6.1890, og
Guðlaugar Pálsdóttur, f. 14.2.1836,
d. 10.6.1937, en þau bjuggu í Neðra-
Seli, Landsveit, RangárvaUasýslu.
Guðríður var dóttir Þorsteins Jóns-
sonar og Margrétar Runólfsdóttur
en þau bjuggu í Holtsmúla í Land-
sveit.
Dagmar tekur á móti gestum á
heimili sínu í dag (9. nóvember) kl.
15-18.
Magnea Dagmar Sigurðardóttir