Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Side 33
LAUGARDAGUR 28. MÁRS 1992.
„Þetta hlýtur að hafa verið út af matnum,“ hugsaði Garpur verkalýðsforingi þegar hann fann fyrir nistandi
sársauka í brjóstinu í miöri ræðu. Viðbrögð hans við verknum voru dæmigerð. Hann sagði að ekki hefði
hvarflað að sér að um kransæðastiflu væri aö ræða. Þó vissi hann vel að bæði faðir hans og föðurbróðir
höfðu áður dáið úr þessum sjúkdómi.
Verkalýðs-
leiðtogi með
kransæðastíflu
Verkalýösleiðtoginn Garpur B.
fékk kransæðastíflu um daginn.
Hann er maður liðlega fimmtugur,
vel í holdum og hrókur alls fagnaðar
í góðum vinahópi. Hann reykir 1-2
pakf’a af sígarettum á dag og er stöð-
ugt Ífullri ferö fram og aftur í þjóö-
lífi rýrnandi kaupmáttar. Síminn
hringir látlaust öll kvöld enda þykir
Garpur ákaflega bóngóður maður.
Hann er kvæntur jafnöldru sinni
úr forystusveit annars verkalýðsfé-
lags. Þau híttust á ASÍ-þingi á Akur-
eyri og hrifust mjög af glóðinni í
augum hins. Skömmu síðar skildu
þau við maka sína og tóku saman.
Heimilislífið er stormasamt. Þau
eiga bæði börn frá fyrri samböndum
sem sætta sig illa við nýjar aðstæð-
ur.
Garpur var fenginn einn fimmtu-
dag til að flytja hádegisverðarerindi
um stöðuna í samningamálum hjá
fyrirtæki í borginni. Hann fékk
steikta ýsu að borða og stóð síðan
upp til að halda erindi sitt. í miðri
ræðu fann hann fyrir nístandi sárs-
auka í brjóstinu. Honum sortnaði
fyrir augum en hélt þó áfram að
tala og verkurinn virtist færast til,
minnka og festast í hálsinum.
Garpur taldi sig hafa fengið ýsu-
bein í hálsinn og bölvaði í hljóði
gervitönnum sínum og kæruleysi
kokkanna við beinhreinsun. Hon-
um tókst að ljúka erindinu enda
virtist verkurinn hjaðna.
„Þetta hlýtur að hafa verið út af
matnum," h'ugsaði Garpur með sér
og tók leigubíl frá fyrirtækinu niður
í Alþingishús til að hitta flokks-
bræður sína. Honum leið illa í bíln-
um, svimi ágerðist, hann varð kald-
sveittur.
„Ég hlýt að vera kominn með
flensu," sagöi Garpur.
Hann fann hvernig brjóstverkur-
inn kom aftur og ágerðist. Hann los-
aði um bláyijótt polyesterslifsið og
hallaði sér aftur í bflnum svo aö
verkurinn liði hjá. Bflstjórinn virt-
ist nú veita ástandi farþega síns at-
hygli.
„Er eitthvað að, þú ert alveg
öskugrár."
Garpur stundi upp mifli saman-
bitinna varanna: „Eg er sennilega
með matareitrun."
Bflstjórinn ákvað að kalla upp
sjúkrabíl þó að hann hefði skömm
á verkalýðsbaráttu Garps. Neyöar-
bíll kom strax á vettvang. Þá var
Garpur orðinn illa haldinn af verkj-
um og greinflega fárveikur. Sett var
á hann hjartarit og kom þá í Ijós að
hjartað sló óreglulega og blóðþrýst-
ingurinn fór lækkandi. Hvasseygur
læknir og kaldranalegur hjúkrun-
arfræðingur hófust þegar handa og
gáfu honum lyf og vökva og síðan
var ekið í loftinu upp á Borgarspít-
ala. Þar greindist stór kransæða-
stífla og var Garpur þegar í stað
lagður inn á hjartadeild.
Blóðsegi
og segalosun
Þegar kransæðastífla greinist hef-
ur blóðsegi eða tappi stíflað æð til
hjartavöðvans og veldur þar drepi.
Einkennin, sem fólk finnur fyrir,
eru sársauki eða þrýstingur í brjóst-
inu sem oft leiðir út í vinstri hand-
legginn. Þessu fylgir slappleiki,
Álaeknavaktiimi
þreyta, mæði, flökurleiki og stund-
um heiftarleg uppköst. Ef hjartslátt-
urinn breytist getur liðiö yfir fólk
og alvarleg hjartabilun getur komið
upp ef stór hluti hjartavöðvans
verður fyrir áfalli vegna skyndilegs
súrefnisskorts.
Þegar læknar höfðu gengið úr
skugga um að Garpur hafði fengið
kransæðastíflu var ákveðið að gefa
honum streptokínasa en það er
segaleysandi efni. Auk þess fékk
hann acetylsalicylsýru eða magnyl
auk lyfja vegna óreglulegs hjart-
sláttar. Þá brá svo við að verkurinn
hvarf og hjartaritið breyttist til hins
betra.
Næstu daga var Garpur á deild-
inni og lagaðist hratt. Streptokínas-
inn virtist hafa leyst upp blóðtapp-
ann í æöinni. Hann var sendur í
hjartaþræðingu og kom þá í ljós að
um mikil þrengsli var að ræða í
kransæðunum og var ákveðið hann
færi í svokallaða „by-pass“ hjarta-
aðgerð eins fljótt og auðið væri.
Afneitun ogtöf
Viðbrögð Garps viö verknum voru
dæmigerð. Hann sagði síðar að ekki
hefði hvarflað aö sér að um krans-
æðastíflu væri að ræða. Þó vissi
hann vel að bæði faðir hans og föð-
urbróðir höfðu áður dáið úr þessum
sjúkdómi. Hann hugsaði með sér:
„Þetta getur ekki komið fyrir mig
og allra síst fyrir framan flölda
manns.“
Það er algengt að fólk bregðist við
á þennan hátt. Flestir eru í afneitun
á alvarlega sjúkdóma og trúa því
ekki að eitthvað geti komið fyrir þá.
Stórar rannsóknir, sem gerðar hafa
verið á fórnarlömbum kransæða-
sjúkdóma, sýna að margir þessara
sjúklinga eru með einkenni í marga
klukkutíma eða daga áður en þeir _
leita læknis. Þessi töf í greiningu á
sjúkdómnum getur reynst afdrifa-
rík því að batahorfur sjúklings eru
mun betri ef sjúkdómurinn greinist
fljótt.
Með streptokínasa meðferðinni
var hægt að bjarga Garpi en það
hefði ekki verið hægt ef hann hefði
farið heim og látið hjá líða að leita
læknis í nokkrar klukkustundir.
Eftirleikurinn varð erfiður hjá
Garpi. Hann varð að hætta að reykja
og hægja ferðina í verkalýðsbarátt-
unni. Meðan hann lá á sjúkrahúsi
til æðaskipta í hjarta var honum
velt úr sessi í stjórninni og ungir
menn tóku við með eld í augum.
Garpur settist þá í helgan stein og
ritaði ævisögu sína, „Svikinn á sótt-
arsæng", fulla af beiskju og bitur-
leika.
Smám saman jafnaði hann sig og
fór að vinna á bensínstöð. Hann
uppgötvaði allt í einu að hann hafði
nægan tíma til að njóta lifsins með
flölskyldu sinni. Síminn þagði öll
kvöld og Garpur gat setið og notið
kvöldverðar með öllum sínum börn-
um, stjúpbörnum, tengdabörnum og
bamabörnum.
„Þetta er allt annaö líf,“ sagði
hann stundum. „Ef kransæðastíflan
hefði ekki stoppaö mig af í leigubíln-
um forðum hefði ég aldrei kynnst
flölskyldu minni. Æth ég sendi ekki
leigubílstjóranum eintak af bókinni
minni með áritun og kveðju."
Útboð
Kaldbaksvík 1992
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í endur-
lagningu Strandavegar um Kaldbaksvík og Kol-
beinsvík.
Helstu magntölur: Lengd kafla 5,2 km, bergsker-
ingar 1.670 m3, fyllingar og fláafleygar 20.550
m3, neðra burðarlag 10.570 m3 og malarslitlag
970 m3.
Verkinu skal að fullu lokið 15. september 1992.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á ísafirði og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjald-
kera), frá og með 30. þ.m. Skila skal tilboðum á
sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 13. apríl 1992.
Vegamálastjóri
N.Y.T.T
/I pollo - heimsins stærsti framleiðandi á
.ZjLviðbótarhári, býður þér lausn sem er svo
eðlileg að þú færð þá tilfinningu að hafa fengið
þitt eigið hár aftur.
Hringið eða skrifið
.jfc eftir nánari upplýsingum, 100% trúnaður
. RAKARA- OG
|9 HARGREIÐSLUSTÖFAN
* GKEII IM
HRINGBRAUT 119 » 22077
HAIR
•svstenvs
JA
ég vil fá meiri upplýsingar um
Apollo-hár.
Nafn:
Heimilisfang:.
Póstnúmer: _
HÁR
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram sjötti
útdráttur húsbréfa
í 1. flokki 1989
og þriðji útdráttur
húsbréfa í 1. flokki 1990.
Einnig annar útdráttur
í 2. flokki 1990.
Koma þessi bréf til
innlausnar 15. maí 1992.
Öll númerin verða birt í
næsta Lögbirtingablaði og
upplýsingar liggja frammi í
Húsnæðisstofnun ríkisins,
á Húsnæðisskrifstofunni á
Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og
verðbréfafyrirtækjum.
CpO HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
L_l HÚSBRÉFADEILD • SÚÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900