Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 28. MARS 1992. 59 Afrnæli Barði Friðriksson Barði Friðriksson, hrl. og lögmaður VSÍ, til heimilis að Úthlíð 12, Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Barði fæddist að Efri-Hólum í Presthólahreppi í Noröur-Þingeyj- arsýslu. Hann lauk stúdentsprófi frá MA1943, embættisprófi í lög- fræði frá HÍ1949, öðlaðist hdl.-rétt- indi 1950 og hrl.-réttindi 1966. Barði var skrifstofumaður hjá 01- íuverslun íslands hf. 1943-46, skrif- stofumaður í dómsmálaráðuneyt- inu 1947-48, stundakennari við Kvennaskólann í Reykjavík 1952-72, erindreki VSÍ1949-51, fulltrúi VSÍ 1951-53, skrifstofustjóri VSÍ1953-77 og framkvæmdastjón samninga- og vinnuréttarsviðs VSÍ frá 1977 auk þess sem hann er lögmaður VSÍ frá 1983. Barði sat í stjórn Orators 1946^47, var formaður Stúdentafélags HÍ 1947-48, í stjórn Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar frá 1950, for- maður Félags Þingeyinga í Reykja- vík 1951-59, í stjórn Landsmálafé- lagsins Varðar og varaformaður þess 1954-57, formaður Stúdentafé- lags Reykjavíkur 1955-56, í stjórn eða varastjóm Lífeyrissjóðs versl- unarmanna frá 1959, í stjóm Stanga- veiðifélags Reykjavíkur frá 1969 og formaður 1971-76, í atvinnumála- nefnd Reykjavíkur frá 1969, í stjórn Sambands almennu lífeyrissjóö- anna 1971-76 og í framkvæmda- stjóm 1976-85 og varaformaður Fé- lags eldri borgara í Reykjavik frá stofnun 1986. Barði sat í stjóm Sigurplasts hf. 1961-85, var formaður Seifs hf., heúdverslunar, 1969-85 og stjórnar- formaður í slenska j árnblendifélags- ins frá 1984. Hann hefur setið í fjölda opinberra nefnda sem fjallað hafa um ýmsa þætti atvinnu- og kjara- mála. Barði var ritstjóri Vinnuveitand- ans 1962-79, ritstjóri afmælisblaðs VSÍ1984 og hefur skrifað fjölda greina í blöð og tímarit. Hann stjórnaði sjónvarpsþættinum Vitið þér enn? veturinn 1972. Barði var sæmdur gullstjörnuStúdentafélags Reykjavíkur 1957 og er riddari fálkaorðunnar frá 1982. Fjölskylda Barði kvæntist 15.6.1946 Þuríði Þorsteinsdóttur, f. 22.6.1925, safn- verði hjá Reykjavíkurborg. Hún er dóttir Þorsteins Jóhannessonar, prófasts í Vatnsfirði við Djúp, og Laufeyjar Tryggvadóttur húsfreyju. Börn Barða og Þuríðar eru Lauf- ey, f. 2.10.1946, húsfreyja á Seltjam- amesi, gift Ævari Guðmundssyni stórkaupmanni; Margrét, f. 9.5.1952, sérkennari í Reykjavík; Þorsteinn, f. 11.11.1953,jarðfræðingurí Reykjavík, kvæntur Jóhönnu Lov- ísu Viggósdóttur meinatækni. Systkini Barða: Halldóra, f. 3.6. 1903, d. 21.10.1985, skólastjóri; Sæ- mundur, f. 28.6.1905, d. 3.8.1977, framkvæmdastjóri; Dýrleif, f. 14.10. 1906, ljósmóðir; Þórný, f. 24.12.1908, d. 18.8.1968, skólastjóri; Margrét, f. 11.6.1910, d. 9.10.1989, húsfreyja; Kristján, f. 21.7.1912, d. 26.4.1980, framkvæmdastjóri; Svanhvít, f. 27.9. 1916, skólastjóri; Guörún Sigríður, f. 29.9.1918, kennari. Foreldrar Barða voru Friðrik Sæ- mundsson, f. 12.5.1872, d. 5.10.1936, b. á Efri-Hólum og víðar, og kona hans, Guðrún Halldórsdóttir, f. 12.7. 1882, d. 15.10.1949, húsfreyja ogljós- móðir. Ætt Meðal fóðursystkina Barða var Torfi, langafi Höskuldar Þráinsson- ar prófessors. Friðrik var sonur Sæmundar, b. í Narfastaðseli, Jóns- sonar, b. á Höskuldsstöðum, bróður Jóhannesar, langafa Salome alþing- isforseta og Sigurðar ríkisféhirðis Þorkelsbarna. Annar bróðir Jóns var Sæmundur, afi Valdimars Ás- mundssonar ritstjóra, fóður Héðins alþingismanns ogforstjóra. Sæ- mundur var einnig faðir Helgu, langömmu Indriða Indriðasonar ættfræðings og Hrings Jóhannes- sonar listmálara. Jón var sonur Torfa, b. í Holtakoti, Jónssonar, b. á Kálfborgará, Álfa-Þorsteinssonar. Móðir Friðriks var Þórný Jóns- dóttir, b. á Fjöllum, Gottskálksson- Barði Friðriksson. ar, b. á Fjöllum, Pálssonar, ættfóöur Gottskálksættarinnar, foður Magn- úsar, afa Benedikts Sveinssonar al- þingisforseta, föður Bjarna forsæt- isráðherra. Móðir Þórnýjar var Ólöf Hrólfsdóttir, b. á Hafralæk, Runólfs- sonar, b. í Kílakoti, Pálssonar, af ættHrólfunga. Guðrún var dóttir Halldórs, b. á Syðri-Brekkum á Langanesi, Guð- brandssonar, og konu hans, Dýrleif- ar, systur Kristins í Nýhöfn, afa Níelsar Árna Lund alþingismanns. Dýrleif var dóttir Kristjáns, b. á Leirhöfn á Sléttu, Þorgrímssonar. Móðir Kristjáns var Vigdís Hall- grímsdóttir, b. í Hraunkoti, Helga- sonar, ættfööur Hraunkotsættar- innar. Óli Þ. Óskarsson Óli Þorleifur Óskarsson, bygginga- meistari og bóndi, Flatey í Mýra- hreppi, er fertugur í dag. Starfsferill Óli er fæddur í Reykjavík og ólst þar upp. Hann hóf nám í húsasmíði hjá Þórði Kristjánssyni 1971 og vann þar í tvö ár en síðar hjá Byggingafé- laginu Einhamri 1973-78 undir stjóm Gissurar Sigurðssonar bygg- ingarmeistara. Óli lauk náminu 1975 og fékk meistarabréf í iðninni þrem- ur árum síðar. Óli vann við botnrás Hrauneyja- fossvirkjunar 1980-81, stóð fyrir byggingu dæluhúss og virkjun við Deildartunguhver fyrir Hitaveitu Akraness ogBorgarness 1981-42, sá um uppsteypu á Sj úkrastöð SÁÁ í Grafarvogi 1982-83 og vann að ýms- um verkefnum fyrir Landsvirkjun 1983-89, t.d. byggingu botnsrásar Blönduvirkjunar og stöðvarhúss. Óli byggði ennfremur dælustöð fyr- ir Hitaveitu Reykjavíkur og hefur annast ýmsar aðrar byggingarfram- kvæmdir í höfuðborginni. Óli byggöi sér hús í Þrastanesi 14 í Garðabæ og bjó þar nokkur ár. Hann keypti Graskögglaverksmiðj- una Flatey og stofnaði Grasköggla hf. árið 1988. Hann hefur starfrækt verksmiðjuna frá þeim tíma og að auki sinnt ýmsum bústörfum. Óh situr í bygginganefnd Mýrahrepps. Fjölskylda Óh kvæntist 27.11.1982 Jónínu Sigurjónsdóttur, f. 24.11.1960, hús- móður og hárskerameistara. For- eldrar hennar: Sigurjón Jónsson, látinn, hann var ættaður frá Flag- bjarnarholti í Landsveit, og Gerður Guðjónsdóttir, en hún býr í Ártúni 7 á Selfossi. Börn Óla og Jónínu: Sigrún Ósk, f. 24.8.1978; Oskar Örn, f. 16.4.1983. Systkini Óla: Björg, f. 13.1.1956, hárgreiðslumeistari, maki Sigurður Rúnar Jakobsson, útsendingarstjóri hjá Stöð 2, þau eru búsett á Seltjarn- arnesi og eiga tvo syni, Jakob og Óskar; Lára, f. 19.10.1960, hár- greiðslumeistari, maki Gísli Birgis- son rafvirki, þau eru búsett í Reykjavík og eiga tvö böm, Erlu og Arnór; Helgi Rúnar, f. 31.7.1967, nemi, maki Ásdís Ósk Erlingsdóttir húsmóðir, þau eru búsett í Banda- ríkjunum og eiga tvær dætur, Evu Sif og Söndm Björgu. Foreldrar Óla eru Óskar Ólason, f. 13.4.1923, málarameistari, og Arn- fríður ísaksdóttir, f. 8.7.1930, hár- greiðslumeistari, en þau em búsett á Seltjamamesi. Ætt Óskar er sonur Óla Þorleifssonar, Jónssonar, bónda að Eyri við Reyð- arfjörð, og konu hans, Jóhönnu Lám Guðjónsdóttur Vopnfjörð, frá Vopnafiröi. Ámfríður er dóttir ísaks Kjartans Vilhjálmssonar, bónda að Bjargi á Seltjarnarnesi, og konu hans, Helgu Sigríðar Runólfsdóttur, Pétursson- ar, lögregluþjóns. Kjartan Tomas Guðjónsson Kjartan Tómas Guðjónsson vél- stjóri, til heimils að Hrafnistu í Hafnarfirði, verður áttatíu og fimm áraámorgun. Starfsferill Kjartan fæddist að Hhð undir Eyjafiöhum og ólst þar upp. Hann fór ungur th sjós, lauk vélstjóra- prófi og var vélstjóri á flölda báta í fimmtíu og þrjú ár. Kjartan var m.a. á mb. Kristjáni er lenti í frægum hrakningum í tólf daga þó allir kæmustlífsaf. Eför að Kjartan kom í land starf- aði hann við Frystihús Bolungar- víkur en hætti störfum daginn fyrir áttræðisafmæhð. Fjölskylda Kjartan kvæntist 1940 Hahdóru Friðgerði Maríasardóttur, f. 30.5. 1919, d. 30.10.1970, húsmóður. Hún var dóttir Maríasar Guðmundsson- ar og Guðrúnar Pálsdóttur. KjarfaiLOg Halldóra bjuggu fyrst á Ólafsfirði en fluttu þaðan th Bol- ungarvíkur. Þau eignuðust tólf böm. Böm þeirra eru Jónína Rann- veig, f. 29.9.1940; Vhborg Guðný, f. 19.9.1942; Kjartan Hahdór, f. 5.9. 1944, d. 5.2.1968; Gunnar Páh, f. 14.4. 1946; Hlíðar, f. 19.8.1947; Sigríður, f. 5.6.1950; Bergmundur Bæring Ólafur, f. 21.11.1951, d. 24.9.1985; Jónmundur, f. 12.7.1955; María Sveinsína, f. 11.1.1957, d. 23.3.1978; Reimar Hafsteinn, f. 24.11.1958 auk tveggja bama sem fæddust and- vana. Systkini Kjartans: Sigurður Guð- jónsson, og Guðlaug Guðjónsdóttir sem er látin. Foreldrar Kjartans vom Guðjón Sigurðsson frá Hhð óg Vhborg Tóm- asdóttir frá Hrútafehi. Kjartan Tómas Guöjónsson. Kjartan tekur á móti gestum á Hótel Loftleiðum á afmæhsdaginn klukkan 15-18. Ingibjörg Halldórsdóttir Ingibjörg Halldórsdóttir húsmóöir, Stekkum 9, Patreksfirði, er áttræð í dag. Starfsferill Ingibjörg er fædd á Fjarðarhorni í A-Barðastrandarsýslu og ólst upp í Múlasveit í sömu sýslu. Hún hlaut barnaskólakennslu sem þá var og sótti síðar þau handa- vinnunámskeið sem í boði voru, bæði fyrir vestan og í Reykjavík. Ingibjörg hefur unnið margvísleg störf um ævina, t.d bústörf í sveit- inni og við handavinnu og handa- vinnukennslu á Patreksfirði. Fjölskylda Ingibjörg giftist 25.12.1948 Krist- jáni Jónssyni, f. 29.7.1896, d. 16.3. 1978, verkstjórahjá Patrekshreppi. Foreldrar hans voru Jón Gíslason, bóndi og verkamaður, og Herdís Teitssdóttir húsfreyja, en þau bjuggu á Tálknafirði og Raknadal í Patreksfirði. Dóttir Kristjáns, af fyrra hjóna- bandi, er Svanhvít, f. 11.3.1927, hús- móðir, maki Þórólfur Pálsson, starfsmaður hjá Eimskip, þau eru búsett í Reykjavík og eiga þrjár dætur. Systkini Ingibjargar: Páhna Re- Ingibjörg Halldórsdóttir. bekka, f. 4.2.1909, hún er búsett á Patreksfirði og á tvær dætur; Þórð- ur Einár, 11.1.1917, hann er búsettur í Reykjavík og á einn son; Sesselja Kristín, f. 28.8.1920, hún er búsett í Hafnarfirði og á eina dóttir. Foreldrar Ingibjargar voru Hall- dór Sveinsson, f. 22.9.1877, d. 22.9. 1964, bóndi, og Guðrún Þórðardóttir, f. 15.8.1879, d. 29.6.1965, húsfreyja, en þau bjuggu í Skálmardal og á Svínanesi í Múlasveit, á Mábergi á Rauðasandi og á Patreksfirði frá 1950thdauðadags. 90 ára Kristín Gisladóttir, Höfðavegi 5b, Húsavík. Þverholti 6, Akureyri. Guðlaug Einarsdóttir, Hhðargötu27, Sandgerði. Hóhngríxnur Kjartansson, Hrauni, Aöaldælahreppi. Svanberg Sveinsson, Vogatungu 95, Kópavogi. 70 ára Ólafur Jónsson, Lækjartúni, Þorlákshöfn. Ari Steinberg Árnason, Tjamarlundi 5b, Akureyri. 60ára Bragi Guðráðsson, Blómvangi 16, Hafnarfiröi. Ásdis Þorgrimsdóttir, Vallarbraut7, Akranesi. Gunnþóra Ámadóttir, Sólrún Ólafsdóttir, Hraunbæ96, Reykjavík. 40 ára_________________________ Óskar Ólafsson, Hraunbæ90, Reykjavík. Gunnar Karlsson, Bakkahhð 27, Akureyri. Höskuldur Ásgeirsson, Miðtúni6, Reykjavík. Auðunn Páh Gestsson, Vesturgötu 25, Keflavík. Maria Þóra Benediktsdóttir, Dalseh 17, Reykjavík. Elfa Eyþórsdóttir, Kringlunni 77, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.