Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992. Fréttír Norðurlandamótið 1 hestaíþróttum 1 Noregi: Fjórir Islendingar í úrslitum í fimmgangi íslenska landsliðið í hestaíþróttum hefur haslað sér völl á Norðurlanda- mótinu í Seljord í Noregi. Styrmir Snorrason er með besta tímann í 250 metra skeiði á Baldri frá Sandhólum á 22,6 sek., eftir tvo spretti af fjórum en í fimmgangi eru fjórir íslendingar í lírslitum af fimm mögulegum. Ein- ar Öder Magnússon er efstur eftir forkeppni í fimmgangi á Háfeta, Pet- er Haggberg frá Svíþjóð er annar á Smáhildi, Herbert Ölason þriðji á Blekkingu, Styrmir Amason fjórði á Þrótti og Trausti Þ. Guðmundsson fimmti á Steingrími. Skeiðlaus í annað sæti Fimm hryssur sex vetra og eldri kepptu í kynbótkeppninni. Efst stóð norska hryssan Katla frá Lian með 7,79 í aðaleinkunn; 7,95 fyrir bygg- ingu og 7,68 fyrir hæfileika en ís- lenski keppandinn, Þota frá Hær- ingsstöðum, var í öðru sæti með 7,78, þó aö hún hafi ekki sýnt skeið. Þota fékk 7,93 fyrir byggingu og 7,68 fyrir hæfileika. Katla er undan Kóngi frá Lien og Dögg frá Fosse en Hæra er undan Hugbúa frá Ytra-Dalsgerði og Grímu frá Kolkuósi. „Mökkur er að springa út“ í fjórgangi er gengi landsliðsins ótrúlega gott. Efstur er Jón Stein- bjömsson á Mekki, nýrri stjörnu sem er borin saman við Röð, sem Bernd Vith í Þýskalandi situr. „Mér hefur aldrei gengið eins vel með Mökk í sýningu," segir Jón. „Hann er að springa út,“ sagði Jón ennfremur. í öðru sæti er Hinrik Bragason á Pjakki. Sami eigandi er aö báðum hestunum, August Beyer, sem lánaði Jóni og Hinrik hestana á mótið. í þriðja sæti er Erik Andersen á stóð- hestinum Yggdrasil, í fjórða sæti Helene Nilsson á Leira og í fimmta sæti Otto Beckström á Sóma. -E.J. Áhugi hjá Fáki um aö koma veðmálum inn í lottókassa: Vikulegar kapp- reiðarogveð- banki í athugun - bara spurning um hvenær, segir Haraldur 1 Andra Hugmyndir era uppi meðai hesta- manna Fáks í Reykjavík að koma af stað veðbönkum á kappreiðum. Har- aldur Haraldsson í Ándra hf. er þar fremstur í flokki og að hans sögn er mikill áhugi á því að koma veðmál- um inn í lottókassana. Forráðamenn íslenskrar getspár og íslenskra get- rauna hafa haft erindi Fáksmanna til athugunar. Málið er hins vegar ekki lengra komið. Ef til kemur þarf að breyta tölvukerfum kassanna og eignaraðild þeirra. „Málið er í biðstöðu eins og er,“ sagði Harlaldur við DV. „Hugmynd okkar er að gera þetta veglegt. Það þarf að gera hlaupabraut og aðra aðstöðu. Við hugsum okkur kapp- reiðar um hverja helgi þar sem hest- ar og knapar hvaðanæva af landinu mæta tii leiks. Tvímælaiaust er mik- iU áhugi til staðar. Þetta er spurning um hvenær af þessu verður en ekki hvort," sagði Haraldur. Hvað varðar lögmæti veðbanka sagði Haraldur að Fákur hefði haft leyfi yfirvalda fyrir veðbönkum í mörg ár. Haraldur sagðist ekki sjá að hugmynd Fáksmanna væri á skjön við lög. Á áram áöur tíðkuðust veðbankar á kappreiðum hér á landi en aldrei í miklum mæh. Það var síðan fyrir nokkru sem hestamannafélögin Funi, Léttir og Þráinn í Eyjafirði stóðu fyrir veðbanka á kappreiðum á Melgerðismelum. Að sögn Stefáns Erlingssonar á Akureyri var þessi veðbanki ekki stórtækur en tókst engu að síður vel. Veðmál vora ekki hærri en 1000 krónur. Stefán sagði að þetta hefði verið tilraun og líklega verði veðbankar ekki settir oftar upp ísumaráþeirravegum. -bjb SigurðurLíndal: Kvótaúthlutun ráðherra andstæð stjórnarskrá Sigurður Líndal lagaprófessor hef- ur komist að þeirri niðurstöðu að fyrirkomulag kvótaúthlutimar stangist á við ákvæði stjómarskrár- innar um atvinnufrelsi manna. Ef takmarka eigi mannréttindi á við atvinnufrelsi þurfi skýlaust að koma til lagaboð. Framsal valds til sjávar- útvegsráðherra og kvótaúthlutun með reglugerð uppfylh ekki skilyrði stjómarskrárinnar um lagasetningu. ÁJitsgerð Sigurðar var unnin að ósk Kristins Péturssonar, stjómar- maxms í Félagi um nýja sjávarút- vegsstefnu. Davíð Oddsson forsætis- ráðherra hefur kynnt hana í ríkis- stjóminni. Þá mun áhtsgerðin verða tekin til umfjöllunar og kynningar hjá félögum Kristins. -kaa Slasaðist við Dettifoss Þýsk kona datt í stórgrýti við Detti- hættuleg. Konan var á ferð ásamt foss í gær og hlaut höfuðáverka. Hún eiginmanni sínum við náttúraskoð- var flutt með sjúkrabO til Húsavíkur. un við fossinn þegar óhappið gerðist. Meiðsl hennar vora ekki tahn lífs- -bjb Teknir með 15 grömm af hassi Fíkniefhalögreglan handtók tvo kenndi að hafa íluti efniö inn en karlmenn á fimmtudag með 15 hinn maöurinn er ekki viðriðinn grömm af hassi. Fíkniefnið fannst málið. Mönnunum var sleppt eftir eftir húsieit á tveim stöðuro í borg- y’firheyrslur og raáhð afgreitt þjá inni Annar raannanna viður- fikniefnaiögreglunni. -bjb Málningarvinna stendur nú yfir við Fríkirkjuna i Reykjavík. Undanfarin ár hefur þessi þessi fagra kirkjubygging í hjarta höfuðborgarinnar látið nokkuð á sjá og hefur það farið fyrir brjóstið á mörgum. Ytra útlit kirkjunnar hefur meira að segja orðiö að deilumáli meðal safnaðarbarnanna. Þeim deilum ætti Ijúka þegar fegrun kirkjunnar er lokið og hver veit nema þá komist friður á í söfnuðinum. DV-mynd S Vinnuslys: Festist í valsi Tvö vinnuslys uröu í Reykjavík um miðjan dag í gær. í fyrra skiptið festi ungur maður aöra höndina í valsi hjá fyrirtækinu Steinprýði við Stangarhyl en hlaut ekki alvarlega áverka. Um þrjúleytið datt maður úr stiga í Dalshrauni og var fluttur á slysa- deild með áverka á bijósti. -bjb Hólahrossin: Afsökunar- beiðni ekki (ögðfram „Við höfum ekki sent þeim Hólaraönnum neina afsökunar- beiðni og það stendur ekki til enda veit ég ekki á hverju við eigum að biöjast afsökunar," sagði Gísh Sv. Halldórsson sem situr í stjórn Vindheimamela sf. Eins og DV gremdi frá í vikun ni var Hólamönnum meinuð þátt- taka í mótinu á Vindheimamel- um um verslunarmannahelgina. Stjórn Vindheimamela sf. hefur sent frá sér greinargerð þar sem fram kemur að hrossin, sem sijórnin fjallaði um, era fjögur. Hólamenn fóru heim með 19 hross. í þeim hópi voru kynbóta- hross sem ekki eru í eigu Hóla- búshis. Gísli sagði að stjórnin hefði aðeins verið að fara aö þeim reglum sem gilt hafa á hestamót- um. „Það er ekki verið aö persónu- gera þetta mái. Hins vegar teljum viö að ríkið geti ekki gefið neinum heimild til að eigna sér það sem ríkið á. Þetta mál snýst um eign- arhald eh ekki menn. Reglurnar era mjög skýrar hvað það varðar - að sá sem tekur þátt í svona mótum verður að eiga hrossin. Við vitum það öll að hrossin á Hólum eru í eigu ahra lands- manna," sagði Gísli. „Ég hefði viljað að þeir hefðu þegiö að , keppa þama sem gestir. Okkur hefur aha tíð þótt sómi að Hóla- hrossunum á Vindheimamelum og það hefur ekkert breyst. Auð- vitað hörmum við þá ákvörðun þeirra Hólamanna að fara heim. Ég lít svo á að sú ákvörðun hafi verið tekin 1 fljótfærni. Hefðu Hólamenn þegið að vera á mótinu sem gestir og sigrað heföu þeir komið sínum hrossum á framfæri og tamningamennirnir hefðu sýnt fram á góðan afrakstur sinn- ar vinnu. Með því að fara heim útilokuðu þeir sig frá slíku," sagði Gísli. ask Evrópska efhahagssvæðið: Neytendasam- tökin vilja þjóðaratkvæði Að ósk utanríkismálanefndar Alþingis fjallaði stjóm Neytenda- samtakanna um EES-samning- inn. Stjóm samtakanna komst að þeirri niðurstöðu, hvað varðar íslenska neytendur, og þá sér- staklega neytendalöggjöfraa, að samningurinn sé í öllum megin- atriðum til bóta. Hins vegar taldi stjómin sjálf- sagt og eðlilegt „að vilji þjóðar- innar fái að koma í ljós og telur nauðsyniegt að fólkið í landinu taki ákvörðun um hvort gengið verði í evrópskt efnahagssvæðl eða ekki. Með þjóðaratkvæða- greiðslu verður ehmig tryggt að samningurinn verði betur kynnt- ur og það er mjög jákvætt með tilyísun til mikilvægi hans,“ sagði i niðurstöðu stjómarinnar. ■■ -ask Bráðabirgða- viðgerðáStöng „Ástandið á Stöng er ekki betra en þvi hefur veriö lýst. Þangað streyma ferðamenn og óhætt er aö segja aö þetta er ekki góð land- kynning," segir Guðmundur Magnússon, settur þjóðminja- vörður. „Það er Ijóst að hefjast þarf handa um umfangsmikla við- gerö. Við stefnum aö bráða- birgöaviðgerö fyrir veturinn tU að vama frekari skemmdum,“ segir þjóðminjavörður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.