Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Blaðsíða 13
L'AUGÁRDAGÚR 8. ÁGÚST 1992.
13
Ferðaþjónusta er háska-
legur atvmnuvegur
- fyrir þá sem ekki kunna til verka, segir Símon í Görðum
Símon Sigurmonsson, Göröum í
Staðarsveit, er feröaþjónustubóndi
og gamall í hettunni sem slíkur. Þaö
var árið 1978 sem Flugleiðir auglýstu
eftir aðilum sem væru tilbúnir að
hýsa erlenda gesti og Símon og Svava
Guðmundsdóttir, eiginkona hans,
skrifuðu bréf. í upphafi voru her-
bergi fyrir gesti í íbúðarhúsi þeirra
hjóna en síðar gerðu þau upp gamalt
íbúðarhús. „En það var ekki nógu
gott. Nú er búið að rífa húsið. Gunn-
ar Bendér blaðamaður gisti þar eitt
sinn og skrifaði grein í DV þar sem
hann sagði að húsið væri ekki boð-
legt. Við fokreiddumst og skrifuðum
grein á móti. En þetta var alveg rétt
hjá honum. Nú erum við honum
mjög þakklát. Hann drap þetta niður.
Þá fórum við að byggja húsið sem
við erum í núna. Það er gott og stórt.
Nú getum við hýst 35 manns í upp-
búnum rúmum. En við getum líka
boðið upp á svefnpokapláss. Þetta er
allt teppalagt og dálítið til af dýnum.
Þannig getum við hýst allt aö 40
manns. En maður verður að passa
sig á að láta fólkinu líða vel. Ekki
hrúga í húsið. Það gera sumir. Það
er ekki gott,“ sagði Símon.
Stjómmálamenn
ekki hátt skrifaðir
Símon hefur ákveðnar skoðanir á
hlutunum - og er ekkert að skafa
utan af þeim. Hann brosir með aug-
unum og rær ögn í gráðið. Ferðaþjón-
ustubóndi af lífi og sál. Hann hefur
lítiö álit á stjómmálamönnum, telur
litlu skipta hvar atkvæði lenda þar
sem þeir séu allir eins. Við Símon
höfum komið okkur þægilega fyrir í
notalegum afkima og talið berst fljótt
aö verðlagi hér á landi. Ég spuröi
Símon hvort ísland væri orðið full-
dýrt fyrir íbúa meginlandsins. „Al-
veg tvímmælalaust. Það hverfur
þetta venjulega fólk. Nú kemur fólk
í betri efhum.“ En hvað á að gera?
Þegar við Símon gengum um húsið
nefndi hann gengisfellingu en aðeins
í hálfum hljóðum. „Það þarf að lækka
okrið á bílaleigubílunum og síðan
það sem ekki má nefna, gengið. Nú,
viö verðum að flýta ögn vegageröinni
og hvíla ögn þessi minnismerki þing-
manna og tengja saman venjulega
vegi. Ég efast um að það sem á að
gera næst, að þessar brýr yfir firði
og göt í gegnum fjöll, sé alveg rétt.
Þetta er reyndar í lagi hvað varðar
Vestfirði og Ólafsfjörð en það mætti
kannski aðeins bíða með fleiri göt.
En það er ómögulegt að neita því að
gengið skiptir máli.“
Erfítt að keyra á grjót-
hrúgum
Símon leggur áherslu á bættar
samgöngur. „Ef maður hugsar sem
útlendingur þá er erfitt að keyra á
þessum gijóthrúgum. Það verður aö
byija að klára hringveginn og tengja
kaupstaðina. Fólk verður að komast
Reykvíkingar nota þessa vegi miklu
meira en við á sumrin. Fyrir feröa-
þjónustu eru samgöngur lífsnauð-
syn. Það má ekki deila vegafé eins
og hreppapeningum. Skelfing væri
gott ef stjórnmálamenn hættu að
koma nálægt þessum málum. Ein-
breiðar brýr á stofnbrautum eru sér-
stakur kapítuli.;“
Ferðaþjónusta er lykilorð í ræðum
margra stjómmálamanna, ekki síst
þeirra sem leita að nýjungum í at-
vinnulífi til sveita. Símon segir að á
því sviði megi menn ekki flana að
neinu. „Þetta er alveg háskalegur
atvinnuvegur fyrir þá sem kunna
ekki til verka. Fólk í ferðaþjónustu
verður að kunna tungumál, vera
kurteist og elda mat sem útlendingar
upp á Smjörhnjúk. „Það er ekkert
sport að segja eftir ferðina að maður
hafi farið upp á Rjúpnaborgir. Það
er ekkert til að segja frá. Jökullinn
er til að segja frá.“ Og Símon nefnir
fegurðina, kyrrðina og hið ósnortna
land. „Þama getur maður fundið alls
konar fyrirbæri og dranga. Og ef
menn nenna að lesa svolítið í jarð-
fræði er margfalt skemmtilegra að
- Hvaða skilaboð vill Símon senda
stjómmálamönnum?
„Ég get alveg kveðið skýrt að orði
með það. Ég held þó að best sé að
gera það ekki. Það mætti hins vegar
senda skilaboð til kjósenda að athuga
fyrst hvort menn eigi nokkuð að rölta
á kjörstað. Það virðist nefnilega vera
alveg sama hvem menn kjósa.“ Enn
var knúið á um svar hjá Símoni og
nú var hann spurður hvað sá stjóm-
málamaður ætti að gera sem vildi
vel í ferðamálum.
„Hann ætti ef til vill að byija á því
að ferðast hringinn í kringum land-
ið,“ var svarið.
Símon stóð á fætur. Hann er þéttur
á velli. Góður fulltrúi sinnar stéttar.
Hans biðu skyldustörf - að aka börn-
umáíþróttamót. ask
Með
morgunverði,
sem efltirréttur,
eða bara...bara.
Svava og Símon.
vilja borða. Það verður að skilja
hugsunarhátt útlendinga. Það þýðir
ekki að taka menn beint úr fjósinu
eða frá rollunum og skella þeim beint
í ferðaþjónustuna..“
Hvalir myndu kóróna
ferðina
„Selir em númer eitt. Ef til væm
hvalir myndi það kóróna ferðina.
Sumir íslendinganna era líkir út-
lendingum. En þeir sem ekki þekkja
landið missa af Rauðfeldargjá og
Dritvík og fleira. Það gerist ekki ef
menn kynna sér landið. Krafturinn
í jöklinum er vissulega til. Hann
kemur oft innanfrá. Þegar menn búa
í svona fallegu umhverfi og labba
upp á fjöllin eða niður í flöra byggj-
ast menn upp. Ég hef voða gaman
af að taka myndir og geng oft upp á
flöllin í nágrenninu. Ég hef fundið
nokkrar gönguleiðir sem era hreint
ágætar fyrir venjulegt fólk. Án mik-
illar fyrirhafnar er hægt að ganga á
Rjúpnaborgir, Helgrindur og Smjör-
hnjúk, svo að dæmi séu tekin. Þetta
era allt frábærir myndatökustaðir.
Það þarf ekki að eyðileggja sig á
þreytu ef maður fer á rétta staði.“
Lesum jarðfræðina
svolítið
Hvað veldur því að ferðamennimir
fara ekki á flöllin hans Símonar.
Hann færist allur í aukana og sjálf-
sagt í huganum kominn hálfa leið
DV-myndir ask
fara upp á flöll. Þetta er tiltölulega
lítið mál fyrir greint fólk að læra
örlítið í jarðfræði. Þá sér maður hlut-
ina í allt öðra ljósi þegar upp er kom-
ið. Ég hef safhað ljósmyndum í þess-
um ferðum mínum. Þegar maður er
orðinn gamall og lappalaus er gaman
að skoða myndimar.“
Pláss fyrir300 þúsund
ferðamenn
Á ísland framtíð fyrir sér sem
ferðamannland?
„Alveg tvímælalaust. Þetta kjaft-
æði að Island sé úttrampað af ferða-
mönnum á bara við nokkra staði. Það
þarf að laga og er ekkert mál. Það
er nóg pláss fyrir 300 þúsund ferða-
menn á íslandi yfir sumariö. Undar-
legt hvað pólitíkusar hafa sumir lít-
inn skilning á þessu.“
- Er það vegna þess að þeir geta ekki
reist sér minnismerki á því sviði?
Símon glottir. „Það er vel hægt.
Eitt er á Keflavíkurflugvelli. Þessi
minnismerki era venjulega í stærra
lagi.“
TÍVOLÍ SKEMMTIGARÐUR
OPIÐ DAGLEGA
Hveraportið, markaðstorg, opið alla sunnudaga.
Ný og spennandi vélknúin leiktæki.
Besta fjölskylduskemmtunin
Til okkar er styttra en þú heldur.
l í Tívolí er alltaf gott veður.
1 fíVOLÍ, Hveragerði
|P SOFEHJ^ HJÁ^MÉR ^
- HOTH. BORGAKNES _ tðg
OKEYPIS
UTFILMA FYLGIR
HVERRI FRAMKÖLLUN
rAli
MYNDSYN
SÍMI91-77755