Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Blaðsíða 32
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992.
• 44
Trimm
Heimsókn á siglinganámskeið í Nauthólsvík:
Heillandi að vera ískaldur
og hrakinn í vitlausu veðri
- segir Óttar Hrafnkelsson, forstöðumaður í Siglunesi
„Hér er starfræktur siglingaklúb-
bur sem býöur upp á námskeið, bæöi
fyrir byijendur og eins lengra
komna. Hér er kennsla allan daginn
en fyrir hádegiö erum viö með
krakka af leikjanámskeiöum borgar-
innar og þeir geta þá farið á árabát,
kano eða „ Jón feita“ en þaö er hvítur
vélbátur sem dregur nafn sitt af báta-
smiðnum. Eftir hádegiö taka síðan
viö námskeið sem siglingaklúbbur-
inn hér stendur fyrir en á byijenda-
námskeiðið tökum við 40 krakka,"
sagöi Óttar Hrafnkelsson, forstöðu-
maður í Siglunesi og leiðbeinandi hjá
íþrótta- og tómstundaráði Reykjavík-
ur, í samtah við DV.
Algjört skilyröi er fyrir notkun björg-
unarvesta og mikil áhersla er lögð
á öll öryggismál.
A námskeiðunum eru þátttakend-
um kynntar siglingar almennt og
hvemig bregðast eigi við komi eitt-
hvað upp á. Á framhaldsnámskeiði
er farið betur ofan í saumana á þess-
um málum og litið á tæknilegu hhð-
ina sem fylgir því að sigla. Yngstu
krakkamir eru 8 ára en þeir elstu
15 ára en boðið er upp á námskeiðin
í þijá mánuði á ári og á þeim tíma
koma daglega 200-300 manns á svæð-
ið til að sigla eða fylgjast með. Starf-
semin í Siglunesi er ekki ný af nál-
inni en boðið hefur verið upp á hhð-
stæð námskeið árum saman. í upp-
hafi námskeiðs er þátttakendum
gerð grein fyrir þeim reglum sem
ghda á staönum svo og ákveðnum
umgengnisreglum við bátana enda
er ekki sama hvemig þeir eru með-
höndlaðir.
Óttar segir notkun björgunarvesta
algjört skhyröi en mikið er lagt upp
úr öryggismálum og tveir starfs-
menn a.m.k. fylgjast ávaht með um-
ferð bátanna. Æskilegast er aö
kunna sundtökin áður en haldið er
af stað eins og gefur að skilja enda
hræðhegt að lenda í sjónum og geta
enga björg sér veitt. Yfirleitt dettur
einhver í sjóinn á hveiju einasta
Reykjavíkurmaraþon:
Sleppa öllu
ruslfæði
I þessari viku leggjum við
áherslu á að draga úr kílómetra-
magninu og taka léttari og
áreynslulausari æfingar. Núna er
mikhvægt að taka ekki mikið á
heldur rúha létt á þeim dögum þar
sem hraöaæfingar era á dagskrá.
Þið komið jafnvel th með að finna
fyrir örhtilh þreytu þessa vikuna
en það er eðhlegt, líkaminn er að
losa sig við þreytu og álag undanf-
arinna vikna. í næstu viku verður
álagið í lágmarki og við ættum að
koma vel undirbúin(n) og afslöpp-
uð í maraþonhlaupið 23. ágúst.
Maraþonhlauparar skyldu núna
leggja áherslu á að borða kolvetnis-
ríka fasðu fyrir hlaupið 23. ágúst.
Með því að byrgja sig upp af kol-
vetnum fyrir keppni byggir likam-
inn upp glýkogenforða og hefur þá
nægar birgðir af fljótfenginni orku
th að vinna úr. Kolvetnin eru
brennsluefni hkamans en prótein-
in era byggingarefni. Góð líkamleg
þjálfun og nægar birgðir af kol-
vetnum í hkamanum koma í veg
fyrir að við lendum á veggnum
(hitting the wah) svokahaöa en það
gerist oft hjá maraþon- hlaupurum
í kringum 32-34 kílómetrana. Þá
er hkaminn búinn með ahar kol-
vetnisbirgðir sínar og farinn að
brenna fitu. Viö það fá menn
krampa og sinadrættí og fætumir
verða þungir eins og brúarstólpar.
Við skyldum borða mikið af
ávöxtum, kommeti, pasta, brauði
og grænmetí næstu tvær vikumar
og sleppa öhu ruslfæði.
Kveðja, Jakob Bragi Hannesson
Skemmtis- Hálfmara- Maraþon
kokk þon
9.8. 4kimólega 14kmjafnt 14kmjafnt
10.8. Hvíld Hvíld Hvíld
4kmjafnt 8km 10km
(8x200) (8x400)
12.8. Hvild 10kmjafnt 10kmjafnt
13.8. 5 km rólega 3-4 km 3-4 km
Rl/hvíld Rl/hvíld
14.8. 2 km hratt 6km 8km
(3x600) (4x800)
15.8. Hvíld 6km (hrað- 6 km (hrað-
, s ''' / ', ''' ', \ al.) al.)
850
STYRKTARAÐILI
REYKJAVÍKUR
MARAÞONS
námskeiði en enginn hefur látið það íjöldinn er ahnokkur og þar geta
slá sig út af laginu hingað th. Báta- bæði byijendur og lengra komnir
Siglunesi er boðið upp á siglinganámskeið í þrjá mánuði á ári og jafn-
framt er þar rekin bátaleiga. DV-myndir Brynjar Gauti
fundið fleytu við sitt hæfi. Ekki þurfa
ahir að fara á námskeið til að kom-
ast um sundin blá því í Siglunesi er
starfrækt bátaleiga sem ætti ekki að
létta pyngjuna um of en 100 kr. kost-
ar á manninn að leigja sér bát fyrir
hvert einstakt skipti. Aðsókn að
bátaleigunni hefur verið ágæt og það
er ekki síst fuhorðið fólk sem nýtir
sér þessa þjónustu.
Námskeið fyrir síðasttalda hópinn
stendur þó ekki tíl boða í Siglunesi
en Óttar segir að sighngaklúbbamir
Ýmir og Brokey hafi staðið fyrir
200-300 manns koma daglega í
Siglunes, segir Óttar Hrafnkelsson.
námskeiðum svo og Sighngaskóhnn.
Aðstaðan og möguleikamir eru því
greinhega th staðar fyrir þá sem vhja
kynnast siglingum en látum Óttar
svara því hvað það er sem gerir þetta
svo heihandi. „Það er geyshega heih-
andi að vera ískaldur og hrakinn í
vitlausu veðri. Þetta er gaman og
getur verið mikh líkamlega áreynsla
þegar keppt er á þessum litlu bátíun.
Það þarf mikið úthald og mikið þol
og þetta er ekki bara að sitja á rassin-
um,“ sagði Óttar Hrafnkelsson.
-GRS
Þátttakendum eru kynntar siglingar almennt og hvernig bregöast eigi við komi eitthvað upp á.
Skemmtilegast
að hoppa í sjóinn
- sögðu hressir strákar á siglinganámskeiðinu
„Okkur er ekkert voðalegt kalt og
þetta var bara óheppni að við skyld-
um detta út í. Við erum oft búnir að
detta í sjóinn og erum ekkert hrædd-
ir við það. Þetta er önnur vikan okk-
ur héma og þetta er alveg meiri hátt-
ar. Það er skemmtilegast að hoppa í
sjóinn og eins að sigla og við éram
staðráðnir í að halda þessu áfram,"
sögðu Amaldur Kári Valdimarsson
og Jón Óskarsson.
Þeir félagar duttu í sjóinn á meðan
DV staldraði við en varö ekki meint
af volkinu og vora fljótir upp í hús
th að þerra sig. Þeir gáfu sér þó smá-
tíma til að svara spumingum blaða-
manns á meðan tennumar í þeim
glömraðu og hafa vafahtíð verið
komnir á „fuha siglingu" eftír að
heimsókninni lauk.
-GRS