Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992. 41 - Mik Magnússon, talsmaður gæsluliðs Sameinuðu þjóðanna á vígvöllunum í Sarajevo Sú var tíð að hvert mannsbam á íslandi þekkti rödd Miks Magnús- sonar fréttamanns. Hann talaði á ensku í útvarpinu á hverjum degi og þegar átök hófust við Breta um 50 mílna landhelgi við ísland þóttumst við eiga hauk í homi þar sem Mik var og túlkaði sjónarmið okkar í breska útvarpinu BBC. Svo var eins og hann hyrfi af sjón- arsviðinu en skýtur nú allt 1 einu upp kollinum sem talsmaður gæsluhðs Sameinuðu þjóðanna í Sarajevo í Bosníu. Erlendar fréttastofur vitna stöðugt til hans þegar leita þarf frétta af ástandinu í borginm. Þar er stund- um tekið svo til orða að Mik Magnús- son, íslendingurinn staðfasti, hafi upplýst þetta eða hitt. Lögheimilið enn í Vestmannaeyjum Og rétt er það að Mik er bæöi ís- lendingur og staðfastur. Að vísu er hann Skoti að uppruna og hét Bmce Mitchell þar til hann varð íslenskur ríkisborgari og að sögn meiri íslend- ingur en margir þeir sem eru fæddir á Islandi og hafa ahð þar allan sinn aldur. Mik kom til íslands árið 1963 og fór á vertíð í Vestmannaeyjum. Þar á hann enn lögheimili og heimsótti eyjamar síðast fyrir tveimur árum. í Eyjum kynntist hann konunni sinni. Hún heitir Hanna Mally Jó- hannsdóttir og er dóttir Jóhanns Bjarnasonar hafnarvarðar og Oddnýjar Bjarnadóttur. Þau eiga tvær dætur, Rósu og Bjarndísi, sem búsettar era hér á landi. Skammt er síðan Hanna og Mik shtu samvistum og býr Mik nú með chileskri konu, Alice aö nafni. Hún er með honum í Sarajevo. Mik réðst til Ríkisútvarpsins um 1970 til að annast fasta fréttatíma á ensku. Það var þá nýjung á íslandi. {framhaldi af ensku fréttunum í út- varpinu varð hann fréttaritari BBC hér á landi og enn síðar hóf hann störf fyrir Menningarstofnun Banda- ríkjanna og svo sem blaðafulltrúi bandaríska hersins hér á landi. Á þeim áram flutti hann hermönnun- um á Keflavíkurflugvelh reglulega fréttir af menningarlífinu í Reykja- vík í Kanaútvarpinu. Skammaður fyrir að styðja íslendinga „Þetta er mikill indæhsdrengur og glúrinn við margt,“ segir Ami Gunn- arsson, fyrrum fréttamaður hjá út- varpinu, alþingismaður og nú fram- kvæmdasfjóri Slysavamafélags ís- lands. Þeir voru samtíða hjá útvarp- inu. „Mik var ákaflega leitandi maður og ég gæti trúað að starfið, sem hann * gegnir núna, ætti vel við hann,“ seg- ir Ami. Ami þekkti m.a. vel til starfa Miks fyrir BBC á tímum þorska- stríðsins um 50 mhumar. „Hann fékk stimdum ákúrur frá yfirmönnum sínum fyrir að styðja málstað íslendinga um of. Einu sinn talaði hann við mig um hvemig hann ætti að bregðast við. Mik var og er sjálfsagt enn mikhl þjóðemissinni fyrir íslands hönd enda Skoti og því htiö hrifinn af Eng- lendingum. Hann var þjóðemissinn- aöur eins og Skotar einir era og þjóð- emishyggjan færðist yfir á ísland þegar hann var sestur hér að. Ég held að það megi fuhyrða að hann hafi verið íslendingum ákaflega gagnlegur í þorskastríðinu,“ sagði Ami. Sigurður Sigurðsson fréttamaður vann einnig með Mik á þessum tíma. Hann kannast vel við að fréttáflutn- ingur Miks hafi verið íslendingum hagstæður í þorskastríðinu. „Þetta er framgjam maður og margt th hsta lagt. Það er gaman að sjá hvað hann hefur náð langt og kemur ekki á óvart,“ sagði Siguröur. Mik Magnússon hefur það hlutverk með höndum i Sarajevo að skýra þróun mála af hálfu gæsluliðs Sameinuðu þjóöanna. Þetta er alvarlegra strið en stríðið um 50 mílna landhelgina á íslandsmiðum. Þar sá Mik einnig um fréttaflutning. Frá lokum stríðsins um 50 mílna landhelgina. Joseph Luns, framkvæmda- stjóri NATO, talar en blaðamennirnir Mik Magnússon, Ólafur Ragnarsson, Ólafur Sigurðsson, Haukur Helgason, Árni Þórarinsson og Oddur Ólafsson hlusta. Altekinn af Afríkubakteríunni Mik imdi í nokkur ár í þjónustu Bandaríkjamanna hér á landi. Þar kom þó að hann fór að hugsa sér th hreyfings og í ársbyrjun 1981 fór Fréttir á ensku voru verkefni Miks hjá útvarpinu. hann th Uganda á vegmn Rauða krossins. Þar var hann í þijá mánuði og kom heim að þeim tíma loknum „altekinn af Áfríkubakteríunni", segir Jón Ásgeirsson, fyrrum fram- kvæmdastjóri Rauða krossins og nú forseti Handknattleikssambandsins. Reynsla Miks í Afríku varð th þess að hann leitaði þangað aftur og fór héðan alfarinn árið 1983. Eftir að th Afríku kom á ný réðst Mik th Um- hverfismálaráðs Sameinuðu þjóð- anna í Nairobi í Keníu. Hann hefur unnið fyrir Sameinuðu þjóðimar upp frá þvi. „Hann var algerlega með hugann við Afríku eftir fyrstu ferðina þang- að," segir Jón Ásgeirsson. Ami Gunnarsson segir að áhugi Miks á Afríku hafi stafað af þörf hans fyrir að leita á nýjar slóðir, rétt eins og þegar hann kom th íslands. „Hann fékkst við ákaflega margt í Afríku og hefur efalaust fengiö þar góöa þjálfun fyrir starfið sém hann gegnir nú,“ sagði Ami. Löglegir möskvar eða ólöglegir? Mik Magnússon hlýðlr á Gæslu- mennina Guðmund Benediktsson og Höskuld Skarphéðinsson skipherra. Frá Afríku til Sarajevo Fyrir tveimur áram tókst Mik m.a. á hendur að vera upplýsingafuhtrúi Sameinuðu þjóðanna í Namibíu vegna almennra kosninga sem þar vora haldnar undir vemd samtak- anna. Starfið í Sarajevo er hhðstætt en þó hættulegra því þar hafa staðið nær látlausir bardagar síðustu mán- uði og mannfah orðið í gæsluhði Sameinuðu þjóðanna. Mik hefur veriö í Júgóslavíu frá því í vor en ekki lent í sviðsljósinu fyrr en nú síðla sumars eftir að átök- in hörðnuðu og erfitt að afla frétta nema leita th gæsluhðsins. Arin sem Mik var á íslandi lagði hann hart að sér við að læra íslensku th að geta talist íslendingur með fuh- um rétti. Hann náði furðugóðum tök- um á tungumálinu. íslendingum, sem þekkja Mik, hgg- ur vel orð th hans og sumir halda enn sambandi nú þrátt fyrir fjarlægð og erfiðar aðstæður. „Ég kunni vel við Mik,“ segir Oddný, fyrrverandi tengdamóðir hans. „Hann er bráðvel gefinn maöur og kemur vel fyrir.“ -GK A ieið til Afriku f ársbyrjun 1981 eftir nær tveggja áratugá dvöl á Islandi. Til íslands hefur Mik aðeins komið sem gestur síðustu árin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.