Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Side 8
8 LAUGARDAGUR 8. ÁGUST 1992. Svipmyndin Af hverjum er svipmyndin? Öllu skiptir aö fara rétt aö þegar mannsefnis er leitað. í því tilliti hefur sú óþekkta mikið að kenna öðrum ungum konum. Hún á marga vini. En hún á líka marga andstaeðinga. Sumir þeirra eru ábyggilega öfundsjúkir út í hana. Þeir hafa sagst hneykslaðir á því hvernig hún hafi farið aö beg- ar hún náði sér í eiginmanninn. Hún lagði fyrst áherslu á að vera boðið í þær veislur sem hann sótti. Það reyndist henni erfitt. En sú óþekkta hafði góð sambönd. Hún beitti öllum ráðum. Og ættingjar hennar hjálpuðu henni. Og auðvit- að sýndi hún honum bara betri hliðina á sér. Þau hittust fyrst þegar hún var aöeins sautján ára. Hann var þá þrítugur svo að aldursmunurinn var tólf og hálft ár. Og hve glæsileg- ur hann var! Hann leit enn betur út en á Ijósmyndum. Hvílíkur draumaprins! Óg skemmtilegur var hann. ímyndunarafl hennar gerði mikið úr hverri smávinsemd sem hann sýndi henni. Eftil vill gekkst hann dálítið upp við þá athygli sem hún veitti hon- um. En um ást af hans hálfu var ekki að ræða. Hún var nánast bam. En sú óþekkta hafði tímann fyrir sér. Mánuðimir liðu. Fleiri veislur vom haldnar. Og á einhvem hátt tókst henni alltaf að sjá til þess að henni var boðiö í þær. í hvert skipti, sem þau hittust, reyndi hún að vera sem næst hon- um. Hún horfði á hann með aö- dáun. Hún er ekki beinlínis falleg. En augun voru aðalskart hennar. Hver haldið þið að hafi skemmt sér best þegar hann sagöi sögur á sinn hægláta hátt? Það er ekki erf- itt að geta sér til um það. Á sumrin tókst henni að fá að vera í Cowes vikuna sem siglinga- keppnin stóð. Þar fékk hún tæki- færi til að láta hann sjá sig í sund- bol. Hann sat óaðfinnanlega á grannvöxnum líkama hennar. Þetta var sem ákall til hans. Og allt fór eins og búast mátti við. Hann féll að lokum fyrir henni. Þau fóm að vera saman. Þegar hann hringdi til hennar nolaði hann ekki rétt nafh sitt heldur nafniö Renfrew. Vissulega var sú óþekkta kyn- þokkafull. En Renfrew hikaöi. Hæfði hún sem eiginkona hans? Hann vissi að hann gæti aldrei skil- iö og því mætti hann ekki gera mistök. Allt gekk vel. Hún sagðist hafa nákvæmlega sömu áhugamál og hann: útUíf, skotveiðar og stanga- veiði. Renfrew er mikill náttúmunn- andi. Þegar hann var við stanga- veiði gat hún setið á bakkanum klukkutímum saman. En sú óþekkta duldi sitt rétta eðli. Hún hafði ekki gaman af að vera úti í náttúmnni. Hún hafði hvorki áhuga á skotveiði né stanga- veiði. íþróttimar, sem hún hafði áhuga á, voru tennis og sund. Hún gerir ekki upp á milli sundlaugar og hafsins. Brátt fóm blööin að fá fréttir af því að þau væru saman. Frétta- menn urðu tíðir gestir við heimih hennar. Hún tók þeim vel og þeir urðu henni vinsamlegir. En ástandið fór að verða erfitt. Þegar Renfrew var með fjölskyldu sinni um jólin vom kynni þeirra tekin til umræðu. Faðir hans hafði ákveðna skoðun á málinu. Hann lagði til aö sonur- inn gengi í hjónaband. Hann gæti ekki haldið áfram að vera ókvænt- ur. Og ekkert væri að stúlkunni að finna. Þá yrði líka að taka tillit til ættingja hennar. Hann yrði jú fyrr eða síðar aö kvænast. Amma Renfrews var á sama máli. Hún var tekin að eldast og langaði til að eignast barnabamaböm áður en hún félli frá. En móðir Renfrews hikaði. Hún var ekki viss um að sú óþekkta væri rétta konan fyrir son hennar. Vissulega var stúlkan indæl þeg- ar hún beitti töfrum sínum. En daöraði hún ekki einum of mikið? Og hvemig var persónuleiki henn- ar? Hún hafði aldrei hlotið neina umtalsverða menntun. Fjölskyldan gat ekki leyst vanda veslings Renfrews. Hann var enn í mikilli óvissu um hvað hann ætti að gera. Þá greip sú óþekkta til gamals kvennaráðs. Hún reyndi að forðast hann. Hún stakk upp í símann. Þegar Renfrew hringdi var á tali. Hvers vegna ætti hún líka alltaf að bíða hans? Hún ákvað að fara í utanlandsferð. Stjúpfaöir hennar átti bóndabæ í Ástralíu. Þangað gæti Renfrew komið ef hann vildi. Bragðið bar árangur. Renfrew ákvaö að biðja hennar. 2. febrúar 1981 bauö hann þeirri óþekktu til hádegisverðar í Buck- ingham-höll. Þar bað hann hennar. En hann sagðist ætla aö gefa henni tíma til að gera upp hug sinn áður en hún svaraöi. En sú óþekkta þurftí engan um- þóttunartíma. Hún játaðist honum strax. Hver er hún? Svariö er á bls. 56. Matgæðingur vikuimar íslenskt hvalkjöt - með austurlensku ívafi Matgæðingur vikunnar, Bjami Óskarsson, er mikið á austurlenskri línu. Bjami hefur rekið marga veit- ingastaði í borginni og má þar nefna Café Ópem, Kaffi Strætó og Pisa. Rétturinn sem Bjami gefur hér uppskrift að var reyndur í veislu austur á fjörðum í vor. í þeirri veislu var notuð hnísa en nota má hvalkjöt (þegar þaö fæst), hrefnukjöt, höfrung eða jafnvel lambakjöt. Rétturinn er áætlaður fyrir fjóra til sex. 700-750 g hnísukjöt (hreinn vöðvi) 2 meðalstórir laukar 2 gulrætur 1 paprika 15 kínverskir sveppir 1 meðalstór púrra 1 heill hvítlaukur (10 rif) 2 teningar, Knorr kjúklingakraftur 1 msk. hunang 2 msk. tómatmauk 2 msk. sojasósa 2 msk. sérrí 3 msk. maisenamjöl (kúfaðar) olifuolia eða sojaolia 3 msk. Mango Chutney 'h tsk. Sambal Oelec eða Tabasco 'U-'h 1 vatn salt og pipar eftir tilfinningu 1 búnt steinselja (helmingur geymdur til skrauts) Skerið laukinn í tvennt og síðan hvern helming í sex parta. Hreinsið gulrætumar, skerið eftir endilöngu og síðan á ská í þunnar sneiöar. Hreinsiö kjamann úr paprikunni og skerið í meðalstóra kubba. Leggið sveppina í bleyti og skerið síðan í ræmur. Skáskerið púrruna smátt og saxið hvítlauksrifin. Kínverskir sveppir fást í Heilsuhúsinu, Kryddkofan- um og Hjá Nings. Leggja verður þá í bleytí í 2-3 klukku- stundir en ef tími er naumur má nota heitt vatn sem flýtir fyrir. Skerið kjötiö í þunna bita eða ræmur (gott er að skera kjötið niður meðan lítið frost er í því). Steikið Bjarni Óskarsson hefur gaman af austurlenskri mat- argerð. DV-mynd Bryjar Gauti kjötiö létt í olíunni og kryddið með salti og pipar. Notið Wok eða djúpa steikarpönnu. Bætið nú grænmetí saman við og látið krauma allt saman í 2-3 mínútur. Hellið síðan afganginum saman við. Vatn, kraft, hunang, tómatmauk, soja, sérrí, Mango Chutney og tabasko. Látið suðuna koma upp og þykkið með maisenamjöli sem leyst hefur verið upp í örlitlu af köldu vatni. Stráið steinselju yfir að lokum. Borið fram með soðnum hrisgriónum og hvitlauks- brauði. Til að forðast óþarfa hitaeiningar mælir Bjarni með spánskri aðferð við hvítlauksbrauð. En hún felst í því að tekinn er hvítlauksgeiri og hónum núið við ristaðar brauðsneiðar. Hart brauðið rífur í hvítlaukinn sem verður eftir í brauðinu. Bjami ætlar að skora á Þórhall Sigurðsson, Ladda, sem er mikill sælkeri og hefur verið dyggur viðskipta- maður Bjama í gegnum tíðina. Hinhliðin Atvinnumál kvenna eru mér hugleikin - segir Elísabet Benediktsdóttir, forstöðumaður Byggðastofnunar á Egilsstöðum lín. Uppáhaldssöngvari: Elvis Presley og Louis Armstrong. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ég á mér engan uppáhaldsstjómmála- mann. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Á þessu heimili er horft mest á „My Little Pony“. Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég horfi eiginlega eingöngu á fréttir en góð- ar bíómyndir em í uppáhaldi. Ertu hlynnt eða andvíg veru varn- arliðsins hér á landi? Eg er á móti því í dag en skil forsendumar sem lágu að baki ákvörðun um komu þess hingað. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Ég hlusta eingöngu á rás 2. Uppáhaldsútvarpsmaður: • Mér finnst Stefán Jón ágætur og það er létt yfir Þorgeiri Ástvaldssyni. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Ég horfi jafnmikið á báðar stöðvar. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Mér finnst allir mjög frambærilegir. Uppáhaldsskemmtistaður: Það er veitingahúsið Ítalía. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Það er Valur á Reyðarfirði sem hefur stað- ið sig frábærlega vel. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Að ala bömin mín vel upp svo þau veröi góðir einstakl- ingar og standa mig vel í vinnunni. Hvað gerðirðu í sumarfríinu? Fyrst fómm við hjónin aöeins til London og síðan höfum við þrætt ættarmót norðanlands og austan með böm- unumokkar. -JJ Um mánaðamótín tók Elísabet Benediktsdóttir við nýju starfi sem forstöðumaöur Byggðastofnunar á Egilsstöðum. Elísabet er fædd og uppalin á Reyðarfirði og býr þar. Hún ekur daglega á milli heimilis og vinnustaðar á Egilsstöðum. Hún segir nýja starfið leggjast vel í sig og af nógu sé að taka. Frá því hún lauk prófi í rekstrar- hagfræði í Danmörku árið 1987 hefur hún starfað við ýmis verkefni tengd atvinnumálum á Austfjörð- um. Henni em atvinnumál kvenna sérstaklega hugleikin því hún segir atvinnutækifæri þeirra fábreytt. „Þær sem ekki vilja eða geta unn- ið í fiskvinnu eiga fárra kosta völ og þurfa að ganga mn atvinnu- lausar,“ segir hún. „Með aukinni skólagöngu kvenna gera þær kröf- ur um fjölbreyttari atvinnumögu- leika.“ Fullt nafn: Elísabet Benediktsdótt- ir. Fæðingardagur og ár: 26.9. 1960. Maki: Jóhannes Pálsson. Böm Þau em Bóel 8 ára, Páll 3ja ára og Jón Brúnsteð 1 árs. Bifreið: Nissan Sunny árg. ’91. Starf: Forstöðumaður Byggða- stofnunar á Austurlandi. Laun: Ennþá óljós. Áhugamál: Bamauppeldi, söngur og ýmislegt. Hvað hefur þú fengið margár réttar tölur í lottóinu? Eg spila aldrei af því líkumar em engar. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Aö vera með bömunum mín- Elísabet Benediktsdóttir. um í rólegheitum, syngja í kómum og vera heima. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Aö þurfa að eiga samskipti við fólk sem rífst mikið. Uppáhaldsmatur: Pastaréttir. Uppóhaldsdrykkur: Vatn og svo drekk ég mikið kaffi. Hvaða iþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Landsliðið í handbolta eins og það leggur sig. Uppáhaldstímarit: Alt om mad. Hver er fallegast karl sem þú hefur séð fyrir utan maka? Elvis Presley. Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn- inni? Ég hef fullan skilning á þeim aðgerðum sem hún er að reyna að framkvæma. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Hana Birgittu, vinkonu mína, en hún býr langt í burtu. Uppáhaldsleikari: Ami Tryggva- son og Kevin Costner. Uppáhaldsleikkona: Sigríður Haga-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.