Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Page 9
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992. 9 Höndlað í höfuðstað Ljósmyndir frá fyrri tíð eru hluti menningarsögu okkar. Ein mynd af merkum atburðum eða fyrri tíðar húsum, ffamkvæmdum eða fólki segir oft meira en margar blaðsíður af texta. Ljóst dæmi um þetta má finna þessa dagana á Ijósmynda- og skjalasýningu í Geysishúsinu, Aðal- stræti 2 í Reykjavík. Höndlað í höfuð- stað, þættir úr sögu verslunar í Reykjavík, heitir sýningin. Þar er þróun verslunarhátta í borginni rak- in með ljósmyndum og skjölum. Margt þessara mynda og gagna hefur aldrei komið fyrir almenningssjónir áður. Að sýningunni standa Ljós- myndasafn Reykjavíkurborgar, Borgarskjalasafnið og Verslunar- mannafélag Reykjavíkur. Eyjólfur Halldórs, forstöðumaður Ljós- myndasafns Reykjavíkurborgar, sagði að fram til þessa hefði aðsókn verið góð að sýningunni, þó svo gott veður og sumarleyfi hefðu vafalaust einhver áhrif. Aðstaða til sýningar- halds væri góð í Geysishúsinu og fagnaðarefni að þar væri nú komin vísir að miðstöð í hinum gamla miðbæ Reykjavíkur. Meðfylgjandi myndir eru úr Ljós- myndasafni Reykjavíkurborgar Þessi mynd er tekin frá Alþingishúsinu og sést yfir horn Austurvallar og Pósthússtræti. Tímabilið er einhvern tíma fyrir 1928 því að framkvæmdir við byggingu Hótel Borgar eru ekki hafnar. Við vitum einnig að myndin er tekin eftir 1916 eða 1917 því að síðarnefnda árið var að fullu lokið að reisa Austurstræti 16 þar sem nú er Reykjavíkurapótek. Það var fyrirtækið Nat- han & Olsen sem stóð fyrir byggingunni sem fyrstu árin var hæsta bygging Reykjavikur. Landsbanki íslands var þarna til húsa árin 1918 til 1924 á meðan verið var að endurbyggja húsnæði hans eftir brunann 1915. Um hríð var Hressingarskálinn í Austurstræti 16 þar sem nú er snyrtivöruversl- un, auk þess sem skrifstofur Reykjavíkurborgar voru til húsa á efri hæðun- um þar til þær fluttust í nýja ráðhúsið. Reykjavíkurapótek flutti síðan í hús- ið 1930. Næsta hús er einlyft og hýsti verslunina Nora Magasin fram á sjötta áratuginn. Líklegast er það í byggingu þegar myndin er tekin. Á lóð- inni var síðar reist húsið sem enn stendur og hýsti skrifstofur og afgreiðsl- ur Almennra trygginga hf. og síðar listagallerí og skrifstofur Reykjavíkur- borgar. í húsinu lengst til hægri, sem að hluta til sést á myndinni, var um árabil rekin snyrtistofa fyrir konur. Sögur eru um að fyrir hafi komið að erlendir sjómenn hafi misskilið auglýsingskilti snyrtistofunnar og haldið að þar væri gleðihús með tilheyrandi þjónustu eins og þekkt eru í hafnarborg- um víða um alian heim. í byrjun þessarar aldar rak Thor Jensen, kaupmaður og útgerðarmaður, verslun i Austurstræti 16. Var hún nefnd Godthaab og seldi alla algenga vöru að þeirra tíma hætti. Myndin er tekin inni í versluninni. Innan við búðarborðið er fyrstur f.v. Þórður Bjarnason frá Reykhólum en því næst Guðrún Hafliðadóttir. Aftar fyrir miðju og lengst til hægri við búðarkassann er Jón Hafliðason sem síðar varð bókhaldari í Vöiundi hf. Hús þetta brann árið 1915 þegar fjöldi húsa i miðbæ Reykjavíkur varð eldi að bráö. Skömmu síðar var bygging hússins, sem nú stendur á lóðinni, hafin. Þessi unga afgreiðslumær i brauð- búð í Reykjavik í byrjun aldarlnnar er fulltrúi verslunarmanna á glæsi- legu auglýsingaspjaldi fyrir sýning- una Höndlað í höfuðstað sem nú stendur yfir í Geysishúsinu á horni Aðalstrætis og Vesturgötu. Hvorki er vitað um nafn stúlkunnar né i hvaða verslun myndin er tekin. ' :: ■" : ■ : Magnús Valdimarsson kaupmaður rak um árabil verslun að Réttarholtsvegi 1. Myndin er tekin þar og er gott dæmi um fyrirmyndarsmásöluverslun eða nýlenduvöruverslun eins og þessi tegund verslunar var gjarnan kölluð á sjötta og sjöunda áratugnum. Fyrir miðri mynd er Magnús kaupmaður ásamt Guðrúnu konu sinni og starfsfólki. MAZDA 323 ODYRASTUR í REKSTRI! Hið virta þýska bílatímarit AUTO MOTOR UND SPORT hefur verið með MAZDA 323 í langtímaprófun síðastliðin 2 ár. Nú nýlega hafði honum verið ekið 100.000 kílómetra og reyndist hann hafa lægstan rekstrar- og viðhaldskostnað allra þeirra bíla, sem tímaritið hefur tekið í slíka prófun. Ennfremur var haft samband við fjölda eigenda og luku þeir einróma lofi á bílinn, einnsagði m.a.: „Ánægðari getur maður ekki verið!“ Við bjóðum MAZDA 323 í 4 misstórum útgáfum, sem hafa gjörólíkt yfirbragð, útlit og eiginleika. Þær eru allar með vökvastýri og ríkulegum staðalbúnaði. Hægt er að velja um 4 mismunandi vélar, sem eru með bensíninnspýtingu og mengunarvörn, sjálfskiptingu eða handskiptingu og flestar gerðir fást nú með ALDRIFI. MAZDA 323 kostarfrá 885 þúsund krónum. (3 dyra hlaðbakur LXi, staðgreiðsluverð með ryðvðm og skráningu.) ’ MAZDA endist lengur! SKÚLAGÖTU 59, REYKJAVÍK S.61 95 50 auto motor sport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.