Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Page 11
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992.
11
Sviðsljós
Eiísabet Bretadrottning fékk inn-
brotsþjóf í heimsókn.
Alræmdur
krimmi braust
inn til Breta-
drottningar
Elísabet Bretadrottning getur
ekki verið örugg um líf sitt í
Buckinghamhöll þótt hennar sé
vel gætt. Fyrir skömmu braust
alræmdur ofbeldismaöur og inn-
brotsþjófur inn í hölhna og var
kominn á þröskuldinn hjá drottn-
ingu þegar hann var gripinn.
Bretar vilja hafa sem fæst orð
um það hvað hefði gerst ef maður-
inn hefði komist alla leið. Ofbeld-
ismaðurinn er í það minnsta tal-
inn mun hættulegri en flöskuþjóf-
urinn sem tylltí. sér á rúmstokk-
inn hjá drottningu hér um árið.
Ivana Trump er með tattóverað-
ar augabrúnir
Ivana Trump
meðtattóverað-
ar augabrúnir
Ivana Trump, fyrrum eigin-
kona auðjöfursins og fasteigna-
braskarans Donalds Trump, hef-
ur fundið upp nýja aðferð til að
flýta morgunverkunum við
snyrtiborðið.
í stað þess að hlaða málningu á
augabrúnirnar á hveijum
morgni hefur hún að sögn látíð
tattóvera þar svört strik. Farðinn
er því tilbúinn á sínum stað jafnt
á nóttu sem degi.
Marla Maples á mikið safn af
skóm.
MarlaMaples
á 200 pör
afskóm
Marla Maples, konan sem fyllti
skarð Ivönu Trump í lífi Donalds
Trump, á 200 pör af skóm. Með
þessu kemst hún kvenna næst
Imeldu Markos í dálæti á skóm
þótt hún komist vart með tæmar
þar sem Imelda hafði hælana þeg-
ar best lét.
Marla hefur látiö þess getið í
góðra vina hópi að blaðafulltrúi
hennar eigi það til að stela frá
henni skóm. Þetta geri hann til
að fá kynferðislega útrás því að
hann laðist fremur að skófatnaði
kvenna en konunum sjálfúm.
Bretaprinsessa í sápuóperu
Bandaríska sjónvarpstöðin NBC hefur
ákveðið aö ráðast í gerð sápuóperu eftir
hinni umtöluðu ævisögu Díönu Breta-
prinsessu. Forráðamenn sjónvarpsstöðv-
arinnar vonast til að saga Díönu slái í
gegn rétt eins og bókin og verði stöðinni
mikil lyftistöng. Sjónvarpsstöðvar vestan-
hafa búið við versnandi hag.
En það er htið mál að ákveða að gera
spáuóperu um prinsessuna ef rétta fólkið
fæst til að leika aðalpersónumar. Nú er
það höfuðverkurinn að finna það fólk sem
ræður við þessi vandasömu hlutverk.
í hlutverk Díönu er helst nefnd Daryl
Hannah. Hún er ljóshærð eins og Díana
og nóg fræg til að bera uppi sápuóperu.
Kevin Kostner er nefndur í hlutverk Karls
og Ehsabet Taylor í hlutverk nöfnu sinn-
ar. Aht era þetta frægir leikarar en ekk-
ert þeirra hefur samþykkt að taka þátt í
svo áhættusömu ævintýri sem að endur-
skapa í sjónvarpi umtöluðustu fjölskyldu
veraldar.
Díana má búast við því að umtal um hana fari vaxandi.
Daryl Hannah þykir vænleg í hlutverk Diönu prins-
essu.
Reyndi að
þvinga Omar
Sharif í rúm-
ið með
vopnavaldi
Leikarinn og bridgespilarinn Omar
Sharif varð fyrir þeirri óskemmti-
legu reynslu á dögunum að ókunn
kona braust inn til hans þar sem
hann dvaldi á hótelherbergi í Dallas.
Konan otaði skammbyssu að Sha-
rif og skipaði honum að fara úr bux-
unum, fara upp í rúm og eiga við sig
mök. Okkar maður brást hinn róleg-
asti við og sagðist ekki hafa áhuga á
samræði nema hann fengi fyrst skot-
vopnið í hendur.
Við það gafst konan upp við ætlun-
arverk sitt og hvarf á braut. Til henn-
ar hefur ekki spurst aftur. Sharif er
nú sextugur og enn eftirsóttur meðal
kvenna þótt þær reyni sjaldnast að
beita ofbeldi til að komast í kynni
við hann.
FYRSTA UOSMYNDAMARAÞON AISLANDI
haldið á Akureyri 15. ágúst
kl. 10.00-22.00
Þann 15. ágúst næstkomandi verður þreytt í
fyrsta skipti ljósmyndamaraþon á Akureyri.
Slík keppni hefur um nokkurt skeið verið árleg-
ur viðburður í nokkmm borgum í nágranna-
löndum okkar og notið mikilla vinsælda.
Á.L.KA. (Áhugaljósmyndaraklúbbur Akur-
eyrar) heldur keppnina í samvinnu við Kodak-
umboðið Hans Petersen hf. og Pedrómyndir.
1!
Skráning:
Þú getur skráð þig til keppni hjá Hans Petersen
hf. í Reykjavík í síma 91-675100 og hjá Pedró-
myndum á Akureyri í síma 96-23520. Einnig
verður unnt að skrá sig samdægurs, að morgni
. ágúst kl. 9.00-9.45, í Pedrómyndum, Skipa-
götu 16, Akureyri, en þar verður ljósmyndam-
araþon á Akureyri 1992 ræst kl. 10.00.
MAZDA 626
GLÆSILEIKI!
► MAZDA 626 árgerð 1992
er nú kominn nýr frá grunni,
stærri og rúmbetri en aðrir
japanskir millistærðarbílar.
► Hér fer saman stórglæsi-
leg útlitshönnun, vönduð smíð
og ríkulegur búnaður, sem á
sér fáa líka, m. a: 4ra þrepa
tölvustýrð sjálfskipting, áifelgur,
rafknúnarrúðuvindurog loftnet,
samlæsingar, rafstýrðir og
rafhitaðir útispeglar, hituð
framsæti og annar luxus-
búnaður.
► Allar gerðir fást að auki
með fjórhjóladrifi, rafdrifinni
sóllúgu, hraðastilli og læsi-
vörðum hemlum (ABS).
► 2 vélar eru í boði, 2.0L,
4ra strokka, 16 ventla og 2.5L,
V-6 strokka, 24 ventla.
► Komið, skoðið og
REYNSLUAKIÐ MAZDA 626
ásamt öðrum gerðum af
MAZDA og kynnist því nýjasta
í bifreiðahönnun og tækni!
Opið laugardaga frá kl.10-14.
SKÚLAGÖTU 59, REYKJAVÍK S.61 95 50