Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992. Erlend myndsjá Líf prinsessu á bak viö tjöldin Díana, prinsessa af Wales, ásamt sonum sínum tveimur: Vilhjálmi, sem væntanlega verður konungur einhvern tíma á næstu öld, og Harry. Þegar konungssonurinn féll fyrir Öskubusku í ævintýrinu giftu þau sig snarlega og lifðu hamingjusöm upp frá því. Þannig ganga hjónabönd kónga- fólks hins vegar sjaldnast fyrir sig í raunveruleikanum. Aö minnsta kosti ekki innan kunnustu konungs- fjölskyldu Evrópu, þeirrar bresku. Þar enda hjónaböndin yfirleitt ekki í hamingjurús heldur skilnaði eða vansælu ástleysis og tilfinninga- kulda. Nú í sumar hafa breskir fjölmiðlar skrifað um fátt annað af meiri áfergju en hjónabandavandræði breska kóngafólksins. Fyrst voru það hertogahjónin af York, en Andrés, yngri bróðir ríkisarfans, og Fergie kona hans, ákváðu að skilja eftir fimm ára hjónaband. Skilnaðurinn varð að kröfu Fergie sem þoldi ekki lengur vistina í steinrunnum faðmi konungsfjölskyldunnar. Fjölmiðlafár Enn meira umtal varð þó um hjónaband ríkisarfans, Karls, prins'af Wales, og konu hans, Díönu, eftir að bókin „Diana - Her True Story,, kom út á miðju sumri. Breskir fjölmiðlar hafa ekki náð sér enn eftir hamaganginn og breska sjónvarpið, BBC, hefur látið gera sex þætti um hjónaband ríkisarfans - þætti sem eiga að vera tilbúnir til útsendingar þegar þau skilja. Höfundur bókarinnar, sem hratt þessu fjölmiðlafári af stað, Andrew Morton, hefur um langt árabil haft af því atvinnu að skrifa um bresku konungsfj ölskylduna í blöð og bækur og hefur aðgang að mörgum heimild- armönnum sem þekkja til mála í konungsranni. Að þessu sinni voru það nánustu vinir og félagar Díönu sem ákváðu - vafalaust með sam- þykki hennar - að segja Morton allt af létta um ömurlegt og einmanalegt líf prinsessunnar og þannig skýra frá því sem gerst hefur að tjaldabaki í vistarverum konungsfj ölskyldunnar síðustu árin. Það er saga sem kom mörgum breskum þegnum, sem eru yfirleitt stoltir af prinsessunni og þykir hún standa sig vel, verulega á óvart. Ekki síst óvæntustu uppljóstranir bókar- innar, svo sem um endurteknar sjálfsmorðstilraunir Díönu, andlega og líkamlega vanhðan hennar og það algjöra ástleysi og jafnvel fjandskap sem virðist einkenna hjónaband hennar og ríkisarfans. Óviss framtíð Þessar frásagnir hafa vakið um- ræður um stöðu bresku konungsfjöl- skyldunnar og óvissa framtíð henn- ar. Dregin er upp í bókinni mynd af sérkennilegu, lokuðu samfélagi sem er í litlum tengslum við veruleikann utan hallarmúranna - samfélagi þar sem sérstakar, oft óskráðar, reglur gilda. Fyrir þá sem eru aldir upp inn- an múranna er lífið ef til vill bæri- legt. En þeir sem koma utan frá eiga erfitt með að finna sig í lokuðum klúbbi kóngafólks þar sem áhuga- málin og hugsunarhátturinn, er venjulegu fólki einstaklega fram- andi. Og enginn leggur sig niður við að leiðbeina aðskotadýnmum sem finnst þess vegna - eins og Díönu lengi vel - að þau séu fangar í kaldri, tilfinningalausri prísund. Tíðir skilnaðir Þetta telja margir Bretar alvarlega þróun þar sem framtíð bresku kon- ungsfjölskyldunnar er háð slíkum tengslum út í þjóðfélagið. Hjónabönd breska kóngafólksins og „óbreyttra" borgara hafa nefnilega ríka tilhneig- ingu til að fara í hundana. Þannig hafa Margrét, systir drottningar, Anna, dóttir konungshjónanna, óg Andrés, sonur þeirra, öU skihð við maka sem komið hafa utan frá. Og það hriktir í hjónabandi ríkis- arfans sem aldrei fyrr. Deilt er um hversu rétt mynd er' gefin af KarU prinsi í bókinni, en þar er honum lýst sem kaldlyndum eiginmanni og afskiptalausum föður sem sé í senn afbrýðisamur vegna vinsælda eigin- konu sinnar og fráhverfur henni sem maka, en leiti sífeUt huggunar hjá æskuvinkonu sem hann elski og hafi sem nánasta trúnaðarvin. Það hefur annars sjaldan verið friður innan bresku konungsíjöl- skyldunnar, eins og skilmerkilegast má greina í leikritum Shakespeares um breskt kóngafólk. Morton lýsir flokkadráttunum vel og drjúgum þætti kunningja og starfsmanna hirðarinnar í að magna deilumar og er þá einskis svifist til að sverta raunverulegan eða ímyndaðan keppinaut - jafnvel þótt um eigin- konu ríkisarfans sé að ræða. Verður Karl ekki kon- ungur? FuUyrt er í bók Mortons að Díana hafi enga trú á að Karl verði konung- ur Bretlands og hún þar með drottn- ing. Og víst er talið aö óvissan í hjónabandi ríkisarfans hafi ráðið mestu um að Elísabet drottning ákvað nýverið að draga sig ekki í hlé á næstunni. Díana er sögð lifa fyrir börn sín tvö og hafa þá trú að elsti sonur þeirra hjóna, Vilhjálmur, muni taka við konungdæmi af ömmu sinni. Hún leggi mikla áherslu á að ala hann upp í ástríki og samneyti við jafnaldra sem búi utan fílabeinsturns hins lok- aða samfélags konungsfjölskyldunn- ar. Kannski felst í því uppeldi helsta von Breta um að konungsfjölskyldan eigi sér framtíð á næstu öld. DIANA. HER TRUE STORY. Höfundur: Andrew Morton. Michael O’Mara Books, 1992. Metsölukiljur Bretland A YEAR IN PROVENCE. 2. John Grisham: 1S. Timothy zahn: 4. Laföí Fortescue: A TIME TO KILL. HEIR TO THE EMPIRE. Skaidsogur: 1. Jeffrey Aretíen AS THE CROW FUES. PERFUME FROM 3. John Grisham: - , provence. THE firm. W* almenns eðlis: 2. Joanna Trollope: THE RECTOR’S WIFE. , NEITHER HERE NOR THERE. NEEDFUL THINGS. ME: STORIES OF MY LIFE. 6. Hannah Hauxwell: 5. Anne Rivers Siddons: 2. Peter Mayle: PARAOISE NEWS. . '4. Jullan Barnea: v:-- TALKING IT OVER. 5. Barbara Taylor Bradford: REMEMBER. 6. Jllly Cooper: POLO- HANNAH: THE COMPLETE OUTER BANKS. A YEAR IN PROVENCE. STORY. 6. Lawrence Sanders: 3. D.L.Barlett & J.8. Steeie: 7. B. Watterson: THE SEVENTH AMERICA: WHAT ATTACK OF THE DERANGED COMMANDMENT. WENT WRONG? KILLER MUTANT MONSTER 7. Judith Michael: 4. B. Williams & C. Kreski: SNOW GOONS. SLEEPING BEAUTY. GROWING UP BRADY. 8. Michael Slnger: 8. Fredertck Forsyth: 5. Peter Mayle: BATMAN RETURNS - THE THE DECEIVER: TOUJOURS PROVENCE. 7. John Grisham: THE FIRM. 8. Terry Pratctíett: OFFICIAL MOVIE BOOK. 9. Fannie Flagg: 6. Tony Chiu: 9. Julia Phlllips: DAISY FAY AND THE ROSS PEROT: IN HIS REAPER MAN. 9. Anita Brookner: TUv LL IyLVImH * MlHAvUl. WIAW. UWN WvHuO< LUNCH IN 10. Fannie Flagg: 7. Deborah Tannen: THIS TOWN AGAIN. FRIED GREEN YOU JUST DON’T A CLOSED EYE. 10. Wllbur Smlth: ELEPHANT SONQ. 10. M. Balgent & R. Leigh: TOMATOES AT UNDERSTAND. THE DEAO SEA SCROLLS THE WHISTLE STOP CAFE. 8. P.J. O’Rourke: DECEPTION. 11. Tom Clancy: PARLIAMENT OF WHORES. /Rumt á Yhfi fiunrtnu HmAgt PATRIÖT AAMFA Q Knn Fnll»H* Rit almenns eðlis: 1. Laurle Lee: ' A NINEBT IF WAR. ;; 2. Peter Mayle: TOUJOURS PROVENCE. 3. Peter Mayle: ^ , .., 12. Jude Deveraux: ON WINGS OF EAGLES. Bandartkin the ouchess. 10. m. scott Pectc oifátrisnanr- 13. Amy Tan: THE ROAD LESS oivh'usumui. THE KITCHEN GOP'S WIFE. TRAVELLED. 1. Tom Clancy: 14. Amanda Qulck: (By90i í Hew Yor* rin,«> a<»k Raview) THE SUM OF ALL FEARS. RAVISHED. Umsjón: Elías Snæland Jónsson E DWARD BEHR i ANYONE HERE BEEN j RAPED AND SPEAKS ENGLISH? WtTN A «•««* «>H.OftUt Fréttamenn á átakaslóðum Stríð, bylting, uppreisn, leið- togamorð - þvíhkir atburðir hafa verið algengir í heiminum síð- ustu áratugina. Og með þeim fyrstu á staðinn eru gjarnan fréttamenn vestrænna fjölmiðla; dagblaða, fréttatímarita og sjón- varps- og útvarpsstöðva. Edward Behr er einn þeirra sem gjaman var sendur á staðinn þegar upp úr sauð - hvort sem það var í Kongó eða Alsír, Ind- landi eða Pakistan, Kína eða Víet- nam. Þessi bráðskemmtilega bók hans kom fyrst út árið 1978 en hefur nú verið endurútgefin enda nánast orðin sígild frásögn af lífi stríðsfréttaritara. Hér segir hann á gamansaman hátt stórkostlegar sögur af sjálfum sér og öðrum fréttamönnum í ævintýralegum vandræðum á átakastöðum víða í veröldinni. Hann er næmur á fyndnu hliðina á því sem frétta- menn þurfa stundum að láta yfir sig ganga til aö ná í fréttina og koma henni frá sér til fjölmiðla sinna - þótt þeim sjálfum hafi síst verið hlátur í huga í hita augna- bliksins. ANYONE HERE BEEN RAPED AND SPEAKS ENGLISH? Höfundur: Edward Behr. Penguin Books, 1992. Skip með ógnar- farm í ísnum Hammond Innes er löngu kunnur víða um lönd fyrir spennusögur sínar, en margar þeirra hafa komið út í íslenskri þýðingu. í bestu sögunum fjallar hann gjaman um sjómenn sem eiga í átökum við Ægi engu síður en hættulega andstæðinga. Hon- um tekst yfirleitt vel upp í sjó- mennskulýsingum enda sjálfur vanur sighngum. Nýjasta spennusaga Innes tek- ur nafn sitt af skipi, Isvik, sem söguhetjumar fara á inn á hafís- svæði við Suðurskautslandið. Það er æði sundurleitur hópur manna sem siglir á Isvik í leit að öðm skipi sem ætlað er að verið hafi fast einhvers staðar í ísnum árum saman. í ljós kemur að þetta skip geymir ógnvænlegt leyndarmál sem tengist atburð- um í Argentínu á valdatíma her- foringjastjómarinnar þar. Það era ágætir sprettir í þessari sögu þótt hún sé langt frá því aö vera besta bók höfundarins. ISVIK. Höfundur: Hammond Innes. Pan 1992.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.