Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Side 16
16
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992.
Skák
Norðurlanda- og svæðismótið í Östersund:
Agdestein náði
að verj a titilinn
- Jóhann og Hellers tefla um sæti á millisvæðamóti
Jóhanni Hjartarsyni tókst að
leggja Margeir Pétursson í síðustu
umferð Norðurlanda- og svæðis-
mótsins í Östersund í Svíþjóð og
nær að deila 2. sætinu með sænska
stórmeistaranum Ferdinand Hell-
ers. Jóhann og Hellers þurfa aö
tefla um sæti á miilisvæðamótinu
sem haldið verður í Biel í Sviss
næsta sumar - einungis tvö efstu
sætin í Östersund gáfu farmiða til
Biel. Helgi Ólafsson hefði náð þeim
félögum með sigri gegn Lars Karls-
son en skák þeirra lauk með jafn-
tefli eftir mikla baráttu.
Sigurvegari mótsins og Norður-
landameistari varð norski stór-
meistarinn Simen Agdestein sem
náði þar með aö veija titilinn frá
því mótið var síðast haldið í Espoo
í Finnlandi fyrir þremur árum.
Agdestein slasaði sig á hné á knatt-
spymuvellinum skömmu fyrir
mótið og haltraði um á hækjum.
Hann lét það ekki á sig fá og var
vel að sigrinum kominn. Hann er
ótrúlegur baráttuskákmaður og er
laginn við að snúa erfiðum stöðum
sér í vil. Hann tapaði í fyrstu um-
ferð fyrir Hellers og ekki aftur,
þótt oft hefði hann verið hætt kom-
inn.
Staða efstu manna var þannig að
Agdestein fékk 6,5 vinninga, Jó-
hann og Hellers fengu 6 v., Helgi
fékk 5,5 v. og Lars Karlsson, Lars
Bo Hansen og Tisdail fengu 5 v. Jón
L. fékk 4,5 v. og Margeir fékk 4. v.
Hársbreidd munaði að Helgi tæki
Norðurlandameistaratitihnn af
Agdestein en hann átti vinnings-
færi gegn honum í næstsíðustu
umferð. Allt kom fyrir ekki en ekki
skeikaði nema einu „tempói" í
endatafli. Helgi átti annars gott mót
og tapaði ekki skák. Jóhann tefldi
einnig vandað og vel og tapaði held-
ur aldrei.
Sá er þetta ritar fékk drauma-
byijun með þvi að vinna tvær
fyrstu skákimar. Eftir fimm um-
ferðir deildi ég efsta sætinu en tap-
aði þá fyrir Agdestein í 6. umferö,
eftir að hafa leikið niður mjög væn-
legri stöðu. Eftir það náði ég mér
ekki aftur á strik. Margeir var
einnig heillum horfinn. Tap fyrir
Agdestein í 4. umferð og Hector í
6. umferð gerðu vonir hans um að
komast áfram á millisvæðamót að
engu.
Er þetta er ritað var ekki ljóst
hvprt Jóhann og Hellers yrðu eftir
í Östersund og tefldu bráðabana
um sæti á millisvæðamótinu eða
hvort einvígi þeirra yrði frestaö þar
til síðar. En skoðum hvemig Jó-
hanni tókst að knýja fram sigur í
lokaumferðinni og komast upp að
hhð Hehers.
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: Jóhann Hjartarson
Enskur leikur
1. c4 e5 2. Rc3 Rf6 3. Rf3 Rc6 4. g3
Bc5 5. Bg2 d6 6. 0-0 0-0 7. d3 h6 8.
a3 a6 9. b4 Ba7 10. Bb2 Bg4 11. h3
Be612. Kh2 Hb813. Hcl Dc714. e4?!
Rd415. Rxd4 Bxd416. f4 Dd817. Hc2
b5?! 18. f5 Bd719. Bcl?! bxc4 20. dxc4
c5 21. g4 cxb4 22. axb4 Hxb4 23. g5
hxg5 24. Bxg5 Bc6 25. Rd5 Bxd5 26.
cxd5 Bc5 27. Ha2 a5 28. h4 He8 29.
Bf3 Db6 30. BxfB gxf6 31. Bg2 Kf8 32.
Dg4 Hb2 33. Hxb2 Dxb2 34. Hf3 a4
35. Hg3 Ke7 36. Ddl Hh8 37. Dxa4
Hxh4 38. Hh3 Hg4 39. Hg3 Hxg3 40.
Kxg3 Df2+
Þaö er ekki á hveijum degi sem
stórmeistari tapar sömu skákinni
tvisvar!
Hvitt: Ferdinand Hellers
Svart: Thomas Ernst
Sikileyjarvörn
I. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 g6 6. Be3 Bg7 7. f3 Rc6 8.
Bc4
Algengara er 8. Dd2 en eftir texta-
leikinn á hvítur kost á aö setja
drottninguna á e2, eftir að svartur
hrókar. Svartur reynir að færa sér
leikjaröð hvíts í nyt og fer nú í
peðaveiðar.
8. - Db6 9. Rf5! Dxb2 10. Rxg7+ KfB
II. Rd5 Kxg7
Þekktara er 11. - Rxd5 12. Bxd5
Kxg7 13. 0-0 sem gefur hvítum dá-
góða möguleika fyrir peðið.
12. Hbl Da3 13. Dd2 h5 14. 0-0 Da5
15. c3 Rxd5 16. axd5 Re5 17. Bd4 f6
18. Hfel! —
Þessa stöðu mun Emst hafa feng-
ið fram áður. Þá tók hann 18. - Dc7
en tapaði skákinni um síðir, hvítur
hefur jú góða stöðu í skiptum fyrir
peðið.
Nú ákveður Emst að taka áskor-
uninni og þiggja mannsfóm hvíts.
Hann hafði notað htinn tíma á
þessa leiki og næstu leiki lék hann
einnig með eldingarhraða.
18. - Rc4 19. Hxe7+ Kf8 20. Df4! Bf5
21. Hbxb7 Re5
I 1 s á 1
A il
m k
.4 ifgr
A A
A A A
Þessa stöðu hefur Ernst áreiðan-
lega haft á „eldhúsborðinu" heima
hjá sér. Hvíta staðan er vissulega
álitleg, með hrókana í ógnandi
stöðu á 7. reitaröðinni. En hvemig
getur hann bætt stöðuna?
22. Be3!!
Þessi magnaði leikur vinnur
skákina. Hvítur hótar 23. Dh6+!
Hxh6 24. Bxh6+ Kg8 25. Hg7+ Kf8
26. Hh7+ Kg8 27. Hbg7+ Kf8 28.
Hh8 mát. Þótt 22. Dxd5 virðist koma
drottningunni í vömina nægir það
ekki til þess að hindra þetta.
22. - Kg8 23. Hg7+ Kf8 24. Hge7 Kg8
25. Hg7+ Kf8 26. Hxg6!!
Annar þrumuleikur. Ef nú 26. -
Rxg6 27. Dxf5 og hótar 28. Dxf6+
eða 28. Dxg6 með vinningsstöðu.
Eftir 26. - Bxg6 27. Dxf6+ Rf7 28.
Hxf7+ Bxf7 29. Dxh8+ Bg8 30.
Bh6+ Ke7 31. Dg7+ Bf7 32. Bg5+
Ke8 33. Dh8+ Kd7 34. Dxa8 átti
hvítur einnig að vinna en þetta var
þó tvímælalaust besti möguleiki
svarts sem getur reynt 34. Bxd5.
26. - Dxd5? 27. Hxf6+ Ke8 28. Dxf5
Dxb7 29. He6+ Kd8 30. Bg5+ Kc7
31. He7+
Nú vinnur hvítur brátt.
31. - Kb8 32. Hxb7+ Kxb7 33. Be7!
Hac8 34. Bxd6 Rc4 35. Bc5 Rb6 36.
Bd4 Hh6 37. h4 Hc7 38. Kh2 Hhh7 39.
Kg3 Hce7 40. a4 Kc7 41. a5 Rc8 42.
Be5+ Rd6 43. Dg6
Og Emst gafst upp.
Simen Agdestein tefldi siasaður á hné i östersund en tókst engu að siður að verja Norðurlandameistaratitilinn.
■ A j
H|: mp
wm H A 1 A
m §§
(♦)
Umsjón:
Jón L. Árnason
Margeir gafst upp. Eftir 41. Kh3
De3+ 42. Kh2 Df4+ 43. Kh3 Bf2
blasir mát við.
Slök heimavinna
Sænsku stórmeistararnir Hellers
og Emst tefldu skemmtilega skák
í 2. umferð mótsins. Þar varð
þijóskan Emst að falii. Hann hafði
fyir tapað skák í drekaafbrigði Sik-
ileyjarvamar sem uppi varð á ten-
ingnum í skákinni við Hellers.
Hann vildi ekki trúa því að staða
sín væri lakari. í 18. leik breytti
hann út af og vissulega leit út fyrir
að hann kæmist upp með það. Hell-
ers þurfti að finna tvo frábæra leiki
til þess að sýna fram á hið gagn-
stæða. En það nægði. Eftir það gat
Emst ekki bjargað taflinu.