Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Síða 19
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992.
19
Meiming
Kantataí
Skálholti
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
Sumartónleikum í Skálholti var fram haldið um verslunarmannahelg-
ina. Á laugardag var flutt Kantata eftir Ohver Kentish. Flytjendur voru
einsöngvararnir Hjörtur Þorbjömsson, drengjarödd, Hildigunnur Hah-
dórsdóttir, sópran, Siginrður Hahdórsson, ait, Guðlaugur Viktorsson, ten-
ór, Michael Jón Clarke, barítón, og einleikarar Helga Ingólfsdóttir, semb-
al, Peter Tompkins, óbó, Edward Frederiksen, básúna, Ömólfur Kristjáns-
son, sehó, Arnia Magnúsdóttir, sembal og orgel, og Reynir Axelsson, org-
el. Þá söng kórinn Hljómeyki og strengjasveit lék. Stjómandi var höfund-
urinn Ohver Kentish.
Ýmis sjónarmið em uppi um
nafngiftir á tónverkum. Sumir
kjósa að gefa verkum sínum nöfn
sem lýsa að einhverju leyti inni-
haldi þeirra eða andrúmslofti. Aðr-
ir velja nöfn sem lúta að vinnu-
brögðum eða tónsmíðaaðferð. Enn aðrir kjósa að nota nafngiftir sem
gagngert em fullkomlega hlutlausar um verkið og segja ekkert um það.
Hér er hugsunin sú að láta verkið sjálft tala og forðast aht utanaðkom-
andi sem truflað getur hinn persónulega skilning hlustandans. Þá er enn
önnur leið að nota eitthvað af hinum fjölmörgu heitum sögunnar, eins
og t.d. sinfónía eða sónata. Þegar slík heiti em notuð um ný verk verða
hlustendur að gæta þess að sónata frá tuttugustu öld er að líkindum frá-
bmgðin sónötu frá fyrri öldum og fólk má ekki verða fyrir vonbrigðum
þótt ekki heyrist í verkinu endurómur frá Beethoven gamla eða Mozart.
Eitt íslenskt tónskáld kahaði verk sitt ópem og fékk svo ákúmr þegar í
ljós kom að það var frábmgðið því sem á nítjándu öld gekk undir þessu
nafni. Slíkt er auðvitað ekki réttmæt gagnrýni. Sama ghdir einnig um
Kantötu Olivers Kentish og er þar með komið að tilefninu fyrir þessum
vangaveltum. Þetta verk er í meginatriðum ólíkt því sem flestir kannast
við undir nafninu kantata, eins og t.d. Kantötum J.S.Bachs. Er að sjálf-
sögðu ekkert út á það setjandi. Verkið er að sögn höfundar byggt á Lilju-
laginu og birtist það oft í ýmsum útsetningum. Þess utan em einleikskafl-
ar fyrirferðarmestir, stimdum með og stundum án undirleiks. Ennfremur
kórkaflar og upplestur. Ýmissa grasa kennir í verkinu og skortir hvergi
fjölbreytni. Margt er laglega gert en í heild virtust kórkaflamir best heppn-
aðir.
Eins og sjá má af upptalningu í upphafi vom flytjendur margir og mik-
ið um einsöng og einleik. Stóðu flestir sig vel og sumir með ágætum.
Gerðu áheyrendur góðan róm að framtakinu í lokin.
Tónleikar
Hljómeykis
Á sumartónleikum í Skálholti um verslunarmannahelgina var áhersla
lögð á sungna tónhst. Hér að ofan er sagt frá flutningi á Kantötu eftir
Ohver Kentish. Þá vora einnig tónleikar þar sem sönghópurinn Hljóm-
eyki söng verk eför Pablo Casals, Benjamin Britten, Igor Stravinsky og
Gunnar Reyni Sveinsson. Stjómandi var Sigursveinn K. Magnússon en
Kolbeinn Bjamason lék með á flautu og Gústaf Jóhannesson á orgel.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja hve veraldargengið hefur oft
reynst haldskreipt þeim sem leggja
stund á fagrar hstir. Þá er oft gott
að geta fundið æðri tilgang hstar-
innar og þeir em ófáir sem hafa
fundið hann í trúnni. J. S. Bach
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
kenndi nemendum sínum að skrifa út góðan grunnbassa guði til dýrðar
og andanum til hæfilegrar upplyftingar. Fáir hafa þó komið betur orðum
að þessari hugsun en séra Hallgrímur: „Ó, Jesús, gef þinn anda mér, aht
svo verði öl dýrðar þér uppteiknað, sungið, sagt og téð, síðan þess aðrir
njóö með.“ Hér er kjami málsins ahur og þarf engu við aö bæta. Þessi
vísa var ein af fleirum úr Passíusálmunum sem Gunnar Reynir Sveins-
son notar í verki sínu Missa Piccola. Þetta er ágæöega gert verk þar sem
sums staðar gæör þjóðlagaáhrifa.
í fleiri verkum á þessum tónleikum mátö heyra góðan kveðskap. Hymn
to Cecilia eför Britten er samið við samnefnt kvæði W. H. Auden. Verk
Stravinskys, Anthem, er samiö viö hluta kvæðisins Litöe Gidding eför
T. S. Eliot. Svo einkennhegt sem það má virðast er tónlist Britten and-
lega skyldari Ijóði Ehots en Audens. Blær rómanökur er þar ráðandi.
Hins vegar dregur kvæði Audens fram andrúmsloft miðalda. Þaðan em
tónsmíöaaðferðir Stravinskys í Anthem einnig komnar. Það er rétt eins
og haldið er fram í efhisskrá að um það leyö sem Stravinsky samdi þetta
verk var hann farinn að nota raðtækni. Hins vegar gæör þess ekki á
heyranlegan háö í Anthem. Það verk ber ekki síður keim af Josquin
Desprez en Anton Webem. Tónmiðjur, þríhljómar og fleygaðar flölradda
hendingar er það sem mest ber á í þessu fagra listaverki. Hins vegar er
margt líkara með Webem og Desprez en menn hafa stundum viljað vera
láta. 0 vos omnes eför Casals er fahega hljómandi vérk í hefðbundnum
söl en það var fyrsta verk tónleikanna.
Hljómeyki hefur áður geöð sér orð fyrir vandaðan og fahega útfærðan
flutning og brást eigi því rykö á þessum tónleikum. Styrkjafnvægi og
blöndun radda var mjög góð og túlkunin skýr og ölfinningarík. Efnis-
vahð var mjög gott og í hehd vom þessir tónleikar fyrsta flokks.
Sviðsljós
Þessar rösku stúlkur voru með hlutaveltu við Skjólabúðina i Sörlaskjóli um daginn. Þær heita Halla Sigurðardótt-
ir, Anna Margrét Ólafsdóttir og Betta Magnea Ólafsdóttir Briem. Þegar Ijósmyndara bar að höfðu stúlkurnar ekki
ákveðið hvaða aðili ætti aö fá peningana. Það færi allt eftir því hversu mikið myndi safnast. DV-mynd S
Rúsínur
1 -
Dökkar
U KEMUR TIL OKKAR
í MÁNAÐARPRÓGRAM
1. Við fitumælum þig og þú færð ítarlega tölvuútskrift
sem segir þér í hversu góðu eða slæmu formi þú ert.
2. Þú fyllir út matardagbók og færð ráðleggingar um
skynsamlegra mataræði.
3. Þú mætir eins oft og þú vilt í leikfimi og/eða
tækjaþjálfun.
4. Þú færð 10 skipti í sólbekkina - glænýjar pemr.
5. Þú kemur svo aftur í fitumælingu að mánuði liðnum
og þá sérðu árangurinn svart á hvítu.
Misstu ekki af þessu frábæra síðsumartilboði.
Aðeins kr.
Býðst aðeitis hjá:
STÚDÍÓ JÓNÍNU O G ÁGÚSTU
Skeifan 7,108 Reykjavík, sími 689868
25 ára 1992