Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Síða 21
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992.
21
Meiming
Bíóhöllin/Laugarásbíó - Beethoven: ★★
Fín fjölskyldumynd
Framboð og etlirspurn eru ekki
alltaf í jafnvægi í Hollywood, sér-
staklega ekki hvað varðar íjöl-
skyldumyndir. Þær eru sjaldgæfar
og þegar loks koVna sæmilegar
myndir þá raka þær inn peningum,
eins og t.d. Beethoven sem fór fram
úr björtustu vonum framleiðenda.
Allt sem Ivan Reitman (Kinder-
garten Cop, Twins, Ghostbusters)
snertir verður að gulli þessa dag-
ana og þótt hann sé bara framleið-
andi á Beethoven þá ber myndin
stimpil hans út í gegn. Sagan er
einfóld og auðmelt. Markið er sett
lágt, sem er skynsamlegt í þessu
tílfelli.
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
Háskóiabíó - Bara þú: ★ !4
Hvoraáaðvelja?
Andrew McCarthy leikur ung-
an mann sem setur markið hátt
hvað konur varðar. Hann lítur ekki
við þeim nema þær gætu prýtt fors-
íður helstu tískublaða og miðopna.
Vandamálið er bara það að hann
er ekkert sérstaklega eftírsóknar-
verður sjálfur en hefur, sennilega
vegna glópaláns, komist upp með
þessa lífsskoðun sína. Hann neyð-
ist til að skoða hug sinn upp á nýtt
þegar nýjasta skotmarkið (Kelly
Preston), sem hann hélt sig vera
búinn að töfra alla leið til Hawaii,
reynist hin mesta daðurdrós sem
nýtír sér hvert tækifæri til að
skemmta sér með öðrum og föngu-
legri mönnum. Þá kynnist hann
ljósmyndara (Helen Hunt) og þeim
kemur vel saman. Hin verður af-
brýðisöm og það sem eftir er mynd-
arinnar skoppar hann á milli
þeirra án þess að vita nokkuð hvað
hann er að gera eða á að gera.
Ekki slæm hugmynd en úrvinnsl-
an gerir lítið úr henni og eyðileggur
allan séns fyrir myndina að verða
eitthvað annað en miðlungs vídeó-
fóður. Glæsipían er gerð að algjörri
gufu sem er jafn tilbúin að fara illa
með karlmenn og að láta þá fara
illa með sig. Hann eltist við hana
alla myndina, sama hvað hún nið-
urlægir hann oft, en er ekki stað-
fastari en svo að hann tekur hinni
um leið og hún býðst. Til að sagan
gangi upp þarf „góða“ stúlkan að
falla fyrir honum. Hún er jafnvit-
laus og hin að sjá ekki að hann á
við alvarlegan vanda að stríða. En
þar sem þetta er nú bíómynd þá
geta menn gert á fimm mínútum
það sem í hinum raunverulega
heimi kostar fólk tveggja til þriggja
ára sálræna meðferð, ef heppnin
er með.
Hvemig kvikmyndagerðarfólkið
hefur ætlað sér að skapa einhverja
spennu eða óvissu um útkomuna
er mér ráðgáta og það er ansi pín-
legt að þurfa að siija undir svona
sögu. Það sem gerir setuna þolan-
lega er að handritshöfundurinn,
eins og hann hefur misreiknað sig
á aðalatriðinu, er nokkuð fyndinn
þegar kemur að smærri einingum.
Það er mikið um góða brandara og
það væri eflaust hægt með gífurleg-
um viljastyrk að einbeita sér að
þeim og horfa fram hjá sögunni.
Fyrir okkur strákana sakar síðan
ekki að hafa hina föngulegu eigin-
konu Johns Travolta, Kelly Pres-
ton, fyrir sjónum, hálfklædda, í
einn og hálfan tíma. Það er það eina
í myndinni sem höfðar til ímynd-
unaraflsins.
Only You (Band. 1992) Handrit: Wayne
A. Rice (A Class Act). Leikstjórn: Betty
Thomas. Leikarar: Andrew McCarthy
(Weekend at Bernle's 1&2, Less than
Zero), Kelly Preston (Twins, The Ex-
perts, Run), Helen Hunt (Project X, Miles
from Home, Net of Kin).
Beethoven er St. Bernharðs-
hundur sem er rænt úr gæludýra-
búð á unga aldri en sleppur frá
ræningjunum sem eiga eftir að
koma aftur við sögu seinna. Hvuttí
kemur sér þægilega fyrir á heimili
Newton-fjölskyldunnar og falla
bömin þrjú um leið fyrir honum.
Pabbinn er ekki hundavinur en
lætur undan þrýstingi fjölskyld-
unnar og þjáist næstu mánuði með-
an Beethoven stækkar og stækkar
og stækkar. Það besta við Beet-
hoven er að hann er ekki neinn
ofur-hundur. Hann er klár en ekki
öfgakenndur. Myndin heldur sér
því í raunverulegri kantinum og
virkar bæöi sem gamanmynd og
svohtið sem drama í seinni hlutan-
um.
Áhersla hefur verið lögð á að gera
fjölskyldumynd og þetta er ein af
þeim sem munu ekki svæfa foreldr-
ana og jafnvel ekki eldri systkini
ef þau skyldu slæðast með.
Ef þetta hljómar eins og afrek þá
er um að kenna hve fáar myndir
ná þessu takmarki í dag.
Beethoven (Band. 1992) 88 min. Hand-
rit: Edmond Dantes, Amy Holden Jones.
Leikstjórn: Brian Levant (Problem Child
2). Leikarar: Charles Grodln (Midnight
Run), Bonnie Hunt, Dean Jones, Nich-
olle Tom, Christopher Castile, Sarah
Rose Karr (Kindergarten Cop), Oliver
Platt (Honey I Shrunk the Kids), Stanley
Tucci, David Duchovny.
Newton-fjölskyldan ásamt hinum
stórvaxna Beethoven.
með eftirsóknarverðum
fríðindum
SÉRSTAKT KYNNINGARTILBOÐ
- 12 MYNDIR ÓKEYPJS
gildir frá l.júní til 30. september
Þú kaupir KODAK GOLD II, filmutvípakka með 24 mynda
og 36 mynda filmum, á verði tveggja 24 mynda filma.
Þú færð sem sé 12 myndir ókeypis.
Þegar pú kemur með filmu I framköllun og skilar umbúð-
irnar af filmutvípakkanum færðu einnig þessar T 2 myndir
framkallaðar ókeypis gegn framvísun klúbbkortsins.
FRÍÐINDI KLÚBBFÉLAGA:
Framköllun á KODAK EXPRESS stöðunum
5. hver filma: 50% afsláttur.
10. hver filma: Einnig ein stór stækkun 28x35 cm
+ ein minni.
Eftir 20 filmur: Einnig 10% afsl. af römmum.
Eftir 30 filmur: Gullkort sem veitir 50% afsl. á 4. hverri
filmu og aukasett af myndum á hálfvirði.
KODAK EXPRESS klúbburinn mun gefa út fréttabréf
nokkrum sinnum á ári þar sem m.a. verða kynnt ný
tilboð til félagsmanna. Klúbburinn mun jafnframt
standa fyrir fræðslustarfsemi af ýmsu tagi.
Kfúbbkortið gildir á ölfum
KODAK EXPRESS stöðunum
um afft land
Verslanir Hans Petersen hf.:
Bankastræti, Glæsibæ, Austurveri,
Kringlunni, Lynghálsi, Laugavegi 178,
Hólagarði og Skeifunni 8.
Kaupstaður í Mjódd.
Ljóshraði i Hamraborg, Kópavogi og Eiðistorgi.
Filmur og Framköllun, Strandgötu, Hafnarfirði.
Hljómval, Keflavík.
Bókaverslun Andrésar Níelssonar, Akranesi.
Bókaverslun Jónasar Tómassonar, Isafirði.
Pedrómyndir, Skipagötu 16, Akureyri.
Bókabúð Brynjars, Sauðárkróki.
Vöruhús K.Á., Selfossi.
Hraðmynd, Egilsstöðum.