Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Side 31
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992. 43 Læknir á Hresst fólk á útihátíð um verslunarmannahelgi. Læknirinn er einhvers staðar örþreyttur eftir að hafa sinnt hundruðum manna síðustu þrjá daga. útihátíð Hann var heilsugæslulæknir úti á landi þetta sumar og undi hag sínum vel. Fólkið var yfirleitt vina- legt en hringdi þó mikið til hans um nætur og helgar út af smámun- um. Þá vildu menn fá fyrirgreiðslu samstundis svo að stundum varð nætursvefninn næsta slitróttur. Þegar dró að verslunarmannahelgi létti yfir bæjarfélaginu. Einhver stærsta útihátíð landsins var hald- in í nágrenni bæjarins og allir sem vettlingi gátu valdið ætluðu þang- að. Akfeitir og sveittir forráða- menn íþróttafélagsins báðu hann að vera lækni hátíðarinnar og buðu honum greiðslu fyrir vikið. Föstudagur Hátíðin hófst á fostudegi. Þá bættistfjöldi aðkomufólks með tjöld og brothætta svefnpoka við fjölmennan hóp heimamanna. Starfsmenn ungmennafélagsins í bláleitum stormjökkum rukkuðu gesti um stórfé í inngangseyri. Pulsu-, hamborgara- og gos- drykkjasalar hækkuðu álagning- una á ógeðslegum veitingum sínum um 2000% og græddu á tá og fingri. Dagurinn var stórtíðindalaus en um kvöldið var baU. Hljómsveitin Ófétin lék fyrir dansi og þekktir brandarakallar sögðu gamla tví- ræða fyndni við mikinn fögnuð vel drukkins mannfjöldans. Kynnir var þekktur, feitlaginn flölmiðla- fíkiU úr bæjarfélaginu. Hann lék á als oddi og spurði gestina þráfald- lega hvort allir væru ekki í stuöi. Undirtektir voru dræmar. Um mið- nætti tók að rigna en dansinn dun- aði dátt þrátt fyrir það. Um nóttina tók að draga tíl tíðinda. Hann stóð í skúr ásamt aðstoðarfólki úr skátahreyfingunni og tók á móti fólki. Víða á svæðinu höfðu brotist út slagsmál og margir komu æp- andi og veinandi með blóðuga vör eða bólgið nef og heimtuðu umbúð- ir, örorkuvottorð, lýtalæknisað- gerð eða lögregluskýrslu í einum grænum hvelh. Tvær drukknar og blautar smámeyjar í þröngum Lev- i’s gallabuxum komu með þá þriðju og heimtuðu afgreiðslu strax. Hún datt og er örugglega fótbrotin! Stúlkan gat vart staðið í fætumar vegna ölvunar og grét þegar að- stoðarUðið lagði hana upp á bekk. Ekki segja mömmu og pabba að ég sé héma, æpti hún frekjulega miUi ekkasoganna. Hann skoðaði á henni fótinn. Þú hefur bara tognað, sagði hann. Vinkonumar biðu óró- legar og supu vodka af stút fyrir utan en brostu breitt þegar staU- konan haltraði út. Komum inn í tjaldið þar sem partíið er, sagði önnur og þær héldu á brott. Næst saumaði hann svolalegan sjómann á grænum glansgaUa sem hafði Á læknavaktíiuii Óttar Guðmundsson læknir fengið skurð á ennið. Sjómaðurinn tvinnaði saman blótsyrðum meðan á aðgerðinni stóð en bar sig vel. Saumaðu mig ódeyfðan, sagði hann drafandi röddu. Em ekki allir í stuði? heyrðist kynnirinn æpa í mikrófóninn. Undir morgim var komið með þekktan forystu- mann úr bæjarlífinu tíl blóðtöku vegna gruns um ölvun við akstur. Ég læt gera þig brottrækan úr bæn- mn, helvítis auminginn þinn, sagði póhtíkusinn við lækninn þegar nálin var keyrð inn í æð í olnboga- bótinni. Þú skalt aldrei fá fyrirgre- iðslu hjá mér, svikarinn þinn, bætti hann við en virtist síðan sofna í fangi lögreglumanns sem studdi viðhann. Laugardagur Samkomugestir sváfu fram eftir degi en fóra þá að stunda ýmsar íþróttir á flötunum kringum svæð- ið. Margir vora enn rykaðir, timbr- aðir eða fullir svo að jafnvægið var ekki sem best. Menn duttu og sneru ökkla eða fengu smáskrámur. Hann stóð allan daginn og batt um meiðsl og hlustaði á fólk lofa hann eða lasta. Nokkrir ungir töffarar úr Reykjavík komu síðdegis og heimtuðu róandi lyf en hann gat varist þeim með aðstoð skátanna. Um kvöldið var aftur tekið að dansa. Ófétin keyrðu allt í botn ásamt kynninum. Brandaramir hans höfðu elst jafn illa og hann sjálfur. Eftir miðnætti byrjaði fjör- ið aftur í sjúkraskúmum. Drukkið fólk dreif að með skrámur og eymsli eftir pústra og fóll. Allir heimtuðu tafarlausa afgreiðslu til að missa ekki af neinu á ballinu. Flestir komu í fylgd vina sinna sem tóku undir það að hér lægi lífið viö. Ætlarðu að láta manninum blæða út, æpti leðurklæddur ungl- ingur sem stóð og drakk brennivín af stút ásamt manni með blæðandi sár á augabrún. Læknadjöfull, sagði sjúklingurinn og hélt klósett- pappír yfir sárið. Um nóttina var komið með fingurbrotinn mann og fótbrotna stúlku. Hann geröi að fmgrinum en sendi stúlkuna grát- andi og veinandi með sjúkrabíl til Reykjavíkur. Hún hafði fest fótinn í hraungjótu og félagamir verið fullharðhentir þegar þeir drógu hana upp úr. Liðlega fimmtugur maður fékk sáran verk fyrir brjóst- ið. Hann hafði tekið þátt í dan- skeppni með nokkrum unghngum af miklum móði. Konan hans var ákaflega drukkin með útklíndan varalit um allt andlitið. Hún bæði grét og æpti meðan læknirinn sinnti manninum. Maðurinn jafn- aði sig fljótt eftir tvær nitroglycer- intöflur og staulaðist aftur í dans- inn. Undir morgun var komið með tvær unglingsstúlkur sem sögðu að þeim hefði verið nauðgaö í tjaldi á svæðinu. Þær höfðu sofnað út af en vaknað þegar einhver strákp- jakkur var kominn ofan á þær. Læknirinn hlustaði á frásögnina og reyndi að ræða við þær. En þær vora bæði drukknar og miður sín svo að hann náði htlu sambandi við þær. Hann fór að sofa um há- degi næsta dag og dreymdi að hann væri dáinn og kominn til vítis. Djöf- ullinn var í líki kynnisins á hátíð- inni og hann sagði hárri röddu. Ég dæmi þig fyrir misgjörðir þínar til að strita og þræla í sjúkraskýli á útihátíð til eilífðamóns. Ertu ekki í stuði? Hann vaknaði upp með andfælmn í svitabaði. LJÚFFENGIR KÍNVERSKIR RÉTTIR 15% KYN NINGARAFSLÁTTUR TILBOÐSRÉTTIR FRÁ 11-1 OG 5-7 Opið virka daga kl. 11-22 Opið um helgar kl. 11-23.30 (ATH. heimsendingarþjónusta.) KINAHOLLIN Sigtúni 3 sími 629060 Heilsugæslustöð á Eskifirði Tilboð óskast í byggingu og fullnaðarfrágang á húsi fyrir heilsu- gæslustöð á Eskifirði. Húsið er timburhús á steyptum grunni, ein hæð, 510 m2, og lítil rishæð, 150 m2. Verktími er til 15. apríl 1995. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík, til og með fimmtudeginum 27. ágúst nk. gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað kl. 11.00 f.h. þriðjudaginn 1. september 1992. IIMNKAUPASTOFIMUIM RIKISINS BORGARTUNI 7 105 REYKJAVIK úm verkleg próf í endurskoðun Samkvæmt reglugerð nr. 403/1989, um verkleg próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa, er fyrirhugað að haldaverkleg próftil löggildingartil endurskoðun- arstarfa. Ráðgert er að prófin verði haldin á tímabil- inu 16. nóvember til 11. desember 1992. Þeir sem hafa hug á að þreyta prófraunir þessar sendi Prófnefnd löggiltra endurskoðenda, c/o Fjármála- ráðuneytið, tilkynningu þar að lútandi fyrir 10. sept- ember nk. Tilkynningunnl skulu fylgja skilríki um að fullnægt sé skilyrðum til að þreyta prófraunina, sbr. lög nr. 67/1976, um löggilta endurskoðendur, með síðari breytingum. Prófnefndin mun boða til fundar með prófmönnum í september nk. Reykjavík, 7. ágúst 1992 Prófnefnd löggiltra endurskoðenda Framkvæmdastjóri Ráðstefnuskrifstofa íslands óskar að ráða framkvæmdastjóra til starfa. Starfið er laust strax eða samkvæmt nánara samkomulagi. Ráðstefnuskrifstofa islands var stofnuð af Ferðamálaráði Islands, Reykjavik- urborg, Flugleiðum hf., Félagi Islenskra ferðaskrifstofa og Sambandi veitinga- og gistihúsa. Tilgangur félagsins er: - Að koma upplýsingum um Island á framfaeri á alþjóðamarkaði og mögu- leika landsins til funda- og ráðstefnuhalds og móttöku hvataferða. - Að miðla á hlutlausan hátt upplýsingum um aðila að RSl og á sama hátt að miðla upplýsingum á hlutlausan hátt til sömu aðila. - Að auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar af móttöku erlendra ferðamanna, stuðla að faglegum vinnubrögðum allra þeirra er veita þjónustu við fundi og ráöstefnur. - Að afla tölfraeöilegra upplýsinga um ferðamál. Leitað er að drífandi og kröftugum einstakl- ingi, sem hefur góða markaðsþekkingu ásamt skipulags- og stjórnunarhæfileikum er nýtast í þetta nýja og krefjandi starf. Góð tungumálakunnátta er skilyrði. Nánari upplýsingar um starfið fást á skrif- stofu Guðna Jónssonar, Tjarnargötu 14. Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun ásamt starfsreynslu, sendist Guðna Jónssyni, ráðg- jöf og ráðningarjónustu, Tjarnargötu 14, Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst nk. Guðni Tónsson RÁÐCJÖF & RÁÐNl NCARÞJÓN LISTA TjARNARGÖTU 14,101 REYKJAVÍK, SÍMl 62 13 22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.