Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Síða 43
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992.
55
Hvers vegna stökkva menn fram ai
bryggju í blautbúningum eins og
menn nota gjarnan um borð í togur-
um? Þeirri spurningu er ekki auð-
velt að svara en þrír strákar í Grund-
arfirði gera það vegna þess að það
er „svo skemmtilegt". Þeir Svavar,
Gisli og Guðbjartur eru allir í grunn-
skólanum á staðnum og þeir sögð-
ust síður gera ráð fyrir að þessi
„íþróttagrein" næði almennum vin-
sældum. Þess má geta að fallið er
fimm metrar! DV-mynd ask
Skákþing ís-
lands verður
í Hafnarfirði
Keppni í landsliðsflokki á Skák-
þingi íslands verður í Hafnarfirði
dagana 17.-29. ágúst í boði bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar og með stuðn-
ingi íjölmargra hafnfirskra fyrir-
tækja. Keppendur verða að venju 12
og búist er við þátttöku stórmeistara.
Á sama stað mun einnig fara fram
íslandsmót kvenna. Það hefst 26. ág-
úst og lýkur 29. ágúst. Tefldar verða
5 umferðir. íslandsmót kvenna verð-
ur að þessu sinni opið, þ.e. aflar kon-
ur og stúlkur geta tekið þátt í því.
Tímamörkin í landsliðsflokki eru 2
klukkutímar á fyrstu 40 leikina og
20 leikir á hvern klukkutíma.
Ólafsflöröur:
Furðu gott at-
Helgi Jónsson, DV, Ólafefirði;
„Ástandið í atvinnumálum Ólafs-
firðinga er furðu gott um þessar
mundir, ekki síst ef miðað er við það
sem er að gerast víða um land. Hér
er nánast ekkert atvinnuleysi og hef-
ur varla verið að nokkru marki síðan
hraðfrystihúsiö hóf starfsemi sína
eftir sameininguna," segir Ágúst Sig-
urlaugsson hjá Einingu.
Fjórir voru á atvinnuleysisskrá í
síðustu viku en það er fólk sem getur
af einhverjum ástæðum ekki unnið
hvaða vinnu sem er. Ágúst segir að
engir skólakrakkar hafi leitað til
þeirra í sumar og er það óvenjulegt.
„Bærinn hefur gert vel við skóla-
krakka og margir fengu vinnu í sjó-
húsunum."
Leiðrétting
í afmælislista 7. ágúst var rangt
farið með nafn eins afmælisbamsins.
Viðkomandi heitir Guðlaug Dahl-
mann, f. 7.8. 1907, tfl heimilis að
Birkimel lOa, Reykjavík. Er hún hér
með beðin afsökunar.
_____________________________________________Fréttír
Bundin sparisjóðsbók í Búnaðarbankanum:
Tók út af 18 mánaða
bók eftir hálft ár
Eigandi svokallaðrar Metbókar hjá
Búnaðarbankanum, Vesturbæjarúti-
búi, varð fyrir þeirri reynslu að tekið
var út af bókinni eftir að hún hafði
verið bundin í aðeins sex mánuði.
Metbókarreikningur á að vera bund-
inn í eitt og hálft ár.
Bókin hafði verið stofnuð af manni
sem skuldaði eigandanum 8 milljónir
króna. Varð að samkomulagi milli
aðila að skuldarinn borgaði af láni
sínu á þann hátt að hann legði reglu-
lega inn á Metbókina. Skuldarinn
var jafnframt handhafi bókarinnar.
Hafði handhafmn lagt inn á bókina
80.000 krónur. Fyrir stuttu komst svo
eigandinn að því að helmingur þeirr-
ar fjárhæðar hafði verið tekinn út.
Höfðu starfsmenn Vesturbæjarúti-
búsins þó fuflvissað eigandann um
að ekki væri hægt að leysa út af bók-
inni fyrr en að þessum 18 mánuðnum
flðnum.
Er haft var samband við sparisjóðs-
deild aðalútibús Búnaðarbankans
fengust þær upplýsingar að afls ekki
væri hægt að taka út af bundnum
bókum fyrr en þær væru lausar,
nema hvað vextir slíkra bóka eru
alltaf lausir. Hægt er að gera undan-
tekningu á þessu ef eigandinn getur
sannað að hann þurfi á peningunum
að halda, er t.d. stórskuldugur.
„Það er til í því að það sé tekið út
af svona bókum með samkomulagi
við aðila innan bankans," sagði
Gunnar Kristjánsson, útibússtjóri
Búnaðarbankans á Vesturgötunni. „í
ákveðnum tflvikum er hægt að taka
út af þessum bókum. Það geta verið
nefndar afls konar ástæður sem við
getum ekki rætt á almennum nótum.
Það geta skapast aðstæður, sem við
vegum og metum hverju sinni, er við
leyfum úttekt af bókunum," sagði
Gunnar.
-GHK
Vegaframkvæmdir standa nú yfir á Hafnarfjarðarvegi milli Kaplakrika og Engidals. Um er að ræða eins kilómetra kafla. Verið er að breikka veginn þannig
að umferðareyjur koma í miðjuna með útskotum til að beygja til vinstri. Áfram verður ein akgrein í hvora átt. Verktaki er JVJ í Hafnarfirði og á verkinu að
vera lokið í september. Alls voru tæpar 28 milljónir króna veittar til framkvæmdanna. Einhverjir voru að vona að þetta væri byrjunin á tvöföldun Reykja-
nesbrautar en svo er ekki. DV-mynd Brynjar Gauti
Ólaf sf irðingum fjölgar
og skortur á húsnæði
Helgi Jónsson, DV, Ólafefirði:
Ólafsfirðingum hefur fjölgað tals-
vert á þessu ári. í desember 1991
voru þeir 1171 en samkvæmt síð-
ustu talningu voru þeir komnir vel
yfir 1200 og hefur fjölgað um 40 á
nokkrum mánuðum. Frá 14. des-
ember til 22. apríl fluttust 23 til
Ólafsfjarðar. Frá 22. apríl fluttust
36 manns í bæinn en 9 fóru burt.
Þá hafa fjölmargir tilkynnt aðset-
ursskipti.
Nú er mikfll skortur á húsnæði í
bænum og er það af sem áður var
að fólk auglýsti eignir sínar mán-
uðum saman án árangurs. Eftir-
spurnin er miklu meiri en fram-
boðiö. Einnig vantar leigmbúðir.
Tréver hf. er að byggja 8 kaupleigu-
íbúðir og munu þær væntanlega
bæta ástandið þegar þær verða
teknar í notkun.
Friðþjófsson en móðir hans, Sigriður Magrét Vigfúsdóttir, stóð við stjórnvöl-
inn. Ungi maðurinn heitir Magnús Þór Jónsson og við hlið hans er móðir
hans, Ásthildur Magnúsdóttir. Þau tvö eru búsett i Reykjavík. Sigríður
Margrét og Sindri Rafn eru hins vegar frá Rifi. DV-mynd ask
Kúluhraðahindrun á Nesinu:
Hættulegar og tor-
velda snjóhreinsun
- strætóbílstjórarkvarta
Haraldur Sigþórsson hjá umferð-
ardefld Reykjavíkurborgar sagði í
samtali við DV að stálkúlur, eiris og
þær sem settar hefðu verið á Nesveg
á Seltjamamesi, væru ekki til um-
ræðu varðandi hraðahindranir á göt-
um Reykjavíkur.
„Þetta er engan veginn heppileg
hraðahindrun. Bæði er hún óþægfleg
fyrir hjólafólk og torveldar snjó-
hreinsun. Við höfum fengið þær upp-
' lýsingar frá löndum í Evrópu að
slæm reynsla væri af kúlunum þar.
Reykvíkingar geta því verið rólegir,"
sagði Haraldur.
I frétt DV í gær um stálkúlurnar á
Nesvegi var haft eftir bæjartækni-
fræðingi Seltjarnarness að kúlurnar
væm algengar í Bandaríkjunum.
Fjöldi manns, sem farið hefur víða
um Bandaríkin, hafði samband við
DV og sagðist alls ekki hafa seð
hraðahindranir af þessu tagi vestra
- og varla séð hraðahindranir yfir-
leitt þar í landi.
Þegar málið var kannað nánar kom
í ljós kom að Prófun hf. í Reykjavík
flutti stálkúlumar inn frá Þýska-
landi. Kúlurnar em hins vegar fram-
leiddar í Bandaríkjunum. Auk Sel-
tjamamesskaupstaðar keypti
Reykjavíkurborg nokkrar stálkúlur
af Prófun fyrir nokkmm árum. Emb-
ætti gatnamálastjóra staðfesti orð
Haraldar um að ekki væri á döfinni
að setja kúlumar niður.
Strætisvagnabflstjórar hafa kvart-
að mikið undan stálkúlunum á Nes-
vegi. Bæjartæknifræðingur sagði við
DV að kúlumar yrðu á Nesvegi til
reynslu en líklega fæm þær ekki á
fleiri strætisvagnaleiðir. -bjb
HöfníHomafirði:
Hjón kaupa línuveiðara
Júlia Imsland, DV, Höfii:
Línuveiðarinn Stefán Þór RE 77
hefur verið keyptur til Hornaíjarðar
og em eigendur hjónin Edda Bjama-
dóttir og Jón Gunnar Helgason á
Höfn.
Stefán Þór er 271 tonns stálskip
smíðað 1982 í Noregi og Njarðvíkum.
Skipinu fylgir 600 tonna þorskígfld-
iskvóti. Edda og Jón Gunnar eiga
fyrir fiskiskipið Vísi SF.
Skipiö verður afhent nýju eigend-
unum 25. ágúst nk. og fer þá beint á
veiðar.