Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1992, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992.
Fréttir
Tvær álitsgerðir þriggja lögfræðinga um atkvæðagreiðslur á aðalfimdi Sameinaðra verktaka:
Atkvæðagreiðslur aðal-
f undar eru ógildanlegar
- löglegs aðalfundar krafist ekki síðar en 27. nóvember
í álitsgerðum þriggja lögfræðinga kemur fram að aðalfundur Sameinaðra verktaka I september sl. sé ógildanleg-
ur og stjórn félagsins umboðslaus.
Atkvæðagreiðslur, sem fram fóru
á aðalfundi Sameinaðra verktaka 18.
september sl., eru ógildanlegar að
mati lagaprófessoranna Þorgeirs
Örlygssonar og Stefáns Más Stefáns-
sonar. Að sömu niðurstöðu kemst
Gestur Jónsson hæstaréttarlögmað-
ur.
Fulltrúar þess hóps, sem lenti í
minnihluta á aðalfundinum, hafa því
sent stjóm Sameinaðra verktaka
bréf þar sem þess er krafist að lögleg-
ur aöalfundur verði haldinn í félag-
inu í síðasta lagi 27. nóvember nk.
og til hans veröi boðað með löglegum
hætti innan viku frá dagsetningu
bréfsins sem er 5. nóvember.
Umboðslaus stjórn
Bréfið undirrita Guðjón B. Ólafs-
son fyrir hönd Regins hf„ Sverrir
Sveinsson fyrir hönd Héðins hf„ Páll
Gústafsson, Gissur Símonarson og
Guðmundur Einarsson. í því segir
meðal annars: „í áhti prófessoranna
Stefáns og Þorgeirs kemur fram að
aliar atkvæðagreiðslur, sem fram
fóru á fundinum, eru ógildanlegar.
Þar af leiðandi em allar ákvarðanir
fimdarins það þegar af þeirri ástæðu
að fyrsta atkvæðagreiðslan var um
frestun fundarins. Af því má vera
ijóst að stjóm sú, er nú situr, er í
raun umboðslaus verði effir því
gengið og ákvaröanir hennar óskiúd-
bindandi fyrir félagið.“ Síðar í bréf-
inu segir: „Jafnframt kreíjumst við
þess að sú stjóm, sem nú situr í félag-
inu, taki engar ákvarðanir er varða
hagsmuni félagsins þann tíma sem
hún situr. Verði ekki orðiö viö þess-
um kröfum okkar munum við leita
þeirra leiða sem okkur era færar til
að hnekkja þeim ákvörðunum sem
teknar vora á aðalfundinum og sem
stjóm sú, sem þar var kosin, hefur
tekið síðan.“
Miklar deilur á aðalfundi
Miklar deilur urðu á aðalfundi
Sameinaðra verktaka. Jón Halldórs-
son var kosinn formaður stjómar,
meðal annars með atkvæðum Bygg-
ingafélagsins Brúar hf. sem hann fór
sjálfur með umboð fyrir. Tveir
stjómarmanna Brúar hf. veittu Jóni
umboð til að fara með atkvæði Brúar
á aðalfiindi Sameinaöra verktaka.
Veiting umboðsins var ekki tekin
fyrir á stjómarfundi í Brú enda vora
stjómarmennimir tveir staddir sinn
á hvorum staönum í Bandaríkjun-
um. Ákvörðun þessara tveggja
stjómarmanna Brúar var ekki borin
undir Einar Þorbjömsson, stjómar-
formann félagsins.
Einar mótmælti
Stuttu áður en aðalfundur Samein-
aðra verktaka átti að hefjast mætti
Einar Þorbjömsson á fundarstað og
gerði kröfu til þess aö sér yröu af-
hentir atkvæöaseðlar Brúar hf.
Þessu var neitaö vegna áðumefnds
umboðs sem Jón Halldórsson hafði
frá stjómarmönnunum tveimur.
Einar vildi ekki una þessum mála-
lyktum. Hann gerði kröfu til Thors
0. Thors, starfandi stjómarfor-
manns Sameinaðra verktaka, um að
sér yrðu afhentir atkvæðaseðlar
Brúar hf. þar sem engin ákvörðun
hefði verið tekin á stjórnarfundi í
Brú að Jón Halldórsson skyldi fara
með atkvæði félagsins á aðalfundin-
um. Við þessari kröfu Einars var
ekki oröiö.
Einar náði, eftir aö nokkuö var lið-
ið á aðalfundinn, sambandi við
Guðna Helgason, annan stjómar-
manna í Brú. Þar staðfesti Guðni við
Einar að hann myndi afturkaUa áður
gefiö umboð sitt til Jóns Halldórsson-
ar.
Áður en gengið var til atkvæða-
greiðslu um kjör fundarstjóra kvaddi
Einar Þorbjömsson sér hljóðs. Hann
vildi fá samþykki fimdarins tíl aö
rifta umboði stjómarmanna Brúar
til Jóns. Hann taldi Jón hafa misnot-
að sér aðstöðu sína sem lögmaöur
félagsins og blekkt stjómarmennina
til að veita sér umtoðið. Fleiri en
Einar létu í ijós efasemdir um laga-
legt gildi umboðsins tíl Jóns. Thor,
sem enn var við fundarstjóm, kvaö
upp þann úrskurð að umboðið væri
í alla staði löglegt.
Ósk um að fresta fundí
í fundargerð aðalfundar Samein-
aðra verktaka kemur fram að Baldur
Guðlaugsson hæstaréttarlögmaður
hafi talið úrskurð fundarstjóra rétt-
an en Láras Blöndal héraðsdómslög-
maöur hafi verið á þveröfugri skoð-
un. Páll Gústafsson og Guöjón B.
Ólafsson lögðu til að fundi yrði frest-
að um viku vegna þessa máls svo tóm
gæfist til að ganga úr skugga um
hver færi með atkvæði Brúar hf.
Skrifleg atkvæðagreiðsla fór fram
um þá tfilögu en hún var felld. Úrslit-
um í þeirri atkvæðagreiðslu réðu
atkvæði Brúar hf. sem Jón Halldórs-
son fór með samkvæmt úrskurði
fundarstjóra.
Að mati minnihlutahópsins er nið-
urstaða í álitsgeröum Gests og pró-
fessoranna tveggja staðfesting á því
að valdniðsla hafi átt sér stað á aðal-
fundinum eins og þeir hafa haldið
fram og héldu raunar strax fram á
fundinum sjálfum. Minnihlutamenn
nefna einnig aö meöan á formanns-
kjöri stóð barst inn afturköllun
Guðna á umboði sínu til Jóns Hall-
dórssonar sem fundarsljóri hafði áð-
ur lýst gilt. Þá kröfðust fulltrúar
minnihlutans þess að fundarstjóri,
sem þá var Pétur Guðmundarson
hrl„ krefðist þess að Jón Halldórsson
skilaði inn atkvæðaseðlum Brúar hf.
Þessu hafnaði Pétur. Bæði Gestur og
prófessoramir telja það til starfs-
skyldna fundarstjóra aö ganga eftir
atkvæðaseðlum þegar umboð er afit-
urkallað. Minnihlutahópurinn taldi
þetta einnig augljósa valdniöslu.
Samdóma álit í greinar-
gerðum lögfræðinganna
Vegna þessarar niðurstöðu fór Lár-
us L. Blöndal hdl. fram á það við
Gest Jónsson hrl. annars vegar og-
prófessorana Stefán Má Stefánsson
og Þorgeir Örlygsson hins vegar, sem
óvilhalla aðila, að þeir segðu álit sitt
á eftirtöldum áhtaefnum. í fyrsta
lagi: Geta einstakir stjómarmenn í
hlutafélagi veitt umboð til að fara
með atkvæði félagsins á aðalfundi í
öðra félagi, án þess að slíkt hafi ver-
ið samþykkt á sljórnarfundi, jafnvel
þótt meirihluti sljómarmanna standi
að slíkri umboðsveitingu? í öðra lagi:
Er fundarstjóra á aðalfundi í hlutafé-
lagi heimilt og jafnvel skylt að krefja
umboðsmann hluthafa um þá at-
kvæðaseöla sem hann fékk afhenta
út á umboð sitt, ef umboðið qr aftur-
kallað meðan á fundinum stendur
og krafa um slíkt kemur fram á fund-
inum?
Niðurstaða Gests var sú í fyrsta
lagi: .. að yfirlýsingar einstakra
stjómarmanna í hlutafélagi, sem
gefnar era utan stjómarfunda, um
að þeir ráðstafi málefnum félagsins
með tilteknum hætti, teljast ekki lög-
mætar ákvarðanir félagsstjórnar-
innar.“ Um afturköllun umboðs segir
Gestur: „Berist afturköllun umboðs
til fundarstjóra hluthafafundar miss-
ir umboðsmaðurinn heimild þá sem
felst í umboðinu frá og með þeirri
stundu. Ráðstafanir, sem hann hefur
gert í krafti umboðsins til þess tíma,
halda gildi sínu.“
Niðurstaða prófessoranna tveggja,
Stefáns Más Stefánssonar og Þor-
geirs Örlygssonar, viö sömu spum-
ingum er sú aö fundarstjóra hafi
borið að úrskurða að Jón Halldórs-
son færi ekki með umboð Brúar hf.
á aðalfundinum. Þar sem það var
ekki gert séu þær atkvæðagreiðslur,
sem á eftir fóra, ógildanlegar. „Telj-
um við engu máli skipta í því sam-
bandi þótt stjórnarformaður Bygg-
ingafélagins Brúar hf. hafi síðar á
sama aðalfundi lýst því yfir að hann
styddi Jón Halldórsson hrl. til sljóm-
arformennsku í Sameinuðum verk-
tökum,“ segir í niðurstöðu prófessor-
anna. Um afturköllun umboðs, sem
berst inn á hluthafafund, segja pró-
fessorarnir að umboði verði að sjálf-
sögðu ekki beitt eftir það tímamark
og hvíli sú starfsskylda á fundar-
stjóra að sjá til þess að afturköllunin
sé virt. Athafnir umboðsmannsins,
sem fram fóru áður en afturköllun
barst, standist ef um gilt umboð var
að ræða.
Tekist á um verðmæti, völd
og félagsslit
Ljóst er að tvær svipað stórar
blokkir takast á um mikil verðmæti
og völd sem fylgja eignum Samein-
aðra verktaka. Talið er að beinhörð
peningaeign Sameinaðra verktaka
nemi nær tveimur mfiljörðum króna,
fyrir utan fasteignir. Páll Gústafsson,
fulltrúi þeirra sem undir urðu á aðal-
fundinum, sagði í gær að málið sner-
ist um hvaö gera ætti við þessi verð-
mæti. Ekki væri spurning um að
þessi arður hefði orðið til og það með
lögmætum hætti. Spumingin væri
hver ætti að njóta. Ætti fámennur
hópur að nýta hann sem bakhjarl í
valdatafli viðskiptalífsins eða eiga
allir hluthafar að njóta góðs af sem
hefid? Sameinaðir verktakar era
ekki með neina starfsemi. Upphaf-
legu markmiði félagsins er lokið. Því
sé rétt, að mati Páls, að fara að huga
að því að slíta félaginu.
Þjóðarhagur að greiða út
hlutaféð
Páll sagði að þar sem starfsmaöur
Sameinaðra verktaka væri 'aðeins
einn þá hefðu sht félagsins engin
áhrif á atvinnustarfsemi á Suður-
nesjum. Raunar mætti Uta svo á að
peningamir, sem bundnir era í félag-
inu, væra þarflausfr fyrir félagið
nema þefr væru greiddir út. Menn
væra tilbúnir að axla þær skyldur
sem því fylgdu, meðal annars með
skattgreiðslum. Ríkið fengi þannig til
sín miklar upphæðir sem til dæmis
mætti nýta til atvinnuuppbyggingar
á Suðumesjum. Peningamir, sem
hluthafar fengju í sinn hlut, nýttust
síðan úti í samfélaginu.
Fráleitt er einnig, að mati Páls, að
umræður um Sameinaða verktaka
og meðferð hlutafjár félagsins hafi
haft áhrif á ákvarðanir bandarískra
stjómvalda vegna vamarfram-
kvæmda á íslandi.
Sameinaðir verktakar eiga 32 pró-
sent í íslenskum aöalverktökum.
Ríkið á 52 prósent og Reginn 16 pró-
sent. Áður en ríkið jók hlut sinn í
íslenskum aðalverktökum áttu Sam-
einaöir verktakar 50 prósent í félag-
inu og Reginn 25 prósent.
-JH
Alþjóðlegur leiðangur til Islands næsta ár
„Einn athyglisverðasti árangur-
inn í vísindaleiðangrinum í ár var
aö við gátum tímasett merki um
ísöld fyrir 2,6 milljónum ára á norð-
urhveli jarðar," segir Gunnar Ól-
afsson, doktor og sérfræðingur í
steingerðum kalksvifþörungum.
Hann tók þátt fyrir íslands hönd í
alþjóðlegu samstarfi um hafs-
botnaboranir á Kyrrahafi í sumar.
„Við vorum mn borð í rannsókn-
arskipi í tvo mánuði og sigldum
þvert yfir Kyrrahafið frá Japan tfi
Kanada," segir Gunnar. Með hon-
um um borð í JOIDES Resolution
vora 25 sérfræðingar á öllum svið-
um jarövísinda. Gimnar er fyrsti
íslendingurinn sem tekur þátt í
svona leiðangri.
„Tilgangurinn með svona leið-
öngrum er aö kanna loftslagssögu
á norðurhveli jarðar síðustu 65
milljón árin. Rannsóknimar geta
hjálpað til að skilja þær breytingar
sem eiga sér stað núna og sjá fyrir
þær sem verða í framtíðinni. Set-
lagasýni era rannsökuð um borð
og grófar niðurstöður skráðar. Það
þótti sérstaklega merkfiegt í þess-
um leiðangri aö við rákumst á
hreinan kopar í djúpsjávarsetri.“
Gunnar vinnur nú ásamt frönsk-
um vísindamanni að áframhald-
andi skýrslugerð um árangur leið-
angursins og hefur hann aðstöðu á
Hafrannsóknastofnun.
Rannsóknaskipið JOIDES Resol-
ution er úti á sjó allan ársins hring.
í byijun næsta árs siglir skipið um
Atlantshaf og verða meðal annars
stundaðar rannsóknir norðaustan
við ísland. Skipið kemur til Reykja-
víkur í september. Næsta haust
verður svæðið suöaustur af Græn-
landirannsakað. -IBS