Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1992, Síða 13
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992.
13
Karl og Díana:
„Þið ættuð að fara í ferðalag, til
Austurlanda eða eitthvað svoleiðis,"
segir drottning við son sinn og hann
hlýðir eins og alltaf. „Já, mamma,
við skulum fara,“ segir hann.
Þannig ímynda menn sér samtal
Karls Bretaprins og Elísabetar móð-
ur hans áður en bresku ríkiserfingj-
amir lögðu upp í for til Suður-Kóreu
í vikunni. Að vísu eiga höfðingja-
heimsóknir sér lengri aðdraganda en
samt er það sannleikskom í sögvmni
að drottning sá að ferð til fjarlægs
lands gæri orðið til að bæta sambúð
Karls og Díönu konu hans.
Drottningu varð ekki að þessari
ósk sinni fremur en í öðrum fjöl-
skyldumálum síöustu misserin.
Ferðin til Suður-Kóreu átti aö sanna
að Karl og Díana hefðu náð sáttum
og gestgjafamir höguðu dagskránni
svo að þau gætu verið sem mest sam-
an. Bresk blöð segja að það hafi ver-
ið gert aö kröfu drottningar.
Díana aldrei áður
svo raunamædd
Aðstæður vora því allar ákjósan-
legar til að ríkiserfingjamir gætu
sannfært þegna sína og umheiminn
um að þau hjónin væra sátt og skiln-
aður ekki á næsta leiti. Það eina sem
fór úrskeiðis var að þau vora bæði í
fýlu alla ferðinna. Það kemur að visu
ekki á óvart þegar Karl á í hlut því
hann er alltaf eins og í fýlu en Díana
er vön að vera brosmild og kát.
Nú blasti nístingskuldi við úr svip
Díönu þegar Karl var nærri. Allt
annað var uppi á teningnum þegar
hún var ein með heimafólkinu. Þá
glaðnaði yfir henni og í nærvera
bama var hún jafn hress og á árum
áður.
Enginn efast lengur um að hjóna-
bandi Karl og Díönu er í raun lokið.
Þeim líður illa í návist hvort annars
og enginn undrast þótt Díana leiti sér
félagsskapar utan hjónabandsins.
Það gerir. Karl líka þótt ekki hafi
komist í hámæli.
Sagan um samband Díönu og öku-
þórsins James Gilbey þótti ýkju-
kennd. Margir töldu að upptökur af
símtölum hennar við James væra
falsaðar. Þar grét hún sáran yfir ör-
lögum sínum, hallmælti ráðríkri
tengdamóður og leiðinlegum eigin-
manni. Nú er eins og þessi orð fái
staðfestingu í raunalegum svip henn-
ar í Kóreuferðinni.
Elísabet drottning
leitarnýiTaráða
Karl og Díana era komin heim og
nú bíður það drottningar og ráðgjafa
hennar að finna upp ný ráð til að
bjarga hjónabandi ríkiserfingjanna.
Sjálf hafa þau engan áhuga á því.
Skilnaður væri löngu afstaðinn ef
ekki vildi svo til að þau eiga að erfa
lönd og ríki. Skilnaður ríkiserfingja
er reginhneyksli sem drottning getur
ekki sætt sig við.
Hún óttast að verða síðust ætt-
menna sinna á valdaátóli í Buckhing-
hamhöll. Það er sótt að konungdæm-
inu og eftir síðustu hneykslismál
verður hún trúlega að gefa eftir
skattfrelsi sitt og fóma opinberam
lifeyri til margra í fjölskyldunni. í
þessari baráttu skipta tilfinningar
Díönu htlu máli að því er virðist. Þó
kann það vera aö drottning sé ekki
eins harðlynd og af er látiö.
Líklegast er að Elísabet verði að
bíta í það súra epli að enn eitt af
bömum hennar skiiji. Anna er þegar
skilin við Mark Phiilips og Sara
Ferguson hlaupin frá Andrési þótt
hann bíði að sögn enn og voni aö hún
komi heim. Og nú er röðin komin að
Karh. Eina huggunin er að Játvarður
er ókvæntur og skilur því ekki. -GK
Karl og Dlana voru allt annað en blið á svip þegar þau komu fram saman f Suður-Kóreu. Dfana vlrti mann sinn ekki viðlits heldur beit saman tönnum og
horfðl kuldalega út f fjarskann. Trúlega er þetta með neyðarlegustu oplnberu heimsóknum sem sögur fara af. Slmamynd Reuter
V bíður þér í
afhnælisvéislu!
MWVIKUiraGr FIMMTUDAG/. FOSniDAG^G IAUGARDAG
■SBgEP'ia^RABstj S^ÍGfeí/éh m LSG’O^þESSA DAGA ^
Mikio fmAL vofciM mM
)LFTEPPI - GÓLFDREGLAR VEG JdÚKAR 5fcm á KVERKLISTAR 6 serðir
T GOLFTEPPI 2m-4m RIMlKGARDlNll)R plast-ál1! LOFTRÓSIR 14 gerðir
)HNSparket GÓlFDÚKAR 2m-3m-4m breivðir ROWNEY Listmalaravö
GGFODUR VILLEROY OG BOCH gólfflísar MÁLNINGAVÖRUR
Grensásveg 11 ■ Sími 813500
AF OLLUM VORUM