Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1992, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992.
Fríða og dýrið frumsýnd næstu helgi:
Var tilnefnd til fjölda
óskarsverðlauna
Teiknimyndin Fríða og
dýriö, Beauty and the Beast,
verður frumsýnd í Bíóhöll-
inni um naestu helgi. Þessi
teiknimynd þykir ein sú
besta sem komið hefur úr
smiðju Walt Disney-manna
enda var hún tilnefnd til
fjölda óskarsverðlauna, þar
á meðal sem besta kvik-
myndin. Er það í fyrsta
skipti sem teiknimynd er til-
nefnd sem besta kvikmynd-
in á óskarsverölaunahátíð.
Fór svo að myndin hlaut
óskarsverðlaun fyrir tónlist
og lag.
Sögusvið myndarinnar er
Frakkland á síðari hluta 19.
aldar. Myndin fjallar um
stúlku, BeUe, sem leitar
skjóls frá veruleikanum í
bóklestri. Hún lendir í klóm
dýrsins inni í kastala þess.
Kemst hún smám saman að
því að dýriö er í raun prins
í álögum. En stúlkan á sér
aðdáanda í þorpinu sem
-50 meðlimum Krakkaklúbbs DV boðið á frumsýninguna
Teiknimyndin Fríða og dýrið veröur frumsýnd um næstu helgi að viðstöddum 100 krökkum sem verða þar á vegum Krakka-
klúbbs DV. Fríða og dýriö munu koma til landsins í tilefni frumsýningarinnar.
verður afbrýðisamur og fer
þangað fylktu liði. Best er
að segja sem minnst af sögu-
þræðinum tU aö spUla ekki
fýrir bíógestum. Myndin
þykir höfða jafnt tU bama
sem fuUorðinna og er að
sögn mjög spennandi.
I tílefni frumsýningarinn-
ar munu Fríða og dýrið
koma tíl landsins. Dýrið er
yfir tveir metrar á hæð og
ætti þ ví ekki að fara framhj á
neinum sem heimsækir
Kringluna á frumsýningar-
daginn eða Bíóhöllina.
Meðlimir í Krakkaklúbbi
DV tóku þátt í samkeppni
sem fólst í að lita mynd af
Fríðu og dýrinu sem birtist
í blaðinu. 50 bestu myndirn-
ar voru valdar úr og fengu
Ustamennirnir senda tvo
boðsmiöa hver. Fara því 100
krakkar á vegum Krakka-
klúbbs DV á frumsýningu
Fríðu og dýrsins.
-hlh